Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.10.2015, Side 6
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18.10. 2015
HEIMURINN
ASILÍU
E JAD NEIRO BrálaskrnmStjó
m Ka forð metnaðarfull á
uta kkrum
ndað,ar st
ðö u mhand
og a kinn rr to
ínversk k fjá
hætti í
áf
SÝR
Assads
mö
og
dag
mg í
miklunni Aborgi
berjastá vaveriðeyti
a búagegn As
egnattenn í Ale
n semátakanna. Þ
naumtalsverð
kur þátt
gu
ETLAN
Niðurstöður nýrrar r
villnútímamanna hafi ef til sofið minna
damenn hafi kannað svefnvenjurBBC segir að bandarískir vísin
Afríku og Suður-Ameríku enhjá afskekktum frumbyggjum í
mjög svipaður því sem algengasttalið er að lífsmáti þeirra sé
nurum. Í ljós kom að svefntímivar hjá veiðimönnum og söf ð jafnaði aðeins
estir Bandaríkjamenn sofa hsex og hálf stund á nóttu. Fl vegar í sjö stundir.
KIN
GTONWASH
OBarack
tikBandarí
á þvýsk rði fr
bandarísku hermenn aðirall
nsheim frá Afganistan fyr
og áður ha afði verið ák
minnst 5.5 toða
afganska st
Stjórnarhe l
að tryggja ek
Innrás Ban
í árslok 20
Meðferðin á Leon Brittan
hefur verið fordæmd en nú er
vitað að þegar árið 2013
hafði lögreglan komist að
þeirri niðurstöðu að ekkert
væri hæft í ásökunum á hend-
ur honum um nauðgun. Ekkja
hans hefur ekki tjáð sig en
bróðir hans, Sir Samuel Britt-
an, hefur krafist þess að Tom
Watson biðjist afsök-
unar á því sem suma
grunar að hafi verið
pólitísk haturs-
herferð.
Brittan gegndi
ráðherraemb-
ættum í
stjórn Marg-
aret Thatcher.
Síðar sat hann í
framkvæmda-
stjórn ESB.
Fátt vekur meiri óhug hjá al-menningi en barnaníð og þeg-ar meintir gerendur eru vold-
ugir stjórnmálamenn verður krafan
um réttlæti til handa fórnarlömbum
enn háværari en ella. Síðustu árin
hefur verið ljóstrað upp um þekkta
og áhrifamikla níðinga sem kerfið
hlífði, kvartanir vegna þeirra voru
hunsaðar. En stundum reynast
ásakanirnar ekki á rökum reistar og
lykta af annarlegum hvötum.
Einn af þingmönnum Verka-
mannaflokksins, Tom Watson, sem
nú er orðinn varaformaður flokks-
ins, krafðist þess á þingi 2012 að
Lundúnalögreglan rannsakaði
„traustar upplýsingar um öflugt net
barnaníðinga sem tengdist þinginu
og embætti forsætisráðherra“.
Uppnámið varð mikið, ekki síst í
samfélagsmiðlunum þar sem stór
orð féllu. Fullyrt hefur verið að
meint VIP-net, eins og það var
strax kallað, hafi myrt þrjá drengi á
áttunda og níunda áratugnum.
Umræddur Watson sagði síðar að
Leon Brittan, þá liðlega sjötugur,
fyrrverandi ráðherra íhaldsmanna,
hefði verið liðsmaður VIP-netsins og
einnig að Brittan sætti rannsókn
vegna gamalla ásakana konu um að
hann hefði árið 1967 nauðgað henni.
Lögreglan rannsakaði á ný þessa
kæru á hendur Brittan, yfirheyrði
hann, fársjúkan af krabbameini, og
niðurstaðan var eins og í fyrri rann-
sókn að ásökunin væri markleysa.
Tómt rugl. Fyrir ótrúlega hand-
vömm Scotland Yard var Brittan
aldrei skýrt frá niðurstöðunni. Hann
lést í janúar á þessu ári og hélt þá
að hann lægi enn undir grun. Og
eiginkonu hans var ekki skýrt frá
niðurstöðunni fyrr en í sumar! Scot-
land Yard bað ekkjuna nýverið af-
sökunar.
„Hann er eins nátengdur illskunni
og nokkur mannleg vera getur ver-
ið,“ sagði Watson um Brittan. En
hann segist nú aðeins hafa verið að
hafa eftir ummæli meints þolanda
Brittans og sjái eftir því að hafa
notað svo tilfinningaþrungið orðalag.
Ennfremur segist hann harma að
fjölskylda Brittans skuli hafa þurft
að þola þessa raun.
BBC sendi fyrir nokkrum dögum
út þáttinn Panorama þar sem farið
var yfir rannsókn lögreglu vegna
ásakana Watsons 2012. Hver er
sannleikurinn? var yfirskrift þátt-
arins. Fram kom að í tengslum
við rannsóknina hefði vissulega
komist upp um brot tveggja
manna, kennara og kaþólsks
prests, en lögreglan væri nú
nær viss um að ekkert væri
hæft í frásögnum um VIP-net
barnaníðinga æðstu stöðum.
Yfirmenn lögreglunnar vísa
fullyrðingum Panorama á bug,
enn sé verið að rannsaka málið. Og
fjölmiðlar eru sagðir geta skaðað
rannsóknina, svo geti farið að af-
skipti þeirra geri útilokað að leggja
fram ákæru.
Spuni og þögn
Aðrir gefa í skyn að með þessu sé
lögreglan að búa til fyrirfram afsök-
un fyrir því að hætta við frekari
rannsókn. En lögreglan bendir á að
mörg fórnarlömb verði ófús að segja
sögu sína ef þau hafi á tilfinning-
unni að þeim sé vantreyst.
Watson segist nú aðeins hafa
komið ábendingum til lögreglunnar,
það sé ekki hans verk að rannsaka
eða dæma. En fram hefur komið í
fjölmiðlum að hann hafi þrýst mjög
á lögregluna, hún mætti ekki gefast
upp. Í The Times er fullyrt að
heimildarmaður Watsons varðandi
Brittan hafi verið Chris Fay, fyrr-
verandi félagsráðgjafi og borg-
arráðsmaður Verkamannaflokksins.
Hann hafi sagt að hann væri „alveg
til í að stunda ofsóknir gegn hægri-
sinnuðum íhaldsmönnum“. Þáver-
andi yfirmaður rannsóknarinnar á
VIP-netinu, Paul Settle lögreglufor-
ingi, hætti störfum við rannsóknina
í fyrra vegna afskipta Watsons.
Í grein Alistairs Jacksons, starfs-
manns Panorama, í tímaritinu
Spectator, segir hann að sér hafi
orðið ljóst að lögreglan hefði með
miklum tilkostnaði farið að rann-
saka nokkra háttsetta menn þótt
vísbendingar um sekt þeirra væru
frá því að vera ótraustar yfir í að
vera engar. Þótt vitað sé nú að
ásakanirnar séu tilbúningur sé efa
og dylgjum leyft að lifa áfram. En
hvers vegna?
„Ég held að ástæðan sé að hluta
ótti,“ segir Jackson. „Ótti við að
endurtaka mistök fortíðarinnar – að
fá aftur á sig ásakanir þess efnis að
frásagnir fórnarlamba séu ekki
teknar nógu alvarlega, eða þá að
sterk valdastaða einhvers hafi verið
notuð til að stöðva rannsókn.“
Var barna-
níðsnetið
aldrei til?
BRESKA LÖGREGLAN HEFUR RANNSAKAÐ ÁSAKANIR Á
HENDUR HÁTTSETTUM ÍHALDSMÖNNUM UM AÐ ÞEIR
HAFI STOFNAÐ NET BARNANÍÐINGA. NÚ SEGJA STARFS-
MENN BBC AÐ SAGAN VIRÐIST VERA UPPSPUNI.
UPPREISN ÆRU
Leon
Brittan
Leiðtogar Jeremy Corbyn (tv.), formaður breska Verkamannaflokksins, og varaformaðurinn, Tom Watson, á flokksþingi
fyrir skömmu í Brighton. Watson varð landsþekktur fyrir þátt sinn í að fletta ofan af símahlerunum nokkurra dagblaða.
AFP
* Það er betra að taka þá áhættu að sekur sleppi við refs-ingu en að saklaus maður sé dæmdur.Voltaire, franskur heimspekingur. AlþjóðamálKRISTJÁN JÓNSSON
kjon@mbl.is