Morgunblaðið - 03.11.2015, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. NÓVEMBER 2015
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Starfsmenn Ístaks eru nú að leggja
lokahönd á breikkun vegarins yfir
Hellisheiði. Síðustu daga hefur verið
unnið við ýmsan frágang svo sem
við að mála yfirborðsmerkingar,
jafna úr fyllingum í vegköntum,
setja upp skilti og fleira slíkt.
„Núna er bara það allra síðasta
eftir, fínpússning ef svo mætti
segja. Eftir tvær vikur ætlum við að
vera farnir héðan með allan mann-
skap og tæki,“ segir Barði Krist-
jánsson verkstjóri.
Tæp tvö ár eru síðan Ístaksmenn
hófu framkvæmdir, það er að
breikka og bæta
veginn úr Svína-
hrauni við af-
leggjarann að
Hellisheið-
arvirkjun. Þar
liggur leiðin um
Hveradalabrekk-
ur, háheiðina og
um Kamba niður
í Hveragerði.
Núna er þessi spotti, sem er um 15
kílómetrar, orðinn allt annar en var.
Er að stórum hluta svonefndur
2+1-vegur og á nokkrum stöðum
tvær akreinar í hvora átt.
Skv. stöðlum sem nú gilda um
vegagerð er hver akrein 3,50 metrar
á breidd og vegaxlir 1,4 metrar. Í
miðju er svo víravegrið og því fylgir
hvorum megin um það bil eins
metra breitt helgunarsvæði. Þá eru
nokkrir afleggjarar af þessari meg-
inæð svo sem að orkuvinnslu-
svæðum. Að stórum hluta er veg-
urinn breiðari að sunnan, það er
tvær akreinar, þegar ekið er til
austurs.
Girt fyrir framúrakstur
„Þessi framkvæmd hefur strax
sannað gildi sitt. Við höfum séð þess
dæmi að vegriðin komi í veg fyrir
slys og árekstra, en margir slíkir
hafa orðið hér á veginum yfir Hellis-
heiði þegar bílar sem koma úr gagn-
stæðum áttum rekast saman. Nú er
girt fyrir framúrakstur og sé blint,
til dæmis í snjó eða þoku, geta öku-
menn alltaf fylgt þessari línu. Mér
virðist sem umferðin flæði hér vel í
gegn, hvort sem það er á einni ak-
rein eða tveimur,“ segir Barði sem
var með 35 Ístaksmenn í liði sínu
þegar framkvæmdir stóðu sem
hæst. Nú eru þeir flestir farnir í
önnur verkefni sem Ístak hefur með
höndum, en eftir þá stendur nú
tilbúinn vegur, sem er langþráð
samgöngubót.
„Ég hef efasemdir um þetta,“
segir Þórir Jónsson á Selfossi. Hann
hefur ekið yfir Hellisheiði mörg
þúsund sinnum á 43 ára ferli sínum
sem rútubílstjóri. Hann byrjaði árið
1972, það er sama ár og vegurinn
sem nú var verið að bæta var lagð-
ur.
„Þar sem þessi nýi vegur er ein
akrein finnst mér hann of mjór. Það
má litlu skeika ef bílar til dæmis
rása til, þá geta þeir lent í vegriðinu
eða farið út af. Axlirnar á vegunum
hefðu þurft að vera breiðari. Þá má
búast við að á veturna safnist snjór
að vegriðinu og það gæti skapað erf-
iðleika hjá mönnum á mokst-
urtækjum. Sennilega hefði ekki
kostað miklu meira að leggja tví-
breiðan veg til hvorrar áttar, það er
aðskildar akbrautir eins eru á
Reykjanesbraut,“ segir hann.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Þjóðbraut Barði Kristjánsson Ístaksmaður er ánægður með framkvæmdina. Honum þykir umferðin flæða vel og austur við Kambabrún sést hvernig vegurinn skiptist úr tveimur akreinum í eina.
Fínpússa nýjan Hellisheiðarveg
Vegrið og 2+1 Slysum og árekstrum afstýrt Hefur strax sannað gildi sitt, segir verkstjóri
Ístaks Tveggja ára verkefni að baki Er mjór og litlu má skeika, segir rútubílstjóri á Selfossi
Þórir Jónsson
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
Ljós og hiti
TY2007X
Vinnuljóskastari ECO perur
2x400W tvöfaldur á fæti
6.590
TY2007K
Vinnuljóskastari
m handf 400W ECO
pera, 1,8m snúra
3.290
T38 Vinnuljós
4.990
Rafmagnshitablásari
5Kw 3 fasa
12.830
Rafmagnshitablásari
2Kw 1 fasa
6.890
TY2007W
Vinnuljóskastari
á telescope fæti
400W ECO pera
5.390
Kletthálsi 7, Reykjavík
Fuglavík 18, Reykjanesbæ
SHA-2625
Vinnuljóskastari
Rone 28W m.
innst. blár. 1,8m
snúra
6.990
SHA-8083 3x36W Halogen
16.990
Telescopic þrífótur
fyrir halogen lampa
6.790
Tíð var hagstæð um meginhluta
landins í október þótt úrkomusamt í
meira lagi þætti um landið suðvest-
an- og sunnanvert. Úrkoma mældist
alla daga mánaðarins nema einn í
Reykjavík og hafa þeir aldrei verið
jafnmargir eða fleiri í október.
Þetta er meðal þess sem kemur
fram í yfirliti Trausta Jónssonar
veðurfræðings á heimasíðu
Veðurstofunnar.
Úrkoman í Reykjavík mældist
159,5 mm í október og er það um 86
prósent umfram meðalúrkomu ár-
anna 1961 til 1990. Þetta er mesta
úrkoma í október í Reykjavík síðan
2007 og sú fimmta mesta í október
frá upphafi samfelldra úrkomumæl-
inga í Reykjavík 1920. Í Stykkis-
hólmi mældist úrkoman 89,7 mm og
er það um 12 prósent umfram með-
allag. Á Akureyri mældist úrkoman
35,4 mm og er það um 61 prósent
meðalúrkomu.
Úrkoma á Vatnsskarðshólum hef-
ur aldrei mælst jafnmikil eða meiri í
október en nú og aldrei minni en nú
í Miðfjarðarnesi.
Mestur hiti í Neskaupstað
Meðalhiti í Reykjavík mældist 5,2
stig, 0,8 stigum yfir meðallagi árin
1961 til 1990 og 0,6 stigum ofan
meðallags síðustu tíu ára. Á Akur-
eyri var meðalhitinn 4,8 stig, 1,8
stigum ofan meðallags 1961 til 1990
og 1,9 yfir meðallagi síðustu tíu ára.
Landsmeðalhiti í byggð var
lægstur hinn 26., -1,3 stig, en hæst-
ur 17. og 29., 8,6 stig. Hæsti hiti
mánaðarins mældist í Neskaupstað
16., 18,4 stig, og er það jafnframt
nýtt landsdægurhámark fyrir þann
almanaksdag. Hinn 26. mældist
mest frost í byggð, -14,2 stig, í
Svartárkoti.
Alautt var allan mánuðinn á
Akureyri, að jafnaði gerist það
fjórða hvert ár að október er alauð-
ur þar, en að meðaltali eru 5 dagar
alhvítir á Akureyri í þeim mánuði.
Ekki varð heldur alhvítt í Reykja-
vík, en flekkótt einn morgun. Með-
alfjöldi alhvítra daga í október í
Reykjavík er einn.
Mest snjódýpt í mánuðinum
mældist í Svartárkoti, 27 cm, 15 cm
mældust á Mýri í Bárðardal og 14 í
Birkihlíð í Súgandafirði. Annars
mældist snjódýpt hvergi yfir 10 cm.
Frekar kalt það sem af er ári
Hiti fyrstu tíu mánuði ársins hef-
ur verið nærri meðallagi áranna
1961 til 1990 um landið sunnanvert,
en annars lítillega yfir því. Árið
verður að teljast frekar kalt miðað
við það sem verið hefur á síðari ár-
um. Jafnkalt var síðast í Reykjavík
2000 en töluvert kaldara 1995. Á
Stórhöfða hefur ekki verið kaldara
síðan 1999, síðan 2002 í Stykkis-
hólmi og 2005 á Akureyri.
Úrkoma er um 20 prósent ofan
meðallags áranna 1961 til 1990 í
Reykjavík en um 7 prósent á Akur-
eyri. Sólskinsstundir hafa verið 121
umfram meðallag áranna 1961 til
1990 í Reykjavík. aij@mbl.is
Úrkoma í borginni alla
daga október nema einn
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Staðalbúnaður Regnhlífar og regnfatnaður voru áberandi í október.
Tveir hafa verið útskrifaðir af þeim
þremur sem fluttir voru til aðhlynn-
ingar á sjúkrahúsið í Neskaupstað
eftir árekstur á Eskifirði í gær-
morgun. Sá þriðji er ekki í lífs-
hættu. Þrír einstaklingar voru í
annarri bifreiðinni þegar árekstur-
inn varð, en tveir í hinni. Báðum
var þeim ekið á blautu malbiki þeg-
ar skyndilega tók við mikil ísing í
beygjunni þar sem slysið varð.
Skullu saman vegna
hálku á Eskifirði
Átta erlendir ferðamenn, í fylgd ís-
lensks leiðsögumanns, sem rötuðu
ekki niður af Sólheimajökli í gær
komust heilu og höldnu í bíla björg-
unarsveita frá Vík, Hvolsvelli og
Heimalandi.
Hópurinn dvaldi of lengi á jökl-
inum í myrkrinu og óskaði eftir að-
stoð að sögn Jóns Hermannssonar,
sem situr í svæðisstjórn björgunar-
sveita á Suðurlandi.
Rötuðu ekki niður
af jökli í myrkrinu