Morgunblaðið - 03.11.2015, Blaðsíða 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. NÓVEMBER 2015
Orkustofnun hefur veitt Íslenska
kalkþörungafélaginu ehf. leyfi til til-
raunatöku á kalkþörungaseti af hafs-
botni austan Æðeyjar og út af
Kaldalóni í Ísafjarðardjúpi. Með til-
raunatökunni er fyrirhugað að ljúka
þeim rannsóknum sem fyrirtækið
hefur staðið fyrir í Önundarfirði og
Ísafjarðardjúpi, að meðtöldum Jök-
ulfjörðum, frá árinu 2011.
Fram kemur á vef Orkustofnunar
að leyfið er veitt til tilraunatöku með
sanddæluskipi á samtals 600 rúm-
metrum af kalkþörungaseti af hafs-
botni, eða á 300 rúmmetrum austan
Æðeyjar og 300 rúmmetrum út af
Kaldalóni í Ísafjarðardjúpi. Efnis-
takan er ekki líkleg til að hafa í för
með sér umtalsverð umhverfisáhrif
og því ekki háð mati á umhverfis-
áhrifum.
Í ákvörðun Skipulagsstofnunar
um matsskyldu kemur fram að til-
raunatakan muni raska kalkþörung-
um, en að umfang rasksins verði
óverulegt. Tilraunatakan mun fara
fram á mjög afmörkuðum svæðum,
en austan Æðeyjar verður dælt
grunnt á tæplega 1.100 metra langri
línu, og út af Kaldalóni verður dælt
grunnt á rúmlega 800 metra langri
línu. Mörk framangreindra svæða til
tilraunatöku miðast við 10 metra til
beggja hliða út frá dælingarlínum,
því vegna strauma og vinda getur
orðið erfitt að halda tilraunatökunni
á umbeðnum línum. Tekin verða
a.m.k. 24 sýni af kalkþörungasetinu,
sem verða kornastærðargreind og
efnagreind, og að auki verður gerð
skýrsla um hvernig gengur að dæla
efninu á mismunandi stöðum.
Við undirbúning að útgáfu leyfis-
ins var leitað umsagnar Fiskistofu,
Hafrannsóknastofnunar og Um-
hverfisstofnunar. aij@mbl.is
Kalkþörungar
af hafsbotni
Fá leyfi til tilraunatöku á kalkþörunga-
seti austan Æðeyjar og út af Kaldalóni
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
Djúp Æðey í Ísafjarðardjúpi.
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Sveiflur hafa einkennt verð sem
fengist hefur á fiskmörkuðum síð-
ustu mánuði. Áberandi er einnig
hvað ýsa hefur lækkað í verði á
síðustu mánuðum. Í nýliðnum
októbermánuði fengust um 250
krónur að meðaltali fyrir kíló af
óslægðri ýsu, en meira en 100
krónum meira að jafnaði í október
í fyrra, samkvæmt upplýsingum
Ragnars Hjartar Kristjánssonar,
framkvæmdastjóra Fiskmarkaðar
Suðurnesja.
Oft hefur ýsa verið dýrari en
þorskur á fiskmörkuðum en svo
hefur ekki verið í ár. Undanfarið
hefur þorskverðið sveiflast frá
tæpum 300 krónum upp í 367
krónur og algengt verð síðustu
vikurnar hefur verið 310-320
krónur. Ragnar segir að markaðs-
nærri 350 tonn frá því í fyrra.
Markaðurinn á Siglufirði er í
meirihlutaeigu Fiskmarkaðar
Suðurnesja sem rekur markaði í
Sandgerði, Grindavík, Hafnarfirði,
Ísafirði og Höfn.
verið hjá línubátum fyrir Norður-
landi í haust.
Hann nefnir sem dæmi að í
september og október hafi Fisk-
markaður Siglufjarðar selt um
1.670 tonn og það sé aukning um
aðstæður erlendis hafi mest áhrif
á verð og þannig hafi verið erf-
iðleikar á mörkuðum fyrir ýsu.
Meðalverð fyrir allan fisk
seldan hjá Fiskmarkaði Suð-
urnesja var örlítið hærra í októ-
ber í ár heldur en var í sama
mánuði í fyrra, 256 krónur núna,
en 255 krónur í október á síðasta
ári.
Mokafli hjá línubátum
fyrir Norðurlandi
Ragnar segir að í upphafi árs
hafi menn haft áhyggjur af minna
framboði inn á fiskmarkaðina, en
síðan hafi ræst úr. Hann segir lík-
legt að árið hjá þeim endi í um
23.500 tonnum, sem sé í samræmi
við áætlun. Í fyrra seldu markaðir
FS 25.900 tonn, en það var metár.
Ragnar segir að markaðir á
norðanverðu landinu hafi verið
sterkir að undaförnu og mokafli
Kíló af ýsu lækkar um 100
krónur á fiskmörkuðum
Miklar sveiflur hafa einkennt markaðina í ár Þorskur mun dýrari en ýsa
Morgunblaðið/ÞÖK
Lækkun Ýsan hefur gefið eftir í verði á fiskmörkuðum síðustu mánuði.
Ekki er ýkja langt síðan um 400 krón-
ur fengust fyrir ýsu á fiskmörkuðum
og í síðustu viku kom fram gagnrýni á
fisksala fyrir að lækka ekki verð til
neytenda. Á mbl.is var á laugardag
greint frá því að útsöluverð á ýsu í
verslunum hefði hækkað síðasta ár
þrátt fyrir að markaðsverð hefði fallið
talsvert síðan á síðasta ári.
Landssamband smábátaeigenda
vakti athygli á þessu á heimasíðu sinni
í síðustu viku. Örn Pálsson, fram-
kvæmdastjóri Landssambands smá-
bátaeigenda, sagði á mbl.is eðlilegt að
allir markaðsaðilar fengju eitthvað
fyrir sinn snúð en gæta yrði sanngirni.
„Á sama tíma og markaðsverðið fellur
úr rúmum 400 krónum í 260 krónur
þá hækkar verðið hjá fisksölum og við
erum ekki ánægðir með það,“ sagði
Örn.
Fram hefur komið að nýting á
óslægðri ýsu uppúr sjó sé um 40%
séu flökin unnin roðlaus og beinlaus.
Auk þess bendir Ragnar Hjörtur á að
fisksalar kaupi yfirleitt besta fiskinn á
mörkuðunum og fyrir helgi hafi það
verið hátt í 300 krónur.
Gagnrýni á ýsu-
verð í fiskbúðum
KAUPA OFT DÝRASTA FISKINN
Smiðjuvegi 68-72, Rvk Hjallahrauni 4, Hfj Fitjabraut 12, Njarðvík Eyrarvegi 33, Selfossi Barðinn, Skútuvogi 2
Við tökum að okkur: Peruskipti, rafgeymaþjónustu,
bremsuviðgerðir, stýrisenda, spindilkúlur, kerti,
kertaþræði, hjólalegur, fjöðrunarbúnað, viftureimar,
hjólastillingar og margt fleira.
LAGFÆRUM
BÍLINN
VIÐ
www.solning.is
Mest seldu ofnar
á Norðurlöndum