Morgunblaðið - 30.10.2015, Side 43

Morgunblaðið - 30.10.2015, Side 43
1981, á Litla-Hrauni 1981 og við Grunnskólann á Stokkseyri 1984-97. Úlfar gekk ungur til liðs við KFUM og var Skógarmaður. Hann var skáti í Jómsvíkingum og Skjöld- ungum á yngri árum og starfaði í Hjálparsveit skáta í Reykjavík og Fé- lagi ungra guðspekinema, var for- maður Málfundafélags VÍ 1958-59, sat í stjórn Vöku 1963-64, í stjórn LÍN 1968-69, í Stúdentaráði 1967-69, í Háskólaráði 1968-69, formaður skólanefndar Húsmæðraskólans á Löngumýri 1976-77, sat í bygging- arnefnd elliheimilis og heilsugæslu- stöðvar í Ólafsfirði 1972-80, í kjör- stjórn Ólafsfjarðarkjördeildar 1974-80, í skólanefnd Ólafsfjarðar 1978-80, forseti Rotaryklúbbs Ólafs- fjarðar 1979-80, í félagsmálanefnd eldri borgara og öryrkja á Eyrar- bakka 1982-86, skoðunarmaður reikninga Eyrarbakkahrepps 1982- 98, og Selfossveitna frá 1992-2002, í sáttanefnd Eyrarbakka 1982-86, i áfengisvarnarnefnd Eyrarbakka 1988-94, formaður Bridsfélags Sel- foss 1985-86, sat í stjórn Bridsfélags Hveragerðis 1998-2002, hefur spilað keppnisbrids í áratugi, í Kjaranefnd Prestafélags Islands 1985-87 og flutti mál tvisvar fyrir kjaradómi, í stjórn Hjálparstofnunar kirkjunnar 1987- 92, var gjaldkeri Prestafélags Suður- lands 1987, ritari þess 1989-92, fyrsti formaður siðanefndar Prestafélags Íslands 1994-2004, sat í stjórn Fjöl- skylduþjónustu kirkjunnar 1995- 2000, í Héraðsnefnd Árness- prófastsdæmis 1995-2007, í stjórn Prestssetrasjóðs 1998-99, sat í stjórn Prófastafélags Íslands 1999-2007, í Strandarkirkjunefnd 2002-2007 og er gjaldkeri í stjórn Félags fyrrum þjón- andi presta frá 2010 og formaður félagsins frá 2011-2015. Úlfar hefur sungið með blönduðum kórum og karlakór og leikið einleik á orgel við athafnir svo sem kistulagn- ingar, eins reglulega á píanó undir al- mennum söng á dvalarheimilum. Hann stjórnaði tvöföldum kvartett í Ólafsfirði og söng tvísöng með dr. Róbert Abraham Ottóssyni á sögu- kvöldi í Norræna húsinu. Hann syng- ur nú með Hörpukórnum á Selfossi og hefur sungið einsöng með honum. Úlfar var virkur í götuhlaupum á sextugsaldrinum og hljóp víða um land. Hann náði bestu tímum sínum á árinu 1994 í hálfu maraþoni: 1.43. 31 og í heilu maraþoni: 3.46. 52. Úlfar sat í Æðsta ráði Frímúrarareglunnar frá 2009-2015, Úlfar hefur verið í forsvari fyrir og kennt brids og snóker hjá Félagi eldri borgara á Selfossi frá 2009. Fjölskylda Úlfar kvæntist 26.7. 1969 Gunn- þóru Freyju Jóhannsdóttir, f. 13.11. 1944, sérkennara. Þau skildu 1990. Börn Úlfars og Freyju eru Guð- mundur Freyr, f. 18.10. 1970, dr. og prófessor í samgönguverkfræði og deildarforseti við HÍ, kvæntur Minj- ung, dr. og prófessor í mannfræði í Suður-Kóreu; Anna Kristín, f. 28.7. 1974, lögfræðingur skógardeildar norska landbúnaðarráðuneytisins, gift Sigmari Jack, beinaskurðlækni í Osló og eru börn þeirra Hilmir Davíð Jack, f. 2001, Brynjar Axel Jack, f. 2003, og Freyja Ísabella Jack, f. 2008. Úlfar kvæntist 2.7. 1994, Herborgu Pálsdóttur, f. 21.1. 1960, hjúkrunar- konu og ljósmóður við Heilbrigðis- stofnun Suðurlands. Foreldrar Her- borgar: Páll Guðbjartsson, f. 4. 8. 1931, d. 8. 6. 2007, framkvæmdastjóri í Borgarnesi, og Herdís Guðmunds- dóttir, f. 11. 12. 1930, handavinnu- kennari. Dætur Herborgar: Herdís Sigurgrímsdóttir, f. 29.8. 1980, blaða- maður í Stafangri, gift Per Anda, arkitekt og börn þeirra Herborg, f. 2013, og Jóhann, f. 2014; Hildur Sig- urgrímsdóttir, f. 12.1. 1986, búfræð- ingur og doktorsnemi í lífeindafræði. Dóttir Úlfars og Herborgar er Guðrún, f. 14.8. 1996, nemandi í MH. Systir Úlfars er Guðrún Guð- mundsdóttir, f. 10.3. 1945, var kaup- maður í Reykjavík, gift Erni Sigurðs- syni, húsgagnasmið og myndskera. Foreldrar Úlfars: Guðmundur Ein- ar Páll Grímsson, f. í Gröf í Laugardal 15.12. 1905, d. 4. 4. 1979, húsgagna- smíðameistari í Reykjavík, og Ingv- eldur Stefanía Runólfsdóttir, f. í Reykjavík 9.1. 1912, d. 1.10. 2006, kaupmaður í Reykjavík. Úr frændgarði Úlfars Guðmundssonar Úlfar Guðmundsson Kristín Gísladóttir b. og húsfr. í Hvammi Þorbjörn Jónsson b. í Hvammi í Ölfusi Guðrún Þorbjörnsdóttir húsfr. í Rvík Runólfur Sigurjónsson verkam. í Rvík Ingveldur Stefanía Runólfsdóttir kaupmaður í Rvík Ingveldur Stefanía Runólfsdóttir b. og húsfr. á Stöðlum Sigurjón Þorsteinsson b. á Stöðlum í Ölfusi Guðrún Guðmundsd. kaupm. í Rvík Þóra Maack húsfr. í Rvík Ásta Arnardóttir jógakennari Pétur Maack verkfræði- prófessor og flugmálastjóri Harpa Arnardóttir leikstj. og leikari Runólfur Maack verkfræðingur Stefanía Arnardóttir kennari Gunnar Maack viðskiptafræðingur Guðrún Magnúsdóttir b. og húsfr. á Laugarvatni Eyjólfur Eyjólfsson b. á Laugarvatni í Laugardal Guðrún Eyjólfsdóttir b. í Skálholti og Gröf Grímur Eiríksson b. í Skálholti og Gröf í Laugardal Guðmundur Einar Páll Grímsson húsgagnasmíðam. í Rvík. Guðrún Ásmundsdóttir b. og húsfr. á Gjábakka Eiríkur Grímsson b. á Gjábakka í Þingvallasveit ÍSLENDINGAR 43 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 2015 Una fæddist á Stóru-Giljá íVestur-Húnavatnssýslu30.10. 1854, dóttir Gísla Sigurðssonar, bónda í Giljárseli, og Önnu M. Erlendsdóttur. Una giftist Guðmundi Jónssyni frá Barkarstöðum, lyfjafræðingi. Þau bjuggu fyrst í Stykkishólmi en hann varð síðan lyfjafræðingur við Reykjavíkur Apótek frá 1884. Þau eignuðust fimm börn, en Guð- mundur lést á besta aldri, 1899. Eins missti Una öll börnin, ung að árum, nema yngsta soninn, Er- lend, sem var gjaldkeri lögreglu- stjórans í Reykjavík og tollstjóra, afburða vel sjálfmenntaður, m.a. í bókmenntum og listfræði, og hélt uppi óopinberri menningarmiðstöð í Unihúsi. Una tók kostgangara og leigði út herbergi í Unuhúsi og var fæði hennar og húsnæði ódýrara en annars staðar. Hún úthýsti aldrei neinum og fyrr en varði var Unu- hús orðið athvarf fátæklinga, ofdrykkjumanna og portkvenna. Una leyfði hvorki drykkju né laus- læti en fyrirgaf öllum allan breyskleika. En Unuhús varð ekki síður þekkt sem miðpunktur menningar á fyrri helmingi 20. aldar. Meðal fastagesta þar má nefna Stefán frá Hvítadal, Þórberg Þórðarson, Guðmund Hagalín, Halldór Lax- ness, Stein Steinar, Nínu Tryggvadóttur og Louisu Matt- híasdóttur. Þórbergur skrifaði bókina Í Unuhúsi eftir frásögn Stefáns frá Hvítadal en í Atóm- stöðinni lýsir Halldór Laxness Er- lendi sem organistanum og bó- hemískum heimilisbrag í þessu sögufræga húsi. Eftirfarandi ljóðlínur um Unu eru eftir Jón S. Bergmann: Ævistarf þitt var kærleiksverk að vinna, vermdirðu margan útlægan og kalinn. Grátklökkvi hrærir hjörtu vina þinna, harmur var kveðinn þeim, er féllstu í valinn. Reistir þú snauðum skála á þjóðbraut þvera, þú vildir aldrei sýnast heldur vera. Una lést 7.12. 1924. Merkir Íslendingar Una Gísladóttir 95 ára Geirþrúður Stefánsdóttir Svanlaug Halldórsdóttir 90 ára Jón Gunnarsson 85 ára Erna Margrét Haraldsson Guðrún Jacobsen Petrea Aðalheiður Gísladóttir Sigurður Gunnarsson 80 ára Bernharð Ingimundarson Egill B. Sigurðsson Þóra Kristín Filippusdóttir 75 ára Guðbjört Ásdís Guðmundsdóttir Guðlaugur Þ. Sveinsson Helga Þórðardóttir Jóhannes Óskarsson 70 ára Birgir Jónasson Guðlaug Sveinbjörnsdóttir Guðmundur Þ. Svavarsson Kristjana Magnúsdóttir Sigurður Örn Hannesson Þorgerður Kjartansdóttir 60 ára Arnór Magnússon Björk Georgsdóttir Einar Óskarsson Eysteinn Gunnarsson Guðjón Þór Pétursson Guðrún S. Guðmundsdóttir Ingi Kristinn Magnússon Kristín Sigvaldadóttir Sverrir Ögmundsson 50 ára Árni Þorsteinsson Berglind Hrafnkelsdóttir Böðvar Bjarnason Einar Gunnar Sigurðsson Einar Ingþór Númason Erlendur Örn Fjeldsted Haraldur Ásgeir Hjaltason Jón Kári Hilmarsson María Páley Gestsdóttir Minaya Multykh Óli Axel Óskarsson Svanhvít Kristjánsdóttir Sveinn Haukur Klemensson Þorsteinn Bergmann 40 ára Anna Lára Guðfinnsdóttir Arndís Hildur Jónsdóttir Ásthildur Linda Arnarsdóttir Egill Kristjánsson Jacek Bojar Joanna Grudzinska José R Alvarado Valenzuela Kjartan Hávarður Bergþórsson Marteinn Svavar Sigurðsson Piotr Andrzej Ryszkowski Sigurður Kristinn Sigurðsson Srinuan Prommarin Stefán Freyr Jóhannsson 30 ára Alma Rún Pálmadóttir Anna Björg Leifsdóttir Máni Atlason Nerea Einarsdóttir Alvarez Sveinn Þorri Davíðsson Sævar Þór Halldórsson Til hamingju með daginn 40 ára Friðrik ólst upp í Reykjavík, býr þar, lauk stúdentsprófum frá FB og er flotafulltrúi hjá Strætó bs. Maki: Sigrún María Ammendrup, f. 1975, skrifstofustjóri hjá HR. Stjúpsynir: Ágúst Þórir, f. 1998, og Axel Snær, f. 2002. Foreldrar: Karel Krist- jánsson, f. 1950, og Þór- dís Soffía Friðriksdóttir, f. 1953. Friðrik Ingi Karelsson 40 ára Birkir lauk versl- unarprófi frá FSS og er bóndi á Móeiðarhvoli í Rangárþingi eystra. Maki: Bóel Anna Þór- isdóttir, f. 1973, bóndi. Börn: Belinda Margrét, f. 1999; Róbert Bjarmi, f. 2001; Sólrós Vaka, f. 2007, og Ívar Ylur, f. 2008. Foreldrar: Tómas B.A. Högnason, f. 1933, d. 2014, og Berta G. Björg- vinsdóttir, f. 1935. Birkir Arnar Tómasson 30 ára Máni er Skaga- maður, býr í Reykjavík og er lögmaður hjá LOGOS lögmannsþjónustu. Maki: Helga Margrét Þor- steinsdóttir, f. 1991, nemi í læknisfræði í HÍ. Bróðir: Vífill Atlason, f. 1991, nemi í sagnfr. við HÍ. Foreldrar: Atli Harðar- son, f. 1960, lektor við menntavísindasvið HÍ, og Harpa Hreinsdóttir, f. 1959, framhaldsskóla- kennari. Máni Atlason Skipholt 50c • 105 Reykjavík • 582 6000 • www.computer.is Síðan 1986 Sendum hvert á land sem er Vatnsheldar König Action myndavélar Tölvur og fylgihlutir • Frábært í tómstundirnar • Festingar við hjálm eða hjól fylgja • 1,8” skjár til að skoða upptökur • Kristaltær HD myndgæði Verð 9.990 kr. Verð 16.990 kr.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.