Víkurfréttir - 03.04.1986, Side 1
Bæjarráð
Keflavíkur:
Þorsk-
• >c •
veiði-
kvóti
Suður-
nesja-
báta
verði
aukinn
Á fundi bæjarráðs Kefla-
víkur á þriðjudag i dymbil-
vikunni var eftirfarandi
samþykkt gerð:
„Bæjarráð Keflavikur fer
þess hér með eindregið á leit
við hæstvirtan sjávarút-
vegsráðherra, að hann beiti
sér fyrir því nú þegar, að
þorskveiðikvóti Keflavik-
ur- og Suðurnesjabáta verði
aukinn verulega frá því sem
nú er“.
Greinargerð:
Um áratuga skeið hefur
vetrarvertíð verið stunduð á
Suðurnesjum frá 1. jan. til 11.
maí ár hvert. Vertíðin hefur
verið uppistaðan í afkomu út-
gerðar, sjómanna og fisk-
vinnslufólks. Við núverandi
kvótafyrirkomulag er vetrar-
vertíð mjög verulega stytt og
afkomumöguleikar skertir
mjög mikið. Fiskiskip okkar
eru nú mjög komin til ára
sinna. Eina vonin til að úr
rætist er að um aflaaukningu
verði að ræða og að með því
verði hjá því komist að útgerð
á svæðinu dragist enn meira
saman en orðið er.
Bæjarstjórn Keflavíkur hef-
ur margoft lýst áhyggjum sín-
um vegna þessarar þróunar,
og vill leggja sitt af mörkum til
eflingar sjávarútvegi hér. Með
það að markmiði hefur bæjar-
stjórn Keflavíkur samþykkt að
ekki verði lögð aðstöðugjöld á
sjávarútvegsfyrirtæki í ár. En
betur má ef duga skal, heimild
til að auka aflann er lífsnauð-
syn fyrir sjávarútveginn í
Keflavík og á Suðurnesjum,
svo að nokkuð megi úr rætast.
epj.
/------1---------
Reykjanesbraut:
Tveir vörubflar og einn fólks
bfll í harðri aftanákeyrslu
Að kvöldi 2. páska-
dags varð all harður á-
rekstur þriggja bifreiða
á Reykjanesbraut, rétt
innan við Innri-
Njarðvík. Var orsök
árekstursins súaðvöru-
bifreið með loðnufarm
hefur staðið utan í veg-
kantinum í marga daga,
illa frágenginn m.a. inn
á brautinni að hluta.án
endurskinsmerkja.
Ökumaður annarar
vörubifreiðar sem var á
leið inn brautina sá ekki
kyrrstæðu bifreiðina og
ók því aftan á annað
horn hennar. Við árkest-
urinn rann mikil olía frá
seinni vörubílnum og
því gat fólksbifreið sem
kom á eftir vörubifreið-
inni ekki stöðvað í tæka
tíð og lenti þvert aftan á
þeim bíl.
Ökumenn beggja bif-
reiðanna voru fluttir á
Sjúkrahúsið í Keflavík
illa skornir í andliti, auk
þess sem leggja þurfti
ökumann fólksbifreið-
arinnar inn á sjúkrahús-
ónýtur . . .
ið. Eru síðari vörubifreiðin
og fólksbifreiðin stór-
skemmdar eftir árekst-
urinn.
Vegna olíulekans
þurfti að fá slökkviliðs-
bíl til að hreinsa veginn
. . . og einnig er
og á meðan það stóð yfir
og ökutækin voru fjar-
lægð með dráttarbíl,
tafðist umferð um
brautina og þurfti að
loka henni um tíma.
mikið skemmd.
Þetta eru þátttakendur í keppninni „Ungfrú Suðurnes 1986“, sem fram ferá Veitingahúsinu Glóðinni
12. apríl n.k. Stúlkurnar verða kynntar í næsta tbl. Víkur-frétta. Þær eru talið f.v.: Hlín Hólm, Hall-
dóra Magnúsdóttir, Guðný Ingadóttir, Gróa Björk Hjörleifsdóttir, Rut Jónsdóttir, Kolbrún Jenný
Gunnarsdóttir og Sigríður Sigurðardóttir. Ljósm.: pket.
ÞÁTTTAKENDUR í „UNGFRÚ SUÐURNES44
EKKI ER
VIKA ÁN
VÍKUR-FRÉTTA