Morgunblaðið - 03.11.2015, Qupperneq 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. NÓVEMBER 2015
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Mælingar verkfræðistofunnar
Vatnaskila sýna miklar sveiflur í
grunnvatnsrennsli í Vatnsmýri.
Þórólfur Jónsson, deildarstjóri hjá
umhverfis- og skipulagssviði
Reykjavíkurborgar, sagði að mæl-
ingarnar sem hófust í fyrra hefðu
sýnt allt frá 9 lítra rennsli á sek-
úndu (l/s) og upp í 540 l/s. „Við
vorum svo heppin að fá óvenjulega
þurrt sumar nú og óvenjulega
blautt sumar í fyrra inn í mæliröð-
ina,“ sagði Þórólfur.
Starfshópur sem vaktar vatna-
far og lífríki í Vatnsmýrinni og
Tjörninni í tengslum við fram-
kvæmdirnar á Hlíðarenda lagði
fram samantekt á fundi umhverfis-
og skipulagsráðs í síðustu viku.
„Okkar hlutverk er að rýna það
sem er gert á svæðinu,“ sagði Þór-
ólfur. Hann sagði að heilbrigðiseft-
irlitið fylgdist með mengun og
gæðum vatns. Starfshópurinn
kemur til þar að auki vegna mik-
ilvægis svæðisins.
„Vatnið sem streymir niður í
Vatnsmýri og Tjörnina kemur
mikið frá Öskjuhlíðinni og rennur
undir Hlíðarenda og flugvöllinn og
svo áfram,“ sagði Þórólfur. Verk-
fræðistofan Vatnaskil hefur sett
upp þétt net mælipunkta og fær
tölvukerfi boð frá mælunum um
hvort vatnshæð er innan marka.
„Hingað til hefur allt gengið vel,
en Hlíðarendaverkefnið er komið
stutt á veg,“ sagði Þórólfur. Hann
sagði að þegar grafið væri á svæð-
inu þyrfti að dæla grunnvatni úr
holunum og magn þess væri allt
mælt. Vatnið fer í gegnum sand-
skilju. Um er að ræða gamalt at-
hafnasvæði frá hernum á stríðs-
árunum. Mögulega getur
jarðvegur verið olíumengaður á
einhverjum reitum. Þórólfur sagði
að menn vildu ekki fá olíumengað
vatn út í Tjörnina. Vatni af slíkum
svæðum verður beint í olíuskilju
sem búið er að setja niður. Ef olíu-
mengaður jarðvegur finnst þá
verður hann fjarlægður.
Von er á meira vatni í kerfið
Sem kunnugt er hefur verið
byggt upp fuglafriðland og rennur
vatn frá Vatnsmýri um það og í
Tjörnina. Ætlunin er að leiða einn-
ig grunnvatn frá grunni Húss ís-
lenskra fræða við Suðurgötu niður
í Hústjörnina við Norræna húsið í
Vatnsmýri. Búið er að leggja
vatnsleiðslu frá lóðinni við Suður-
götu og að Hústjörn. Vatnið fer þó
ekki að streyma þar um fyrr en
búið er að ganga frá lögnum við
húsið. Þórólfur sagði að það yrði
gott að fá innstreymi af hreinu
grunnvatni inn í Hústjörnina en
lítil hreyfing hefði verið á vatninu
í henni.
Vatnsflaumurinn frá Öskjuhlíð
og flugvallarsvæðinu hefur leitað í
miðsíkið í fuglafriðlandinu og það-
an niður í Tjörn. Gróður var
hreinsaður úr hliðarsíkjunum í
fuglafriðlandinu til að auka hreyf-
ingu á vatninu í öllu kerfinu.
Fylgst hefur verið með fuglalífi
á Tjörninni og í Vatnsmýri um
áratuga skeið. Auk þess var samið
við Náttúrustofu Kópavogs um að
rannsaka almennt helstu þætti líf-
ríkisins í Vatnsmýri og Tjörninni.
Sú vinna hófst á liðnu sumri og á
að ljúka á næsta ári. Frumniður-
stöður eftir síðastliðið sumar
benda til þess að bati sé í kerfinu í
Vatnsmýri og Tjörninni, að sögn
Þórólfs. Hann sagði að hingað til
hefði ekkert óvænt komið í ljós við
framkvæmdirnar á Hlíðarenda og
allt gengið vel.
Miklar sveiflur í grunnvatnsrennsli
Rennsli grunnvatns í Vatnsmýri hefur verið mælt síðan í fyrra Það hefur sveiflast frá 9 l/s upp í
540 l/s Starfshópur vaktar áhrif framkvæmdanna við Hlíðarenda á Vatnsmýrina og Tjörnina
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Vatnsmýri Vel er fylgst með áhrifum framkvæmdanna við Hlíðarenda á Vatnsmýrina og Tjörnina.
Á morgun verða 60 ár liðin frá
stofnun Tónlistarskólans á Akra-
nesi. Lárus Sighvatsson skólastjóri
segir að það hafi verið framsýnt
fólk sem stóð að stofnun skólans en
fyrr á árinu 1955 hafði sá hópur
stofnað Tónlistarfélag Akraness.
„Við ætlum að halda upp á þessi
tímamót í allan vetur en byrjum að
sjálfsögðu á afmælisdeginum
4. nóvember með tónleikaveislu
með núverrandi og fyrrverandi
nemendum skólans,“ segir Lárus en
stefnt verður að því að allir núver-
andi nemendur skólans komi fram á
tónleikum í vetur tengdum afmæl-
isárinu. Nemendur skólans eru um
320 talsins, á öllum aldri, kennarar
eru 20 og tveir aðrir starfsmenn.
Dagskráin hefst kl. 11.30 með
stuttum tónleikum í Heiðarskóla
með nokkrum nemendum. Síðar um
daginn verða þrennir nemenda-
tónleikar í Tónbergi; kl. 15, 16 og
17. Gestum verður boðið upp á af-
mælistertu, kaffi og límonaði frá kl.
15 og fram á kvöld. Hátíðinni lýkur
svo með tónleikum í Tónbergi kl. 20
annað kvöld með núverandi og
fyrrverandi nemendum. Þar stígur
Þjóðlagasveitin m.a. á svið, klarin-
ettukór, þverflautuleikarar, fiðlu-
leikarar og söngvarar. „Við hvetj-
um nemendur og aðstandendur
þeirra til þess að taka þátt í þessum
degi með okkur,“ segir Lárus.
Tónlistarskólinn á Akranesi 60 ára
Tónleikar
og afmælisterta
Ljósmynd/toska.is
Afmæli Fjölbreytt dagskrá verður í tónlistarskólanum á 60 ára afmælinu.
Laugavegi 34 101 Reykjavík | Sími: 551 4301 | gudsteinn.is
Guðsteins Eyjólfssonar sf
V E R S L U N
Jakkaföt
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Við erum á facebook
Skyrtur
Verð 15.900
str. 38-48
Árni Steinar Jóhanns-
son, fyrrverandi alþing-
ismaður, lést síðastliðið
sunnudagskvöld á
dvalarheimilinu Dalbæ
á Dalvík. Banamein
hans var krabbamein.
Árni Steinar var 62
ára gamall en hann
fæddist 12. júní árið
1953. Hann var fæddur
og uppalinn á Dalvík,
sonur hjónanna Jó-
hanns Helgasonar sjó-
manns, sem fórst í sjó-
slysi árið 1963, og
Valrósar Árnadóttur verslunarkonu
sem lifir í hárri elli á Dalvík.
Árni Steinar var menntaður garð-
yrkjumaður og sótti framhalds-
menntun í Landbúnaðarskólanum í
Kaupmannahöfn þar sem hann lauk
námi árið 1979. Hann var garð-
yrkjustjóri á Akureyri
frá 1979 til 1986 og um-
hverfisstjóri bæjarins
frá 1986 til 1999.
Hann var kjörinn al-
þingismaður fyrir
Vinstrihreyfinguna –
grænt framboð árin
1999-2003. Áður var
hann í framboði fyrir
Þjóðarflokkinn árin
1987 og 1991 og fyrir Al-
þýðubandalagið árið
1995.
Eftir að þing-
mennsku Árna Steinars
lauk varð hann umhverfisstjóri
Fjarðabyggðar allt til dánardægurs.
Á árunum 2008-2014 var hann í stjórn
Rarik og var auk þess stjórnar-
formaður frá 2009 til 2014.
Árni Steinar var ógiftur og barn-
laus.
Andlát
Árni Steinar Jóhannsson