Morgunblaðið - 30.10.2015, Side 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 2015
Gæðasmíði og framúrskarandi þjónusta alla leið inn á þitt heimili
Eldhúsinnréttingar
GÆ
ÐI–
KUNNÁTTA
–
SVEIGJANLEIKI Funahöfða 19 | sími 577 1600 | gks.is
Valgerður Þ. Jónsdóttir
vjon@mbl.is
Söngurinn hefur alltaf gegntmikilvægu hlutverki í lífiÁgústu Sigrúnar Ágústs-dóttur, leiðsögumanns-
mannauðsstjóra, markþjálfa og –
síðast en ekki síst söngkonu. Í
söngnum er hennar kjarni og upp-
spretta orku, eins og hún segir. Sú
orka leysist úr læðingi á geisla-
disknum Stjörnubjart, sem hún gef-
ur sjálf út og hefur að geyma fjór-
tán lög, sem sum eru blanda af
sálmum með rætur í þjóðlögum.
Eða öfugt. Á disknum eru sex ís-
lensk lög, þar af þrjú splunkuný og
samin í svipuðum anda. „Gustav
Holst, Jean Sibelius koma líka við
sögu sem og Benny Andersson og
Björn Ulvaeus úr ABBA. Upphafs-
lagið, Hljóða nótt, sem er mitt
uppáhaldslag, gefur tóninn fyrir
hugljúfa en kalda og kósí stemn-
ingu. Tónlist sem klædd er í snjó
með yl frá kertaljósi,“ útskýrir
Ágústa Sigrún.
Hljóða nótt er sænskt lag sem
hún heillaðist af fyrir um fimmtán
árum í flutningi Önnu Sofiu von
Otter messósópransöngkonu. „Sjálf
skilgreini ég mig sem „crossover“
sópran, eða klassíska söngkonu sem
flýt inn í þjóðlagatónlist, popp og
dægurtónlist. Frumsömdu lögin eru
Kristallar eftir Sváfni Sigurðarson,
en við höfum starfrækt dúett í mörg
ár, Ljós eftir upptökustjórann og
útsetjarann Harald V. Sveinbjörns-
son og Draumvísa, sem er vöggu-
ljóð og ég samdi til lítils frænda
míns fyrir mörgum árum,“ segir
Ágústa Sigrún og lætur þess getið
að Draumvísa sé kannski ekki lagið
þar sem landið rísi hæst en hafi
fengið að fljóta með. „Þótt ég sé ekki
tónskáld,“ bætir hún við.
Reyndi við Benny úr ABBA
Einvalalið hljóðfæraleikara og
sérfræðinga á ýmsum sviðum komu
ásamt Ágústu Sigrúnu að gerð plöt-
unnar. Samtals yfir 20 manns; hljóð-
færaleikarar, hönnuður, ljósmynd-
ari, textahöfundar og fleiri.
„Þegar ég var búin að velja mín
uppáhaldslög og raða á diskinn var
næsta skref að sækja um réttinn á
þeim. Ég fékk alls staðar jákvæð
svör nema frá útgáfustjóra Benny
Anderssons úr ABBA, meðhöfundar
laganna Like an Angel passing thro-
ugh my Room og Kärlekans tid sem
sagði þvert nei í tvígang. Á endanum
skrifaði ég honum hjartnæman
tölvupóst og sendi Benny afrit, bað
hann að endurskoða afstöðu sína, lét
íslenskan texta laganna fylgja með
og útlistaði með mörgum fögrum
orðum hversu mjög ég héldi upp á
þessi lög. Þrautseigjan bar árangur
því ég var beðin um frekari upplýs-
ingar, hvaða lög yrðu á disknum og
þess háttar og jafnframt að senda
honum upptökur. Núna er ég með
leyfi fyrir báðum lögunum, þótt á
lokasprettinum hafi Kärlekans tid
ekki komist á diskinn, lagið passaði
einfaldlega ekki með hinum lög-
unum,“ segir Ágústa Sigrún. Og, jú,
henni finnst svolítið hlálegt að hafa
hafnað lagi eftir Benny í ABBA.
„Lagið á bara heima á öðrum diski –
seinna,“ segir hún hálfafsakandi og
grínast með að kannski selji hún út-
gáfuréttinn bara á ebay fyrir
formúu.
Stjörnur í flestum textunum
Ágústa Sigrún segir að Stjörnu-
bjart sé með jólalegu ívafi, enda hafi
hana alltaf langað til að gefa út disk
með jólalögum og tónlist með vetr-
arstemningu sem þó væri ekki endi-
lega bundin við jólin. „Þegar ég fór
að rýna betur í textana sá ég ákveðið
þema því orðið stjarna eða stjörnur
kemur fyrir í velflestum textunum,
sem var þó alls ekki með ráðum
gert. Hjá mér hafa jólin alltaf snúist
um tónlist. Ég hef sungið í kór frá
því ég var sjö ára, til dæmis verið í
Mótettukór Hallgrímskirkju og
syng núna í Kór Breiðholtskirkju.“
Útgáfa disksins Stjörnubjart á
sér nokkuð langan aðdraganda.
Ágústa Sigrún varð nefnilega fimm-
tug í haust og kveðst hafa verið að
vandræðast með hvað hún ætti að
gera í tilefni þess merka áfanga frá
því fyrir jól í fyrra. „Fyrst hugsaði
ég mér að halda jólatónleika í stað
veislu, en fannst þó heldur snemmt
að syngja jólalög 1. september. Síð-
an þróaðist hugmyndin og niður-
staðan varð sú að halda bæði tón-
leika og gefa út disk í nóvember.“
Ágústa Sigrún bjó vel að
reynslu sinni frá því hún gaf út disk-
inn Hittumst heil árið 2001 þar sem
hún syngur lög föður síns, Ágústs
Péturssonar, sem lést 1986, en hann
var þekktur dægurlagahöfundur og
harmonikkuleikari á sinni tíð, samdi
m.a. Þórð sjóara og Æskuminningu.
„Fjölskyldan ákvað að heiðra minn-
ingu hans með þessum hætti. Fram-
kvæmdin kom í minn hlut og einnig
að fylgja disknum úr hlaði. Til að
fjármagna útgáfuna sendi ég fjöl-
skylduvinum bréf með beiðni um
kauploforð, sem fólst í því að þeir
skuldbundu sig til að kaupa diskinn
þremur mánuðum fyrir útgáfudag.
Ég segi stundum í gríni að ég eigi
hugmyndina að Karolina Fund því
fyrirkomulag sjóðsins gengur út á
kauploforð, eða hópsöfnun, af þessu
tagi, sem ég nýtti mér síðan við út-
gáfu Stjörnubjart.“
135% kauploforð
Ágústa Sigrún kveðst hafa
beint þeim tilmælum til vina og
vandamanna að kaupa ekki handa
sér afmælisgjafir í ár heldur gefa
kauploforð á Karolina Fund. „Mér
tókst að safna 135% og þurfti því
ekki að taka yfirdráttarlán og hef
getað staðið í skilum við alla sem
komu að gerð disksins. Þetta kostar
alveg slatta, en vonandi fylli ég Sal-
inn í Kópavogi 21. nóvember.“
Hún segist hafa verið einstak-
lega heppin með upptökustjórann og
útsetjarann, fyrrnefndan Harald, og
vitaskuld Sváfni, dúettfélaga sinn,
sem fékk ekki frið fyrir henni í jóla-
undirbúningnum í fyrra þegar hug-
myndin að Stjörnubjart kviknaði.
„Ég fékk hann til að prófa með mér
ný lög og meta hvernig þau virkuðu.
Í byrjun komu tuttugu og fimm lög
til greina, sem meiningin var að
fækka í fjórtán. Halli fékk líka það
hlutverk að gæta að heildarbragnum
og gagnrýna, en sem betur fer höfð-
um við svipaðar hugmyndir svo ekki
þurfti oft að beita neitunarvaldi.
Upptökur hófust svo á fullu í sept-
ember, en ýmsu var breytt á þeim
tíma, nýir tónlistarmenn og hljóð-
færi duttu inn á síðustu stundu og
var langspilið í laginu Jólakvöld til
dæmis það síðasta sem tekið var
upp.“
Æskudraumurinn rættist
Í æsku átti Ágústa Sigrún sér
þann draum að syngja inn á plötu.
Hún var ekki há í loftinu þegar hún
skottaðist með pabba sínum á fjöl-
skylduskemmtanir og jólaböll og
fékk stundum að taka með honum
lagið. „Ég vissi að pabbi þekkti
hljómplötuútgefanda og var alltaf að
suða um að hann kæmi mér á fram-
færi,“ rifjar hún upp.
Þótt plötudraumarnir rættust
ekki fyrr en þrjátíu árum síðar og
svo aftur í ár, hefur Ágústa Sigrún
komið víða við á tónlistarferlinum.
Hún lærði á blokkflautu, píanó og
klarinett í Tónlistarskóla Kópavogs
og steig fyrst á svið sem söngkona í
skólaleikriti þegar hún var í
Menntaskólanum í Kópavogi.
„Eftir stúdentspróf var ég í eitt
ár au pair og lærði þýsku í Freiburg
í Þýskalandi áður en ég settist á
skólabekk Söngskólans í Reykjavík,
þaðan sem ég lauk burtfararprófi
1992 og söngkennaraprófi tveimur
árum síðar. Samhliða vann ég hjá
Visa Ísland þar sem ég var reyndar í
tólf ár ásamt því að syngja op-
inberlega við jarðarfarir, brúðkaup
Markþjálfi hefur upp raust sína
Hjá Ágústu Sigrúnu
Ágústsdóttur söngkonu
hafa jólin alltaf snúist
um tónlist. Trúlega verða
jólin í ár engin undan-
tekning því hún hefur lát-
ið gamlan draum rætast
og gefið út Stjörnubjart,
fjórtán laga geisladisk
með jólalegu ívafi. Í kjöl-
farið heldur hún tónleika
í Salnum í Kópavogi 21.
nóvember þar sem tón-
leikagestum verður boðið
upp á kalda en kósí tón-
list með yl frá kertaljósi.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Afmæli Ágústa Sigrún ákvað að halda tónleika og gefa út geisladisk í tilefni af fimmtugsafmæli sínu í haust.
Ágústa Sigrún tileinkar móður sinni, Guðrúnu Dagnýju Kristjánsdóttur,
geisladiskinn Stjörnubjart. „Mamma varð nýlega níræð og hefur stutt
mig endalaust í söngbröltinu,“ segir hún.
Tónlistinni á Stjörnubjart er lýst sem lágstemmdri og melódískri og
hljóðfærasamsetningin sögð óvanaleg. Sex laganna eru íslensk að upp-
runa, þrjú frá Svíþjóð og eitt frá hverju landanna um sig Finnlandi, Eng-
landi, Írlandi, Bandaríkjunum og Kanada.
Fjöldi tónlistarmanna leggur hönd á plóg, t.d. spila 12 hljóðfæraleik-
arar á 19 hljóðfæri/ásláttarhljóðfæri og radda í laginu Jólaköld.
Á disknum eru lögin Hljóða nótt, Söngur á vetrarnótt, Stjörnubjart,
Líkt og engill gangi hjá, Gef mér ei heimsins gull né prakt, Jólakvöld, Á
þeim langa vetri, Til nýja heimsins, Sálmur 85, Kristallar, Draumvísa,
Vitringarnir þrír, Ljós og Á jólanótt.
Stjörnubjart
TILEINKAR MÓÐUR SINNI GEISLADISKINN