Víkurfréttir - 03.04.1986, Side 4
4 Fimmtudagur 3. apríl 1986
VIKUR-fréttir
Fasteignasalan
Hafnargötu 27 - Keflavík
KEFLAVÍK:
Raðhús við Mávabraut í góðu ástandi. Möguleiki
á skiptum ..................................... 2.400.000
Raðhús við Heiðarbraut ásamt bílskúr, 193ferm.,
glæsilegt hús ................................. 4.500.000
3ja herb. íbúð við Hringbraut, góðir greiðsluskil-
málar.......................................... 1.350.000
2ja herb. íbúð við Hafnargötu með sér inng.,
II. hæð, laus ................................. 1.300.000
Nýtt raðhús við Heiðarholt, rúmlega fokhelt .. 2.200.000
Fasteignir i smíðum i Keflavík:
Höfum ásöluskrá2jaog 3jaherb. ibúöirviö Heiö-
arholt og Mávabraut. Mjög góöar ibúöir. Seljend-
ur: Húsageröin hf. og Hilmar Hafsteinsson. Nán-
ari uppl. á skrifstofunnl.
NJARÐVÍK:
4ra herb. endaíbúð við Hjallaveg. Skipti á minni
íbúð koma til greina .................1.700.000
SANDGERÐI:
4ra herb. e.h. við Ásabraut, 125 ferm. m sér inng. 1.700.000
ATH: Höfum góöan kaupanda aö nýrri eöa ný-
legri 3ja herb. Ibúö strax.
Mávabraut 3c, Keflavik:
Raðhús með bílskýli. Húsið
er í mjög góðu ástandi.
Laust strax .... 2.150.000
Fagrihvammur, Bergi,
Keflavík:
Húsið er laust strax. Góðir
greiðsluskilmálar. Engar
áhvílandi skuldir.
1.300.000
Birkiteigur 24, Keflavík:
Húsið er í mjög góðu á-
standi. Stærð 172 ferm.
með bílskúr ... 3.800.000
FASTEIGNASALAN
Hafnargötu 27 - Keflavík - Sími 1420
Félagsvist
Hafnamenn og aðrir Suðurnesjamenn!
Hin vinsælu spilakvöld hefjast í kvöld kl. 21
í Samkomuhúsinu, Höfnum.
Spilað verður næstu fjögur fimmtudags-
kvöld. - Mætið stundvíslega.
Stjórnin
ORÐSENDING
til fasteignaeigenda í Grindavík
Bæjarstjórn Grindavíkur bendir húseig-
endum á að láta endurmeta þærfasteignir,
sem eru vanmetnar í brunamati, því auk
brunabóta eru bætur úr viðlagatryggingu
greiddar eftir brunamati.
Grindavík, 13. mars 1986.
Bæjarstjórinn í Grindavík
Innfarir og
skemmdar-
verk
Fjórir olíutankar hverfa
Nú von bráðar munu
fjórir tankar af tankasvæði
Varnarliðsins ofan við
Njarðvík hverfa sjónum
manna hér syðra. Hefur
Varnarliðið afhent Sölu-
nefnd varnarliðseigna þátil
endursölu og hafa tveir
þegar verið seldir Hvali hf. í
Hvalfirði, en hinir tveir
verða skornir niður.
Tankar þeirsemfaraupp
í Hvalfjörð verða fluttir
eins og þeir sem fóru fyrir
nokkrum misserum, þ.a.
með flutningavögnum til
sjávar og síðan dregnir upp
eftir, en hugmyndir fyrir-
tækisins eru að breyta hval-
vinnslustöðinni í loðnu-
bræðslu. Er búið að flytja
tanka þessa niður að Háa-
leitj.
Astæðan fyrir því að
hinir tveir tankarnir verða
ekki íluttir í heilu lagi í
burtu, er að annar er orðinn
ónýtur og hinn er of stór til
að hægt sé að flytja hann.
Því verður að skera þá báða
á staðnum, en þeir hafa
verið aftengdir og teknir úr
notkun. - epj.
Um hátíðarnar voru unn-
in skemmdarverk í síma-
klefanum við pósthúsið í
Keflavík. Þá var einnig
brotin hurð á pósthúsinu.
Aðfaranótt laugardags-
ins var farið inn í skúr við
Vallarbraut í Njarðvík, þar
sem í er stjórnstöð fyrir
Kóax-myndbandakerfið í
Njarðvík. Var stolið þaðan
14” myndsjá.
Þá var lögreglunni til-
kynnt um að farið hefði
verið inn um glugga á skrif-
stofu Sjúkrahússins að Sól-
vallagötu 18 í Keflavík og
mikið rótað þar til, en ekki
er sjáanlegt að neinu hafi
verið stolið. - epj.
- M°la[
ísins af Iðavöllunum og
til Njarðvíkur. Ramrni
hf. er að hluta til fluttur
inn í Innri-Njarðvík.
Prentvillupúkinn
Hinn illræmdi prent-
villupúki hfði viðkomu í
síðustu Molum þegar
sagt var frá nýju tíma-
riti. Stóð þar að einn að-
standenda þess væri
Tómas Tómasson
(Tómassonar ritstjóra
Faxa), en átti auðvitað
að vera Tórnas Jónsson
(Tómassonar ristjóra
Faxa). Leiðréttist þetta
hér með.
Innbyrðis deilur
sprengdu upp
fundinn
Fundur skólanefnd-
arnianna Fjölbrauta-
skólans og sveitarstjórn-
armanna á Suðurnesj-
um tók nokkuð óvana-
lega stefnu á dögunum,
þegar einn kennara hóf
ákveðna gagnrýni á
stefnu skólameistarans
með stuðningi frá full-
trúa Alþýðubandalags-
ins í Keflavík. Varð úr
þessu mikið karp, sem
alls ekki átti að vera á
slíkum fundi og nánast
skemmdi hann. Sam-
kvæmt orðum kennar-
ans og fulltrúans veit
skólameistari ekkert um
hvað er að gerast innan
skólans, og eru það stór
orð.
Bakarí i Rarama?
Eins og kunnugt er
hefur verksmiðjuhús
Ramma hf. við Bakka-
stíg í Njarðvik verið til
sölu um all langan tíma.
Nú hafa Molar hlerað að
yfir standi samningar
við Ragnarsbakarí um
kaup á húsnæðinu og
eru þá hugmyndir um að
flytja verksmiðju bakar-
Pólitískt hanaat
Margir telja að senn
séu dagar prófkjaranna
taldir. Alla vega stækkar
sá hópur manna sem
telur að prófkjör séu
ekki rétta leiðin til að
raða niður á framboðs-
lista, enda verða því
miður stundum hat-
rammar deilur í kjölfar
úrslitanna. Því er spurn-
ing hvort sú nafngift
sem Alþýðubandalags-
menn hafa gefið próf-
kjörunum sé ekki
nokkuð sönn, þ.e. „póli-
tískt hanaat”.
Kari Blómkvist
Sem kunnugt er af
fréttum gerðist sá ó-
vanalegi atburður á dög-
unum að verkalýðsfor-
ingjar, sem eiga að heita
í stjórnarandstöðu,
færðu viðskiptaráðherra
Matthíasi Bjarnasyni,
blórn að gjöf fyrir
vasklega frammistöðu í
baráttu við bankakerfið.
Þingmaður okkar Suð-
urnesjamanna, Karl
Steinar Guðnason, var í
þessum hópi og að sögn
Sandkorns þeirra DV-
manna hefur hann nú af
þessu tilefni hlotiðgælu-
nafnið Karl Blómkvist
meðal þingmanna.
Enginn meðal
50 efstu
Athygli hefur vakið
að enginn Suðurnesja-
togari er rneðal þeirra 50
efstu hvað varðar afla-
verðmæti á úthaldsdagá
síðasta ári. Hvað veldur
er óvíst, því mörg skip
annars staðar af Faxa-
flóasvæðinu eru^á lista
þessum sem LÍU hefur
látið gera.
Skuldastaða ein-
stakiinga birt
Bæjarstjórn Grinda-
víkur hefur ákveðið að
birta lista yfir skulda-
stöðu einstaklinga og
fyrirtækja, seni skulda
gjöld frá fyrra ári. Ligg-
ur listinn frammi á
bæjarskriftsofunni. Ör-
uggt má telja að þessi að-
ferð mun vera mjög sál-
ræn, þ.e. skussarnir
reyni allt sem þeir geta
til að komast hjá því að
nafn þeirra sjáist á list-
anum. Þetta hefur líka
ólýðræðislegar afleið-
ingar, því þeir sem ekki
hafa af einhverri ástæðu
ekki getað staðið í
skilum, lenda nú milli
tanna fólksins.
Baldvin Njáls
í Gerðabátana?
Þó Landsbankinn sé
ekki búinn að eiga Hrað-
frystihús Gerðabátanna
lengi, eða aðeins frá þvi
að bankanum var slegið
það á nauðungarupp-
boði á dögunum, eru nú
miklar líkur á að hann sé
búinn að fá kaupanda af
því. Er hér um að ræða
Baldvin Njálsson í
Garði, sem hefur hug á
að kaupa húsið.
Fógeti í bankann?
Samkvæmt nýjasta
tölublaði Bæjarbótar í
Grindavik hefur bæjar-
fógetaembættið i Grinda-
vík lengi haft í hyggju að
eignast betra húsnæði
fyrir skrifstofur og lög-
regluvarðstofu i Grinda-
vík. Beinast nú sjónir
einkum að húsnæði
Landsbankans við Vík-
urbraut, sem losnar er
bankinn flytur í nýja
húsið ofar við sömu
götu. Engar ákvarðanir
hafa þó verið teknar,
enda fjárveiting ekki tií
staðar ennþá.