Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.10.2015, Blaðsíða 30
S
amtök bandarískra
barnalækna (AAP) ætla
að endurskoða viðmið
sín um skjátíma barna í
takt við breytta tækni.
Núna mæla samtökin með engum
skjátíma fyrir börn undir tveggja
ára aldri og tveimur tímum fyrir
eldri börn. Samtökin tilkynntu fyrr
í þessum mánuði að vinna væri
hafin við endurskoðun þessara við-
miða. Þau segja í yfirlýsingu í
fréttabréfi sínu AAP News að vitað
sé að vísindarannsóknir og stefnu-
yfirlýsingar nái ekki að halda í við
þróun í tækni. Til dæmis hafi
stefnuyfirlýsing AAP frá 2011 sem
var gerð um tækni- og skjánotkun
barna yngri en tveggja ára verið
samin áður en fyrsta kynslóð iPada
kom út og með þeim fjöldi appa
sem sérstaklega eru ætluð ungum
börnum
Núna leika meira en 30% banda-
rískra barna sér með snjalltækni á
meðan þau eru enn í bleyjum og
75% 13-17 ára eiga snjallsíma.
Samtökin segja að skjátími þýði
núorðið í raun bara tími og sam-
tökin verði að endurskoða stefnu
sína. Af því tilefni stóðu þau fyrir
ráðstefnu sérfræðinga í maí síðast-
liðnum sem setti saman ráðin tólf
sem birt eru hér til hliðar.
Ráð byggð á vísindum
Samtökin leggja enn fremur
áherslu á að þeirra ráð byggist ein-
vörðungu á vísindum en snúist ekki
aðeins um aðgát.
Samtökin búast við að birta
næstu ráðleggingar sínar um skjá-
notkun haustið 2016 og munu þær
taka tillit til þeirrar miklu
tækniþróunar sem átt hefur sér
stað síðustu ár.
Ekki eru allir skjáir jafn rétthá-
ir. „Tæknin fellur ekki öll undir
sama hatt,“ sagði Ari Brown, sem
er í forsvari fyrir fjölmiðlahóp
AAP, í viðtali við Wall Street Jo-
urnal. „Eitt er neysla, annað sköp-
un og þriðja samskipti. Þannig að
ef þú ert að líta til barna undir
tveggja ára aldri þá er mikill mun-
ur á því að horfa lengi á teikni-
myndir á YouTube og myndspjalli
við ömmu,“ segir hann.
„Sumar af reglunum eins og að
banna skjánotkun fyrir tveggja ára
aldur eru ekki í takt við raunveru-
leikann árið 2015-2016,“ sagði
James Steyer, forstjóri Common
Sense Media, sem metur alls kyns
fjölmiðlaefni fyrir foreldra.
Eitt af því sem fram kom á ráð-
stefnunni í maí var um tungumála-
kennslu. Þegar enskumælandi níu
mánaða barn horfði á kennara í
sjónvarpi kenna mandarín var
ávinningurinn enginn, samkvæmt
mælingum á heilabylgjum. Þegar
kennarinn var í sama herbergi var
mikill munur á virkni í heilanum.
Samskipti skipta máli
Aðrar rannsóknir styðja við þetta
mikilvægi samskipta í lærdómsferl-
inu. Börn á milli 24 og 30 mánaða
lærðu jafn mörg ný orð frá kenn-
aranum í gegnum myndspjall eins
og þau gerðu af kennara á staðn-
um. „Eftir því sem skjárinn líkir
meira eftir raunverulegum sam-
skiptum virðist hann hafa meira
lærdómsgildi,“ sagði Brown.
Dimitri Christakis, einn af höf-
undum ráðlegginganna, hefur hvatt
til þess síðastliðið ár að þær verði
endurskoðaðar. Hann mælir með
gagnvirkri skjánotkun fyrir börn
undir tveggja ára aldri í 30 til 60
mínútur á dag. Hann segir að það
þurfi að rannsaka þetta betur en
raunveruleikinn sé sá að þessi nýja
tækni sé mjög ólík öðrum, eldri
miðlum þar sem þessi gagnvirkni
sé ekki til staðar.
„Er eitthvað öðruvísi að lesa bók
á iPad en að lesa hefðbundna bók
með barni?“ spyr hann og segir
svo ekki vera. Raunverulegt gildi
lesturs sé að búa til vettvang fyrir
samskipti milli foreldra og barns.
Hann veltir líka fyrir sér hvort
iPad sé nokkuð verra leikfang en
annað. Rannsóknir hafi ekki verið
gerðar á því en hann gruni að svo
sé ekki.
Rannsóknir Christakis hafa leitt
í ljós meiri heilavirkni hjá börnum
þegar þau leika sér með kubba en
á meðan þau horfi á Baby Ein-
stein-mynddiska. Núna er hann að
rannsaka muninn á áhrifum mynd-
diska á börn á aldrinum 18 til 24
mánaða miðað við lærdómsöpp.
Slæmt að hafa sjónvarp í
gangi í bakgrunninum
Rachel Barr, sálfræðiprófessor við
Georgetown-háskóla, hefur rann-
sakað hverng börn á aldrinum 2 ½
árs til þriggja ára leysa þrautir.
Hún ber saman segulpúsl við púsl
á snertiskjá. Hún hefur komist að
því að börnin læra á báðum miðl-
um en þekkingin skilar sér ekki á
milli miðla. Sumsé ef barn er klárt
í að leysa þrautina í raunheimum
þýðir það ekki færni í tölvuheimi
og öfugt.
Hún komst líka að því að ef börn
hafa ekki neinn til að leiðbeina sér
þá gengur þeim miklu verr.
Barr hefur líka rannsakað áhrif
þess að hafa kveikt á sjónvarpinu í
bakgrunninum á meðan annar leik-
ur er í gangi. Niðurstaðan er að
það hafi truflandi áhrif og leik-
urinn verði ekki eins flókinn.
Clare Lerner, foreldraráðgjafi
hjá Zero to Three, hefur unnið
með Barr. Hún segir að foreldrar
þurfi að hafa í huga að öppin sem
börnin eru að nota og sjónvarps-
efnið sömuleiðis sé við hæfi þeirra
aldurs. Skjátími geti sömuleiðis
orðið að betri gæðastund ef for-
eldrar ræði við börnin um það sem
þau eru að horfa á. Hún segir þó
að alveg sama þótt gæðin séu mikil
þá þurfi að takmarka skjátíma í
60-90 mínútur á dag.
BANDARÍSKIR BARNALÆKNAR ENDURSKOÐA ÁLYKTUN SÍNA UM SKJÁTÍMA BARNA
Sum skjá-
notkun betri
en önnur
Það er mikilvægt að vera með yngstu börnunum við skjáinn.
Getty Images/iStockphoto
SAMTÖK BANDARÍSKRA BARNALÆKNA ERU AÐ
ENDURSKOÐA VIÐMIÐ SÍN UM SKJÁTÍMA BARNA EN BANN
VIÐ SKJÁTÍMA YNGRI EN TVEGGJA ÁRA ÞYKIR ÚRELT.
ALLIR SKJÁIR ERU ÞÓ EKKI JAFN RÉTTHÁIR OG ÞAÐ SKIPTIR
MÁLI HVORT VERIÐ ER AÐ NEYTA, SKAPA
EÐA EIGA SAMSKIPTI.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Tækniumhverfi er aðeins annað umhverfi. Börn
gera sömu hluti eins og alltaf, nema núna í sýnd-
arheimi. Eins og hvert annað umhverfi getur það
haft jákvæð og neikvæð áhrif.
Uppeldi hefur ekki breyst. Það þarf að setja regl-
ur varðandi raun- og sýndarheima. Leiktu við börn-
in þín. Settu mörk; börn þurfa þau og búast við
þeim. Kenndu þeim góðmennsku. Taktu þátt.
Kynnstu vinum þeirra og vittu hvert þau fara.
Það er úrslitaatriði að vera góð fyrirmynd. Tak-
markaðu eigin skjánotkun og vertu fyrirmynd í net-
hegðun. Uppeldi krefst tíma í burtu frá skjám.
Við lærum hvert af öðru. Rannsóknir sýna að
mjög ung börn læra best þegar tjáskiptin eru ekki
einhliða. Það er mikilvægt fyrir málþroskann að tala
saman. Það að horfa á myndbönd hjálpar ekki smá-
börnum og ungum börnum að læra tungumál. Eftir
því sem samskiptin eru meiri, því meira er hægt að
læra af þeim, t.d. þegar smábarn spjallar á skjá við
foreldri sem er á ferðalagi.
Innihaldið skiptir máli. Gæði efnisins eru mik-
ilvægari heldur en miðillinn. Forgangsraðaðu skjá-
tíma barnsins frekar en að setja skeiðklukkuna af
stað.
Það hjálpar að velja úr. Til eru fleiri en 80.000
öpp sem eiga að vera lærdómsrík. Leitaðu upplýs-
inga um gæði frá til dæmis www.commonsense-
media.org.
Gerið þetta saman. Það skiptir máli að fjöl-
skyldan sé saman fyrir framan skjáinn. Spilaðu tölvu-
leiki með börnunum þínum. Sjónarhorn þitt hefur
áhrif á hvernig þau upplifa leikinn. Það er nauðsyn-
legt að vera með ungum börnum fyrir framan tölv-
una.
Leikur skiptir máli. Frjáls leikur ýtir undir sköpun.
Forgangsraðið frjálsum leik í burtu frá skjám, sér-
staklega fyrir mjög ung börn.
Setjið takmörk. Tækninotkun, eins og allt annað,
þarf að hafa einhverjar takmarkanir. Er tækninotk-
unin að hjálpa til við annað athæfi eða hindra það?
Unglingurinn þinn má vera á netinu. Netsamskipti
eru hluti af lífi táningsins og notkun samfélagsmiðla
getur stutt við sjálfsmyndina. Kennið unglingnum
viðeigandi hegðun í netheimum rétt eins og raun-
heimi. Biddu táninginn að sýna þér hvað hann er að
gera á netinu svo að þú skiljir samhengið.
Búðu til snjalltækjafrí svæði. Stattu vörð um fjöl-
skyldumáltíðina. Betra er að hlaða tæki á nóttunni
fyrir utan herbergi barnsins. Þetta ýtir undir gæða-
stundir fjölskyldunnar, hefur í för með sér betri
matarvenjur og betri svefn.
Börn munu alltaf vera börn. Börn munu gera mis-
tök í tækninotkun. Það er hægt að læra af þessum
mistökum ef tekið er á þeim af hluttekningu.
Tekið úr yfirlýsingu bandarískra barnalækna sem
birt var í tímariti þeirra AAP News.
SAMTÖK BANDARÍSKRA BARNALÆKNA (AAP)
12 góð ráð varðandi skjátíma
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18.10. 2015
Fjölskyldan Að þessu sinni er upplestur á dagskrá Heimilislegra sunnudaga áKexinu. Á sunnudagsmorgun klukkan 11 mun Sigrún Eldjárn lesa
upp úr nýútkominni bók sinni Leyniturninum á Skuggaskeri. Allir
eru velkomnir og er aðgangseyrir enginn.
Upplestur á Kexinu
* Christakismælir meðgagnvirkri skjá-
notkun fyrir börn
undir tveggja ára
aldri í 30-60
mínútur á dag.