Morgunblaðið - 30.10.2015, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 30.10.2015, Blaðsíða 39
MINNINGAR 39 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 2015 Í minningu pabba. Fæddur var í Fagurhlíð, fer barn að Hæðargarði. Sveitin bæði hrjúf og blíð, ber við fjöllin ægifríð, æskuárin liðu fyrr en varði. Vinnusemi föður frá fljótt hann nam í æsku. Bros og birtu vildi sjá, blíðu sótti móður hjá, var þar nóg af góðsemi og gæsku. Létta ávallt hafði lund, lífsins njóta skyldi. Glasi lyfti‘ á góðri stund, glaður fór á vinafund, hann með sóma sönginn leiða vildi. Veður þekkti vond og stríð er vegi landsins ók um. Oft í hörku vetrarhríð, hugur sterkur alla tíð, seint um síðir, bar hann heim að lokum. Hafði ást á sinni sveit, var sannur Skaftfellingur. Ástin sú var ofurheit, austur oft til baka leit, gladdi hugann fagur fjallahringur. Ófært honum ekkert var, að efast ekki kunni. Börnin hann á höndum bar, hlífði sér í engu þar, fjölskyldunni framar öllu unni. Grýtta götu oft hann tróð en gekk þó áfram veginn. Móti stríðum straumi óð, sterkur þá í fætur stóð, loksins náði landi hinum megin. Elsku pabbi okkur kær, við ávallt hugsum til þín. Eins og hafi gerst í gær, góð er minning björt og tær, mamma mun nú aftur fá þig til sín. (SE) Guð þig geymi, elsku pabbi. Gyða, Helga, Guðbrandur, Guðlaug og Sigurjón. Kveðja Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum, lifum í trú að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni Drottinn minn faðir lífsins ljóss lát náð þína skína svo blíða. Minn styrkur þú ert, mín lífsins rós tak burt minn myrka kvíða. Þú vekur hann með sól að morgni Faðir minn láttu lífsins sól lýsa upp sorgmætt hjarta. Elías Pálsson ✝ Elías Pálssonfæddist 14.6. 1921. Hann lést 25.9. 2015. Útför Elíasar fór fram í kyrrþey 20. október 2015. Hjá þér ég finn frið og skjól. Láttu svo ljósið þitt bjarta vekja hann með sól að morgni Drottinn minn réttu sorgmæddri sál svala líknarhönd. Og slökk þú hjartans harmabál slít sundur dauðans bönd. Svo vaknar hann með sól að morgni Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. Svo vöknum við með sól að morgni (Bubbi Morthens) Elsku Elli afi, takk fyrir að hafa alltaf trú á mér, ég kveð þig með söknuði og veit að þú ert kominn á betri stað núna, með ömmu. Ég veit að þú fylgist með mér úr Sumarlandinu. Bless, elsku afi minn. Þín Þóra Björg Sigríðardóttir. Nú kveð ég um sinn og skil við svo ótalmargt og mér þykir það leitt að ég fæ engu breytt. Og nú er ég fer ég bið, ei gráttu mig tak góðu stundirnar er okkur auðnaðist hér. Ég vera skal nær mun geymast í hjarta þér og hvert sem sál mín fer þar eflaust frið nú ég finn. Gráttu ei… brostu breitt. Gráttu ei… ég bið um það eitt bið fyrir mér, já, bið fyrir sjálfum þér, en grát ei örlög mín. Ég mun sakna þín. Um annað ég bið Guð geym þú börnin mín, og þau muni leita þín þá hlýt ég eilífan frið. Nú kveð ég um sinn og skil við svo ótalmargt, og mér þykir það leitt að ég fæ engu breytt. (Bryndís Halldóra Jónsdóttir) Elsku afi Elli, núna ertu kom- inn á góðan stað og sameinaður aftur ömmu Vilhelmínu. Kveð þig með söknuði en þó mörgum góðum minningum í hjarta. Ég veit þú fylgist með okkur og passar. Hvíldu í friði, afi minn, og við sjáumst seinna. Þín Ellen Sif Skúladóttir. Vertu blessaður og sæll, vinur. Ég þakka þér fyrir þá vináttu sem við eig- um og gleymum ekki. Við kynntumst árið 1954. Þá áttum við saman hús á Kirkju- vegi í Keflavík, þið uppi og við niðri. Ég var 18 ára með þrjú börn, en þið Nenna áttuð bara Arnlín þá. Ég átti það til að ná í Arnlín Óli Jón Ólason ✝ Óli Jón Ólasonfæddist 17. október 1933. Hann lést 7. október 2015. Útför Óla Jóns fór fram 14. október 2015. í hópinn. Þú kennd- ir mér að hita upp slátur, keypt tilbú- ið. Enda varstu fínn kokkur. Þið fluttuð svo í Skíða- skálann. En þá áttum við ekki bíl. Samt hit- umst við þar einu sinni og það var eins og við værum í sama húsi ennþá. Það sem ég skrifa núna eru hjartans þakkir fyrir góðar minningar liðins tíma. Af öllum þeim gæðum sem okkur eru gefin er vináttan dýr- mætust. Vertu Guði falinn. Blessaður og sæll. Gréta og Sveinn Jakobsson. FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT Á EÐA Í SÍMA MOGGAKLÚBBURINN TILBOÐ Á RAUÐUM OG HVÍTUM MINNINGABÓKUM FRÁ 10. OKTÓBER TIL 10. NÓVEMBER. Áskrifendur Morgunblaðsins eru sjálfkrafa meðlimir í Moggaklúbbnum og njóta ýmissa fríðinda og tilboða. Hægt er að fylgjast með hvað er í boði hverju sinni á moggaklubburinn.is og fá tilboðin send í tölvupósti með því að skrá sig á póstlistann. Hafðu samband í síma 569 1100 eða askrift@mbl.is hafi Moggaklúbbskortið ekki borist þér. Bókina má panta á forsíðu mbl.is eða á slóðinni mbl.is/minningar. Hægt er að kaupa minningabækur með greinum sem birst hafa frá árinu 2000 og til dagsins í dag. Minningarorð og kveðjur samferðamanna eru dýrmætur virðingarvottur sem eftirlifandi ástvinum gefst nú kostur á að búa veglega umgjörð til varðveislu um ókomin ár. Minningar er fallega innbundin bók sem hefur að geyma æviágrip og allar minningargreinar sem birst hafa um viðkomandi í Morgunblaðinu og á mbl.is. Verð til áskrifenda er 11.700 kr. Tilboðsverð: 8.290 kr. Fyrir nánari upplýsingar sendið póst á minningabok@mbl.is Við Rúnni urðum vinir held ég strax í fyrsta bekk í Odd- eyrarskólanum, og smám saman óaðskiljanlegir. Við áttum skap saman, við vorum ekki íþróttagarpar heldur inni- púkar sem lásu bækur og skrif- uðu sögur. Við fylltum fjöldann allan af stílabókum af ævintýr- um. Á þessum árum var alls ekki sjálfgefið að hraustir strákar fengju að „hanga inni“ við það sem kannski var þá álitið hálf- gert iðjuleysi, en heitir núna skapandi hugsun og þykir mikils um vert. En við fengum að vera við sjálfir, oftar en ekki heima Rúnar Haukur Ingimarsson ✝ Rúnar HaukurIngimarsson fæddist 12. sept- ember 1964. Hann lést 14. október 2015. Útför Rúnars fór fram 23. októ- ber 2015. hjá Rúnna, þar sem ég var heimagangur í mörg yndisleg ár sem ég minnist allt- af með mikilli hlýju. Ég man ekki hvað við vorum gamlir þegar við gerðum fyrstu til- raunina til að gefa út blað – hún gekk ekki alveg nógu vel en við gáfumst ekki upp og áður en langt um leið höfðum við, ásamt Tomma frænda, komið út skólablaði Odd- eyrarskólans. Gott ef okkur tókst ekki að koma út þrem tölublöð- um á einum vetri. Ég held að það hafi verið um svipað leyti sem Rúnni eignaðist alvöru mynda- vél, og þá má segja að örlög okk- ar beggja hafi verið ráðin. Með myndavélinni fann Rúnni sköpunargáfu sinni farveg á áhrifamikinn hátt. Bókstaflega allt varð að myndefni, enda voru það ekki endilega viðfangsefnin sem veittu mesta gleði, heldur það að búa eitthvað til, skapa eitthvað. Þetta var sköpunar- gleði. Þeir eru ótalmargir sem síðan hafa notið góðs af sköpunargleði Rúnna. Fáir hafa verið jafn ötulir og hann við að fanga grípandi andartök í fótboltanum, mikil- fengleika íslenskrar náttúru og svo margt, margt annað. Mynd- irnar hans munu alltaf halda minningu hans lifandi. Kristján G. Arngrímsson. Við sem kynntumst Rúnari Hauki Ingimarssyni sem vinnu- félaga í Tæknivali munum góðan dreng sem hafði hlýja nærveru. Hann var einn þeirra sem komu að fyrirtækinu á fyrstu árum þess og átti sinn þátt í að skapa þann góða samstarfsanda sem við þekktum sem þar unnum. Rúnar starfaði sem sérfræðingur í tölvunetkerfum og var býsna slyngur á því sviði. Hann var þeirrar manngerðar sem gott var að leita til um aðstoð þegar með þurfti í vinnunni og nutu nýir starfsmenn í tæknideildinni þess sérstaklega að sækja í hans reynslu. Rúnar var mjög áhuga- samur um tölvutæknina sem er mikilvægur kostur tæknimanns eins og hans sem vann við tölvu- þjónustu til fyrirtækja úti í bæ og út um land ef því var að skipta. Hann hafði gott lag á að sinna þjónustu og ávann sér traust og jafnvel vináttu við- skiptavina sem varð til þess að þeir vildu helst ekki að aðrir tæknimenn en hann sinnti þjón- ustu við þá. Rúnar Haukur var jafnan með rólegri mönnum og var lítið fyrir að trana sér fram en hann leyndi á sér og laumaði gjarnan skotum og hnyttnum athugasemdum inn í umræður þar sem við átti. Það er sárt að horfa á eftir þessum góða félaga sem nú er fallinn frá, langt um aldur fram. Eftir lifir minningin um einstak- an mann, ljúfmenni sem öllum vildi vel og hafði svo margt fram að færa. Við vottum dóttur hans, Re- bekku Unni, fjölskyldu og ástvin- um okkar dýpstu samúð. Blessuð sé minning Rúnars Hauks Ingimarssonar. Fyrir hönd samstarfsfélaga í Tæknivali, Erlendur Geirdal.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.