Morgunblaðið - 30.10.2015, Page 33

Morgunblaðið - 30.10.2015, Page 33
MINNINGAR 33 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 2015 ✝ Páll Brynj-arsson við- skiptahagfræðingur og endurskoðandi fæddist í Reykjavík 29. júní 1984. Hann lést í Mannheim, Þýskalandi, 15. október 2015. Foreldrar hans eru Þórunn Brynja Júlíusdóttir, f. 10.1. 1964, og Brynjar Örn Gunnarsson, f. 7.11. 1962. Systkini Páls eru Erla Brynj- arsdóttir, f. 25.5. 1987, og Gísli Brynjarsson, f. 7.1. 1992. Páll kvæntist eftirlifandi eig- inkonu sinni Bärbel Auf der Mauer, f. 1.9. 1984, þann 5.9. 2015. Páll lauk stúd- entsprófi frá Menntaskólanum í Kópavogi árið 2004 og B.S. prófi frá Há- skólanum í Reykja- vík 2008. Hann lauk mastersnámi frá Háskólanum í Nijmegen, Hollandi, 2010. Páll starfaði við innri endur- skoðun í Hollandi og Þýskalandi að loknu námi. Páll verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju í dag, 30. októ- ber 2015, kl. 11. „Þegar þú ert sorgmæddur, skoðaðu þá aftur hug þinn, og þú munt sjá, að þú grætur vegna þess sem var gleði þín.“ Hversu sönn eru ekki orð spá- mannsins Khalils Gibran. Allar góðu minningarnar sem við eigum frá samverustundum okkar með Palla. Á alltof stuttum lífsferli hans sem að hluta til var erlendis. Vegna búsetu, náms, vinnu og ekki síst stofnunar heim- ilis með henni Barbel, var hann löngum fjarri heimaslóð. Við höf- um fylgst með honum vaxa úr grasi, þroskast, upplifa gleði- stundirnar, brosið hans og hlý- leika. Brúðkaup hans og unnust- unnar, þar sem gleði og hamingja var í fyrirrúmi. Allt er þetta þakk- arvert og þar vorum við þiggjend- ur ásamt svo mörgum öðrum. Reyndar er orða vant þegar kveðjustundin kemur svona óvænt og snemma á lífsleiðinni, aðeins hægt að biðja Guð um styrk til handa eiginkonunni, foreldrum, systkinum og öllum þeim sem áttu samleið með honum. Blessuð sé minning hans. Amma Erla og afi Gunnar. Elsku Palli frændi. Það er skrítið að hugsa til þess að þú sért farinn. Og þegar við hugsum um þig eigum við margar yndislegar minningar. Margar þeirra tengjast Strönd- inni, um okkur krakkana í leikj- um. Fjölskyldugleði, laufa- brauðsgerð, álfabrennur, setið í grasinu með samlokur í boxi á sumrin, kleinur og kakó á veturna með útiteknar kinnar. Brandarar, spil, spjall, gítar, söngur og hlátra- sköll. Góðar minningar sem við mun- um ávallt varðveita í hjörtum okk- ar. Minningar um ljúfan dreng með sitt hlýja viðmót og smitandi hlátur. Hvíldu í friði, elsku gleðigjafi. Þínar frænkur, Guðrún Ásta og Arna Hörður. Nú er hann Palli okkar farinn í nýja ferð. Eftir sitjum við með söknuð í hjarta og svo ótalmargar minningar sem hlýja okkur um hjartarætur. Í minningunni vor- um við frændsystkinin fjögur allt- af saman í æsku. Palli var alltaf svo glaður og kátur og birtan skein úr andlitinu hans. Palli kvartaði aldrei yfir því að vera eini strákurinn í hópnum. Hann lét sig meira að segja hafa það að taka þátt í fjölskylduuppfærslu af Söngvaseið heima hjá sér þar sem hann þurfti að leika báða bræð- urna í systkinahópnum. Minning- arnar eru þó fleiri þar sem við vor- um í fótbolta, að spila spil eða tölvuleiki. Við Palli fluttum hvort í sína heimsálfuna þegar við fórum í mastersnám. Palli flutti til Hol- lands en ég til Bandaríkjanna. Á þessum árum sáum við mun minna hvort af öðru en reyndum að hittast þegar hann var á ferða- lagi nálægt mér eða heima á Ís- landi þegar við vorum bæði þar á sama tíma. Það kom fyrir að við hittumst bara á flugvellinum. Einu sinni hittumst við í New York og mér þykir mjög vænt um þann tíma sem við áttum þar. Við kíktum í Central Park, fórum í bátsferð í kringum Manhattan og á Times Square og svo bauð Palli frænku sinni út að borða eins og sannur herramaður. Palli var allt- af að passa upp á alla og að öllum liði vel. Ég er svo þakklát fyrir að hafa átt hann sem vin og frænda. Elsku Bärbel, Brynja, Binni, Erla og Gísli, megi sá sem öllu ræður styrkja ykkur og styðja.Til elsku Palla míns, ég veit að þér líð- ur vel á nýja staðnum og ég veit að ég hitti þig aftur seinna. Þín vinkona og frænka, Gróa Margrét. Það var fyrir rúmlega þrjátíu árum að við systurnar og eigin- menn hófum barneignir. Fljótlega voru frændsystkinin orðin fjögur og þar sem fjölskyldurnar eru samrýndar voru þessi fjögur alin upp saman að mestu leyti. Palli var eini strákurinn og þurfti að standa á sínu í stelpugerinu og eru margar dásamlegar minningar um það sem við geymum í hjarta okkar. Árin liðu, fjölskyldan var um tíma á Nýja-Sjálandi þar sem okkar maður heillaði alla upp úr skónum og kom svo heim altalandi á ensku. Síðan komu Njarðvíkur- árin og alveg sama hvert Palli flutti eftir þann tíma, hann var allt- af Njarðvíkingur. Hann æfði fót- bolta með Njarðvík og var orðinn flottur fótboltamaður þegar hann flutti hingað í Kópavoginn. Í menntaskóla spilaði hann bæði með Breiðabliki og HK. Palli var heimagangur á heimili okkar og á menntaskólaárunum gisti hann oft hjá okkur þar sem langt var að fara heim eftir æfingar sem voru seint á kvöldin. Að sjálfsögðu þurfti Palli í sturtu eftir átökin, og það fór ekki framhjá neinum á heimilinu, svefnfriður var rofinn með söng sem ómaði um allt hús við misjafnan fögnuð áheyrenda, þar var sko ekkert dregið af sér. Palli kláraði stúdentsprófið frá MK og síðan próf í viðskiptafræð- um frá Háskólanum í Reykjavík. Á lokaárinu í HR brá Palli sér til Kaupmannahafnar í skiptinám. Þar heillaðist hann af Bärbel sinni, sem hefur verið förunautur hans æ síðan. Leiðin lá til Hollands í fram- haldsnám og þar lauk hann tvö- földum master í sömu fræðum. Palli og Valdi fóru oft saman á leiki Kópavogsfélaganna á Kópavogs- velli en einnig á aðra velli. Þar skemmtu þeir sér yfir sigrum og urðu fúlir yfir aumingjaskap leik- manna ef Kópavogsliðin töpuðu. Þetta voru gæðastundir sem munu aldrei hverfa úr minni. Palli var af- bragsgóður dansari og verður hans sárt saknað úr áramótadans- leiknum í Foldarsmáranum þar sem hann fór á kostum. Hann var einstaklega góður drengur, með sterkan persónuleika og mikið sjarmatröll, alltaf kátur og með glettnisblik í augum, vildi allt fyrir mann gera. Hann sagði gamansög- ur af sjálfum sér og sá húmor í öllu í kringum sig. Í sumar fórum við hjónin til Þýskalands og áttum dýrmætan tíma með Palla og Bär- bel þar sem þau tóku höfðinglega á móti okkur, sýndu okkur stolt heimili sitt og borgina. Við erum innilega þakklát fyrir þann tíma sem við áttum með þeim. Mikið var hlegið og minningar rifjaðar upp. Elsku hjartans strákurinn okkar, megi algóður guð vernda hann Palla okkar og varðveita á hans nýju vegferð og umvefja hann ljósi sínu. Elsku Bärbel, Brynja, Binni, Erla og Gísli, megi góður guð styðja ykkur og styrkja. Í hvert skipti sem við minnumst Palla verður það með gleði og þakklæti fyrir að hafa verið svo gæfusöm að hafa fengið að vera honum sam- ferða. Guð gefi honum góða ferð og góða heimkomu. Ykkar, Karen og Valdimar. „En ég sem var rétt að byrja að kynnast honum“. Það voru orðin sem hrutu af vörum tíu ára dóttur minnar þegar við fréttum af and- láti Palla. Hún hafði rétt mánuði áður knúsað hann þegar við keyrðum ömmuna og afann til Kölnar í brúðkaup Palla og Bär- bel. Fyrir tíu ára hnátu er minnið oft gloppótt þegar kemur að því að muna hver er hvað í stórum ætt- boga, sér í lagi þegar sjaldan er hist vegna fjarlægðar. Ég var ein- mitt tíu ára þegar Palli fæddist og fannst ég þá vera orðin nokkuð sjóuð í að passa litla frændur, –hann var sá fjórði röðinni á stutt- um tíma og komu hans var fagnað. Að kveðja hann er eitt af því erf- iðasta sem ég hef gert. Mig langar að muna allar stundirnar með honum, en það er hægara sagt en gert. Þetta kemur í skömmtum. Ég man eftir að hafa passað hann á Siglufirði, hann þá tveggja ára – og bleyjan var á yf- irflæði. Ég búin að staðsetja hann í sturtuna og svo horfðumst við í augu og áttuðum okkur bæði á því að þetta myndi ekki enda fallega. Samt var skríkt. Ég man eftir honum brosandi, hlæjandi og um- faðmandi. Ég man eftir honum hamingjusömum sitjandi á kaffi- húsi í Frankfurt með okkur hjón- um og Bärbel. Ég man eftir hon- um spenntum, glöðum og pínu stressuðum þegar ég hitti hann tveimur dögum fyrir brúðkaupið. Ég man hann. Þrátt fyrir að búa bæði hérna megin við hafið, náðum við ekki að hittast nógu oft. Það kom þó fyrir, hann kom til okkar, fyrst í stutt stopp 2008 og eftir það náðum við að hittast nokkrum sinnum. Við vorum heppin að fá að heimsækja hann til Nijmegen í Hollandi þar sem bjó hjá yndislegum hjónum á meðan hann kláraði námið, síðar í Frankfurt með Bärbel og loks vorum við svo heppin að fá þau í heimsókn þegar fjölskyldan hans mætti á svæðið. Heppin! Palli var einstakt eintak af manni. Hann átti nóg af kærleik og hlýju og var óspar á að gefa af sér. Hann setti hagsmuni annarra framar sínum eigin, elskaði fólkið sitt og elskaði Bärbel. Ég bið góðan Guð að vaka yfir öllum sem hann elskuðu og sakna hans í dag. Sigurlaug og fjölskylda í Lúxemborg. Okkar fyrsta minning um Palla er þegar við systkinin fórum í heimsókn til ömmu og afa í Dalt- únið og amma náði í myndbands- spólu og setti í tækið. Þetta voru myndbönd af Palla og Erlu sem Brynjar og Brynja höfðu sent frá Nýja-Sjálandi. Okkur þótti afar spennandi að eiga frænda og frænku sem bjuggu svona langt í burtu. Þegar þau fjölskyldan fluttu síðan heim var alltaf skemmtilegt að heimsækja þau í Njarðvík. Við kynntumst svo Palla sennilega best þegar þau fluttu í Kópavoginn og Palli fór að æfa með okkur í HK. Hann var alltaf kátur, brosandi og almennilegur við allt og alla – það er okkur minning um elsku Palla frænda. Elsku Brynjar, Brynja, Erla og Gísli, við sendum okkar innileg- ustu samúðarkveðjur og megi Guð styrkja ykkur í sorginni. Systkinin Hilmar Rafn, Guðni Már og Ósk. Þær glitra sem skærustu perl- ur í huga mér, minningarnar um allar þær yndislegu stundir sem ég átti með Palla. V ið vorum svo heppin að alast upp saman í stórum hópi frænd- systkina. Það var mikið brallað og brasað eins og við má búast og alltaf nennti Palli að vera í alls- konar stelpuleikjum með okkur frænkunum. Ófáar voru stundirn- ar í sumarbústaðnum þar sem spilað var Monopoly, sungið af innlifun við varðeldinn og Binni spilaði á gítarinn. Þá má ekki gleyma aðalatriðinu sem var heitt kakó og brauð með osti dýft í, því- lík veisla. Fótboltinn var líf Palla og yndi og æfðum við frændsystk- inin stíft. Það var mikið tekist á og ekkert var gefið eftir. Þegar við urðum eldri unnum við saman á Kópavogsvellinum og þótti mér ótrúlega gott að hafa Palla mér við hlið. Hann var traustur og góður vinur og sá alltaf spaugilegu hlið- ina á lífinu. „Always look on the bright side of life“, sönglaði hann iðulega því eitt af því sem Palli hafði unun af voru þeir félagar í Monty Python. Þegar leiðin lá í framhaldsnám til útlanda var það nú bara tilviljun eða kannski forlögin að við Palli fórum bæði til Hollands. Ég mun aldrei getað þakkað það nóg að hafa haft hann Palla svona nálægt mér þessi ár þar sem við vorum bæði svo fjarri heimahögum og yndislegu fjölskyldunni okkar. Það þurfti ekki nema eitt símtal og þá var Palli mættur með opinn faðminn og fallega brosið sitt. Mig langar að vitna í orð tengdaföður míns, Benedikts Benediktssonar frá Stóra-Vatnsskarði, þegar við kveðjum hann Palla okkar og biðja góðan Guð að taka á móti honum inní eilífa ljósið. Biðjum saman, verum virk víst á þessum degi. Nú þó virðist nóttin myrk nálgast birta á vegi. Guðstrúin, oss gefur styrk glötum henni eigi. (Ben. Ben.) Far þú í friði, elsku Palli minn, ég veit að þú munt halda vernd- arhendi þinni yfir okkur sem eftir erum. Þín Þórunn Vala. Ég kveð vin minn Pál Brynj- arsson með söknuð í hjarta. Við kynntumst í Háskólanum í Reykjavík. Síðar lágu leiðir okkar saman í Hollandi þar sem við vor- um báðir við nám, hann í Nijme- gen og ég í Utrecht. Það var gott að vita af honum þar og við hitt- umst þegar vel lá á. Eitt skiptið fengum við hugmynd að fótbolta- móti sem fékk nafnið Péturs og Páls-mótið. Næstu fimm jólafrí var það haldið og var mikill spenn- ingur sem fylgdi þessum leikjum. Minningarnar sem þetta fótbolta- mót skilur eftir eru ómetanlegar. Páll var vinamargur og með ein- staklega jákvæðri og fallegri nær- veru heillaði hann samferðamenn sína. Hann var mjög hjartahlýr, alltaf kátur og brosmildur. Það voru forréttindi að vera vinur hans og eiga með honum samveru- stundir. Ég sendi mínar innileg- ustu samúðarkveðjur til Bärbel, fjölskyldu og annarra aðstand- enda Palla. Megi minning um ynd- islegan dreng lifa um ókomna tíð. Ég fel í forsjá þína, Guð faðir, sálu mína, því nú er komin nótt. Um ljósið lát mig dreyma og ljúfa engla geyma öll börnin þín, svo blundi rótt. (Matthías Jochumsson) Pétur Oddbergur Heimisson. Ég kveð vin minn, Pál Brynj- arsson, með söknuð í hjarta. Við kynntumst í Háskólanum í Reykjavík. Síðar lágu leiðir okkar saman í Hollandi þar sem við vor- um báðir við nám, hann í Nijme- gen og ég í Utrecht. Það var gott að vita af honum þar og við hitt- umst þegar vel lá á. Eitt skiptið fengum við hugmynd að fótbolta- móti sem fékk nafnið Péturs og Pálsmótið. Næstu fimm jólafrí var það haldið og var mikill spenning- ur sem fylgdi þessum leikjum. Minningarnar sem þetta fótbolta- mót skilur eftir eru ómetanlegar. Páll var vinamargur og með ein- staklega jákvæðri og fallegri nær- veru heillaði hann samferðamenn sína. Hann var mjög hjartahlýr, alltaf kátur og brosmildur. Það voru forréttindi að vera vin- ur hans og eiga með honum sam- verustundir. Ég sendi mínar inni- legustu samúðarkveðjur til Bärbel, fjölskyldu og annarra að- standenda Palla. Megi minning um yndislegan dreng lifa um ókomna tíð. Ég fel í forsjá þína, Guð faðir sálu mína, því nú er komin nótt. Um ljósið lát mig dreyma og ljúfa engla geyma öll börnin þín, svo blundi rótt. (Matthías Jochumsson) Pétur Oddbergur Heimisson. Páll Brynjarsson Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og bróðir, HALLDÓR HALLDÓRSSON bifvélavirki frá Ísafirði, lést þriðjudaginn 27. október á hjúkrunarheimilinu Eiri. Hann verður jarðsunginn frá Ísafjarðarkirkju laugardaginn 7. nóvember klukkan 11. . Ingibjörg Halldórsdóttir, Hannes Guðmundsson, Sigrún Halldórsdóttir, Björn Jóhannesson, Marta Kristín Halldórsdóttir, Valur Þór Norðdahl, Einar Halldórsson, Lanilyn Galo Secuya, afa, langafabörn og systur hins látna. Elskulegur faðir okkar og sonur, KRISTJÁN JÓN JÓHANNSSON, lést á heimili sínu þann 22. október. Hann verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu þriðjudaginn 3. nóvember klukkan 11. Blóm og kransar afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Samhjálp og Geðhjálp. . Ragna Björk Ragnarsdóttir, Kristján Helgason, Jóhann Helgi Í. Kristjánsson, Telma Torfadóttir, Anna Gígja Sigurjónsdóttir Galito, barnabörn og aðrir aðstandendur. Lífshlaupið er oft þyrnum stráð en maður er sem betur fer svo lánsamur á lífsleiðinni að kynn- ast skemmtilegu fólki. Árið 1994 varð ég svo heppinn að hitta dáðan kappa sem við kveðjum í dag, Helga Flóvent Ragnarsson eða Helga Ragg. Ég hafði álpast á fót- boltaæfingu hjá Gróttu hvar Helgi var þjálfari. Ekki voru margar Helgi Flóvent Ragnarsson ✝ Helgi FlóventRagnarsson fæddist 2. ágúst 1951. Hann lést 6. október 2015. Útför Helga var gerð 20. október 2015. mínúturnar liðnar þegar maður fann og áttaði sig á hve mikill snillingur var þar á ferð. Æfingarnar voru hvorki flóknar né margar en áttu eitt sameiginlegt; þær voru svakalega skemmtilegar. Ekki síst vegna þess að að æfingum loknum tók jafnan við í búnings- klefanum „sögustund Helga“ hvar við leikmennirnir emjuðum úr hlátri. Maður beið þarafleiðandi í ofvæni eftir næstu æfingu og þrátt fyrir að hafa talist helst til latur og góður við sjálfan mig hafði Helgi þau áhrif að maður var tilbúinn að æfa á hverjum degi. Maður hænd- ist að kappanum þrátt fyrir að vera sá er líklegast oftast fékk „að heyra það“ frá honum. Helgi hafði lag á því að tala um hve góður íþróttamaður hann hefði verið og gat einnig talið okkur strákunum trú um að hann væri það ennþá, þrátt fyrir að vera kominn af létt- asta skeiðinu. Taldi Helgi sig t.a.m. jafnvígan í fótbolta og handbolta. Einu sinni að kappleik loknum sagði Helgi að það hefði verið rosalegt að sjá mig klúðra einu dauðafærinu. „Kiddi minn, ég hef aldrei áður séð dæmda töf á knattspyrnumann í skyndisókn“ og vísaði til þess að undirritaður var ekki sá fljótasti í bransanum. Hann bætti síðan við eftir mikil hlátrasköll: „Strákar, ég lenti reyndar einu sinni í því þegar ég var í handboltanum að það var tæmd töf á mig í uppstökki.“ Ástæðan? Jú, hann sveif svo lengi í loftinu. Helgi var nokkrum miss- erum síðar kallaður heim í FH og leiðir okkar skildi. Fylgdist ég á komandi árum með Helga úr fjarska og fékk reglulega fréttir af honum frá hans góðu félögum sem reyndust honum afar vel á lífsleið- inni. Ég var því meðvitaður um baráttu hans utan vallar. Ég mun ekki gleyma því þegar ég hitti Helga fyrir allnokkrum árum, þá á Þorláksmessu í Kringlunni. Hann var kátur og þegar við kvöddumst sagði hann kíminn: „Kiddi minn, gaman að hitta þig og sjá að þú virðist eftir öll þessi ár vera ná- kvæmlega jafnfeitur og þegar ég þjálfaði þig.“ Ég vissi mætavel að eitthvað lægi í loftinu og það kom ekki á óvart að okkar maður hafði ekkert breyst. Fjölskyldu og vinum sendi ég mínar innilegustu samúð- arkveðjur. Ég ber einnig kveðjur frá samherjum mínum, leikmönn- unum þínum, Helgi minn. Minning- in um þig mun lifa og öllum sem þig þekktu er ljóst að nú verður heldur betur stuð í himnaríki. Kristinn Kjærnested.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.