Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.10.2015, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.10.2015, Blaðsíða 48
M aður fær einhvern verk í magann við að lesa þetta leikrit og ef vel tekst til á sú tilfinning að sitja eftir hjá áhorfandanum að sýn- ingu lokinni,“ segir Atli Rafn Sigurðarson um Heimkomuna eftir Nóbelsverðlaunaskáldið Harold Pinter, sem hann leikstýrir í Þjóðleik- húsinu og frumsýnd verður á Stóra sviðinu í kvöld, laugardag, kl. 19.30. Verkið fjallar um óvænta heimkomu eða heimsókn heimspekikennarans Teddy og eig- inkonu hans Ruthar á æskuheimili eigin- mannsins. Þau hafa frá því að þau giftu sig sex árum áður búið í Bandaríkjunum þar sem hann hefur kennt og hún alið manni sínum þrjá syni. Í heimsókninni uppgötvar Ruth áð- ur óþekktar hliðar á eiginmanni sínum þegar hún kynnist fjölskyldu hans sem saman- stendur af föður hans, Max, sem er fyrrver- andi slátrari, föðurbróður hans, Sam, sem er bílstjóri, og bræðrum hans tveimur, hór- mangaranum Lenny og boxaranum Joey. Þessir óhefluðu karlmenn taka að bítast um athygli Ruthar og samskiptin á heimilinu verða sífellt ofsafengnari. Íslensk þýðing leik- ritsins er í höndum Braga Ólafssonar, leik- mynd gerir Börkur Jónsson, búninga hannar Helga I. Stefánsdóttir og um tónlist sér Ein- ar Scheving. Í hlutverki ættföðurins Max er Ingvar E. Sigurðsson, syni hans þrjá, þá Lenny, Joey og Teddy, leika Björn Hlynur Haraldsson, Snorri Engilbertsson og Ólafur Egill Egilsson, en Ruth, eiginkonu Teddy, leikur Vigdís Hrefna Pálsdóttir. Eggert Þor- leifsson fer með hlutverk Sam. Valdabarátta kynja og kynslóða Að sögn Atla Rafns er hugmyndin að upp- færslu Heimkomunnar tilkomin frá Ara Matt- híassyni leikhússtjóra. „Þetta er hugmynd sem hann hefur lengi gengið með í maganum. Ég þekkti verkið fyrir en þegar Ari stakk upp á þessu sem leikstjórnarverkefni fyrir mig las ég verkið aftur og þá varð ekki aftur snúið,“ segir Atli Rafn og heldur áfram til út- skýringar: „Verkið hefur sterk áhrif á mann, sem erfitt er að setja fingur á. Áhrifin eru bæði mjög vitsmunaleg og líka tilfinningaleg. Svo er þetta óvenju vel skrifað leikrit. Sam- tölin eru frábær og allar persónur verksins mjög vel mótaðar. Allt sem gerist og sagt er í leikritinu er á einhvern hátt ónotalegt sam- tímis því sem þetta er óþægilega fyndið,“ segir Atli Rafn og tekur fram að hann nálgist verkið samt alls ekki eins og gamanleik. „Fyndnin liggur í því að maður kannast við þessar óbærilega óþægilegu aðstæður,“ segir Atli Rafn og ber þýðanda vel söguna. „Við Bragi höfum leitast við að hafa þýðinguna frekar harðari en hitt. Með því á ég við að við höfum lagt áherslu á að vinna út þessa til- finningu fyrir hörðum samskiptum og reynt að kanta þýðinguna og orðavalið sjálft í stað þess að mýkja það. Þetta er grjóthart leikrit og orðanotkun Pinter sjálfs er grjóthörð og gengur fram af manni. Við drögum þannig fram þá dökku tóna sem í verkinu eru.“ Var eitthvað sem kom þér á óvart við endurlestur verksins? „Það kom mér á óvart hvað persónur verksins ganga langt í valdabaráttu sinni, því verkið lýsir valdabaráttu kynslóða og kynjanna. Það kemur á óvart hvað persónur eru vægðarlausar bæði í orðum og gjörðum,“ segir Atli Rafn og bætir síðan hugsi við: „En þetta er bara sannleikurinn. Fólk hagar sér virkilega svona. Það er sjokkið sem maður fær þegar maður les verkið eða sér það – og þess vegna hlær maður.“ Heimkoman var frumsýnd í London fyrir rétt rúmum fimmtíu árum eða í júníbyrjun 1965. Finnst þér leikritið hafa elst vel? „Já. Það hefur elst mjög vel, sem kemur kannski á óvart. Manni skilst að viðtökur við verkinu hafi verið rosalegar á sínum tíma og margir hneykslast óskaplega mikið. Þarna er auðvitað fjallað um stöðu konunnar á heim- ilinu, en Ruth er sólin sem allt hverfist um. Á þessum tíma var hlutverk konunnar skil- greint nánast alfarið inni á heimilinu, en um þetta leyti var að verða til ákveðin kvenna- bylting. Allt í okkar menningu gengur í bylgjum og er einhvers konar svar og and- svar og þetta leikrit er ekkert öðruvísi en önnur menningarleg fyrirbæri. Það er klárt svar við einhverju sem var að gerast í sam- tímanum þá, en er algjörlega upp á ten- ingnum hjá okkur enn í dag. Við erum enn að rembast við að skilgreina stöðu kynjanna og gengur erfiðlega að ná einhvers konar jafn- vægi. Verkið talar mjög sterkt inn í samtím- ann. Í því liggja líka gæði verksins og kannski líka harmurinn, því fátt hefur breyst. Kannski mun nútímaáhorfandinn fagna í lok- in meðan áhorfandinn 1965 stóð upp snar- hneykslaður og yfirgaf leikhúsið. Við eigum kannski auðveldara með að skilja Ruth í dag en þegar verkið var frumsýnt.“ Margir myndu segja að útfærslan á Ruth sé lykilatriði í því hvernig maður nálgast verkið. Hver er þín nálgun á Ruth? „Þetta er auðvitað ekki bara mín nálgun, heldur Vigdísar og alls leikhópsins. Ég hefði getað farið þá leið með mínu samstarfsfólki að ákveða alla hluti eins og sumir leikstjórar gera, en ég hef ekki áhuga á að vinna í þann- ig leikhúsi – hvorki sem leikari né leikstjóri. Okkar leið og leit hefur snúist um það að finna Ruth marga fleti, frekar en einhvern einn. Menn hafa löngum tekist á um það að skilgreina konur í mæður, meyjar og hórur. Við hefðum getað farið eina af þessum leiðum með Ruth. En ég held að það sé áhugaverð- ara og flóknara að sjá Ruth á sviðinu sem gengst við öllum þessum hlutverkum. Enda hlýtur sú manneskja sem nær valdi á þessu þrennu að hafa ansi mikil ítök og völd á heimilinu og samfélaginu. Leiðin að Ruth hef- ur, án þess að ég vilji gefa of mikið upp, ver- ið sú að gera hana margbrotna frekar en ein- falda.“ Nú er þetta mjög karllægur heimur sem birtist í verkinu. Er Ruth ofurseld feðra- veldinu eða sérðu hana sem sterka konu? „Það er algjörlega klárt að hún er sú sem tekur völdin í lok leikritsins. Það verður að vera algjörlega skýrt. Ruth er ekki fórnar- lamb. Hún hefur vissulega verið í aðstæðum þar sem hún hefur verið fórnarlamb ömur- legra aðstæðna og hefur hugsanlega þurft að selja sig á einhverjum tíma áður en hún kynntist Teddy. Það má segja að hún sé fórn- arlamb leiðinlegs hjónabands, því fórnar- lömbin geta verið margskonar. En svo brýtur hún af sér þær viðjar og tekur stjórnina í eigin lífi og á þessu heimili tengdaföður síns. Aðstæður verksins eru flóknar og það er ekki endilega auðvelt að skilja ákvörðun Ruthar, en hún tekur samt ábyrgð og stjórn á eigin lífi þar sem hún hefur verið stjórnlaus hingað til. Mér finnst hún undir lok verksins standa uppi sem manneskja sem getur gert það sem hún vill, en lýtur ekki lengur stjórn karl- manna.“ Mistök að gefa of mikið upp Hvað var vandasamast í uppsetningar- vinnunni? „Vandasamast er að finna jafnvægið milli hins sagða og ósagða. Verk Pinters eru full af undirtexta og stöðugt er verið að gefa ýmis- legt í skyn um persónur. Það eru mistök að gefa of mikið upp við áhorfandann. Ég held að kúnstin við að nálgast Pinter snúist frem- ur um að halda í þetta óræða og skilja áhorf- endur eftir í þeirri angist að reyna að skilja persónur og gjörðir. Pinter sagði sjálfur að verk hans væru ná- kvæm raunsæisstúdía, en ekki absúrd eða óhefðbundin leikrit. Hann vildi meina að meistarar raunsæisins á borð við Henrik Ib- sen hefðu ekki verið að skrifa raunsæisleg leikrit, því fólk hagar sér ekki svona vel formað eins og sjá má í þeirra leikritum. Það ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ FRUMSÝNIR HEIMKOMUNA Í KVÖLD „Þetta er grjót- hart leikrit“ ATLI RAFN SIGURÐARSON LEIKSTÝRIR HEIMKOMUNNI EFTIR HAROLD PINTER. HANN SEGIR LYKILATRIÐI AÐ VINNA MEÐ GÓÐU FÓLKI OG MYNDI FREKAR VILJA SKÚRA SVIÐIÐ Í GÓÐUM FÉLAGSSKAP, EN LEIKA HAMLET MEÐ EINHVERJUM SEM HANN LANGAR EKKI AÐ VINNA MEÐ. Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is * Ég hefði getað fariðþá leið með mínusamstarfsfólki að ákveða alla hluti eins og sumir leikstjórar gera, en ég hef ekki áhuga á að vinna í þannig leikhúsi – hvorki sem leikari né leikstjóri. 48 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11.10. 2015 Duo Harpverk, sem skipað er þeim Katie Buckley hörpuleikara og slagverksleik- aranum Frank Aarnink, halda ásamt Áshildi Haraldsdóttur tónleika í 15:15 tónleikasyrp- unni í Norræna húsinu á morgun, sunnudag- inn, klukkan 15.15. Yfirskrift tónleikanna er „Frumflutningar“ en á tónleikunum munu þremenningarnir frumflytja verk eftir Jónas Tómasson, banda- rísku tónskáldin Jeffrey Mumford og Marti Epstein, Simon Mawhinney frá Írlandi og Gyula Csabo frá Ungverjalandi. Allt eru þetta verk skrifuð sérstaklega fyrir þau, og sum að frumkvæði tónskáldanna eftir að hafa heyrt tónleika með Duo Harpverk. DUO HARPVERK OG ÁSHILDUR FRUMFLYTJA Þau Katie Buckley og Frank Aarnink munu ásamt Áshildi Haraldsdóttur frumflytja verk. Áhugamannasveitin Nordsjællands Sinfonia leikur hér á tvennum tónleikum í næstu viku. Áhugamannahljómsveitin Sinfóníuhljómsveit Norður-Sjálands, Nordsjællands Sinfonia, verður á ferð um Ísland næstu daga og kem- ur fram á tvennum tónleikum, þriðjudaginn 13. október í Neskirkju í Reykjavík og 15. október í Reykholtskirkju. Hvorir tveggja tónleikarnir hefjast klukkan 20. Í Nordsjællands Sinfonia er um sextíu fast- ir hljóðfæraleikarar. Hljómsveitin var stofnuð fyrir tveimur árum og er þetta fyrsta tón- leikaferð hennar. Á efnisskrá eru Forleikur að Elverhøj eftir Kuhlau, píanókonsert í a- moll eftir Grieg, þar sem einleikari er Aladár Rácz, og Symfonia nr. 1 í g-moll eftir Carl Nielsen. NORDSJÆLLANDS SINFONIA ÍSLANDSFERÐ Art / Work er heiti sýn- ingar sem sænsk-íslenski myndlistarmaðurinn Emil Magnúsarson Borhammar opnar í dag, laugardag, klukkan 14 í Nýlistasafn- inu en það er nú í Völvu- felli 13-21 í Breiðholti. Emil lauk námi við LHÍ árið 2009 og hefur síðan starfað í Svíþjóð. Þetta er fyrsta einkasýning hans á Íslandi. Emil sýnir meðal annars verk sem hann gerði þegar hann dvaldi í vinnustofu á veg- um Iaspis-myndlistarsamtakanna í Stokk- hólmi síðastliðið vor og sumar. Þar á meðal er vídeóverk þar sem Emil sést tína 90.240 steina en fjöldi þeirra samsvarar upphæð- inni sem hann fékk í námslán í sænskum krónum það árið. Á svipuðum nótum er annað verk þar sem hann safnaði 90.000 barrnálum. NÝLISTASAFNIÐ Í BREIÐHOLTI EMIL SÝNIR Úr myndbands- verki Emils. Menning
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.