Morgunblaðið - 03.11.2015, Side 11
Morgunblaðið/Einar Falur
Listamaðurinn Ragnheiður Jónsdóttir lét prenta nokkur vel valin verk á bómullarpúða, en sjálf kynntist hún mynd-
list í gegnum dagatöl. Bómullarpúðarnir eru því nokkurskonar yfirlit af verkum listamannsins.
að vinna í grafíkinni með öll þessu
sterku eiturefni sem tilheyrðu graf-
íkvinnunni.
„Eftir að ég meiddist á öxl var
mér tilkynnt að ég þyrfti að gæta
mín og mætti ekki vera að teygja
mig svona mikið og reyna svona
mikið á handlegginn. Þá fékk ég þá
hugmynd hvort ég ætti ekki bara að
nýta gömlu myndirnar mínar, því af
nógu er að taka,“ segir Ragnheiður
sem hóf að láta prenta verk sín á
púða. Verkin eru allt frá fyrstu sýn-
ingu Ragnheiðar ásamt verkum sem
hún hefur unnið í gegnum tíðina.
„Sumt er unnið eftir kolateikningum
og annað eftir grafík. Púðarnir eru
úr 100% vandaðri bómull og eru í
stærðinni 65 x 65 cm. Þetta eru ólík-
ar myndir og spanna allan minn fer-
il. Alveg frá fyrstu sýningu til þeirr-
ar síðustu,“ útskýrir hún, en margar
af þeim myndum hafa unnið til verð-
launa. Þess má geta að hver og einn
púði er merktur að innanverðu með
nafni listamanns, ártali og heiti
verks sem púðann prýðir.
Kynntist myndlist í gegnum
dagatöl
Aðspurð hvers vegna hún hafi
ákveðið að prenta verkin á púða seg-
ir Ragnheiður: „Ég kynntist sjálf
myndlist í gegnum dagatöl. Ég ólst
upp í sveit og á dagatöl eru oft sett-
ar ljósmyndir eða myndlist og ég
lifði mig svo inn í þetta og beið eftir
nýju dagatali og þau voru eftir
gömlu málarana okkar eins og Jón
Stefánsson og ég man eftir einni
mynd sem hét Strokuhesturinn og
ég grét yfir henni því mér fannst
hún svo átakanleg,“ útskýrir Ragn-
heiður brosandi; því kviknaði sú
hugmynd að kynna myndlist á púð-
um, fremur en veggteppum eða
veggmyndum sem tíðkast svo gjarn-
an.
Hægt er að kynna sér verk
Ragnheiðar frekar á vefsíðu hennar,
www.ragnheidurstudio.wix.com/
ragnheidur, en púðarnir eru jafn-
framt fáanlegir í Kraumi, Aðal-
stræti.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. NÓVEMBER 2015
Jólavörurnar eru komnar í Álnabæ
Álnabær
Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta.
Síðumúla 32, Reykjavík ▪ Tjarnargötu 17, Keflavík ▪ Glerárgötu 32, Akureyri
alnabaer.is ▪ Opnunartími: Virka daga 10 til 18 og til jóla laugardaga frá 11 til 14
Jólagardínur, jóladúkar og jólaefni
50% afslátt
ur
af allri jóla
vöru
Þótt konur væru fjölmennar í hópi ís-
lenskra vesturfara hefur saga þeirra
lítið verið skoðuð frá kvenna- og
kynjasögulegu sjónarhorni. Í hádeg-
isfyrirlestri kl. 12.05 í dag í fyrirlestr-
arsal Þjóðminjasafns Íslands setja
Sigríður Matthíasdóttir sagnfræð-
ingur og Þorgerður Einarsdóttir pró-
fessor m.a. fram þá tilgátu að ein-
hleypar konur hafi „gleymst“, bæði í
sögu vesturferða og íslenskri
kvenna- og kynjasögu.
Einhleypu konurnar voru hvorki
hluti embættismannastéttarinnar né
virtust þær tilheyra lægstu þjóð-
félagshópum, t.d. voru sumar ekki
vinnukonur nema stuttan tíma ævi
sinnar. Sigríður og Þorgerður segja
mikilvægt að skilgreina í hverju staða
þeirra hafi falist, enda sé því stund-
um haldið fram að þessar konur hafi
haft ákveðið „kapítal“, þ.e. þær hafi
átt eitthvað undir sér, svo sem
menntun, starfsframa eða ætt.
Í fyrirlestrinum kynna fræðikon-
urnar rannsókn sem byggist m.a. á
minningargreinum og æviágripum á
borð við þau sem eru í Vestur-
íslenskum æviskrám auk sagnaþátta
og alþýðlegs fróðleiks af ýmsum
toga. Einnig er stuðst við efni frá af-
komendum kvennanna. Fyrirlesturinn
er á vegum Sagnfræðingafélags Ís-
lands og er hluti af verkefni um vest-
urferðir ógiftra kvenna 1870-1914
sem styrkt er af Rannís.
Hádegisfyrirlestur á vegum Sagnfræðingafélags Íslands
Ógiftar konur í hópi vesturfara
Fræðikonur Sigrún er sagnfræðingur
og Þorgerður er prófessor í kynja-
fræði við stjórnmálafræðideild HÍ.
Danski matgæðingurinn Camilla
Plum kemur fram á höfundakvöldi
Norræna hússins kl. 19.30 í kvöld.
Hún er Íslendingum að góðu kunn því
hún hefur gert þættina Boller af stål
og Camilla Plum og den sorte gryde,
sem sýndir hafa verið á RÚV.
Camilla hefur gefið út á annan tug
bóka um matargerð, matjurtaræktun
og bakstur, fer víða og heldur fyr-
irlestra auk þess sem hún skrifar
pistla um matargerð í Politiken.
Endilega....
... mætið á höf-
undakvöld
Matgæðingur Camilla Plum sér um
lífrænan bóndabæ á Norður-Sjálandi.