Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.10.2015, Side 32
Nýi iPhone 6 og 6 plús býður upp
á smáforrit sem gerir notendum
kleift að búa til GIF-myndskeið úr
myndskeiðsupptökum sínum á
einfaldan hátt. Appið heitir Live
GIF
App til að búa til GIF
Fyrir stuttu bárust fréttir af því að far- ogborðtölvuframleiðendur ætluðu að hrinda afstað sameiginlegu verkefni til að fá fólk til að
kaupa sér slík apparöt, en ekki láta duga að eiga
snjallsíma eða spjaldtölvu. Nú geri ég ráð fyrir því
að flestir hafi áttað sig á því að þokkalegur snjall-
sími er nóg til að gera flest það sem mann langar til
að gera á netinu, lesa fréttasíður, skoða póstinn sinn
og dunda sér á Facebook og svo er spjaldtölvan fín
fyrir það sem útaf stendur.
Að því sögðu þá er sitthvað
sem betra er að gera með
lyklaborði og þar hafa ýmsir
spreytt sig á smíði á lyklaborði
við spjaldtölvur með misjöfnum
árangri. Ýmist er óþægilegt að
tengja þau við tölvuna, óhægt að
drösla þeim með sér eða þau
eru einfaldlega ekki nógu góð
sem lyklaborð til að skrifa eitt-
hvað af viti - næstum því lykla-
borð en ekki alvöru vinnutól.
Þegar Windows 8 var kynnt á sínum tíma, fyrir rétt
rúmum þremur árum, lagði Microsoft á það mikla áherslu
að stýrikerfið væri líka sniðið fyrir spjaldtölvur og síma
og á kynningum á því voru jafnan tölvur til sýnis og þá
tölvur með snertiskjá, svona rétt til að undirstrika að
stýrikerfið væri hannað fyrir slíkt. Innan um þær vélar
var ein vél frá Microsoft, Surface, spjaldtölva með lykla-
borði í lokinu. Sú vél vakti einna mesta athygli á kynn-
ingunni og þá helst fyrir það að Microsoft hefði tekið upp
á því að framleiða tölvur.
Fyrsta Surface-vélin var reyndar ekki ýkja merkileg,
því þó hún væri glæsileg og traust viðkomu var stýrikerf-
ið „bækluð“ útgáfa af Windows 8, Windows RT, og ein-
faldlega ekki nógu gott og svo þurfti maður að kaupa
lyklaborðið sér. Það kemur því varla á óvart að tölvurnar
seldust ekki nema miðlungi vel til að byrja með og ýmsir
spáðu því að þær myndu fljótlega hverfa af markaði.
Surface-vélar lifa þó enn góðu lífi – á eftir Surface kom
Surface 2 og svo 3 og Surface Pro og svo framvegis. Víst
hurfu vélar með Windows RT af markaði (og Windows
RT sennilega búið að vera), en á eftir Windows 8 kom 8.1
og svo Windows 10 í haust, sem er nánast eins á hvaða
apparati sem er; á síma, í borðtölvu, fartölvu eða spjald-
tölvu. Og svo kom Surface Book.
Surface-tölvulína Microsoft hefur skipst í tvennt, annars
vegar eru þær vélar sem heita einfaldlega Surface og með
tölustaf fyrir aftan til að tákna gerðina, nú komin í Sur-
face 3 frá því í mars sl. Svo eru það Pro-vélarnar, sem
eru með betri örgjörva, meira minni og þar fram eftir
götunum og líka númer til að tákna kynslóð, komust upp
í Surface Pro 4 í síðustu viku. Nýverið bættist svo þriðja
vélin við, Surface Book, sem kynnt var um leið og Sur-
face Pro 4.
Óhætt er að segja að engin tölva hafi vakið annað eins
umtal undanfarin ár og Surface Book, enda er hún í raun
fartölva sem breyta má í spjaldtölvu, en ekki öfugt eins
og háttað hefur með Surface-vélarnar. Lyklaborðið fylgir
því með vélinni og er fest við skjáinn með nýstárlegri löm
sem losa má og þá er vélin orðin að öflugri spjaldtölvu.
Galdurinn við allt saman er að í lyklaborðinu er viðbót-
arrafhlaða og eins grafíkörgjörvi og fyrir vikið skákar
Surface Book helstu keppinautum nokkuð auðveldlega. Og
hver er helsti keppinauturinn – ef marka má Microsoft þá
er Surface Pro beinn keppinautur flaggskips Apple,
MacBook Pro.
Nú verður að taka öllum slíkum samanburði með smá
fyrirvara, ekki má gleyma því að Surface Pro er varla
komin á markað og því eiga menn eftir að prófa hana út
og suður, en þegar litið er til tæknilegrar útfærslu á
pappírnum þá er ljóst að hún er verðugur keppinautur.
Þegar dýrustu gerðir af þessum tölvum eru bornar saman
er Surface Pro til að mynda með öflugri örgjörva, aðeins
stærri og nokkuð betri skjá og miklu betri myndavélar
(MacBook Pro er reyndar bara með eina myndavél og það
lélega), en sömu rafhlöðuendingu, jafn þung, með minna
gagnaminni, en sama vinnsluminni. Já, og svo er hægt að
breyta Surface Book í spjaldtölvu ef vill. Og líka velta
skjánum 360 gráður og þá er komið fullkomið teikniborð
enda fylgir með vélinni „penni“ til að skrifa á hana eða
teikna.
Ég nefni það að Micorosoft Surface Pro sé varla komin
á markað og það á reyndar eftir að taka smá tíma að
koma henni í almenna sölu því fyrirframpantanir af vélinni
hafa verið svo líflegar að fyrsti skammtur er uppseldur og
ríflega það. Svo er það líka óljóst hvað hún mun kosta
hér á landi en má nefna að dýrasta gerð hennar kostar
sama vestan hafs og dýrasta gerð MacBook Pro (ekki
með Retina-skjá) og sú kostar 574.960 kr. hjá Epli.is. Svo
eru líka til ódýrari afbrigði, það ódýrasta með 128 GB
gagnaminni, 8 GB vinnsluminni og Intel i5 örgjörva.
Surface-vélarnar hafa eiginlega ekki fengist hér á landi,
en Opin kerfi hafa tekið við umboðinu, selja enda síma
frá Microsoft. Þar er nú hægt að kaupa þrjú afbrigði af
Surface Pro 3 og síðan slást hinar væntanlega í hópinn.
BYLTING Í AÐSIGI
ÞAÐ VARÐ UPPI FÓTUR OG FIT
ÞEGAR MICROSOFT KYNNTI NÝJA
ÚTGÁFU AF SURFACE-SPJALDTÖLV-
UM SÍNUM UM DAGINN, SURFACE
BOOK, ÞVÍ ÞAR VAR KOMIN SPJALD-
TÖLVA SEM VAR Í RAUN FARTÖLVA
OG ÞAÐ SVO ÖFLUG AÐ HÚN SKÁK-
AÐI HELSTU KEPPINAUTUM RÆKILEGA.
Græjan
ÁRNI
MATTHÍASSON
* Ef marka máMicrosoft þá erSurface Pro beinn
keppinautur flaggskips
Apple, MacBook Pro
32 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18.10. 2015
Græjur og tækni
Sjáðu meira á mbl.is/askriftarleikur
AÐEINS 4 DAGAR
þar til við drögum