Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.10.2015, Blaðsíða 47
Íslensku listamennirnir í Ugly Brothers máluðu þetta verk á hliðarvegg
Nasa við Austurvöll, innblásnir af lagi rapparans Gísla Pálma, „Ískaldur“.
Lag Agent Fresco, „Wait for me“, veitti DFace innblástur. Verkið var
málað á hliðarvegg Laugavegar 66 þar sem Hótel Alda er til húsa.
Verk Telmo Miel, unnið út frá lagi Mercury Rev, „Moth Light“, prýðir einn veggja Hólmaslóðar 2 úti á Granda.
Morgunblaðið/Golli Evoca 1 myndskreytti lag Saun
& Starr, „Gonna make time“, fyrir vegg
Sjávarútvegshússins við Skúlagötu.
Elle málaði þetta verk út frá lagi rapptvíeykisins Úlfur Úlfur, „20 ogeitt-
hvað“, á vegg Laugavegar 35 þar sem plötuverslunin Smekkleysa er til húsa.
Ljósmyndir/Nika Kramer
Listamenn Urban Nation með starfsmönnum Airwaves við verk DEIHXLF á horni Norðurstígs og Vesturgötu sem unnið var út frá laginu „Waterfalls“ með hljómsveitinni Vök.
5
6
7
8 9 10
18.10. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 47