Morgunblaðið - 03.11.2015, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. NÓVEMBER 2015
www.isfell.is
Ísfell ehf • Óseyrarbraut 28 • 220 Hafnarfjörður • Sími 5 200 500 • isfell@isfell.is
Ísnet Húsavík s. 5 200 555
Ísnet Akureyri s. 5 200 550
Kristbjörg Ólafsfjörður s. 5 200 565
Ísnet Sauðárkrókur s. 5 200 560
Hafðu samband og
kynntu þér vöruúrvalið
og þjónustuna
Vertu viðbúinn vetrinum
Mest seldu snjókeðjur á Íslandi
LÉTTAR – STERKAR – TRAUSTAR
SNJÓKEÐJUR
Mbl.is vakti í gær athygli á viðtali við Sigmund Davíð
Gunnlaugsson forsætisráðherra á
vefnum Politico, en þar kemur
m.a. eftirfarandi fram:
Haft er eftirSigmundi að
ef umsókn síðustu
ríkisstjórnar um
inngöngu í Evrópu-
sambandið hefði
náð fram að ganga
hefðu Íslendingar
líklega hlotið sömu
örlög og Grikkir, sem urðu fyrir
efnahagshruni sem ekki sér fyrir
endann á, eða Írar sem horfðu
upp á gríðarlega hækkun opin-
berra skulda í kjölfar þess að
stjórnvöld ábyrgðust skuldbind-
ingar írskra banka.
Sigmundur benti á að ef Íslandhefði þurft að taka á sig
skuldir bankakerfisins íslenska
innan Evrópusambandsins með
sama hætti og þær hefðu verið í
evrum líkt og í tilfelli Grikklands
og Írlands hefði það haft hörmu-
legar afleiðingar fyrir íslenskt
efnahagslíf.
Þess í stað hefði Ísland náðmiklum árangri í kjölfar efna-
hagserfiðleikanna sem gengu yfir
landið.
Haft er eftir Sigmundi aðmiklu máli hafi skipt fyrir
Ísland og efnahagsbatann hér á
landi að hafa sjálfstæðan gjald-
miðil, sjálfstætt lagasetningarvald
sem veitt hafi stjórnvöldum svig-
rúm til aðgerða og stjórn eigin
náttúruauðlinda sem ekki hafi ver-
ið raunin innan Evrópusambands-
ins.
Umsóknin um inngöngu í sam-bandið hafi verið tekin í
fljótfærni og að illa hugsuðu
máli.“
Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson
Ísland betur sett
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 2.11., kl. 18.00
Reykjavík 6 skýjað
Bolungarvík 5 skýjað
Akureyri 7 skýjað
Nuuk -3 skafrenningur
Þórshöfn 10 skýjað
Ósló 10 heiðskírt
Kaupmannahöfn 10 þoka
Stokkhólmur 11 heiðskírt
Helsinki 10 heiðskírt
Lúxemborg 5 þoka
Brussel 12 heiðskírt
Dublin 13 léttskýjað
Glasgow 11 þoka
London 12 þoka
París 7 þoka
Amsterdam 10 heiðskírt
Hamborg 7 þoka
Berlín 11 heiðskírt
Vín 10 léttskýjað
Moskva 7 alskýjað
Algarve 17 skúrir
Madríd 12 léttskýjað
Barcelona 18 skúrir
Mallorca 21 léttskýjað
Róm 17 heiðskírt
Aþena 12 léttskýjað
Winnipeg 6 alskýjað
Montreal 10 léttskýjað
New York 16 heiðskírt
Chicago 18 léttskýjað
Orlando 29 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
3. nóvember Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 9:17 17:06
ÍSAFJÖRÐUR 9:36 16:58
SIGLUFJÖRÐUR 9:19 16:40
DJÚPIVOGUR 8:50 16:33
Stórvirkar vinnuvélar voru nokkuð
áberandi um tíma við höfuðstöðvar
Morgunblaðsins og mbl.is að Hádeg-
ismóum 2 í Reykjavík. Var þar vask-
ur vinnuhópur á vegum borgarinnar
að verki en verið var að breikka stíg.
„Það var ákveðið að breyta hluta
af gömlum vegi, sem liggur frá vatn-
inu og upp að litla rauða bústaðnum
sem þarna stendur, í reiðstíg,“ segir
Óskar Baldursson, verkstjóri hjá
umhverfis- og skipulagssviði
Reykjavíkurborgar, og bætir við að
talsvert hafi verið borið í veginn.
Opnast með reiðstígnum, að sögn
Óskars, greið leið frá Rauðavatni,
meðfram höfuðstöðvum blaðsins og í
átt að Grafarholtsvelli og Keldum.
Tók það vinnuhópinn um eina viku
að klára framkvæmdina. khj@mbl.is
Nýr reiðstígur við Hádegismóa
Greið leið er nú frá Rauðavatni og í
átt að Keldum Eldri stígur nýttur
Morgunblaðið/Júlíus
Framkvæmdasvæði Um tíma mátti sjá vélar á borð við þennan valtara.
Myndband við
nýjasta lag kanad-
ísku stórstjörn-
unnar Justin Bie-
ber, I’ll show you,
var frumsýnt í
gær. Myndbandið
er tekið upp hér á
landi og þegar
Morgunblaðið fór í prentun hafði um
milljón manns horft á lagið á You-
tube-rás poppstjörnunnar. Stjarnan
sjálf sagði á samskiptamiðlinum In-
stagram að hann væri stoltur af sinni
nýjustu afurð.
Fjölmargir fjölmiðlar úti í heimi
hafa flutt fréttir um lagið og mynd-
bandið.
Rúm milljón horfði á
Bieber á fyrsta degi
Justin Bieber
Rúnar Pálmason
hefur tekið við
starfi upplýsinga-
fulltrúa Lands-
bankans. Rúnar
mun starfa innan
markaðs- og sam-
skiptadeildar
bankans og hafa
umsjón með sam-
skiptum við fjöl-
miðla fyrir hans hönd.
Rúnar er með BA-gráðu í sagn-
fræði og stjórnmálafræði frá Há-
skóla Íslands og MA-gráðu í Evr-
ópufræðum frá Háskólanum í
Maastricht í Hollandi.
Rúnar tekur við hjá
Landsbankanum
Rúnar Pálmason