Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.10.2015, Blaðsíða 33
Rússneskir sérfræðingar í öryggismálum hafa að sögn breska blaðsins The Telegraph hannað fremur
hættulegan USB-lykil sem í útliti er eins og hver annar USB-lykill.
Hann gengur undir nafninu „Dökkfjólublár“ eða „Dark Purple“ og það sem gerir hann svo skæðan
er að um leið og honum er stungið í tölvuna getur hann á örskotsstundu eyðilagt vélina, hvort sem
það eru tölvur eða sjónvörp.
Myndbandi af kubbnum og hvernig hann virkar var lekið á netið af tölvuhökkurum og þar sést
hvernig IBM-ferðatölva bræðir úr sér á aðeins nokkrum sekúndum.
USB-lykilinn eyðileggur tölvur með því að senda 220 volta straum í tækið.
Á rússneskri bloggsíðu er fullyrt að USB-lykilinn geti eyðilagt mó-
dem, snjallsíma sem taka við USB-lyklum, rátera og allt
sem í raun er hægt að stinga lyklinum í. Þetta ætti
að vera flestum hvatning til að stinga notuðum
USB-lyklum ekki í tæki sín ef uppruni þeirra er
óþekktur. Góðu fréttirnar eru hins
vegar þær að svo virðist sem harði
diskurinn og upplýsingar sem geymdar
eru á honum verði ekki fyrir óbæt-
anlegum skaða.
USB-LYKILL SEM EYÐILEGGUR
Sakleysislegur tortímandi
18.10. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 33
* Tækni er orð sem lýsir einhverju sem á enneftir að fá til að virka.
Douglas Adams rithöfundur.
Þeir sem hata lykilorð og að þurfa að muna þau ættu
að hugleiða að fá sér Yahoo-netfang en samskipta-
miðillinn hefur nú gert byltingarkenndar breytingar á
því hvernig notendur skrá sig inn í pósthólfin sín.
Þessu fylgir þó að notendur þurfa að fá sér sér-
stakt Yahoo-smáforrit í símana sína og þeir sem
kunna ekki að meta þetta nýja fyrirkomulag geta
áfram fengið að gera þetta á „gamla og góða“ mát-
ann.
En þannig virkar þessi nýjung að í hvert skipti sem
notendur fara inn í pósthólfið sitt; á tölvum eða ann-
ars staðar kveikir forritið á sér í snjallsímanum og
spyr hvort viðkomandi sé akkúrat á þessari stundu
að fara að skoða póstinn sinn. Einfaldur smellur með
fingrinum; á já eða nei; opnar svo leiðina áfram inn í
póstinn.
Yahoo fullyrðir að þessi nýja aðferð sé talsvert
öruggari en að skrá sig inn með lykilorðinu og ef sím-
anum þínum er stolið eða hann týnist er hægt að fá
þessar tilkynningar áframsendar í tölvupósti eða í
önnur „vara-símanúmer“ sem eru skráð strax í byrj-
un.
Því er spáð að smám saman muni það að skrá sig
inn með hefðbundnum lykilorðum hverfa alveg í staf-
rænu tilverunni og eru fyrirtæki eins og PayPal að
þróa eigin aðgangskerfi þannig að þau séu óþörf.
ÓÞARFI AÐ MUNA NEITT
Lykilorð óþörf hjá Yahoo
Yahoo-appið er aðgengilegt fyrir Android og iOs.
Lesendur The Guardian deila því á vefútgáfu blaðsins
hvernig líf þeirra var fyrir tíma snjallsímanna og er ljóst
að þeim þykir margt hafa verið heldur betra fyrir til-
komu tækisins.
Ofarlega á blaði er frelsi sem fór fyrir bí þegar snjall-
síminn kom til sögunnar og ekki síst frelsi sem þeir
höfðu sem börn en hafa áhyggjur af því að ungviði nú-
tímans muni aldrei upplifa aftur. Þannig hafi foreldrar
ekki verið stöðugt á vaktinni um hvort þau væru að klifra
í trjám eða hvað þau væru að gera, með eilífum símtölum
við börnin eins og tíðkast í dag. En ekki síður er heimur
ungmenna háður því að fá samþykki á ótal samskipta-
miðlum; fá „like“ á Facebook, retweet á Twitter og
hjörtu á Instagram-myndirnar. Og það sama eigi við um
fullorðna fólkið, þannig getur daglegt fas verið al-
gjörlega háð því hvernig dagurinn gekk á samfélagsmiðl-
unum og að kvöldi er dagurinn veginn og metinn eftir
því.
Þá séu samskiptin orðin þvingaðri. Það er að segja;
þegar fólk kjaftaði í símann eða átti skemmtileg samtöl
með því að hittast í eigin persónu var enginn að ritskoða
sig. Þar sem fólk talar saman í skilaboðum í símanum
þar sem þau eru skrifuð niður passar fólk sig frekar á því
hvað það segir og ritskoðar til að lenda ekki í vandræð-
um með eitthvað sem það hefði annars látið bara flakka
þar sem enginn var til að setja það á prent.
LESENDUR GUARDIAN HORFA TIL BAKA
Lesendur Guardian segjast meðal annars sakna þess að
geta ekki látið allt flakka í samskiptum við vini sína.
Morgunblaðið/Eggert
Þvingaðri
samskipti
Vörurnar frá Sólgæti eru hollar og
góðar fyrir sælkera á öllum aldri sem
vilja gera vel við sig. Líttu í kringum
þig í næstu verslun. Þú kemur eflaust
auga á eitthvað ljómandi gott.
HEILNÆMT OG
NÁTTÚRULEGT
LJÓMANDI
GOTT
solgaeti.isheilsa.is
Ekki eru allir USB-lyklar
sem þeir sýnast og einn
þeirra stórhættulegur.