Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.10.2015, Page 25
Þ
að er létt yfir heimilinu. Þetta er ekki naum-
hyggja en smá aðhald. Það er ákveðið hættu-
merki þegar fólk eldist og vill halda í alla
gömlu/dauðu hlutina. Það er varasamt, sem
eldra fólk á til að gera, að halda í allt. Það verður ein-
hvers staðar að sleppa,“ útskýrir Soffía og bætir við
að það sé mikilvægt að yfirkeyra ekki heimilið því þá
sé svo erfitt að halda því við. „Betra er að draga úr og
gefa ættingjum sem vilja hlutina og taka þannig þátt í
að eiga endurminningarnar sem felast í hlutunum.“
Aðspurð hvað hún telji mikilvægast við innréttingu
heimilisins segir Soffía samspil hlutfalla, forma og létt-
leika mikilvægt. „Ég var svo heppin að vinna í verslun
sem ung stúlka og var þá í gluggaútstillingum og bý
að því að hafa lært á það hvar sé best að staðsetja
hlutina. Þetta hefur verið mikið áhugamál frá ung-
lingsárunum og er enn. Föt, heimili og að láta öllum
líða vel.“
Soffía kýs að versla í vönduðum húsgagnabúðum og
segir borga sig þegar upp er staðið að velja klassískar
og vandaðar hönnunarvörur.
„Svo fylgja mér eldri hlutir frá foreldrum og
tengdaforeldrum eins og ég vænti að fylgi þá börn-
unum mínum þegar ég hverf af braut og þau taki við
einhverju úr mínu búi og þyki vænt um það. Lífið er
svona; að tengja sig aðeins við eldri kynslóðir, og von-
andi tengja mínir afkomendur sig við mig í gegnum
húsgögn eða eitthvað smálegt. Myndlist skiptir mig þá
miklu máli. Helst af öllu að það fái hver hlutur að
njóta sín; fólkið sem býr hér og hlutirnir. Þá er heim-
ilið gott.“
Sem ung stúlka átti Soffía fallegt herbergi og segist
alltaf hafa haft tilhneigingu til þess að hafa fallegt í
kringum sig. „Að þykja vænt um heimilið, líkt og fjöl-
skylduna og allt sem í kringum mann er, er ákveðin
lífsfylling.“
Soffía Stefánsdóttir kýs
vandaða og klassíska
hönnun sem eldist vel.
Útsýnið segir Soffía vera dásamlegt og nýtur hún þess að ganga meðfram
sjónum og horfa yfir bæinn.
Svefnherbergið er í miklu eftirlæti hjá Soffíu enda útsýnið þaðan dásamlegt.
Hver hlutur fái
að njóta sín
SOFFÍA STEFÁNSDÓTTIR HEFUR KOMIÐ SÉR VEL FYRIR Á FALLEGU HEIMILI Í HAFNARFIRÐI
MEÐ ÚTSÝNI YFIR FJÖRÐINN. SOFFÍA HEFUR HAFT ÁHUGA Á INNANHÚSSHÖNNUN FRÁ
ÞVÍ HÚN MAN EFTIR SÉR OG NÝTUR ÞESS AÐ NOSTRA VIÐ HEIMILIÐ.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
SAMSPIL HLUTFALLA, FORMA OG LÉTTLEIKA MIKILVÆGT
Baðherbergið er fallega innréttað. Innanhússarkitektinn Guðbjörg Magnús-
dóttir var Soffíu innan handar við innréttingu þess.
18.10. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25
PINNACLE
Þægilegur 3ja sæta La-Z-Boy sjónvarpssófi
með niðurfellanlegu borði.
Fæst í brúnu og dökkgráu áklæði.
Einnig fáanlegur í ekta leðri.
Stærð: 210 × 95 × 105 cm
249.990 kr.
319.990 kr.
379.990 kr.
479.990 kr.
Verð áklæði Verð leður