Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.10.2015, Side 35
18.10. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 35
Staðbundnir
fitukomplexar
S
purt er: Er eðlilegt að vera með staðbundna fitukomplexa á fer-
tugsaldri? Allt góða fólkið myndi náttúrlega segja nei og senda
pakkið til sálfræðings til þess að reyna að komast út úr þessum
andlegu ógöngum. Það er kannski ekki eðlilegt að vera með
staðbundna fitukomplexa á fertugsaldri (það vill örugglega enginn við-
urkenna það og alls ekki upphátt fyrir framan þá sem þeim finnst töff).
En svarið er að það er mun algengara en fólk gerir sér grein fyrir. Yfir-
leitt eru þessir staðbundnu fitukomplexar ekki nýtilkomnir heldur hef-
ur þeim verið plantað inn í vitund viðkomandi löngu áður en sá hinn
sami hafði vit á að greina hvort þetta væri eðlilegt eða ekki.
Til eru endalausar leiðir til að planta fitukomplexum inn á hugs-
anabrautir óharðnaðra og verður ekki farið út í þær hér.
Smáhesturinn er á heimavelli þegar kemur að plöntun fitukomplexa.
Sem folald var hann alltaf dálítið vel í holdum eða þykkur eins og það
var kallað þarna á áttunda og níunda áratugnum. Og það var ekkert
verið að fara í kringum það. Það var alveg sagt upphátt en eitthvað var
þó djúpt á góðum ráðum til að reyna að megra þetta folald. Það datt
allavega engum í hug að taka af honum kakómaltið, appelsínuþykknið,
túnfisksalatið, karamellurnar,
súkkulaðikökurnar, ísinn eða
bakarísmatinn.
Smáhesturinn passaði sig á
því að borða nóg í kvöldmat
svo hann færi nú alls ekki
svangur að sofa og honum
fannst hann alltaf vera kominn
í veislu þegar hann mátti gúffa
í sig morgunkorni fyrir svefn-
inn, sem var reyndar ekki
leyft á æskuheimili hans.
Þar sem smáhesturinn fór
nánast óhreyfður í gegnum
fyrstu 33 ár ævinnar var hann
lítið í því að brenna öllu gúm-
melaðinu sem hann hafði mikið fyrir að troða í sig. Sem barn og ung-
lingur fékk hann reglulega að heyra að hann væri „vel í holdum“ og eitt
sinn var sagt við hann að hann væri „myndarlegur til fótanna“. Smá-
hesturinn tók þessu þannig að hann væri með feit læri.
Alveg sama hvað smáhesturinn hefur lagt mikið á sig í að minnka
ummál sitt og léttast þá situr þessi hugsun um að hann sé með feit læri
alltaf pikkföst í undirmeðvitundinni. Það er náttúrlega ekkert eðlilegt
við það að nota Levis-gallabuxur í 28 og finnast lærin vera feit. Og það
er heldur ekkert eðlilegt við það að klæða sig þannig að lærin séu helst
falin. Smáhesturinn fer til dæmis mjög sjaldan í eitthvað stutt og ef
hann er í kjól eða pilsi nær flíkin niður að hnjám. Ekki upp fyrir.
Þar sem smáhesturinn er í undirmeðvitundinni að búa sig undir fer-
tugsafmælið ákvað hann að frelsa á sér lærlegginn. Það er nefnilega
ekki hægt að komast á fimmtugsaldur með staðbundna fitukomplexa.
Það er nákvæmlega ekkert töff við það.
Fyrsta skrefið í þessari viðbragðsáætlun er að mæta í stuttbuxum
(hotpants) í ræktina í stað þess að vera búinn að vakúmpakka lærunum
inn í aðhaldssokkabuxur innanundir níðþröngu æfingabuxurnar. Smá-
hesturinn þurfti alveg að telja nokkrum sinnum upp að tíu áður en hann
dúndraði lóðum á stöngina og lagði til atlögu. Svo mætti hann á aðra
æfingu og aðra æfingu og aðra æfingu í þessum stuttbuxum! Þið sem
mættuð smáhestinum í þessum stuttbuxum vitið þá núna að ekki er um
nýtt trend að ræða heldur þerapíu smáhests við fitukomplexum sem
hann ætlar að sigrast á! martamaria@mbl.is
Ef myndin er grand-
skoðuð má sjá glitta í
stuttbuxur smáhestsins.
* Alveg samahvað smáhest-urinn hefur lagt mikið
á sig í að minnka um-
mál sitt og léttast þá
situr þessi hugsun um
að hann sé með feit
læri alltaf pikkföst í
undirmeðvitundinni.
Skráningá imark.is
Stjórnendur frá fjórumfyrirtækjumfjallaumstöðu
markaðsmála í sínumfyrirtækjum.Hvaða sessmarkaðs-
málinhafioghvarþau séu innan skipuritsins.
Morgunfundur ÍMARK
Vægimarkaðsmála
hjá íslenskum
fyrirtækjum.
–Hversumikið ernóg?
Þriðjudaginn 27. október kl. 9–12
í sal Arion banka, Borgartúni 19.
Höskuldur
Ólafsson,
bankastjóri
Arion banka
Kristín
Eysteinsdóttir,
Borgarleikhússtjóri
Hermann
Björnsson,
forstjóri Sjóvár
Fundarstjóri
EddaHeiðrún
Geirsdóttir,
forstöðumaður
alþjóðamarkaðssviðs
Össurar
Guðrún
Hafsteinsdóttir,
markaðsstjóri
Kjöríss
Pallborðsumræðurað loknumerindum
Húsið opnar kl. 8.30
Upplifðu hinn sanna anda jólanna með Kristjáni Jóhannssyni og gestum
Gestir Kristjáns að þessu sinni eru þau Dísella Lárusdóttir, Valgerður
Guðnadóttir og Oddur Arnþór Jónsson ásamt Óperukórnum í Reykjavík,
Karlakór Kópavogs og sinfóníuhljómsveit undir stjórn Garðars Cortes.
Í ELDBORG, HÖRPU, 6. DESEMBER KL. 20.00
Tryggið ykkur miða á
harpa.is og tix.is
//
J
Ö
KU
LÁ
-
W
W
W
.J
O
KU
LA
.IS