Víkurfréttir


Víkurfréttir - 03.04.1986, Síða 11

Víkurfréttir - 03.04.1986, Síða 11
VIKUR-fréttir Fimmtudagur 3. apríl 1986 11 Mikilvægasti þáttur forvarnarstarfs gegn vímuefnanotkun ungmenna - fer fram á heimilunum Að undanförnu hafa fjöl- miðlar fjallað nokkuð um vaxandi notkun ólöglegra vímuefna meðal lands- manna. Það hlýtur að vekja ugg hjá hugsandi fólki er það fæst staðfest að neysla ólöglegra vímuefna meðal ungmenna heyrir ekki lengur til undantekninga, heldur er hér um að ræða vaxandi vandamál. A meðan tollgæslan gerir upptæk 10 kg af hassi er vitað a6 í umferð hafa verið nær hálft tonn samkvæmt skýrslu S.Á.Á. Samkvæmt skýrslu landlæknis geta 30% skólabarna á höfuð- borgarsvæðinu á aldrinum 15-19 ára útvegað canna- bisefni samdægurs. Á markaðinum er framboð cannabisefna og amfeta- míns tiltölulega stöðugt. Yfir okkur dynja sífellt nýj- ar hörmungarfréttir sem tengjast neyslu ólöglegra vímuefna bæði innan og utanlands. Skemst er að minnast handtöku 6 ung- menna vegna fjölda innbrota íbensínstöðvar. Þessi ungmenni höfðu áður komið við sögu lögreglu vegna misstórra borta, sem flest tengdust eiturlyfja- neyslu. I Bandaríkjunumer vandamálið slikt að enginn fær við neitt ráðið. Svipað ástand ógnar hinum Norðurlöndunum, og þá er ekki langt að bíða uns við stöndum frammi fyrir sama vanda svo fremi sem ekki verður spyrnt við fótum. Á meðan íslendingar telja sig hamingjusömustu þjóð í heimi, sem eiga Evrópumet í bílakosti, myndbandstækjum og húsakost sem stenst allan samanburð, þá eiga þeir einnig fleiri met. Þeir eiga Norðurlandamet í Valium- notkun. Slysatíðni í heima- húsum meðal ungbarna er hvergi hærri í heiminum, og sömu sögu er að segja um dauðaslys í umferðinni. Kvíði og spenna er hér ó- hóflega rikjandi og sjálf- vígatíðni há. Þetta er rakið til hins óstöðuga þjóðfé- lags sem við lifum í. Þegar kvíði og spenna nær á okk- ur tökum, er reynt með öllum ráðum að slappa af á milli. Þá getur leiðin til notkunar löglegra og ólöglegra vímuefna verið stutt. Þegar' fregnir berast um aukna notkun vímuefna hér á landi bæði löglega og ólöglegam ekki síst meðal barna og unglinga, er ljóst að foreldrar verða uggandi. Það dugar skammt að loka augunum fyrir þeirri staðreynd að þitt barn geti orðið næst, kannski bara vegna stundar forvitni, því enn eru þeir til sem halda fram að vímuefni eins og hass séu tiltölulega skað- laus, þótt hið mótstæða sé löngu sannað. Hvernig ert þú í stakk búinn, kæri for- eldri, til að styðja barn þitt í baráttunni fyrir vímulausu lífi? Og hvernig bregstu við ef þig grunar að barnið þitt og félagar þess hafi á milli handa ólögleg vímuefni? Þekkirðu einkennin þegar þau birtast? Þann 8. mars var haldinn almennur fundur foreldra í Reykjavík og nágrenni til þess að ræða til hvaða að- gerða foreldrar geta gripið gegn aðsteðjandi vá eitur- lyfjanna. Fundur þessi var haldinn fyrir tilstilli SÁÁ og var fjölsóttur. Komu þar fram margir frummælend- ur, sem vegna starfs síns eða tengsla við áhuga- mannasamtök hafa beint eða óbeint tengst hinum ýmsu hliðum þessa vanda- máls. Það var niðurstaða fund- arins að brýna nauðsyn bæri til að foreldrar á Is- landi tækju höndum sam- an til að sporna við hvers konar vímuefnaneyslu barna sinna og í krafti sam- taka sinna koma þeim ungl- ingum til hjálpar sem þegar hafa ánetjast vímuefnum. Ekki er vika án VÍKUR-frétta Slík samtök ættu að byggja upp gott samstarf við skóla, jafnt við nemend- ur sem skólayfirvöld og vera í senn hvetjandi og mótandi um forvarnarstarf ýnnan skólakerfisins. Ákveðið var að stofna landssamtök foreldra fyrir vímulausa æsku að vori komanda. Nú hafa foreldra- og kennarafélög Holtaskóla og Myllubakkaskóla á- kveðið að gangast fyrir al- mennum fundi foreldra á Suðurnesjum til að ræða þessi sömu mál. Við sem sóttum fundinn í Reykjavík hrifumst af mál- flutningi þeirra sem þar töluðu, og höfum fengið til liðs við okkur aðila sem stóðu að þessum fundi. Ákveðið er að halda fundinn í Holtaskóla 8. apríl kl. 20.30. Við hvetjum eindregið alla þá foreldra sem mögulega geta komið því við, að sýna þessu mjög svo aðkallandi vandamáli áhuga. Hafið í huga að for- varnir hefjast heima. - Þið foreldrar getið með skyn- samlegri umhyggju og for- dómalausri fræðslu stuðlað að velferð barna ykkar - en slíkt krefst áhuga og við- leitni. Konráð Lúðvíksson, formaður foreldra- og kennarafélags Myllubakkaskóla. Þroskaþjálfar Þroskaþjálfi eða fóstra óskast í hlutastarf við barnaheimilið Garðasel. Upplýsingar um starfið veitir forstöðu- maður í síma 3252. Félagsmálastjóri Keflavíkurbæjar VIÐ AUGLÝSUM KJÖRBÓKINA GÓÐA BÓK FYRIR BJARTA FRAMTÍÐ C/> m co C tH i Sm í Lí KJÖRBOK Og nú ekkert EN! Kjörbók Landsbankans er góður kostur til þess að ávaxta sparifé: Hún ber háa vexti, hún er tryggð gagnvart verðbólgu með reglulegum samanburði við vísitölu- tryggða reikninga og inni- stæðan er algjörlega óbundin. Kjörbókin er engin smáræðis bók. Þú getur bæði lagt traust þitt og sparifé á Kjörbókina, - góða bók fyrir bjarta framtíð. Landsbanki íslands Banki allra landsmanna LANDSBANKI ÍSLANDS 1 XI >11 RMR/I II II, KI VKIAVlK Útibú, Keflavíkurflugvelli, sími 2170 Útibú, Grindavík, sími 8179 Útibú, Sandgerði, sími 7686 FERMINGARSKEYTA AFGREIÐSLAN í Skátahúsinu, Hringbraut101,allafermingardaganafrá kl. 10-19,og í Nonna & Bubba, Hólmgarði, frá kl. 13-18. Heiðabúar

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.