Fréttabréf - 01.08.1995, Side 2

Fréttabréf - 01.08.1995, Side 2
20 ár frá Kvennafrídeginum Þann 24. október verða 20 ár liðin frá upphafi Kvennaáratugar Samein- uðu þjóðanna sem íslenskar konur hófu svo eftirminnilega með því að leggja niður störf í heilan dag. Þetta eru merkileg U'mamót og upp á síðkastið hafa konur í ýmsum félagasamtökum komið saman til þess að undirbúa hátíðahöld hér í Reykjavík. Okkar fullmíi í þessum hópi hefur verið Helga Garðarsdóttir. Hópurinn hefur skipað minni hóp til þess að bera hitann og þungann af skipulagningunni í samstarfi við leikkonur og aðra flytjendur, þær Bryndísi Hlöðversdóttur, Sigríði Kristinsdóttur og Steinunni V. Óskarsdóttur. Að svo stöddu er ekki hægt að gefa út nákvæma dagskrá en um kvöldið verður samkoma í íslensku óperunni með háríðairæðu, leikþáttum og öðrum skemmúlegum og uppbyggjandi dagskrárliðum. Hátíðahöldin einskorðast ekki við suð-vesturhomið því konur víðar um landið eru að undirbúa daginn einsog t.d. kemur fram í angafréttum þessa tölublaðs. Þingflokksfréttir 120. löggjafarþing íslendinga var sett mánudaginn 2. október. Okkar konur verða áfram í sínum nefndum, Krisu'n Ástgeirs í félagsmálanefnd, sennilega áfram sem formaður, Guðný í allsherjar- og mentamálanefnd- um og Kristín Halldórs í fjárlaga- og umhverfísnefndum. Kristín Ást- geirs hefur haft áheymaraðild að heilbrigðis- og tryggingamálanefnd og efnahags- og viðskiptanefnd, Guðný að utanríkismála- og sjávarútvegs- nefndum og Kristín Halldórs að samgöngu- og iðnaðamefndum. E.t.v. breytist áheymaraðildin eitthvað þegar ljóst verður hvemig fundaskipu- lagið verður. í framhaldi af þingsetningunni var fyrsti formlegi þing- flokksfundurinn haldinn. Guðný tók við þingflokksformennskunni af Kristínu Ástgeirs og KrisUn Halldórs verður varaformaöur þetta árið. GengiB var frá ráðningu starfskonu þingflokksins. Umsækjcndur um starfið vom 22, þar af einn karlmaður, og var úr vöndu að ráða þar sem umsækjendur vom hver öðrum frambærilegri. Stefanía Óskarsdóttir ráðin Stefanía er doktor í stjómmálafræði og meðlimur í Kvennalistanum. Hún tók m.a. þátt í stefnuskrárvinnunni fyrir síðustu kosningar svo hún er ekki með öllu ókunnug Kvennalistakonum. Óskum við henni til hamingju með nýja starfið um leið og öllum öðrum sem um það sóttu em færðar þakkir fyrir áhugann. Stefanía verður í 60% starfi en þar sem hún er rétt að koma sér fyrir á skrifstofunni verður ekki hægt að 2

x

Fréttabréf

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf
https://timarit.is/publication/1209

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.