Víkurfréttir


Víkurfréttir - 29.05.1986, Qupperneq 4

Víkurfréttir - 29.05.1986, Qupperneq 4
4 Fimmtudagur 29. maí 1985 VÍKUR-fréttir Fasteignasalan Hafnargötu 27 - Keflavík KEFLAVÍK: Einbýlishús við Kirkjuveg, kjallari og hæð .... 1.600.000 Einbýlishús við Álsvelli, skipti á ódýrari eign möguleg ............................. 2.950.000 Einbýlishús við Hafnargötu ásamt stórri lóð .. 1.800.000 4ra herb. efri hæð við Hringbraut, 110 m2. Sér inngangur ........................... 2.100.000 4ra herb. neöri hæð við Hringbraut ásamt bíl- skúr. Sér inngangur ................. 2.100.000 2ja herb. nýleg íbúð við Heiðarhvamm . 1.400.000 Fasteignir i smiðum i Keflavik: Húsgrunnur við Fagragarö, 165 m2 ásamt 34 m2 bilskúr. Góð eign á góðum stað. Hagstæöir greiösluskilmáiar....................... 850.000 Iðnaöarhúsnæöi við Iðavelli, 500 m2. Möguleiki á millilofti. Nánari uppl. um frágang og greiðslu- skilmála á skrifstofunni. ATH: Höfum á söluskrá mikið úrval fasteigna í Njarðvik, Grindavik, Garði og Sandgerði. Nánari upplýsingar á skrifstofunni. Hraunsvegur 5, Njarðvík: Einbýlishús ásamt bílskúr, 5 herb. og eldhús. Hlíöarvegur 80, Njarövik: Endaraðhús ásamt bílskúr, 5 herb. og eldhús. 3.300.000 Mánagata 5, Grindavik: Grænigarður 6, Keflavik: Einbýlishús m/bílskúr, 170 ferm. Góðir greiðsluskil- EinbýNshús m/bfskúr, 170 málar ..........U. 4.500.000 ferm., mikið endurnýjað. 3.350.000 FASTEIGNASALAN Hafnargötu 27 - Keflavík - Sími 1420 STEINDOR SIGURÐSSON Innri-Njarðvík - Keflavík Frá Frá Innri-Njarðvík: Keflavík: 8.30 8.45 9.40 10.05 10.20 10.40 10.50 11.20 11.30 13.15 14.05 14.45 15.00 15.20 15.30 16.10 16.25 17.15 Grindavík - Keflavík Mánudaga - Miðvikudaga - Föstudaga Frá Frá § Grindavík: Keflavík: s 13.45 13.15 u 17.45 17.15 «o Steindór Sigurðsson E >> iu O VÍKUR-fréttir - sterkur auglýsingamiðill , Mol^I Ha, fyrsta hótelið? Ekki eru allir sáttir við að Hótel Keflavík sé nefnt fyrsta gistihúsið í Kefla- vík. Alla vega ekki þeir sem muna eftir gistihúsi Ábergs, eða því sem var í Klappenborg, svo ekki sé nú minnst á það sem síðast hætti og var staðsett við Mánagötuna. Hótel Keflavík er því fyrsta hó- telið um margra ára skeið en ekki frá upphafi. Það fyrsta var hinsvegar í Ivarshúsi eða Vinamynni. Hvar er Holtahverfi? Á framboðsfundinum i Holtaskóla á dögunum talaði fulltrúi Flokks Mannsins um byggingu grunnskóla í Holta- hverfi. Menn spyrja því hvort það sé virkilega stefna flokksins að byggja skóla við hlið nú- verandi Holtaskóla. En ekki skóla í Heiðar- byggð eins og flestiraðr- ir hafa á stefnuskrá sinni. Talsverð hvað? í framboðslistakynn- ingu DV varðandi Njarð- vík á dögunum stóðu þessi gullkom: „Þaðan er talsverð útgerð, enda góð höfn.“ En hvað skyldi þetta þýða? Jú, mikið rétt, frá Njarðvík eru gerðir út tveir bátar, annar 10 tonna og hinn 200 tonna og síðan gerir Sjöstjaman. út tvo togara. Hvað skyldi það heita ef gerð yrðu t.d. 20 skip út frá Njarðvík. Höfnin er landshöfn og því getur legið þar samtímis mikill fjöldi skipa frá hinum ýmsu höfnum landsins. Pólitískt heimili Oft hefur verið skotið hér í Molum á kratann Björn Jóhannsson og son hans, kommann Jóhann Björnsson. í Njarðvík er fjölskylda ein, þar sem svipað er ástatt og raunar enn heitara í pólitísku kolunum. Eiginkona Gunnars Amar, 5. manns á lista Framsóknar (eins lóuunganna) er Ásdis Friðriksdóttir sem skipar 9. sæti hjá Alþýðubanda- laginu. Varla em þau sammála um stefnuna, nú í endalok kosningabar- áttunnar í Njarðvík, eða hvað? Ekki má gleyma því að á sjálfstæðisheimil- inu hjá Vilhjálmi Gríms- syni, bæjartæknifræðingi Keflavíkurbæjar, er einn- ig svipað ástand. Hús- móðirin Vigdís Pálsdóttir skipar 11. sætið hjá íhald- inu í Keflavík, en sonur- inn Garðar Vilhjálmsson skipar 10. sætið hjá kommunum í Keflavík. Já, það er margt skrýtið í kýrhausnum. Þakkir til Reykjanessins Við hér á Vikurfrétt- um erum nú að gefa út 7. árganginn. Á þeim tíma höfum við haft á okkur ýmsa pólitiska stimpla hjá andstæðingunum, eftir því hvaða mál eru á oddinum hverju sinni. Sumir hafa talað um að við værum of hægri sinnaðir, nánast litli Moggi, aðrir tala um kommasnepil eða krata- blað, allt eftir því hvað við á hverju sinni. Aldrei höfum við fengið á okk- ur framsóknarstimpil áður, hvað sem við höf- um skrifað um. Þar til nú að Reykjanesið kail- ar okkur ópólitískt framsóknarblað. Eigum við þeim því nú miklar þakkir að gjalda, því nú er hringnum lokað með þeirra aðstoð. Sem sannar enn betur en áróður þess sama blaðs, hvað Víkur-fréttir eru ópólitískar og geta tekið á öllum málefnum eftir þörfum hverju sinni. Því segjum við nú ,,kærar þakkir Reykjanes- menn“. Búa í glerhúsi Það hefur aldrei verið talinn snjall leikur að henda grjóti ef maður býr sjálfur í glerhúsi. í siðasta Reykjanesi er mikilli prentsvertu eytt vegna af- brýðissemi út í Víkurfrétt- ir. Flest af þessu er ekki svaravert enda benda skrif þessi til þess að greinarhöfundur og sjálf- ur ritstjórinn hafa ekki fylgst með Víkurfréttum nema síðustu mánuðina, enda búsettur í Reykjavík og veit því harla lítið hvað snýr upp eða niður hér suður frá. En svona til að benda þeim á hvað þeir búa í miklu glerhúsi þá skrifa þeir í dálk sem þeir nefna ,,Úr ýmsum áttum“ um eftirhermu- leik af okkar hálfu. En þessi þáttur þeirra er ein- mitt afbökun af hinum vinsælu Molum Víkur- frétta. Hugmyndasnauðir Og svona i lokin, hvers vegna skyldi Reykjanesið svona oft hringja í þá sem auglýsa í Víkur-fréttum og betla sömu auglýsing- una og birst hefúr þar. Er auglýsingadeild Reykja- nessins virkilega svona hugmyndasnauð að hún verður að nota Vikur- fréttir sem hugmynda- banka? Slógu íhaldið út Það fór illa í ýmsa í- haldsmenn á Suðurnesj- um, þegar þeir sáu þá staðreynd að yfir 300 manns keypti sig inn á matinn hjá krötunum í Glaumbergi um síðustu helgi og annað eins eftir matinn. Sjálfstæðismenn voru sjálfir með vorgleði helgina áður. Þá komu aðeins um eitt hundrað manns í matinn. Spilaði á kerfið Á fundi bæjarráðs Keflavíkur nýverið var tekin fyrir spuming frá Páli Axelssyni varðandi byggingu 4. hæðarinnar á nýja hótelinu við Vatns- nesveg. Var spumingin um það hvaða rök mæltu með því að heimila bygg- ingu 4. hæðarinnar, Vatnsnesvegi 12, þrátt fyrir álit skipulagsstjóra ríkisins. Um málið var eftirfarandi bókað: „Einu rökin, sem einn bygging- amefndarmanna, Krist- inn Guðmundsson, hafði fram að færa vom að um- sækjandi hefði spilað svo vel á kerfið, að ekki yrði undan óskum hans vik- ið.“ Já, það er alltaf mun- ur þegar bæjarfulltrúar viðurkenna að menn geta spilað á þá. Betri bæ Því er ekki hægt að neita að sum siagorð sem flokkamir nota nú fyrir kosningamar kítla heldur betur hláturtaugamar. Eins og t.d. barmmerkið sem G-listinn í Keflavík dreifir og ber eftirfarandi slagorð: „Betri-bæ Jó-Jó í bæjarstjóm X-G.“ Það vantar ekki sjálfsálitið á þessurn bæ. Goti vandað og vikulega. )( - VÍKUR-fréttir

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.