Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.10.2015, Side 18
Ferðalög
og flakk *Allsérstaka skráningu er nú að finna á vefnum Air-bnb.com. Gististaðurinn er sjálfar katakomburnarí París þar sem hægt er að fá að sofa á tvíbreiðurúmi innan um hauskúpur langt frá dagsljósi. Gist-inguna er þó ekki hægt að bóka beint heldur ergisting fyrir tvo á hrekkjavökunni, aðfaranótt 1.nóvember, í boði sem verðlaun frá Airbnb en það
þarf að taka þátt í keppni á vefsíðu fyrirtækisins til
að eiga möguleika á að vinna.
Hryllilegur gististaður
N
óbelsfriðarmiðstöðin í
Ósló er áhugaverður
staður til að heim-
sækja. Þetta er safn
um friðarverðlaun Nóbels en
þarna eru verðlaunahafar kynntir
til sögunnar og ennfremur er
saga Alfreðs Nóbels sögð.
Miðstöðin tekur líka þátt í um-
ræðum um mikilvæg málefni
samfélagsins. Bæði eru þarna
fastar sýningar og tímabundnar
en allar eiga þær að varpa ljósi
á stríð, frið og sáttaumleitanir.
Nóbelsfriðarmiðstöðin hefur vakið
athygli fyrir heimildarljós-
myndasýningar sínar og líka fyrir
notkun margmiðlunartækni í sýn-
ingum sínum.
Á hverju ári sækja meira en
225.000 manns safnið heim en
þar á meðal eru 900 skólahópar.
Safnhúsið er glæsilegt og er á
skemmtilegum stað í hjarta Ósló-
ar, rétt við ráðhúsið en húsið var
áður lestarstöðin Vestbanen.
Skemmtilegt kaffihús er í húsinu
sem ber nafnið Alfred og gaman
er að heimsækja. Líka er þarna
að finna safnabúð sem leggur
áherslu á muni tengda sýning-
unum en þar er til sölu gjafa-
vara af ýmsu tagi.
Hægt er að skoða upplýsingar
um alla verðlaunahafa frá upphafi
eða frá árinu 1901.
Sýning tileinkuð friðarverð-
launahöfum Nóbels frá því í
fyrra, þeim Malala Yousafzai og
Kailash Satyarthi, var opnuð 4.
september og stendur til 25. nóv-
ember. Á sýningunni eru m.a.
myndir af Malölu þegar hún var
lítil og, að hennar eigin ósk,
skólabúningurinn sem hún klædd-
ist þegar hún varð fyrir skotárás.
Um leið og tilkynnt var um
verðlaunahafana í ár hófst vinna
við sýningu sem fjallar um verð-
launahafana, svokallaðan Kvartett,
fern samtök í Túnis, sem skiptu
sköpum við að efla lýðræði í
landinu árið 2013 þegar landið
stóð á barmi borgarastyrjaldar.
Fulltrúar Kvartettsins opna nýju
sýninguna 11. desember.
Nánari upplýsingar er að finna
á www.nobelpeacecenter.org.
Ljósmyndir/Johannes Granseth/Nobel Peace Center - Nóbelsfriðarmiðstöðin
ÁHUGAVERT SAFN Í MIÐBORGINNI
Friðarmiðstöð
Nóbels í Ósló
NÓBELSFRIÐARMIÐSTÖÐIN ER SAFN SEM ER VEL HÆGT
AÐ MÆLA MEÐ AÐ HEIMSÆKJA FYRIR FÓLK Á FERÐ Í
NORSKU HÖFUÐBORGINNI. SAFNIÐ ER ÞEKKT FYRIR LJÓS-
MYNDASÝNINGAR SÍNAR OG AUÐVITAÐ ÞÆR SEM TIL-
EINKAÐAR ERU FRIÐARVERÐLAUNAHÖFUNUM SJÁLFUM.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Safnið er vel staðsett í
miðborg Óslóar en
húsið var áður lestar-
stöðin Vestbanen.
Hér má sjá þegar Malala Yousafzai sá blóðugan skólabúning sinn í fyrsta sinn eftir skotárásina. Hann er á sýningunni sem
er tileinkuð henni og Kailash Satyarthi en þau tóku bæði virkan þátt í að móta sýninguna, sem stendur til 25. nóvember.
Nýjasta sýningin í Nóbelsfriðarmiðstöðinni heitir
Targets en hún var opnuð 25. september og stendur
til 24. apríl 2016. Þýski ljósmyndarinn Herlinde
Koelbl hefur ferðast um heiminn til að taka myndir
af skotmörkum sem hermenn sem er verið að þjálfa
til að drepa nota. Á síðustu árum hefur Koelbl heim-
sótt þjálfunarbúðir hermanna í 27 löndum víðs veg-
ar um heiminn og myndað þessi skotmörk. Hún hef-
ur ferðast um Evrópu, Bandaríkin, Mið-Austurlönd,
Afríku, Kína, Rússland, Tyrkland og Ísrael. Aðeins
Norður-Kórea hefur neitað henni um aðgang.
„Mig langaði að varpa ljósi á hvernig óvinurinn er
sýndur í mismunandi heimshlutum. Sum skotmörk
eru með andlit og líta út eins og alvöru fólk. Sum líta
út eins og börn eða nágranni þinn. Óvinurinn er
með mörg andlit og ólíka ásjónu, allt eftir því hvar í
heiminum þú ert,“ segir Koelbl.
Hún hefur ennfremur tekið myndir af hermönn-
unum, sem margir hverjir enda sem skotmörk sjálfir.
Vídeóinnsetning og brot úr samtölum hennar við
hermennina eru líka hluti af sýningunni.
„Ég hef aldrei fengið samviskubit yfir því að drepa
fólk sem á skilið að deyja. Mér finnst það eiga skilið
að deyja því það er óvinurinn. Ég er þjálfaður til að
hugsa á þann hátt,“ segir einn nafnlaus hermaður og
önnur tilvitnun hljómar svo: „Stríð er skák stjórn-
málamannanna og við erum taflmennirnir.“
LJÓSMYNDASÝNINGIN SKOTMÖRK
Andlit óvinarins