Morgunblaðið - 03.11.2015, Page 4
Morgunblaðið/RAX
Ekki við neitt ráðið Skipið hallaðist og seig að framan og er talið að nokkurn tíma geti tekið að ná Perlu upp.
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Aðeins rúmri klukkustund eftir að
sanddæluskipið Perla var sjósett í
Slippnum í Reykjavík í gærmorgun
stóðu aðeins masturstoppar skips-
ins upp úr sjónum við Ægisgarð í
Gömlu höfninni. Mögulega hefur
láðst að loka botnlokum skipsins,
að því er fram kom á mbl.is í gær,
og sjór fossað inn í skipið. Fram-
skipið og vélarrúmið virðist hafa
fyllst af sjó, en niðurstöður rann-
sóknar á orsökum liggja ekki fyrir.
Dráttarbáturinn Magni annaðist
færslu Perlu og náði að koma skip-
inu að Ægisgarði, en þá var skipið
farið að síga og hallast mikið. Þrátt
fyrir að Slökkvilið höfuðborgar-
svæðisins hafi brugðist snarlega
við og byrjað dælingu úr skipinu
tókst ekki að koma í veg fyrir að
það sykki við enda Ægisgarðs. Þrír
starfsmenn Slippsins og einn frá
Björgun voru um borð í skipinu en
þeir komust upp á bryggju með að-
stoð slökkviliðsmanna, án meiðsla
og teljandi erfiðleika.
Vettvangurinn tryggður
Í frétt frá Gísla Gíslasyni hafnar-
stjóra um miðjan dag í gær kemur
fram að um borð í Perlunni voru 12
þúsund lítrar af skipaolíu og um
800 lítrar af glussa og smurolíu. Þá
var unnið að því að loka loftgötum
þannig að olía færi ekki í sjóinn.
Vettvangurinn þar sem skipið ligg-
ur hafði verið tryggður og meng-
unarvarnargirðingu komið fyrir.
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins er
til taks ef olía fer að leka úr skip-
inu.
Fulltrúar Björgunar og Stáls-
miðjunnar, sem rekur Slippinn,
munu svo fljótt sem verða má
leggja fyrir Faxaflóahafnir áætlun
um hvernig ná megi skipinu upp af
botninum. „Ætla má að um verk-
efni sé að ræða sem taka muni
nokkurn tíma að undirbúa og fram-
kvæma,“ segir í fréttinni.
Þar segir ennfremur að engar
upplýsingar liggi fyrir um tildrög
óhappsins, en samkvæmt lögum
annast lögreglan rannsókn máls-
ins. Hugsanlega skýrist það ekki
fyrr en tekst að ná skipinu upp á
nýjan leik hvað fór úrskeiðis. Auk
fyrrnefndra aðila koma Umhverf-
isstofnun og Rannsóknanefnd sjó-
slysa að málinu.
Vegur tæplega 500 tonn
Sjóvá er tryggingafélag Björg-
unar, en TM er tryggingafélag
Slippsins. Perla er í eigu Björg-
unar ehf. og var skipið smíðað í
Þýskalandi árið 1964. Skipið er 48
metrar að lengd og vegur tæplega
500 þungatonn.
Perla er minnsta sanddæluskip
Björgunar og hefur fyrirtækið gert
Perlu út frá árinu 1979. Perla er
aðallega notuð til dýpkana, land-
fyllingar og annarra skyldra verk-
efna. Skipið ber allt að 300 m3 af
efni og getur dælt efni upp af allt
að 20 m dýpi, segir á vef Björg-
unar.
Erfitt gæti reynst að ná Perlu
Sökk við Ægisgarð skömmu eftir sjósetningu úr Slippnum í gærmorgun Tæplega 13 þúsund lítrar
af olíu í skipinu Rannsókn á orsökum rétt að byrja en mögulega hefur láðst að loka botnlokum
Fylltist af sjó Slökkviliðsmenn reyndu að dæla úr skipinu en höfðu ekki undan.
Morgunblaðið/RAX
Perla sokkin Magni náði að koma skipinu að Ægisgarði þar sem það sökk.
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. NÓVEMBER 2015
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Styrking raungengis krónunnar
skerðir samkeppnishæfni útflutn-
ingsgreina á erlendum mörkuðum.
Færri krónur fást fyrir fisk, ál og
þjónustu við ferðafólk, landið verð-
ur dýrara. Aftur á móti verða inn-
fluttar vörur ódýrari.
Styrking krónunnar hefur eink-
um komið fram gagnvart evru en
síður gagnvart Bandaríkjadal og
sterlingspundi sem hafa verið að
styrkjast gagnvart evru. Gengi evr-
unnar var í gær 141,67 krónur og
hafði evran ekki verið ódýrari frá
því undir lok september 2008, fyrir
fall bankanna. Áður hafði evran
verið mun ódýrari, fékkst til dæmis
fyrir 88,50 krónur um áramótin
2007-2008. Hæst fór evran á þessu
tímabili í 185 krónur, fyrir réttum
sex árum, eins og sést á meðfylgj-
andi línuriti.
Anna Hrefna Ingimundardóttir,
hagfræðingur í greiningardeild Ar-
ion banka, segir að styrking krón-
unnar að undanförnu hafi aðallega
verið vegna afgangs af vöru-
viðskiptum við útlönd og þó einkum
þjónustuviðskipum þar sem fjölgun
ferðamanna eigi stóran þátt. Einnig
eigi fjármagnsinnstreymi vegna
kaupa erlendra aðila á íslenskum
skuldabréfum hlut að máli. Þau
nema hátt í 40 milljörðum. Ingólfur
Bender, forstöðumaður greining-
ardeildar Íslandsbanka, bendir á að
Seðlabankinn hafi mætt þessu inn-
streymi erlends fjármagns með
kaupum á gjaldeyri. Samt styrktist
krónan.
Heldur verðbólgunni niðri
Styrking krónunnar hefur mis-
munandi áhrif fyrir hinar ýmsu at-
vinnugreinar og svo almenning í
landinu. Það fer eftir því hvert er
verið að selja afurðirnar og hvaðan
vörur eru keyptar.
Ingólfur bendir á að evrusvæðið,
að dönsku krónunni viðbættri, vegi
þungt í utanríkisviðskiptum lands-
ins. Verð á innfluttum vörum lækki
vegna styrkingar gengisins, eins og
tölur Hagstofunnar sýni, og dragi
úr verðbólgu. „Þetta hefur verið að
greiða niður ríflega innlenda verð-
bólgu sem orðið hefur vegna hækk-
unar á launum og hjálpað til við að
halda verðbólgunni undir verð-
bólgumarkmiðum Seðlabanka Ís-
lands. Það hjálpar einnig til við að
bæta kaupmátt og rétta af fjárhags-
lega stöðu heimilanna vegna minni
hækkunar lána,“ segir Ingólfur.
Dregur úr vexti
Aftur á móti dregur hækkun
raungengis krónunnar úr sam-
keppnishæfni útflutningsgreina.
Það bætist ofan á áhrifin af launa-
hækkunum. Ingólfur segir að þró-
unin bitni ekki síst á þeirri grein
sem verið hafi aðalvaxtarbrodd-
urinn í atvinnulífinu, undirstaða
aukins hagvaxtar og atvinnusköp-
unar: ferðaþjónustunnar. Ísland sé
orðið dýrara heim að sækja sem
nemur hækkun raungengisins. Seg-
ir Ingólfur að vegna þess hvað
ferðaþjónustan er orðin mikilvæg
séu útflutningsgreinar næmari fyrir
breytingum á raungengi krónunnar.
Telur hann að áhrif raungeng-
ishækkunarinnar komi fram með
töf og leiði til þess að það dragi úr
vexti í ferðaþjónustunni á næsta
ári, miðað við það sem annars hefði
orðið.
Styrking krónunnar er þegar far-
in að hafa áhrif á rekstur fyr-
irtækja. Dæmi um það er prent-
smiðjan Oddi sem sagt hefur upp
tólf starfsmönnum. Baldur Þor-
geirsson framkvæmdastjóri segir
við mbl.is að fyrirtækið keppi mikið
við erlenda aðila, bæði í umbúðum
og prentun bóka. Sú samkeppni
hafi ekki gengið vel á þessu ári
vegna sterks gengis.
Evran jafn ódýr og fyrir bankahrun
Styrking gengis krónunnar skerðir samkeppnishæfni útflutningsgreina á erlendum mörkuðum
Ferðaþjónustan talin viðkvæm Ódýrari innflutningur greiðir niður innlenda verðbólgu
Evran komin í sama verð og 2008
141,11
179,88
185,01
153,8 158,84
169,8169,97
158,5
154,27
141,67
200
175
150
125
100
Heimild: Gengisskráning Seðlabanka Íslands.
26
. 9
. 2
00
8
31
. 12
. 2
00
8
2.
11.
20
09
30
. 12
. 2
01
1
31
. 12
. 2
01
3
31
. 12
. 2
00
9
31
. 12
. 2
01
0
31
. 12
. 2
01
2
31
. 12
. 2
01
4
2.
11.
20
15
Grímur Sæmundsen, formaður
Samtaka ferðaþjónustunnar,
segir að það hafi vissulega nei-
kvæð áhrif á ferðaþjónustuna ef
gengi íslensku krónunnar styrk-
ist frekar. Samkeppnishæfni
greinarinnar á evrusvæðinu hafi
versnað. Á móti komi að gengi
sterlingspunds og Bandaríkja-
dollars hafi ekki veikst. Mesta
fjölgun ferðamanna að undan-
förnu hafi verið frá Bandaríkj-
unum og Bretlandi. Yfir þriðj-
ungur allra ferðamanna sem
komu fyrstu níu mánuði lands-
ins voru þaðan. Það myndi valda
erfiðleikum ef krónan færi að
styrkjast verulega gagnvart
þessum myntum. „Við viljum
selja Ísland sem einstaka upp-
lifun, sem það sannarlega er.
Þessi þróun setur aukna kröfu á
okkur um að erlendu viðskipta-
vinirnir fái þau gæði sem þeir
greiða fyrir.“
Fái gæði sem
greitt er fyrir
FERÐAÞJÓNUSTAN