Morgunblaðið - 30.10.2015, Side 25

Morgunblaðið - 30.10.2015, Side 25
UMRÆÐAN 25 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 2015 FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT Á EÐA Í SÍMA Áskrifendur Morgunblaðsins eru sjálfkrafa meðlimir í Moggaklúbbnum og njóta ýmissa fríðinda og tilboða. Hægt er að fylgjast með hvað er í boði hverju sinni á moggaklubburinn.is og fá tilboðin send í tölvupósti með því að skrá sig á póstlistann. Hafðu samband í síma 569 1100 eða askrift@mbl.is hafi Moggaklúbbskortið ekki borist þér. ÆVINTÝRA- SÖGULEG BÓK OG HRYLLINGSSÖGUR FYRIR BÖRN OG UNGLINGA Á TILBOÐI TIL 17. NÓVEMBER Halloween Hryllings- og draugasögur fyrir krakka og unglinga Bókin geymir nokkrar magnaðar sögur sem örugglega fá hjarta lesendanna til að slá svolítið örar um tíma. Þetta er bók fyrir krakka „sem þora!“ Fullt verð 3.299 kr. MOGGAKLÚBBSVERÐ 2.499 kr. Hundadagar Höfundur: Einar Már Guðmundsson Frásögnin leiðir okkur á vit Jörundar hundadagakonungs, Jóns Steingrímssonar eldklerks og fleira fólks fyrri alda sem lesa má um í heimildum en varð líka efni í þjóðsögur sem lifa enn. Og sagan er ævintýraleg – og ævintýrin söguleg. Fullt verð 6.999 kr. MOGGAKLÚBBSVERÐ 5.399 kr. Áskrifendur geta nálgast bækurnar á þessu verði í hvaða Eymundsson-verslun sem er eða fengið þær sendar. Netfangið fyrir póstkröfur og greiðslukortapantanir er moggaklubbur@eymundsson.is Póstburðargjald er ekki innifalið í tilboðsverði. MOGGAKLÚBBURINN Opið bréf til ríkis- skattstjóra: Undanfarnar vikur hef ég sent þér, Skúli, fjölmarga tölvupósta varðandi skattsvik embættismanna varð- andi rangfærslur við framtalningu fjárhæða ferðadagpeninga. Þar varpa ég einnig fram athugasemdum mínum varðandi mismunandi kröfur sem þú leyfir þér að gera gagnvart skatt- borgurunum hvað sönnunargögn snertir fyrir raunverulega útlögðum ferðakostnaði. Þú hefur ekki virt mig svars ennþá þó ég hafi ítrekað erindi mitt um margra vikna skeið. Þú leyf- ir þér að krefja þá einstaklinga sem stunda eigin atvinnurekstur um full- nægjandi gögn til sönnunar á útlögð- um ferðakostnaði til að koma í veg fyrir að þessir aðilar geti nýtt sér mismun fenginna dagpeninga og sannanlega útlagðs ferðakostnaðar sem tekjur sem ekki er greiddur tekjuskattur af. Þetta er réttmæt krafa en hlýtur þá að verða að vera almenn, sama hver á í hlut. Á sama tíma hunsar þú ábend- ingar og upplýsingar sem fram koma um opinbera embættismenn, alþing- ismenn o.fl. sem fara gróflega á svig við lög um tekju- og eignaskatt sem kveða á um að einungis sé heimilt að færa til frádráttar frá tekjuskatt- stofni þann hluta dagpeninga sem sannanlega er varið til greiðslu ferðakostnaðar. Á mannamáli þýðir þetta í raun að öllum ber að greiða tekjuskatt af mismun fenginna dag- peninga og þess sem raunverulega er varið til greiðslu ferðakostnaðar eins og gildir um venjulegar tekjur. Þú ert hins vegar sá aðili sem trón- ar á toppi þess embættis sem á að fylgja því eftir að þessir hlutir séu rétt fram taldir af framteljendum. En þú virðist vera sá aðili sem er vilj- andi blindastur á þetta og er það væntanlega af þeirri gildu ástæðu að þú sérð þér færi að slást í hópinn með þeim aðilum sem að framan greinir. Það væri ekki úr vegi að þú upp- lýstir á opinberum vettvangi um þær fjárhæðir sem þú sjálfur hefur fengið greiddar í dagpeninga á síðastliðnum árum, hve háum fjárhæðum þú hefur sannanlega varið til greiðslu ferða- kostnaðar og hefur sönnunargögn fyrir og hver mismunur þessara upp- hæða er sem er tekjuskattskyldur. Þá þarf að koma fram hvort sú upp- hæð sem þú hefur fært til frádráttar frá tekjuskattstofni sé í samræmi við þau gögn sem þú býrð yfir og sanna raunverulaga útlagðan ferðakostnað. Hafir þú hins vegar fært meira til frádráttar en nemur þeim gögnum sem þú býrð yfir er um hrein og klár undanskot/skattsvik að ræða. Í mest fletta blaði landsins þann 22. september síðastliðinn var um- fjöllun blaðamanns um áætlaða dag- peninga þeirra tíu þingmanna sem ferðaglaðastir hafa verið á kostnað skattborgarana það sem af er þessu kjörtímabili og eru einhverjir þar við það að brjóta 100 daga múrinn. Blað þetta virðist hins vegar verulega tregt til að birta aðsendar greinar sem því berast falli skoðanir bréfrit- ara ekki að skoðunum ritstjóra blaðs- ins. Þá er munur á blaði sem dreift er frítt og er einungis flett í gegnum eða blaði sem keypt er og lesið af kaup- endum og er það ástæða þess að ég sendi þér bréf þetta í gegnum þenn- an miðil. Væntanlega hefur embætti þínu ekki hugkvæmst að skoða nokkurn þessara aðila frekar en starfsmenn eigin embættis sem eru á faraldsfæti og þiggja dagpeninga sem þeir svo fara afar frjálslega með þegar kemur að skattframtali. Það væri ekki úr vegi að þú tækir þér tak og sinntir þeim viðfangsefnum hvað þetta snertir sem heyra undir embætti þitt. Þá væri kannski rétt að byrja „heima í héraði“ og skoða starfs- menn eigin embættis fyrst og e.t.v. kollega þíns, skattrannsóknarstjóra. Því er nú einmitt þann- ig farið að rót skatt- svika er ekki að finna utan þeirra embætta sem bera mesta ábyrgð á að viðhorf almennings til skattsvika er svo léttvægt sem raun ber vitni. Meðan þeir, sem sitja löggjafarsam- kundu landsins og æðstu eftirlitsaðilar skattamála, stunda þessa iðju af mikilli natni gagnstætt lögum er ekki við því að búast að almenningur telji sig þurfa að virða þau lög sem nokkru nemur. Ljóst má vera að helstu skattsvikarar landsins eru ekki þeir sem eftirlitsaðilar eru sýknt og heil- agt með augun á heldur miklu frekar þeir sjálfir. Þessi svikamylla er því miður orðin sjálfbær í efstu lögum samfélagsins og verður því ekki breytt meðan þeir aðilar sem taka eiga á þessu gera það ekki. Umræddum alþingismönnum sendi ég tölvupóst varðandi þetta efni en hef ekki verið virtur svars. Skúli, hvar er að finna lagastoð fyrir því að gera ríkari kröfur til sönnunar á ferðakostnaði hjá þeim sem stunda eigin atvinnurekstur en öðrum? Það er margbúið að benda embætti þínu á þessi skattsvik sem þú hunsar al- gjörlega að meðtaka þar sem þeir aðilar, sem eru fyrirferðamestir í þessum svikum, eru hins vegar al- þingismenn og opinberir embætt- ismenn en í einkageiranum er þetta almennast meðal flugliða sem þó bera alls engan kostnað af „ferðum“ sínum. Þær ferðir eru alls ekki „til- fallandi“ og „utan venjulegs vinnu- staðar“ sem þó eru skilyrði sem verður samkvæmt lögunum að upp- fylla svo frádráttur frá tekjuskatt- stofni á móti fengnum dagpeningum sé löglegur. Getur verið, Skúli, að þú teljir að embætti þitt sé þitt einkahlutafélag og þú getir valið þér viðfangsefni að vild? RSK – hvar er lagastoðin? Eftir Örn Gunnlaugsson » Ljóst má vera að helstu skattsvikarar landsins eru ekki þeir sem eftirlitsaðilar eru sýknt og heilagt með augun á heldur miklu frekar þeir sjálfir. Örn Gunnlaugsson Höfundur er atvinnurekandi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.