Víkurfréttir - 03.04.1986, Síða 16
Fimmtudagur 3. apríl 1986
AFGREIOSLA BLAÐSINS
er að Vallargötu 14, II. hæð. - Sími 4717.
_ ~ ---FÖNJX KE 111:
Nýtt glæsilegt skip
bætist í flotann
-útbúið til alhliða veiða m.a. rækjuvinnsla um borð
Á skírdag bættist nýtt
glæsilegt 137 tonna fiskiskip
í flota Keflvíkinga, er Fönix
KE 111 var hleypt af stokk-
unum hjá Dráttarbraut
Keflavíkur. Skipið er í eigu
systurfyrirtækis Dráttar-
brautarinnar, er nefnist Vör
hf.
Skip þetta sem nú hefur
verið endurbyggt frá grunni
og breytt áýmsan máta, hét
áður Jón Agúst frá Garði,
og brann á hafi úti í janúar
1978. Skipið var dregið til
hafnar og keypti Dráttar-
brautin það skömmu
seinna. Stóð það úti
óhreyft þar til fyrir þremur
árum að það var tekið inn í
hús og endurbygging hófst.
I skipinu er nú 850 hest-
afla Caterpillar aðalvél og
85 ha. ljósavél. Fullkomið
vindukerfi frá Sigurði
Sveinbjörnssyni hf. m.a.
tvær 10 tonna splittvindur,
tvær 6 tonna grandaravind-
ur o.fl. þar á meðal 7 tonna
krani. Oll siglingatæki eru
af fullkomnustu gerð, aðal-
lega keypt af Sónum hf.
Alla raflögn í skipið ann-
aðist Rafiðn hf., teikningar
vegna smíðinnar annaðist
Olafur J. Briem, skipaverk-
fræðingur. Verkstjórar við
smíðina voru þeir Þórður
Magnússon, skipasmiður
og Njáll Þórðarson, vél-
virki.
Skipið mun verða gert út
á bolfiskveiðar með botn-
vörpu til að byrja með, en
fer síðan á rækjuveiðar með
vinnslu og frystingu um
borð. Skipstjóri er Omar
Einarsson, stýrimaður
Helgi Sigurbjörnsson og
vélstjórar þeir Jóhann
Eiríksson og Ingólfur Vil-
hjálmsson.
Aðaleigandi skipsins og
Dráttarbrautarinnar er
Magnús Axelsson og
tókum við hann tali af
þessu tilefni. „Með þá
reynslu í huga sem við
höfum öðlast eftir þessa
smíði vil ég fullyrða að ísl-
endingar eru fyllilega sam-
keppnisfærir við erlenda
smíði. Hvað varðar verð og
gæði, væri fjármagnskostn-
aður ekki svona hár liður
hér“ sagði Magnús.
„Svo er hin hliðin á þessu
máli, hvort ekki megi segja
að það sé ótrúleg bjartsýni
að ætla sér að fara að gera
nýtt skip út, hér á landi, þar
sem segja má að þjóðfélagið
sé að stórum hluta fjand-
samlegt þessari atvinnu-
grein, sem færir þjóðarbú-
inu 75% gjaldeyristekna.
Þó virðist mér þetta viðhorf
gangvart útgerð, fisk-
vinnslu og tengdum at-
vinnugreinum vera sérstak-
lega áberandi hér í Keflavík
Enda hefur orðið óeðlilegur
samdráttur í þessum
greinum atvinnulífsins hér.
Vil ég færa starfsmönn-
um Dráttarbrautarinnar
þakkir fyrir vel unnin störf
og öðrum þeim sem unnið
hafa við þetta verk. Einnig
og ekki síst Verslunarbank-
anum fyrir frábæra fyrir-
greiðslu og skilning við
þessa framkvæmd“ sagði
Magnús að lokum. -epj.
Ómar Einarsson skipstjóri (t.v.) og Magnús Axelsson framkv.stj.
Magnús Axelsson braut kampavínsflösku á stefni skipsins áður en
það hljóp af stokkunum.
Fönix KE 111 rennur út úr húsi því sem báturinn var endurbyggð-
ur í.
Svona leit báturinn út eftir brunann, þ.e. áður en endurbygging var
hafin.
Nýtt og endurbætt skip hleypur af stokkunum.
VÍKUR-fréttir
- málgagn Suðurnesjamanna