Víkurfréttir


Víkurfréttir - 03.04.1986, Síða 15

Víkurfréttir - 03.04.1986, Síða 15
VÍKUR-fréttir Fimmtudagur 3. apríl 1986 15 Nokkur orð um iðnráðgjöf Hin síðari ár hafa orðið mikl- ar breytingar í íslensku þjóðfé- lagi. Ný taskni hefur rutt sér til rúms á nánast öllum sviðum og hið svokallaða „kerfi" hefur þanist út og orðið töluvert flók- ið. Þörfin fyrir upplýsingamiðl- un af ýmsu tagi hefur aukist og þá sér í lagi hjá litlum og meðal- stórum fyrirtækjum úti á lands- byggðinni. Stjórnendur lítilla og meðal- stórra fyrirtækja eru að hluta til í framleiðslustörfum eða þjón- ustustörfum fyrirtækja og skýr- ir það að hluta til þörfina fyrir upplýsingamiðlun, enda er hún í dag sá þáttur iðnráðgjafar sem er hvað brýnastur. HVERJIR VEITA IÐNRÁÐGJÖF? Félagasamtök iðnaðar- manna og iðnfyrirtækja bjóða aðildarfélögum sfnum upp á iðnráðgjöf, en þar fyrir utan starfrækja félög þessi útgáfu- starfsemi af ýmsu tagi og vinna að hagsmunamálum iðngreina og iðnfyrirtækja í landinu. Félög þessi eru Félag ísl. iðn- rekenda og Landssamband iðnaðarmanna. Opinberar stofnanir, þ.e. Útflutningsmið- stöð iðnaðarins, Rannsóknar- stofnun byggingaiðnaðarins og Iðntæknistofnun íslands bjóða fyrirtækjum almennt sem einstaklingum uppáfjölbreytta ráðgjöf og hefur ITÍ þar algera sérstöðu hvað varðar tækniað- stöðu og mannafla. Ýmsar ráð- gjafastofur eru starfræktar á höfuðborgarsvæðinu en þjón- usta þeirra einskorðast í reynd við hið opinbera eða fjársterk fyrirtæki. f lok ársins 1981 voru afgreidd lög um iðnráðgjöf í landshlutum og í kjölfar þess- ara laga var veitt heimild af fjár- lögum fyrir ráðningu iðnráð- gjafa, einn í hvern landshluta. Ráðningaraðilar voru sam- tök sveitarfélaga og hafa þau frá upphafi borið helming kostnaðar af iðnráðgjöfinni á móti ríkinu. Víða um land hafa verið stofnuð svokölluð „iðn- þróunarfélög" og í dag starfa tveir iðnráðgjafar á vegum þeirra, þ.e. Iðnþróunarfélag Austurlands og Iðnþróubarfé- lag Suðurnesja. ÞÖRFIN FYRIR IÐNRÁÐGJAFA [LANDSHLUTUM Þegar litiðertil hlutverks iðn- ráðgjafa samkvæmt lögum um iðnráðgjafa og þeirra verkefna sem þeir hafa fengist við, er Ijóst, að þörfin er til staðar. Aðstoð iðnráðgjafa einskorð- ast ekki við aðila í iðnaði í þröngum skilningi orðsins, heldur ræður atvinnulífiö í hverjum landshluta og þörfin Mjög mikil ölvun um hátíðarnar Mjög mikil ölvun var að- faranótt sl. laugardags og páskadags í umdæmum lögreglunnar í Keflavík og Grindavík. Þurfti lögreglan að hafa mikil afskipti af ölvuðu fólki þessar nætur og fengu margir að gista fangageymslurnar af þess- um sökum. Að sögn viðkomandi varðstjóra er langt siðan eins slæmt ástand hefur verið i þessum málum hér um slóðir. - epj. fyrir þjónustu ráðgjafa þeim viðfangsefnum sem iðnráð- gjafar fást við hverju sinni. Lang flest fyrirtæki eru lítil og vanmáttug fjárhagslega og þess vegna er það þeim mikil- vægt að geta haft aðgang að þjónustu iðnráðgjafa sem er ókeypis. Oft hefur þjónusta iðnráð- gjafa verið fólgin í viðræðum við stjórnendur og persónu- legri kynningu og í gegnum þessi kynni spannast umræður um fyrirtækið og vandamál þess. Stjórnendur fyrirtækja finna yfirleitt þegar eitthvað er að þó þeir viti ekki alltaf ná- kvæmlega hvar vandinn er staðsettur. í gegnum viðtal við iðnráðgjafa sér stjórnandinn oft fyrirtækið í nýju Ijósi og getur það reynst árangursríkt. Eðli málsins samkvæmt hugsa fyrirtækin mikið um fjármögn- un og útvegun fjármagns og hafa iðnráðgjafar mikið komið þar við sögu. Sjóðakerfið í landinu er mörgum torskilið og útfylling umsókna þarf að vera með þeim hætti að allar mikil- vægar upplýsingar komi fram. Þetta flýtir fyrir afgreiðslu þeirra. Iðnráðgjafar gjörþekkja þá tækniþjónustu og þá ráðgjafa- þjónustu sem boðið er upp á á höfuðborgarsvæðinu og í viss- um skilningi er iðnráðgjafinn hinn útlengdi armur kerfisins og stofnana og félagasamtaka iðnaðarins og skýrir það mikil- vægi og þörfina fyrir iðnráð- gjafa í landshlutum, ef minnka á mismun og aðstöðumun fyrirtækja annars vegar á höf- uðborgarsvæðinu og hins vegar úti í landshlutunum. VERKEFNI OG SÉRSTÆÐNI IÐNRÁÐGJAFA [LANDSHLUTUM Verkefni iðnráðgjafa eru mjög almenns eðlis. Iðnráð- gjafinn hefur hæfilegt vit á mörgum sviðum og er góður heim að sækja. Helstu verkefni eru fjármagnsútvegun, útfyll- ing umsókna og meðfylgjandi greinargerðir. Skipulagning minni verkefna og þá sérstak- lega aðferðafræðin, upplýs- ingasöfnun ýmis konar og þá sérstaklega leit að nýjum fram- leiðslu- og iðnaðartækifærum. Áherslur og áhugasvið iðnráð- gjafanna ásamt mismunandi þörfum hinna ýmsu landshluta hafa gert mismun áverkefnum iðnráðgjafa innbyrðis en I stórum dráttum eru störf þeirra svipuð. Sérstæðni iðnráðgjafarfelstí því að iðnráðgjafinn tengist fyrirtækjum á sínu starfssvæði og heimsækir þau með skipu- lögðum hætti. Tengsl myndast og í gegnum þau opnast sam- skiptaleiðir sem gefur iðnráð- gjafanum upplýsingar sem getur leitt til þess að falin vandamál líta dagsins Ijós. Þessi tengsl hafa einnig virkað á þann veg, að stjórnendur hugsa meira um skipulagn- ingu, markaðsmál, hagræð- ingu o.s.frv. og orðið fróðari um ýmsar lausnir við algeng- um rekstrartæknilegum vanda- málum. Mjög margir einstaklingar leita að nýjum arðbærum fram- leiðslutækifærum og má segja að þjónusta iðnráðgjafa við þessa aðila sé nokkuð sérstæð, þar sem félagasamtök eða stofnanir á höfuðborgarsvæð- inu fást ekki við þess háttar nema i litlum mæli. IÐNRÁÐGJAFASTOFUR FRAMTlÐARINNAR f heimi sívaxandi samkeppni og i heimi, þar sem magn rit- aðra upplýsínga af ýmsu tagi fer vaxandi, mun notkun upp- lýsingabanka fara vaxandl. Þörf fyrirtækja fyrir upplýsing- um um t.d. nýja tækni, nýja markaði o.s.frv., er staðreynd, en miðað við allt það magn upplýsinga sem gefið er út er ógerningur fyrir fyrirtæki að fylgjast með öllu þó ekki væri öðru en sérsviði viðkomandi fyrirtækis. Lang flest fyrirtæki á fslandi eru lítil með starfs- mannafjölda undir tíu manns og hafa ekki yfir að ráða sér- fræðimenntuðum mönnum. Þau þurfa því mikla almenna ráðgjöf og upplýsingar eins skjótt og mögulegt er. Reynslan sýnir það að það gengur ekki að planta einum iðnráðgjafa í hvern landsfjórð- ung einan síns liðs. Iðnráðgjaf- arnir þurfa að starfa í faglegu umhverfi og hafa samskipti við aðra ráðgjafa. Þetta gerist best með því að hafaminnsttvo ráð- gjafa á hverri iðnráðgjafastofu. Það skapar einnig meira öryggi því reynslan sýnir að þar sem iðnráðgjafi er einn að störfum hverfur sú þekking sem hefur aflast við brottför iðnráðgjaf- ans. í dag er einungis einn iðn- ráðgjafi starfandi af þeim fimm sem starfað hafa síðastliðin tvö til þrjú ár. Iðnráðgjafastofur framtíðar- innar þurfa því að hafa í þjón- ustu sinni sérfræðinga á mis- munandi sviðum, t.d. verkfræð- ing og viðskiptafræðing eða hagfræðing með reynslu úr atvinnulífinu. Iðnráðgjafastof- urnar þurfa einnig að geta út- vegað upplýsingar með eins skjótum hætti og tæknin leyfir. Tækniupplýsingaþjónustan í Danmörku DTO býður fyrir- tækjum þar í landi og víðar upp á svokallaða ,,ON-Line‘‘-þjón- ustu, sem felur í sér að DTO framkvæmir leit í gagnabönk- um hvar íheimi sem slíkirbank- ar fyrirfinnast og sendir upp- lýsingarnar inn á tölvuskjá við- komandi fyrirtækis með að- stoð símalínu og modems. Það líða því vart par tímar frá því viðskiptavinurinn greinir frá þörf sinni þar til hann hefur fengið úrlausn sinna mála. Framh. i næsta blaði Árgangur ’52: 20 ára makalaust fermingarafmæli verður haldið 19. apríl á Glóðinni (fæðing- arár 1952). Vinsamlega hringið sem fyrst og tilkynnið þátttöku í síma 3388, Ragga, 3135, Veiga, 3639, Maggi og 3353, Stebbi. Pottréttur á miðnætti. - Verð kr. 1.000. Undirbúningsnefndin Keflavík - Atvinna Óskum eftir að ráða afgreiðslufólk í vara- hlutaverslun og leikfangadeild. STAPAFELL HF - Keflavík Leiklistarnámskeið 6 vikna námskeið í leikrænni tjáningu fyrir börn á grunnskólaaldri verður haldið í Keflavík í byrjun apríl Innritun og nánari uppl. hjá Huldu Ólafsdóttur í síma 1369 strax í dag eða fyrir mánudag 7. apríl. Trésmiðir - Atvinna Óskum eftir trésmiðum i verkstæðisvinnu. TRÉSMIÐJA ELLA JÓNS Sími 3545 og 1438 ÚTGERÐARMENN! Dráttarbraut Keflavíkur tekur að sér alla alhliða þjónustu við breytingar og nýsmíði fiskiskipaflot- ans. - Góð inni- og útiaðstaða. Upplýsingar í símum 1335 og 2054. Dráttarbraut Keflavíkur hf. Viltu hætta? 5 daga áform til að hætta að reykja verður haldið dagana 6.-10. apríl í Safnaðarheimili Aðventista, Blikabraut 2, Keflavík. Inn- ritun í síma 4222 og 1066. íslenska bindindisfélagið Krabbameinsfélag Suðumesja

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.