Morgunblaðið - 03.11.2015, Síða 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. NÓVEMBER 2015
LAUGAVEGI 5 - SÍMI 551 3383
Gjafir sem gleðja
Líttu við og
skoðaðu úrva
lið
Glæsilegir skartgripir á frábæru verði
Verð 45.400,-
Demantur 6p.
Verð 37.900,-
Demantur 2p.
Verð 69.000,-
Demantur 11p.Verð 47.000,- Verð 35.900,-
Verð 33.900,-
!
"
"
#!#
!$$
" "
%$"
&'()* (+(
,-&.&+/0 -'+(1(23& 45+(2/5
"
"
"
"
!
!#%
!$!#
""#
%!
%#
""
%
#
!"
%
!$#%
" $
%
" #
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● Hlutdeild Hollands sem endanlegs
ákvörðunarlands í heildarútflutningi frá
Íslands er 39 milljörðum króna minni
en talið hefur verið. Þetta leiðir rann-
sókn Hagstofunnar í ljós en mikið af
vöruútflutningi frá Íslandi fer um skipa-
höfnina í Rotterdam á leið til annarra
áfangastaða. Rannsóknin fólst í því að
stofnunin hafði samband við útflutn-
ingsaðila til að sannreyna gögn um út-
flutning til Hollands.
Sama rannsókn leiddi í ljós að ekkert
bendi til að útflutningur til Rússlands
sé vanmetinn.
Minni útflutningur til
Hollands en talið var
BAKSVIÐ
Margrét Kr. Sigurðardóttir
margret@mbl.is
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
áformar að leggja fram nokkur viða-
mikil frumvörp til að breyta og bæta
umgjörð fjármálaþjónustu. Breyt-
ingarnar sem framundan eru byggj-
ast annars vegar á lærdómi af falli
fjármálakerfisins og hins vegar á
umfangsmikilli endurskoðun á
evrópsku regluverki sem Íslandi er
skylt að innleiða vegna EES-samn-
ingsins. Evrópusambandið hefur
samþykkt fjölda reglugerða á und-
anförnum árum og eru enn um 130
reglugerðir á sviði fjármálaþjónustu
sem bíða innleiðingar. Þetta kemur
fram í nýrri skýrslu ráðuneytisins
um umbætur á löggjöf á fjármála-
markaði.
Fyrirhugað er að ljúka innleiðingu
á reglugerð um varfærniskröfur
vegna starfsemi lánastofnana og
fjárfestingarfyrirtækja, sem nefnd
er CRR reglugerð sem fylgir staðl-
inum Basel III, með framlagningu
tveggja nýrra frumvarpa. Frum-
varpið sem lagt verður fram á haust-
þingi felur í sér breytingar er varða
eigið fé fjármálafyrirtækja auk þess
sem gera á lagabreytingar sem snúa
að könnunar- og matsferli fjármála-
fyrirtækja. Tilgangur breytinganna
er að styrkja valdheimildir Fjár-
málaeftirlitsins (FME). Í lögunum
verður kveðið á um skyldur fjár-
málafyrirtækja til að upplýsa opin-
berlega um vogunarhlutfall sitt (e.
leverage ratio) og skyldur til að við-
halda sérstöku vogunarhlutfalli, en
Basel III-staðallinn segir að hlutfall-
ið skuli vera 3%. Markmið reglnanna
er annars vegar að kom í veg fyrir of
mikla skuldsetningu innan banka-
kerfisins og hinsvegar að styrkja
reglur um útreikning eigin fjár.
Á vorþingi verður lagt fram frum-
varp sem tekur til starfsemi fjár-
málafyrirtækja á milli landa, breyt-
ingar á samstæðueftirliti og nýrra
reglna um uppljóstrun (e.whistle-
blowing). Þegar þessi tvö frumvörp
verða lögfest verður CRR-reglu-
verkið og Basel III-staðallinn að
fullu innleidd. Í skýrslunni segir að í
ljósi þeirra fjölþættu breytinga sem
gerðar hafa verið á lögum um fjár-
málafyrirtæki á undanförnum árum
stefni ráðuneytið að heildarendur-
skoðun laganna sem á að hefjast um
mitt næsta ár.
Auknar kröfur um gjaldþol
Með nýju frumvarpi um vátrygg-
ingastarfsemi sem byggist á tilskip-
un Evrópusambandsins, sem nefnist
Solvency II, á að gera auknar kröfur
til fjárhags vátryggingafélaga, með-
al annars með því að auka gjaldþols-
kröfur, auk þess sem gera á meiri
kröfur til stjórnarhátta þeirra. Með
gjaldþolskröfu er átt við það fjár-
magn sem vátryggingafélag þarf til
að mæta óvæntum áföllum sem ekki
er gert ráð fyrir í vátryggingaskuld.
Vátryggingafélög sem taka mikla
áhættu eða eru með slaka áhættu-
stýringu munu hafa hærri gjaldþols-
kröfur en félög sem taka minni
áhættu eða eru með góða áhættu-
stýringu. Þá þurfa vátryggingafélög
að hafa sérstaka áhættustýringa-
deild innan félagsins sem sér um
áhættustýringu, innra eftirlit, innri
endurskoðun, tryggingastærðfræði
og regluvörslu. FME mun hafa sér-
stakt verklag við eftirlit með vá-
tryggingafélögum og mun greina
veikleika og aukna áhættu. Öll starf-
andi vátryggingafélög á Íslandi falla
undir meginreglur frumvarpsins.
Boðar miklar lagabreytingar
á umgjörð fjármálaþjónustu
Morgunblaðið/Þorkell
Fjármálaþjónusta Ráðuneytið áformar að leggja fram viðamikil frumvörp.
Heildarendurskoðun á lögunum Gjaldþolskrafa vátryggingafélaga hækkar
Wow air mun hefja áætlunarflug til
tveggja borga á vesturströnd Banda-
ríkjanna næsta sumar. Þar er um að
ræða Los Angeles og San Fransisco
og verða þær því fimmti og sjötti
áfangastaður félagsins í Norður-Am-
eríku. Að sögn Wow er þetta í fyrsta
sinn sem íslenskt flugfélag býður upp
á beint flug til Los Angeles. Flogið
verður fjórum sinnum í viku til Los
Angeles og fimm sinnum í viku til San
Francisco og verður flogið allt árið
um kring.
Til þess að mæta hinu aukna fram-
boði tekur flugfélagið í þjónustu sína
þrjár nýjar Airbus A330-300 breið-
þotur og eru það stærstu þotur sem
flogið hefur verið í áætlunarflugi til
og frá Íslandi, að sögn Wow. Vélarnar
eru langdrægar og geta flogið í einum
legg tæpa 12 þúsund kílómetra leið.
Vélar af þessu tagi geta tekið allt upp
í 440 farþega en WOW air hyggst búa
þær 340 sætum. Í tilkynningu frá
WOW air kemur fram að listaverð
nýrrar vélar af þessu tagi sé um 32
milljarðar íslenskra króna. Airbus
hefur framleitt 1.200 vélar af þessu
tagi og eru þær í notkun hjá mörgum
af stærstu flugfélögum heims.
Skúli Mogensen, eigandi og for-
stjóri WOW air, segir að með þessari
viðbót muni félagið meira en tvöfalda
sætaframboð sitt milli ára. Þannig
fari það úr 900 þúsund sætum í ár í
tæplega 2 milljónir sæta á næsta ári.
„Norður-Ameríkuflug okkar sem og
tengiflug okkar yfir Atlantshafið hef-
ur gengið frábærlega og hefur sæta-
nýting allt frá upphafi verið yfir
90%,“ segir Skúli. „Það liggur því
beinast við að bæta við Los Angeles
og San Fransisco sem eru stórkost-
legar borgir í Kaliforníu og styrkja
enn frekar leiðarkerfi okkar. Ljóst er
að það er mikil þörf og eftirspurn eft-
ir góðu lággjaldaflugfélagi sem flýgur
yfir Atlantshafið.“
Wow eykur við
Bandaríkjaflugið
Flogið til Los Angeles og San Fransisco
Morgunblaðið/RAX
Flug Skúli segir þörf fyrir lág-
gjaldaflugfélag yfir Atlantshaf.
Fjármálastöðugleikaráði, sem tók formlega til starfa í september í fyrra,
er ætlað að meta efnahagslegt ójafnvægi, áhættu í fjármálakerfinu,
óæskilega hvata og aðrar aðstæður sem eru líklegar til að ógna fjár-
málastöðugleika. Fjármála- og efnahagsráðherra er formaður ráðsins og
með honum í því sitja seðlabankastjóri og forstjóri FME. Á þessu ári hefur
ráðið hist þrisvar sinnum. Á fundi þess 2. október var það mat ráðsins að
væri horft lengra fram á veginn hefði áhættan vaxið fyrir fjármálakerfið,
þar sem líkur á þjóðhagslegu ójafnvægi hefðu aukist. Ráðið grípur ekki til
beinna aðgerða heldur beinir tilmælum um aðgerðir til þar til bærra yf-
irvalda. Yfirvöld geta meðal annars gripið til þjóðhagsvarúðartækja eins
og kröfu um eiginfjárauka sem sett var í lög síðasta sumar sem gerir fjár-
málafyrirtækjum skylt að viðhalda hærra hlutfalli eigin fjár en grunn-
kröfur gera ráð fyrir. Til stendur að innleiða fleiri þjóðhagsvarúðartæki á
næstu misserum. Í frumvarpi um fasteignalán til neytenda verður FME
heimilt að undangengnum tilmælum fjármálastöðugleikaráðs að setja
reglur um veðsetningarhlutfall fasteigna. Hámark á slíkt hlutfall getur
dregið úr vexti fasteignalána og þar með þenslu á fasteignamarkaði.
Fá fleiri þjóðhagsvarúðartæki
FJÁRMÁLASTÖÐUGLEIKARÁÐ STYRKT
● Alþjóðlega fyrirtækið Alcoa hefur til-
kynnt að það hyggist draga úr fram-
leiðslu sinni á áli. Tvö álver í Wash-
ington-ríki munu þannig hætta vinnslu
auk eins í New York-ríki. Þá mun fyr-
irtækið loka enn einu álveri í New York-
ríki fyrir fullt og allt, að því er segir í til-
kynningu.
„Um allan heim höfum við verið að
gera ráðstafanir til að hætta bræðslu
og vinnslu áls á þeim stöðum þar sem
það er okkur óhagkvæmt,“ segir Roy
Harvey, talsmaður Alcoa, en fyrirhugað
er að skipta fyrirtækinu upp í tvær ein-
ingar seinni hluta ársins 2016. Ekki er
vikið að álveri Alcoa hér á landi, en
framleiðsla þar hófst í apríl árið 2007.
Alcoa dregur saman
seglin á heimsvísu