Morgunblaðið - 03.11.2015, Qupperneq 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. NÓVEMBER 2015
Sigurborg Selma Karlsdóttir
sigurborg@mbl.is
Frá unga aldri hefurRagnheiðurJónsdóttirheillast af list í
sínum fjölbreyttustu formum.
Hún sótti teikninámskeið
bæði hérlendis og í Kaup-
mannahöfn en hún tók þátt í
sinni fyrstu sýningu árið 1966
með verki á haustsýningu FÍM
sem vakti gífurlega athygli.
Í um 30 ár var Ragnheið-
ur, þá húsmóðir með fimm
börn, með grafíkaðstöðu á
vinnustofu sinni heima. „Hér
var ýmislegt sem tilheyrði
grafíkinni, eins og pressan
sem ég keypti frá Bretlandi,
og ég hef þrykkt hverja ein-
ustu mynd sjálf alltaf, aldrei
sent á verkstæði, svo þetta
eru allt mín hugverk og mitt
handaverk.“ Árið 1989
ákvað Ragnheiður að
vinna við stærri verk því
þá var hún farin að finna fyrir
því hversu óheilsusamlegt það var
Yfirlit ferils lista-
mannsins á púðum
Ragnheiður Jónsdóttir, grafíklistamaður og teiknari, hefur
vakið verðskuldaða athygli fyrir verk sín sem sýnd hafa ver-
ið bæði innanlands og í útlöndum. Ragnheiður hóf nýverið
að prenta hluta af þekktustu verkum sínum á veglega
bómullarpúða.
Merkilegir púðar Púðarnir eru 65 x 65 cm og er hver
og einn púði merktur að innanverðu með nafni lista-
manns, ártali og heiti verks sem púðann prýðir.
Patrick Hassel-Zein verður í Borgar-
bókasafni – Menningarhúsi Gerðu-
bergi, kl. 20 til 22, annað kvöld, 4.
nóvember, og sýnir áhugasömum
gestum handverkskaffis grunnaðferð-
irnar í rússnesku hekli og jafnframt
valda hluti úr hönnun sinni. Gott er að
taka með sér heklunál númer 5 og
garn sem hentar, t.d. kambgarn.
Patrick Hassel-Zein er sérfræð-
ingur í aðferð sem nefnist rússneskt
hekl og hefur gefið út tvær bækur á
íslensku um heklið. Hann hefur hann-
að ýmis spennandi munstur á sjöl,
peysur, sokka, húfur og allt milli him-
ins og jarðar. Það má nefna munstur
með sléttum og brugðnum lykkjum,
litamunstur, gatamunstur, kaðla-
munstur og fleira. Patrick hefur hald-
ið fjölda námskeiða á Íslandi og er-
lendis og verið tilnefndur til verð-
launa fyrir hönnun sína. Hann hannar
föt á bæði börn og fullorðna en inn-
blásturinn sækir hann í íslenska
prjónahefð og einnig vísindaskáld-
sögur.
Aðgangur er ókeypis og allir vel-
komnir.
Innblásturinn er íslensk prjónahefð og vísindaskáldsögur
Norðurljós Íslensk prjónahefð er
innblásturinn í þessu fallega sjali.
Heklað að rússneskum hætti
Hrói Höttur Hlýlegur heklaður höfuð-
búnaður fyrir karlmenn.
Heklmeistari Patrick Hassel-Zein.
Bókasafn Seltjarnarness býður upp á
fjölbreytta dagskrá í vikunni. Sögu-
hetjunum Maríu Hólm eldfjallafræð-
ingi og hinum uppátækjasama Einari
Áskeli verða m.a. gerð góð skil. Í bók-
menntaspjalli kl. 19.30 í kvöld verður
sjónum beint að þeirri fyrrnefndu, en
María Hólm er aðalsöguhetjan í
skáldsögu Steinunnar Sigurðar-
dóttur, Gæðakonur, sem kom út í
fyrra.
Í sögustundinni kl. 17.30 á morgun,
miðvikudag, fá yngstu börnin svo að
heyra hvernig Einar Áskell reynir að
fá pabba sinn til að lofa sér að leika
með stórhættuleg verkfæri, sem
börn eiga helst ekki að
koma nálægt.
Á fimmtudaginn kl.
17.30 spila Ari Bragi
Kárason trometleikari og
Anni Rorke píanóleikari
ameríska standarda.
Föstudaginn 6. nóv-
ember verður hver síð-
astur að skoða sýn-
inguna Taktur í 100 ár,
sem var opnunarvið-
burður á Menning-
arhátíð Seltjarnarness, því sýn-
ingunni lýkur kl. 17 þann dag. Taktur í
100 ár varpar ljósi á baráttusöngva
kvenna, umfjöllunarefni
þeirra yfir liðlega öld og
hvernig þeir hafa þróast síð-
an. Nemendur Valhúsaskóla
hönnuðu framtíðarklæðnað
konunnar eftir 100 ár og var
klæðnaður sem Sigurlaug
Brynjúlfsdóttir hannaði og út-
færði með hjálp kennara og full-
trúa úr félagsstarfi aldraðra val-
inn. Sýningarstjóri er Sigurlaug
Arnardóttir.
Viðburðarík vika hjá Bókasafni Seltjarnarness
Bókmenntaspjall, sögustund,
djass og Taktur í 100 ár
Tónlist Anni Rorke píanóleikari og Ari Bragi Kárason trompetleikari spila amer-
íska slagara eins og þeim einum er lagið síðdegis á fimmtudaginn.
Skemmtileg Hinn knái Einar Áskell
lætur sér fátt fyrir brjósti brenna og
gæðakonan Mjöll Hólm ekki
að sér hæða.
YOUR TIME IS NOW.
CREATE A FIRST IMPRESSION THAT
DEMANDS A SECOND LOOK.
Tíminn tignarlega túlkaður á hvítri perluskel.
Umgjörðin er prýdd 72 demöntum
sem ramma inn fíngerða tunglstöðuskífu
og nákvæma skeiðklukku.
Kvenlegt úr sem sendir skýr skilaboð
um styrk og sjálfsöryggi.