Morgunblaðið - 03.11.2015, Side 1
Þ R I Ð J U D A G U R 3. N Ó V E M B E R 2 0 1 5
Stofnað 1913 258. tölublað 103. árgangur
ER ÚTI UM
TITILVONIR VAL-
ENTINO ROSSI?
240 TÓN-
LISTAR-
MENN
ENDURSKAPAR
Í DANSI FLUG-
ELDASÝNINGU
AIRWAVES 33 SIGRÍÐUR SOFFÍA 30BÍLAR
Fram til klukkan tíu í gærkvöldi unnu kafarar
að því að takmarka olíuleka frá sanddæluskipinu
Perlu sem sökk í Reykjavíkurhöfn í gærdag.
„Þarna eru vanir menn á ferð sem hafa oft-
sinnis komið að sambærilegum aðgerðum,“ segir
Jón Viðar Matthíasson slökkviliðsstjóri í samtali
við Morgunblaðið, en þá hafði slökkviliðið komið
fyrir flotgirðingu umhverfis skipið til að hindra
það að olía bærist í sjóinn í kring. Tæplega 13
þúsund lítrar af olíu eru í skipinu. Gísli Gíslason,
framkvæmdastjóri Faxaflóahafna, segist vænta
áætlunar í dag frá fyrirtækinu Björgun, eiganda
Perlu, um hvernig standa skuli að því að ná skip-
inu aftur á flot. „Nú lítur út fyrir að það geti
gengið hraðar fyrir sig en maður óttaðist í
fyrstu,“ segir Gísli. Ekki er enn að fullu ljóst
hvers vegna skipið sökk og segir hann að ekki sé
hægt að ganga úr skugga um það fyrr en það ná-
ist á flot.
Vera skipsins á botni hafnarinnar mun lítil
áhrif hafa á rekstur hennar að sögn Gísla. „Það
mun þó reyna á það þegar taka á skipið upp.“
Kafarar tryggja að olía leki ekki frá skipinu Perlu á botni Reykjavíkurhafnar
Morgunblaðið/RAX
Stokkið Kafarar unnu að því að þétta dæluskipið langt fram á kvöld. Tæplega 13 þúsund lítrar af olíu eru í skipinu sem sökk við Ægisgarð í gær.
Ná í Perlu á botni sjávar
Faxaflóahafnir vænta björgunaráætlunar í dag Orsakirnar ekki að fullu ljósar
MErfitt gæti reynst að ná Perlu »4
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Mikill vöxtur í ferðaþjónustunni er
talin aðalástæðan fyrir hækkun raun-
gengis krónunnar. Sú þróun veikir
aftur samkeppnisstöðu ferðaþjónust-
unnar á erlendum mörkuðum, eink-
um á evrusvæðinu. Innflæði gjald-
eyris vegna 40 milljarða króna kaupa
erlendra aðila á íslenskum ríkis-
skuldabréfum styrkir einnig gengið.
Styrking krónunnar hefur einkum
komið fram gagnvart evru en síður
gagnvart Bandaríkjadal og sterlings-
pundi sem einnig hafa verið að
styrkjast. Gengi evrunnar var í gær
tæpar 142 krónur og hafði evran ekki
verið ódýrari frá því undir lok sept-
ember 2008, skömmu fyrir fall bank-
anna. Ekki þarf að geta þess að evran
var mun ódýrari fyrr á því ári, fékkst
til dæmis fyrir 88,5 krónur í byrjun
ársins.
Hagstæð þjónustuviðskipti
Gengið hefur aðallega styrkst að
undanförnu vegna góðs afgangs af
vöruviðskiptum við útlönd og þó
einkum þjónustuviðskiptum. Þar á
stórkostleg fjölgun ferðamanna mik-
inn þátt. Það er einnig talið hafa áhrif
á gengið að gjaldeyrir hefur streymt
inn í landið frá því í sumar vegna
kaupa erlendra aðila á íslenskum rík-
isverðbréfum. Það hefur lítið sést frá
því fyrir hrun. Greiningardeildum
Arion banka og Íslandsbanka ber
saman um að þessi kaup nemi nú alls
um 40 milljörðum. Það gerðist mest á
sama tíma og ferðamannatíminn stóð
sem hæst og því erfitt að meta hver
áhrif hvors liðar eru. Seðlabankinn
jók mjög gjaldeyriskaup sín til að
vega upp á móti innstreymi gjaldeyr-
is vegna skuldabréfakaupanna. Samt
styrktist krónan. Starfsmenn grein-
ingardeildanna eru sammála um að
áhrifin af afgangi af vöru- og þjón-
ustuviðskiptum hafi mun meiri áhrif
á gengið en innstreymi gjaldeyris
vegna gjaldeyriskaupa.
Formaður Samtaka ferðaþjónust-
unnar vekur athygli á því að ferða-
mönnum frá Bandaríkjunum og
Bretlandi hafi fjölgað mest og styrk-
ing gengisins nái ekki til þeirra
markaða.
Keypt fyrir 40 milljarða
Erlendir aðilar hafa keypt skuldabréf fyrir 40 milljarða frá því í sumar Gæti
átt einhvern þátt í styrkingu krónunnar Mest munar þó um fjölgun ferðamanna
MEvran jafn ódýr og fyrir … » 4
Guðlaugur Þór Þórðarson, vara-
formaður fjárlaganefndar, segir
tölvupósta milli fráfarandi for-
manns stjórnar RÚV annars vegar
og starfsmanns fjármálaráðuneytis
hins vegar sýna að forystumenn
RÚV hafi veitt þingnefndinni rang-
ar upplýsingar um fjárhag RÚV.
Stjórnendur RÚV hafi þannig
ranglega fullyrt að ráðuneytið hafi
með tölvupósti í vor staðfest að
RÚV hafi fullnægt skilyrðum fyrir
182 milljóna aukaframlagi.
Nefndin muni á næstu dögum
ræða viðbrögð vegna þessa.
„Þessir tölvupóstar sýna að full-
yrðing RÚV stenst ekki. Þær upp-
lýsingar sem nefndin fékk frá for-
ystumönnum RÚV voru ekki réttar.
Það er alvarlegt mál,“ segir hann.
»12 og 14
Morgunblaðið/Eva Björk
RÚV Félagið skuldar nærri 7 milljarða.
RÚV hafi veitt
rangar upplýsingar
Þrátt fyrir
vandræði sem
þýski bílsmiður-
inn Volkswagen
(VW) hefur ratað
í á heimsvísu
vegna búnaðar er
falsaði mælingar
á mengun hefur
það ekki bitnað á sölu VW-bíla hér
á landi samkvæmt athugun bíla-
blaðs Morgunblaðsins.
Þvert á móti jókst sala Heklu á
VW-bílum um 10,3% í nýliðnum
októbermánuði miðað við sama
mánuð fyrir ári. Í október í fyrra
jókst salan um 6,64% svo að sölu-
aukningin í ár er hlutfallslega enn
meiri en þá. Forstjóri Heklu þakkar
þetta farsælu samstarfi Heklu við
viðskiptavini sína um áratugaskeið.
»Bílar
Aukning hjá Heklu
þrátt fyrir vanda VW
Ölgerðin hefur
gert samning við
Carlsberg um að
taka við fram-
leiðslu og sölu á
vörumerkinu frá
og með fyrsta
janúar 2016.
Carlsberg-bjór
hefur verið fram-
leiddur af Vífil-
felli og brugg-
aður á Akureyri síðan 1998 eða í 18
ár. Engar uppsagnir eru boðaðar
hjá Vífilfell en samkvæmt svari Víf-
ilfells borgaði sig ekki lengur fyrir
fyrirtækið að framleiða bjórinn því
hann skilaði engum tekjum í kass-
ann. Bjórinn verður nú bruggaður í
Reykjavík. »2
Carlsberg brugg-
aður af Ölgerðinni
Bjór Hræringar eru
á bjórmarkaðnum.