Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.10.2015, Qupperneq 43
ríkjunum eða þættu að minnsta kosti
hreint út sagt afar fullkomnar. Merkilegt
að þær séu svona í ykkar litla samfélagi.“
Sara segir að auk þess langi hana til
að fara með Rich á veitingastaðinn Fjöru-
borðið á Stokkseyri og snæða humar, það
sé hennar eftirlætisveitingastaður. Án efa
eigi þau þá eftir að fara í Bláa lónið og
sjá Gullfoss og Geysi.
„Og að sjálfsögðu er markmiðið að
kynna hann fyrir fjölskyldu minni.
Mamma og bróðir minn náðu að koma í
brúðkaupið og það var bróðir minn sem
leiddi mig upp að altarinu en þetta var
allt ákveðið með svo litlum fyrirvara að
systir mín og pabbi náðu ekki að koma.“
„Já, það var alveg okkur að kenna, en
að drífa í þessu fannst okkur eitthvað svo
rétt á þessu augnabliki en það bíður betri
tíma að hitta alla. En tvær bestu vinkon-
ur Söru komu út og mér fannst mjög
gaman að kynnast þeim. Sara á yndis-
legar vinkonur og þær hjálpuðu okkur í
einu og öllu því vitanlega var þetta mikið
stress þarna síðustu dagana og það létti
undir að hafa jákvætt fólk í kringum sig
til að leggja undirbúningnum lið,“ segir
Rich.
Rich Piana hafði hugsað sér að minnka
aðeins við sig og kaupa sér minni íbúð
áður en hann kynntist Söru en nú sé það
ekki endilega á dagskrá. Það eina sem
vanti sé sundlaug, þau séu bæði vön því
að búa í húsi með aðgangi að sundlaug í
garðinum.
Rich Piana neitar því ekki að öll sú at-
hygli sem fyrirtæki hans hefur vakið og
hve miklar vinsældir hann og Sara og
myndbönd þeirra njóta til dæmis á You-
tube hafi komið honum örlítið á óvart. En
auk þess notar hann Instagram og fleiri
samfélagsmiðla mikið.
„Ég held að ég nái einfaldlega til
margra sem aðrir myndu ekki ná til. Fólk
býst við því þegar velgengni er annars
vegar að þar fari menn í fínum jakkaföt-
um með bindi. En ég er ekki sú mann-
gerð. Það að maður með ótal tattú, sem
þú jafnvel myndir hræðast ef þú mættir
honum úti á götu, geti fengið fólk til að
hlusta á sig og fylgjast með sér er auk
þess hvetjandi fyrir marga sem hafa svip-
aðan bakgrunn og eru ekki hin dæmi-
gerða jakkafatatýpa. Velgengni snýst ekki
um að vera í ákveðnu boxi og gera eins
og hinir. Hún snýst líka um að hugsa út
fyrir boxið.“
Sara segist vera ákaflega ánægð að
hafa tekið þetta stökk í lífinu að flytja til
Bandaríkjanna. „Ég elska Ísland en tæki-
færin eru hérna fyrir mig núna og ég
hvet alla til að ferðast eins mikið og þeir
hafa tök á til að sjá hvort heimurinn
bjóði þeim hugsanlega upp á önnur og
fleiri tækifæri en í heimahögum. Það er
nefnilega aldrei að vita.“
Rich bætir við að það henti þó alls
ekkert öllum að flytja á fjarlægar slóðir.
„Fólk er svo mismunandi. Sumir kunna
best við sig þar sem þeir ólust upp og
hafa alla tíð búið og það er bara ekkert
að því. Aðrir eru ekki að upplifa lífsfull-
nægju og þeir eiga að drífa sig af stað
áður en þrjátíu ár eru liðin af lífinu án
þess að þeir hafi gert neitt. Ég held að
það sem hindrar oftast fólk sé að það
trúir því ekki að það geti látið drauma
sína rætast.
Góð regla er líka að setja ekki öll egg-
in í sömu körfuna. Það er eitt af því sem
ég segi alltaf við þá sem eru að feta sín
fyrstu spor í líkamsræktinni. Maður þarf
að passa að hafa um eitthvað annað að
tala og hugsa.“
* Það er þessi hug-mynd um að fólkeigi að lifa lífinu eftir fyr-
irframgefnum hugmynd-
um samfélagsins
sem ég hef áttað mig á,
sérstaklega eftir að ég
kynntist Rich, að er ekki
endilega sú leið sem er
best að fara.
Heimili þeirra er afar
stórt og í raun segja
þau að það sé of
stórt, þau noti að-
eins 1/5 hluta þess.
Brúðarmeyjar og sveinar
í brúðkaupi þeirra hjóna.
Nýgift og í skýj-
unum með vel
heppnaðan dag.
Rich Piana er bandarískur vaxtarræktar-
maður og byrjaði aðeins 11 ára gamall
að æfa. Hann keppti í 18 ár í fitness og
vaxtarrækt og vann ýmsa titla en lagði
þá grein á hilluna fyrir nokkrum árum
og hefur síðustu árin einbeitt sér að
eigin rekstri en hann á og rekur fyr-
irtækið 5% sem selur fæðubótarefni og
fitnessklæðnað. Hann er þekktur víðar
en í heimalandi sínu, bæði fyrir vaxt-
arrækt og einnig hin ótrúlegu húðflúr
en hann var með þeim fyrstu í vaxt-
arrækt sem fóru að láta húðflúra allan
líkamann.
Rich hefur leikið í auglýsingum og
verið aukaleikari í nokkrum kvikmynd-
um, svo sem í Planet of the Apes frá
árinu 2001.
Á Youtube nýtur hann mikilla vin-
sælda og Sara Heimisdóttir einnig en á
myndband af brúðkaupi þeirra hafa nær
2 milljónir manna horft nú þegar, þó
eru aðeins nokkrar vikur liðnar frá því
að þau gengu í hjónaband.
RICH PIANA
Ferill Rich Piana
Rich Piana þegar
hann var 18 ára
gamall.
18.10. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 43