Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.10.2015, Blaðsíða 40
Viðtal
40 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18.10. 2015
T
æplega 2 milljónir manna hafa
skoðað myndband úr brúðkaupi
nýjasta tengdasonar Íslands,
Rich Piana, og nýbakaðrar
eiginkonu hans, Söru, sem áður
var Heimisdóttir en ber nú eftirnafn eig-
inmannsins.
Nýjasti tengdasonurinn er stórt nafn í
vaxtarræktar- og fitnessheiminum ytra og
keppti í fjöldamörg ár í greinunum en
það eru nokkur ár síðan hann lagði
keppnismennskuna alveg á hilluna og ein-
beitir sér nú að fyrirtæki sínu, 5%, sem
selur samnefnt fæðubótarefni og fitness-
klæðnað. Sara hefur einnig ákveðið að
hella sér út í fyrirtækjareksturinn með
honum en markaðssetning á vörumerkinu
snýst ekki síst um að Rich flaggi útliti
sínu og karakter á Youtube sem og þau
hjónin bæði. Þau hafa aðeins þekkst í 5
mánuði en giftu sig fyrir nokkrum vikum
á Mr. Olympia-sýningunni í Las Vegas –
Rich segist ekki mæla með því að nokkur
leiki það eftir. Það sé ekki sniðugt að láta
reyna svo stutt á sambönd áður en fólk
lætur pússa sig saman. Þau hafi verið
undantekning frá þeirri reglu.
„Þetta var um 500 manna veisla og
þrátt fyrir að við værum á síðustu stundu
með allt og á þönum var þetta frábærlega
vel heppnað allt saman. Við þurftum að
sinna vinnutengdum erindum fyrr um dag-
inn og höfðum líklega ekki nema um 15
mínútur til að taka okkur til fyrir stóru
stundina!
Þar að auki var þema í brúðkaupinu;
„Beauty and the Beast“, sem vísar til
King of Beasts og Queen of Beauty,“ seg-
ir Rich en hann hefur verið að taka upp
myndbandsseríu um pör sem æfa saman
og láta drauma sína rætast undir þeirri
yfirskrift.
„Tattúlistamaður mætti á staðinn á síð-
ustu stundu og við fengum okkur sitt
tattúið hvort á hendurnar. Ég fékk að
sjálfsögðu áletrunina King og á Söru var
skrifað Queen. Í veislunni sjálfri fengu svo
nokkur pör í brúðkaupinu sér sams konar
húðflúr.“
Líf þeirra Söru og Rich Piana er Ís-
lendingum flestum heldur framandi. Þau
búa í 500 fermetra villu í rólegu úthverfi
Los Angeles og dagurinn þeirra fer í að
taka myndir, myndbönd, markaðssetja fyr-
irtækið, sækja sýningar þar sem fólk
stendur í biðröð til þess eins að sjá Rich
Piana og auðvitað er það að fara í rækt-
ina og æfa heima stór hluti af þeirra lífi.
En þess á milli segjast þau hið rólegasta
fólk sem vilji heldur fara í bíó og vera
heima með hundunum en að dansa á
klúbbum.
„Morguninn eftir brúðkaupið tók svo við
stíf vinna, á sýningunni sem við giftum
okkur á tókum við á móti fólki á okkar
bás og kynntum 5%. Það er frekar ótrú-
legt að fylgjast með því hversu margir
vilja alltaf koma og sjá Rich, fólk stendur
í allt að 3 klukkutíma biðröðum. En það
var svo gaman að ég held að við höfum
ekki einu sinni áttað okkur á því hvað við
vorum þreytt,“ segir Sara.
Litlar líkur á að
Rich sæi skilaboðin
Sara er 26 ára gömul og hefur búið í
Bandaríkjunum frá því að hún var rúm-
lega tvítug. Hún ólst upp í Hlíðunum,
gekk í Menntaskólann í Kópavogi og síðar
Verkmenntaskólann á Akureyri.
„Ég var hálfgerð strákastelpa og elskaði
að klifra í trjám og leika mér úti.
Mamma starfaði sem flugfreyja og þar
sem hún var einstæð móðir fór ég oft
með henni í flug og ferðaðist því út um
allar trissur. Þar af voru þær ófáar ferð-
irnar til Bandaríkjanna og Flórída. Í
kringum tvítugt fór ég að finna að mig
langaði að breyta til í lífi mínu, skipta al-
gjörlega um umhverfi og ég fann að ég
stefndi eitthvað hærra. Hér á Íslandi
myndu draumar mínir ekki rætast, ég
þurfti meira svigrúm, landið er svo lítið.
Ég flutti fyrst til föður míns en hann býr
í Svíþjóð en svo varð það sameiginleg
ákvörðun okkar mömmu að flytja til Flór-
ída. Mamma fór að læra arkitektúr og ég
skráði mig í háskóla og var nú síðast að
læra lögfræði en ákvað að gera hlé á því
námi þegar ég kynntist Rich og í dag hef
ég áhuga á öðru en að skuldbinda mig í
langt nám. Ég nýt þess að vinna að vel-
gengni okkar á þeim vettvangi sem við
höfum valið okkur.“
Hvernig kynntust þið?
„Við kynntumst lítillega fyrir tveimur
árum í gegnum fitnessgeirann en þá vor-
um við bæði á allt öðrum stað í lífinu. Ég
var í sambandi sem var svona „byrja-og-
hætta-saman“ endalaust og ég held að það
hefði ekkert gerst ef við hefðum þá gert
eitthvað meira með þau kynni. En svo
sendi Sara mér skilaboð á Facebook í vor
og það var af ótrúlegri tilviljun sem ég sá
þau skilaboð. Ég fæ óteljandi skilaboð á
hverjum degi, mörg þúsund á viku, og ég
hef engan tíma til að fara í gegnum þau
og nota Facebook almennt mjög lítið. Ein-
hverra hluta vegna poppa þessi skilaboð
þannig upp að ég sé þau og við förum að
Óhefðbundnar
lífsins leiðir betri
AMERÍSK STJARNA Í LÍKAMSRÆKTARHEIMINUM YTRA, RICH PIANA, ER NÝJASTI
TENGDASONUR ÍSLANDS. HANN OG SARA HEIMISDÓTTIR KYNNTUST FYRIR AÐ-
EINS 5 MÁNUÐUM EN LÉTU PÚSSA SIG SAMAN FYRIR NOKKRUM VIKUM.
Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is