Morgunblaðið - 30.10.2015, Page 36
36 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 2015
✝ Haraldur Frið-jónsson fædd-
ist í Vestmanna-
eyjum 23. janúar
1940. Hann varð
bráðkvaddur á
Landspítalanum
við Hringbraut í
Reykjavík 20.
október 2015.
Foreldrar hans
voru Friðjón Jó-
hannsson sjómað-
ur, fæddur á Skálum á Langa-
nesi 11. júní 1910, látinn 22.
apríl 1995, og Sigurveig
Munda Gunnarsdóttir, fædd á
Barónsstíg 12 í Reykjavík 9.
september 1918, látin 22. des-
leysingjaskólanum. Haraldur
fór snemma að vinna á sjó en
hafði unnið ýmis störf í landi,
þá aðallega í Hampiðjunni sem
netamaður. Haraldur var á
mörgum skipum í gegnum ár-
in, en sjómennskan átti hug
hans allan. Hann lét af störfum
árið 2006 eftir 47 ár á sjó en
þá hafði hann verið lengst af á
frystitogaranum Frera sem
gerður var út frá Ögurvík.
Barnsmóðir Haraldar er
Sigríður Ása Sigurðardóttir en
slitu þau samvistum árið 1990.
Börn þeirra eru: 1) Einar
Ragnar Haraldsson, maki Júlía
Baldvinsdóttir. Barn þeirra er
Haraldur Marjón Einarssson.
2) Hermína Erla Haralds-
dóttir, maki Egill Guðmunds-
son. Barn þeirra er Guðlaug
Náttsól Guðmundsdóttir.
Útför Haraldar fer fram frá
Grensáskirkju í dag, 30. októ-
ber 2015, klukkan 13.
ember 1975. Al-
systkin eru Jóhann
Gunnar Friðjóns-
son, Edda María
Gundersen, Sigur-
dór Friðjónsson og
Tómas Sævar
Friðjónsson.
Sammæðra eru
Ágúst Engilbert
Blomquist Sveins-
son, Viggó Bjarna-
son, Eggert Bjarni
Bjarnason, Birna Sigríður
Bjarnadóttir, Brynja Hrönn
Bjarnadóttir og Jarl Bjarna-
son.
Haraldur ólst upp í Reykja-
vík og var við nám í Heyrn-
Ég er ennþá að átta mig á því
að þú sért farinn frá okkur,
elsku pabbi. Ég vissi að að
þessu kæmi en ekki strax. Þetta
er allt svo óraunverulegt og ég
vil helst að þetta sé allt einn
draumur og þú komir hlæjandi
til mín og segir mér að vakna.
Það er bara svo margt sem við
áttum eftir að gera saman. Við
ætluðum að fara næsta sumar
austur á land og kíkja á Langa-
nes. En það voru nokkur ferða-
lög á planinu hjá okkur sem
nást ekki núna, því miður.
Ferðalögin halda áfram og þú
ert í þínu síðasta en ég ætla að
halda áfram með litlu fjölskyld-
unni minni sem við ætluðum að
gera saman með þér. Þegar ég
lít til baka koma upp margar
minningar sem draga fram bros
hjá mér. Við vorum eins og
skytturnar þrjár, þú, ég og
Hermína systir, en það var
margt sem við brölluðum saman.
Þó að þú hafir ekki verið mikið
með okkur í gegnum árin, vegna
sjómennskunnar, komstu alltaf
norður í sveitina um leið og þú
gast og alltaf um jólin. Það var
alltaf mikil tilhlökkun að fá þig
og símtölin voru ófá sem við
hringdum í skipið eða útgerðina
til að athuga hvenær pabbi
kæmi í land.Oft á tíðum komstu
án þess að láta okkur vita og því
gleymi ég aldrei hversu glöð við
vorum að fá þig til okkar, enda
ertu besti pabbi í öllum heim-
inum. Mér er svo minnisstætt
þegar ég varð fimm ára og þú
komst til mín í leikskólann og
tókst það allt upp á vídeóvélina
þína. Þá var afmælisveisla í full-
um gangi og við vorum að háma
í okkur frostpinna þegar þú
komst. Ég hreinlega vissi ekki
hvert ég ætlaði og hvað þá þeg-
ar ég sá að þú hafðir keypt
handa mér Stiga-sleða, ó hvað
mig langaði í svoleiðis. Ég var
ekki lengi að fara og renna mér
á þessum svaðalega sleða og
skransaði eins mikið og ég gat,
því það var svo töff. En þar sem
þú varst sjómaður voru veiði-
stangirnar alltaf í bílnum hjá
þér og við renndum stundum
fyrir fisk, hvort sem það var í
einhverri á eða bara niðri á
bryggju. Verst fannst mér alltaf
þegar marhnúturinn beit á, því
mér fannst hann alltaf svo ljótur
að ég þorði ekki að losa hann.
Þér fannst það náttúrlega ekk-
ert mál og stríddir mér aðeins
með því að hlaupa á eftir mér
með þennan ljóta fisk. Ég ætlaði
alltaf að verða alveg eins og þú,
fór að teikna sjóaratattú á mig
með tússpenna. Ég er með fullt
af sögum til að segja börnunum
mínum í komandi framtíð. Best
finnst okkur að þú hafir náð að
hitta litla drenginn okkar og
þegar þú komst með Hermínu
upp á fæðingardeild í byrjun
september. Það leyndi sér ekki
hvað þú varst ánægður og líka
að hann skuli deila sama nafni
og afi sinn. Ég mun segja Har-
aldi litla og Náttsól sögur af þér
og hversu æðislegur pabbi og afi
þú hafir verið. Það er ofboðslega
leiðinlegt að barnabörnin þín
skuli ekki kynnast þér betur, en
þau munu kynnast þér vel
ígegnum sögurnar sem við syst-
kinin munu segja þeim ásamt
öllum vídeóupptökunum. Með
söknuði í hjarta, tárum og sorg
kveð ég þig, elsku besti pabbi
minn. Þú varst okkur allt og ert.
Við munum hitta þig í draumi,
þú ert í kringum okkur, þú ert í
börnum okkar og ég finn fyrir
nærveru þinni, minn elsku besti
pabbi.
Þinn sonur,
Einar Ragnar Haraldsson.
Elsku pabbi minn. Að kveðja
þig er það erfiðasta sem ég hef
gert. Setningin sem er svo oft
notuð í svona aðstæðum „enginn
veit hvað átt hefur, fyrr en misst
hefur,“ á ekki við hér, því ég
veit að ég átti besta pabba í
heimi. Ég á svo margar góðar
minningar sem ég mun halda
fast í. Þó svo að þú hafir eytt
mestum hluta ævi þinnar á sjó,
þá kunnir þú vel að bæta tap-
aðan tíma. Þegar þú komst heim
og, já, ég taldi niður dagana þar
til Freri kæmi í land. Og litla
stelpan var bæði spennt fyrir
pabbaknúsi og líka – „Hvað
keyptirðu handa mér?“ Mínar
bestu minningar eru um ferða-
lögin sem við fórum í á sumrin
og að veiða. Það var sko gaman
að vera dugleg, eins og pabbi, að
veiða fisk í matinn. Þú varst
ekki bara frábær pabbi, því þú
varst líka yndislegur afi. Ég veit
að þú hefðir vaðið í gegnum eld
og brennistein fyrir afastelpuna
þína. Það er sárt að hún fékk
ekki að hafa afa sinn lengur, en
ég mun halda minningu þinni á
lofti og tala um frábæra afa
hennar. Ég veit að þú varst að
springa úr monti yfir henni,
enda margir sem sögðu að hún
líktist þér. Ég elska þig og við
sjáumst síðar.
Þín dóttir,
Hermína Erla Haraldsdóttir.
Það var margt sem flaug í
gegnum huga mér þegar Einar
Ragnar frændi minn hringdi í
mig og sagði mér að pabbi sinn,
Haraldur eða Halli, hefði látist
þá um daginn. Þessi frétt kom
mér ekki endilega á óvart því ég
vissi að Halli var búinn að vera
veikur, en samt var ég ekki
tilbúin til að kveðja hann strax
því mér fannst ég eiga eftir að
heimsækja hann á DAS eða í
Austurbergið.
Ég kynntist Halla þegar hann
og Sigríður Ása systir mín hófu
sambúð fyrir rúmum 30 árum
síðan. Þó að þeirra sambúð hafi
lokið lauk ekki okkar vináttu.
Halli var vinur vina sinna og því
fékk ég svo sannarlega að kynn-
ast. Hann var ekki bara góður
og tryggur vinur heldur einnig
yndislegur faðir. Það kom best í
ljós þegar hann átti frí frá sjón-
um, þá var hann farinn norður á
land til barna sinna Einars og
Hermínu sem þar bjuggu.
Maður fékk fljótt að kynnast
glettninni og stríðninni í honum,
þá ljómuðu augun og glott lék
um andlitið og síðan kom hlátur.
Ég átti alltaf athvarf á heimili
hans þegar ég þurfti að fá gist-
ingu í Reykjavík, honum þótti
það meira en sjálfsagt að hýsa
mig. Ég var við nám í guð-
fræðideild HÍ haustið 2013 og
bjó þá hjá honum, það var ekki
leiðinlegt og brölluðum við ým-
islegt saman og ekki skemmdi
það að okkar matarsmekkur var
svipaður, bara sannur íslenskur
matur. En ég fékk líka margar
stríðnisglósurnar frá honum,
sérstaklega man ég ef mér varð
eitthvað á þá signdi hann sig í
bak og fyrir, alltaf með glotti og
stríðnisglampa í augum.
Það er sárt að kveðja þennan
öðling sem vildi allt fyrir alla
gera og mátti ekkert aumt sjá.
Halli skilur eftir margar góðar
minningar og fengu börnin hans,
Einar Ragnar og Hermína Erla,
gott atlæti og tilsögn sem þau
geta nýtt sér í uppeldi á sínum
yndislegu börnum en Halli var
svo sannarlega stoltur afi.
Minningin lifir í huga og
hjörtum okkar sem kynntust
honum. Megi algóði Guð styrkja
ykkur og blessa elskulegu Einar
Ragnar, Hermína Erla og fjöl-
skyldur, ykkar missir er mikill,
innilegar samúðarkveðjur. Halli
minn, hafðu þökk fyrir allt og
allt.
Þú varst hraustur, þjáning alla
þoldir þú og barst þig vel,
vildir aldrei, aldrei falla:
Uppréttan þig nísti hel.
Þú varst sterkur, hreinn í hjarta,
hirtir ei um skrum og prjál;
aldrei náði illskan svarta
ata þína sterku sál.
(Matthías Jochumsson)
Hinsta kveðja,
Jónína Auður.
„Röðin af hvítu járnrúmun-
um, fatahengi með litlu húfunum
og litlu kápunum hlið við hlið,
glösin með tannburstunum, öll
jafnstór og öll eins á litinn; þetta
var allt svo skipulegt.“
Þessi tilvitnun er úr Morg-
unblaðinu í grein um Málleys-
ingjaskólan í Stakkholti árið
1948, mynd af 19 nemendum
prýðir blaðið, þar á meðal er
Halli frændi, þá átta ára.
Þannig var búið að nemend-
um á heimavistinni, reglufesta
og agi hefur verið hluti af dag-
legu lífi barnanna líkt og víða
annars staðar á þessum tíma.
Það hefur því verið góð tilbreyt-
ing að komast á sumrin í sveit-
ina til föðurbróður síns á Skál-
um á Langanesi, þar sem hann
hitti fyrir systkinabörn á sama
reki, þar veit ég að hann undi
hag sínum vel.
Fljótlega eftir að skólagöngu
lauk, í kringum 1957, flytur
hann til foreldra minna á Skúla-
skeiðið í Hafnarfirði. Þar verður
hann einn af fjölskyldunni, fyrst
bara með mömmu og pabba í
heimili og síðar með okkur
bræðrum. Á þessum tíma fór
hann að fara með pabba á tog-
ara og voru þeir saman á sjó um
árabil. Var þetta upphafið að 47
ára samfelldu sjómannsstarfi
sem hann var síðar heiðraður
fyrir, þegar honum var afhent
Heiðursmerki Sjómannadagsins
2006.
Hlýjar minningar á ég úr
æsku sem eru samofnar Halla.
Ég man eftir okkur „talandi“
saman, hvernig hann kallaði á
mig, að segja mér eitthvað eða
komandi heim með eitthvert
góss úr siglingum – niðursoðna
skinku, mackintosh og dót.
Þegar ég er í kringum sex ára
gamall, flytur Halli burtu og býr
sér sitt eigið heimili, þá búinn að
búa heima í hartnær 15 ár.
Mér er minnisstæð ferð á
Skála, árið er 1978; Halli keyrir
með okkur á ljósbrúnum Jeep
Wagoneer. Mamma og pabbi
aftur í, ég þar á milli, Nonni og
Halli frammí. Mamma og pabbi
þá reyklaus í fjögur ár, en þeir
feðgar frammí ekki – tóbaks-
reykur og vegryk fyllir bílinn
alla ferðina, ég er ekki frá því að
foreldrum mínum hafi þótt það
ágætt.
Þegar á Skála var komið tek-
ur Halli upp veiðistöng og förum
við að vatni, meðan hin ganga
upp að kirkjugarði, það bítur á
og Halli réttir mér þögull stöng-
ina, dreg ég þarna að landi minn
fyrsta fisk – hrygnu!
Árið 1983 eignast Halli, með
barnsmóður sinni, Einar, sem er
skírður í höfuðið á pabba, og síð-
ar Hermínu. Bæði hafa þau fært
honum gleði og lífsfyllingu.
Í fyrra hitti ég Halla á ætt-
armóti, þar sýndi hann okkur
fyrsta barnabarnið sitt – dóttur
Hermínu og Egils; Guðlaugu
Náttsól. Hvað hann var stoltur
með litlu stelpuna og ekki
minnst að hún hefði fengið hára-
litinn hans.
Núna fyrir fáum vikum kom
svo annað kríli í heiminn, sonur
Einars og Júlíu, og get ég rétt
ímyndað mér gleðina hjá honum
yfir því og ekki hefur dregið úr
að drengurinn myndi verða
nafni hans.
Elsku frændi það er komið að
kveðjustund, þú varst alltaf einn
af mínum uppáhalds og það var
yndislegt að hafa fengið að alast
upp með þig í kringum mig.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir)
Rögnvaldur G. Einarsson.
Í dag kveð ég góðan vin minn,
Harald Friðjónsson, við fé-
lagarnir vorum saman til sjós í
45 ár, þar af voru það 30 ár
samfleytt hjá Ögurvík hf.
Það var einmitt þar sem Har-
aldur kom til mín og bað mig
um aðstoða sig við að fá pláss.
Ég ræddi við Binna skipstjóra
sem bauð Haraldi pláss og sam-
an sigldum við í 30 ár. Við Har-
aldur vorum ekki bara skips-
félagar og vinir heldur
tilheyrðum við báðir samfélagi
heyrnarlausra. Við ferðuðumst
saman um allan heim.
Það kom fyrir að ég aðstoðaði
Harald ef hann þurfti að láta
túlka fyrir sig í gamla daga áður
en túlkaþjónustan kom til, það
var lítið mál af því við vorum
góðir félagar og það voru ófáar
ferðirnar sem ég fór með Har-
aldi að heimsækja börnin hans,
Hermínu Erlu og Einar Ragnar,
norður, en Haraldur var ein-
staklega góður pabbi og ég veit
að börnin hans sakna föður síns.
Fyrir nokkrum árum fjárfest-
um við báðir í tjaldvögnum og á
þeim ferðuðumst við mikið um
Ísland og við létum okkur ekki
vanta á Döffmót og mættum þar
kátir og hressir.
Ég kveð þig í dag, kæri fé-
lagi, með þökk fyrir allt.
Sjáumst síðar, vinur, þegar
minn tími kemur.
Rudolf sjóari.
Það eru þung skref að kveðja
sinn mesta eðalvin til 30 ára,
hann Halla „fósturpabba“, eins
og ég kallaði hann oft.
Kynni okkar hófust eitt kvöld
1981 í mötuneyti í heimavistinni
í Heyrnleysingjaskólanum. Úti
geisaði illviðri með snjókomu er
inn kom rauðhærður gæi með
blauta sígarettu í öðru munnvik-
inu og bað um aðstoð við að
setja keðjur undir „litla gula
húsbílinn“ sinn. Það varð mér til
happs að ég bauð strax fram að-
stoð, því þarna mynduðum við
vinatengsl sem hafa haldist
óslitin síðan. Þó 24 ár væru á
milli okkar þá vorum við sem
límdir saman þegar hann kom
heim í land eftir túra með Ru-
dolf, sem stundaði sjóinn með
honum um borð í Ögra.
Við Halli fórum saman í
margar útilegur, hverja annarri
skemmtilegri. Einu sinni keypti
hann sér glænýjan tjaldvagn og
við ókum rakleitt til Varmahlíð-
ar og tjölduðum þar. Áður en
við opnuðum tjaldvagninn sagði
Halli: „Fáum okkur sopa“, sem
við gerðum og tæmdum pelann
áður en við opnuðum tjaldvagn-
inn. Við hefðum betur beðið með
það því við vorum heila þrjá
tíma að græja tjaldvagninn!
Mikið var sko hlegið, svo okkur
verkjaði í kjálkana. En á næsta
tjaldsvæði biðum við með að
opna pelann og vorum ekki
nema 15 mínútur að græja tjald-
vagninn! Þá náði Halli í pelann
og sagði „skál“ – og aftur hlóg-
um við kjálkann af okkur.
Seinna byrjaði ég með henni
Billu minni sem átti eitt barn
fyrir, hann Davíð, og mynduðust
þá góð tengsl milli Davíðs og
Einars Ragnars, sonar Halla, og
seinna eignaðist Halli svo Herm-
ínu Erlu með þáverandi sam-
býliskonu sinni. Í öllum útileg-
um sem við fórum í saman með
börnunum okkar og þeirra þá
var alltaf glatt á hjalla, Hermínu
leið svo vel í faðmi Billu sinnar
að hún vildi aldrei sleppa! Halli
brosti við þessari sjón og var
glaður.
Halli vissi að ég væri alltaf að
reyna að komast út á sjó, helst á
frystitogara, en það reyndist
erfitt því alltaf var spurt „ertu
vanur,“ þangað til Halli kom
heim til mín og bað mig um að
koma með sér til Binna skip-
stjóra á Frera RE 73 til að túlka
fyrir sig, hann væri svo slæmur
í baki að hann þyrfti frí. Og við
brunuðum til Binna og Halli bað
um frí og Binni segir ok, en svo
bendir Halli allt í einu á mig og
segir við Binna „Gummi sjó“.
Binni spyr mig hvað Halli meini
og ég eldroðnaði og sagði, „Halli
spyr hvort ég megi fara í hans
stað“, þá horfir Binni á Halla,
sem blikkar augunum hratt og
fallega, svo horfir Binni á mig,
mælir mig út og segir eftir 10
langar sekúndur; „ok, brottför
annað kvöld kl 8!“ Þarna byrjaði
ég að fá nasasjón af sjómennsku
á frystitogara með hjálp frá
Halla og einnig nokkrum mán-
uðum seinna, en þá slasast einn
um borð og þurfti að sigla með
hann heim á móti lóðs og frétti
Halli af því og hljóp strax upp í
brú til Hannesar stýrimanns og
skrifaði á blað nafn mitt og
símanúmer og sagði við Hannes
„ Gummi sjó“ og já það var
hringt í mig og ég um borð í
lóðs sem sigldi til móts við
Frera fyrir utan, en sá fyrsti
sem tók á móti mér var Halli
með bros á vör og sígarettu í
öðru munnvikinu.
Margt væri hægt að skrifa
um „fósturpabba“ en það er svo
mikið að ég kem ekki öllu fyrir á
blað. Ég byrjaði að skrifa þessa
grein með bros í huga og með
mynd af okkur fyrir framan mig
en núna sækir sorgin svo á mig
að ég get ekki meir. Sakna hans
svo gríðarlega sárt að orð fá
ekki lýst, besti rauðhærði vinur
minn farinn, kemur ekki lengur
í kaffi til mín með faðminn út-
breiddan og koss á kinn eins og
hans var lagið. En hann mun
ekki hafa áhyggjur því við Billa
munum halda verndarhendi yfir
börnunum hans, Einari og
Hermínu sem eru „börnin“ okk-
ar Billu.
Far vel, elsku hjartans vinur
minn, hafðu þökk fyrir allar þær
ómetanlegu stundir sem við
Billa höfum átt með þér og þín-
um.
Guðmundur og Guðrún
(Gummi og Billa).
Látinn er Haraldur Friðjóns-
son sjómaður.
Hann var með parkinson-
sjúkdóminn síðustu árin, svo
fékk hann hjartaáfall og lést af
því. Haraldur, eða Halli eins og
kunningjar hans og skipsfélagar
hans kölluðu hann, fékk heila-
himnubólgu þegar hann var ein-
ungis fjögurra ára gamall. Í
þessum veikindum missti Halli
alla heyrn. Barnungur var hann
sendur norðan af Langanesi, þar
sem hann bjó, til Reykjavíkur í
Heyrnleysingjaskólann, til náms
í táknmáli fyrir heyrnarlausa.
Það hefur verið erfitt fyrir ung-
an dreng að fara frá fjölskyldu
sinni til ókunnugra, alveg heyrn-
arlaus.
Halli var sjómaður lengst af
starfsævi sinni. Brynjólfur Hall-
dórsson skipstjóri var annar
stýrimaður á togaranum Mars,
þegar hann kynntist Halla fyrst.
Þegar Brynjólfur varð skipstjóri
á togaranum Ögra R.E. 72. var
Halli einn af fyrstu hásetunum
sem hann réð í skipsrúm á Ögra.
Um tíma voru fjórir heyrnar-
lausir hásetar hjá Brynjólfi á
Ögra. Það þurfti ekki há köll eða
öskur til að þeir skildu hvað
gera þurfti, einfaldar bendingar
dugðu. Það virðist vera svo, að
ef menn tapa einu skilningarviti,
þá eflast önnur skilningarvit,
þetta sannaðist á Halla.
Ég kynntist Halla fyrir um
þrjátíu árum þegar við urðum
skipsfélagar á frystitogaranum
Frera R.E. 73. Skipstjóri á
Frera var Brynjólfur Halldórs-
son og fylgdi áhöfnin af Ögra að
mestu leyti yfir á Frera. Ég
hafði ekki umgengist heyrnar-
lausa manneskju fyrr en ég hitti
Halla. Það kom mér á óvart hve
hann var skilningsríkur á bend-
ingar og handapat manna sem
ekki kunnu táknmál. Hásetar
sem störfuðu með honum á
dekkinu sögðu að hann hefði
verið næmur á allar hreyfingar
nálægt sér og jafnvel fyrir aftan
sig. Einnig fylgdist hann vel
með handabendingum í brúar-
gluggunum á þeim skipum sem
hann starfaði á. Það þurfti ekki
margar bendingar, svo hann
vissi hvað gera skyldi. Halli var
afburða sjómaður, og einstakur
netamaður. Hann var fljótur að
sjá hvernig troll var rifið og ef
það var í henglum eins og kallað
er. Halli var afar vel gefinn á
bókina, eins og sagt er, og las
mikið sér til gagns. Einnig var
hann sterkur skákmaður. Ég
man eftir skákmóti sem var
haldið um borð í Frera í Smug-
unni, það er veiðisvæði sem var
stundað fyrir nokkrum árum.
Þar varð hann í öðru sæti, það
var tæplega hægt að vinna hann
í skák. Eftir að sjómennsku
Halla lauk, starfaði hann um
tíma í Hampiðjunni, við neta-
gerð.
Eitt af áhugamálum Halla var
stangveiði, hann átti góða jeppa
á seinni árum, og fór á þeim í
veiðitúra í silungsvötn og ár.
Þegar litið er yfir starfsævi
Halla sést að fatlaðir geta unnið
sum störf jafnvel og ófatlaðir.
Halli á tvö uppkomin dugnaðar-
börn.
Blessuð sé minning Haraldar
Friðjónssonar sjómanns.
Pétur Kristjánsson.
Haraldur
Friðjónsson