Fréttabréf - 01.07.1995, Qupperneq 1

Fréttabréf - 01.07.1995, Qupperneq 1
Ái. ÁtltAf Tbrku* tfCf. fcmttliMtt' Uytnftff Su:5513725, ju: 5527560 Úthvílt fréttabréf og óþreyttar konur Fréttabréf Kvennalistans hefur nú göngu sína á ný eftir langt og gott sumarfrí. í milliu'ðinni hefur það þó náð að skipta um ábyrgðarmann en þar sem KrisU'n Halldórsdóttir hefur í nógu að snúast inni á þingi var ákveðið að Áslaug framkvæmdastýra tæki við verkinu af henni. KrisUn er líka örugglega búin að gera skyldu sína við fréttabréfið — og gott betur! Fréttabréfið mun seint geta þakkað henni það. Kvennalistakonur um allt land hafa reyndar sjálfar verið í sínum sumar- fríum og starfið þar af leiðandi líka en hvemig er það: Er ekki kosningaþreytan um það bil að líða úr limunum? Landsfundur Landsfundur Kvennalistans verður haldinn 10.-12. nóvember. Reykjanesangi sér um fundinn að þessu sinni, í samstarfi við Reykjavíkuranga. Landsfundamefnd skipa Anna Ólafsdóttir Bjömsson og Guðrún Sæmundsdóttir fyrir Reykjanesanga og Steinunn Valdís Óskarsdóttir fyrir Reykjavíkuranga. Aðrir angar þurfa að skipa tengla við nefndina hið snarasta. Fundurinn verður haldinn fyrir utan þéttbýlið en þó ekki langt frá höfuðborgarsvæðinu. Reynt verður að halda verðinu í lágmarki til þess að sem flestar sjái sér fært að mæta. Konur eru hvattar til að byrja strax að búa sig undir landsfundinn.

x

Fréttabréf

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf
https://timarit.is/publication/1209

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.