Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.10.2015, Page 14
A
llt er gott í hófi segir máltækið og
telja margir að eitt og eitt rauð-
vínsglas sé ekki óhollt líkamanum.
Því hefur stundum verið haldið
fram að rauðvín geti jafnvel verið grennandi
og var frétt um það á RÚV í vor en þar
var vitnað í rannsókn sem var birt í Int-
ernational Journal of Obesity. Þar er talað
um að ávextir og ber geti haft grennandi
áhrif og túlkuðu margir það svo að það
ætti þá einnig við um rauðvín. Í berjum er
efnið resveratról sem talið er geta breytt
fitu í ,,góða fitu“ sem brennir kaloríum og
á þann hátt verið grennandi. En í rauðvíni
er búið að sía burt megnið af þessu efni.
Resveratról hefur verið rannsakað hjá
mönnum og músum og sannast hefur að
mýsnar grennast en mennirinir ekki.
Betra að borða ávexti
Til þess að fá þetta eftirsóknarverða efni
resveratról í kroppinn er nóg að neyta
ávaxta, en þeir innihalda pólýfenól sem er
yfirflokkur resveratróls og annarra efna
sem talin eru hafa svipaða virkni. Pólýfenól
er að finna í ávöxtum, grænmeti, súkku-
laði, jómfrúarólífuolíu og hnetum. Að auki
innihalda vínber, bláber og hindber mun
meira magn af resveratróli en rauðvín þar
sem ekki er búið að sía þau frá í vinnslu-
ferlinu.
Víndrykkja fitar frekar en hitt
Rauðvín, eins og annað áfengi, er mjög
hitaeiningaríkt og stuðlar því drykkja á því
frekar að þyngdaraukningu en þyngdartapi.
Í tveimur rauðvínglösum eru 250 kaloríur
sem er meira en 10% af dagskammti af
kaloríum þeirra sem eru á 2000 kalóríum á
dag. Rauðvínið inniheldur lítið sem ekkert
af næingarefnum og hjálpar þér ekki að
seðja hungur. Þannig er „rauðvínskúr“
sennilega ekki besta leiðin til betra og
léttara lífs.
ÁFENGI ER FITANDI
NEYSLA RAUÐVÍNS ER EKKI GÓÐ EF
MARKMIÐIÐ ER AÐ GRENNAST
ÞRÁTT FYRIR SÖGUR UM ANNAÐ. Í
TVEIMUR GLÖSUM ERU 250 KALORÍ-
UR. SANNAST HEFUR AÐ VIÐ RAUÐ-
VÍNSDRYKKJU GRENNAST MÝS EN
MENNIRNIR EKKI.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
Mýs og menn og rauðvínsdrykkja
Heilsa og
hreyfing *Það er í tísku að fá sér volgt sítrónuvatn ámorgnana og hafa margir trú á hollustu þess.En tannlæknar eru ekki í þeim hópi. Þeirsegja að sítrónusýran sé sérlega ætandi fyrirglerung tanna og geti eytt honum en hannkemur ekki aftur. Þannig flýtir sítrónuvatniðfyrir öldrun tannanna. Tannlæknar mæla ekki
með langvarandi neyslu á sítrónuvatni þó að
það sé í lagi að nota sítrónur til matargerðar.
Það er fátt verra en að vera and-
vaka og þurfa svo að mæta illa
sofinn í vinnuna. Góður svefn er
lykillinn að góðum degi og allir
kannast við þreytuna og orkuleys-
ið sem fylgir litlum eða vondum
svefni.
Á vefsíðunni heilsanokkar.is má
lesa um góð ráð til að sofa betur.
Ekki fá þér koffín, áfengi eða
nikótín eftir nón.
Hafðu herbergið hljóðlátt,
dimmt og kalt, 15-24°C.
Slakaðu á í 60 mínútur fyrir
háttinn.
Farðu að sofa þegar þreytan er
að hellast yfir þig.
Ekki fylgjast með klukkunni upp
í rúmi.
Hafðu reglu á svefntíma.
NOKKUR GÓÐ SVEFNRÁÐ
Sofðu rótt í alla nótt
Morgunblaðið/Jim Smart
Robert Steinbacher er eitt heitasta nafnið í líkamsræktarbrans-
anum í dag. Hann notar æfingar úr jóga, pilates, Tai Chi, teygjum
og sameinar það öndunartækni og slökun. Í BodyArt eru ekki
notuð nein lóð eða önnur hjálpartæki. Steinbacher sækir inn-
blástur í austurlenska speki um yin og yang og vill hafa jafnvægi
milli hugar og líkama. Hann blandar saman í prógrammi sínu æf-
ingum sem reyna á styrk, úthald og liðleika. Robert segir að fólk
eigi að líta á samband sitt við líkamsrækt eins og langtímaástar-
samband. Það er ekki aðeins til nokkurra vikna og því þarf að hlúa
að því. Hann vill sameina líkama og sál og hjálpa fólki og segir að
fólk eigi að taka ábyrgð á eigin líkama.
Madonna í BodyArt
Linda Hilmarsdóttir, eigandi Hress í Hafnarfirði, hefur hitt Robert
og segist nota æfingar úr hans prógrammi í warmfit tíma hjá sér.
„Þeir sem eru framarlega í heilsuræktargeiranum eru að fylgja
honum og ég veit að margir hér á Íslandi eru að nota sumar æf-
ingar sem hann hefur þróað. Hann er stórt nafn í þessum bransa.
Madonna er nýjasta stjarnan sem er að stunda BodyArt,“ segir
Linda.
NÝJASTA NÝTT Í LÍKAMSRÆKT
BodyArt fyrir líkama og sál
Sítrónuvatn ekki hollt fyrir tennur