Fréttabréf - 01.09.1995, Síða 4

Fréttabréf - 01.09.1995, Síða 4
Frá Austurlandsanga Það var vonskuveður og við konur þrælkvefaðar sem ætluðum að standa að háu'ðahöldunum. Konur sem ætluðu að koma langt að tóku að boða forföll, en við Gwendolyn stússuðum ýmislegt, fundum til kaffibolla, dúka, veitingar og fleira. Á slaginu 5 birtust fyrstu gestimir í Ásbrún, þá var Gwendolyn rokin í sturtu, en ég var að hræra í pastasósu og huga að chili con came, sem maðurinn minn lagði til. Það var kaffihúsa- stemning í þessu vinalega gamla húsi. Þar sem hér er ekkert kaffihús var bara það alveg sérstakt. Gwendolyn birtist í fullum skrúða Maori- kvenna, konur skröfuðu yfir kaffibollum og ungar stúlkur spiluðu á ýmis hljóðfæri, sungu og lásu ljóð. Sumar þeirra sveipuðu sig svuntum og gengu um beina óumbeðið, sjálfum sér og öðrum til óblandinnar ánægju. Vera má að kvennafrídagurinn taki á sig aðra merkingu í hugum þeirra. Sjáum til. Klukkan 7 mátti sjá konur í upphlut, færeyskum búningi, maoripilsi og öðrum klæðnaði fá sér chili con came, og prest mjög svo bamshafandi rjúka á milli borða að spyrja hver ætlaði nú að gera hvað í messunni, á meðan ein okkar spilaði og söng inni á kontór Gwendolyn og bar undir mig ýmis gítargrip við Áfram stelpur og önnur góð lög. Svo var lagt á brattann í slabbinu og gengið til kirkju kl. 8. Hún var full, svona 90 konur, þar með taldar fræknar konur frá Egilsstöðum, sem buðu veðrinu birginn, en héldu svo rakleitt heim í Fagradalinn. Slundin var yndisleg, meiri söngur, tónlist, ritningarlestur um konur í Biblíunni, söngur um Mirjam, frekar en Móse bróður hennar, sem frelsaði ísrael frá Faraó. Þá var mál að renna sér fótskriðu niður brekkuna og snæða herlega tertu Gwendolyn, sem er jú atvinnukona í háúðaskreytingum. Hún endurtók Maoriathöfn til að bjóða allar velkomnar. Við sungum rauðsokkulögin og skemmtum okkur þar U1 allir fóru til síns heima. Við bjuggumst ekki við slíkri þátttöku í okkar villtustu draumum, erum því sælar og hyggj- um á eitthvað sniðugt í framhaldi. Bestu kveðjur, Yrsa. Frá Norðurlandsanga eystra Á norðurlandi eystra gengur lífið sinn gang. 24. október var haldinn há- úðlegur og komu um 140 konur í Deigluna á Akureyri og áltu ánægju- lega stund saman. Þar var í forsvari okkar ágæta Ragnhildur Vigfús- dótúr (Dússa) og stjómaði hún af mcðfæddum skörungsskap. Hyggjum við gott til samstarfs við nýjan jafnréttisfulltrúa á Akureyri. Við emm

x

Fréttabréf

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf
https://timarit.is/publication/1209

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.