Morgunblaðið - 03.11.2015, Síða 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. NÓVEMBER 2015
Hringbraut-miðlun ehf. | Sundagarðar 2 | 104 Reykjavík | www.hringbraut.is | Sími +354 561 3100
Missið ekki af áhugaverðum þætti
um starfsemi Íslandspósts og viðtali við
forstjóra og starfsfólk fyrirtækisins.
Hringbraut næst á rásum
7 (Síminn) og 25 (Vodafone)
ATVINNULÍFIÐ
Íslandspóstur
– saga og starfsemi
í þættinum Atvinnulífið
sem er á dagskrá Hringbrautar
kl. 21.00 í kvöld
• Saga og þróun póstdreifingar á Íslandi
• Póstmiðstöð Stórhöfða og nýjungar
í póstþjónustu fyrir einstaklinga og
fyrirtæki
• Aukið álag á starfsemi tollmiðlunar í
kjölfar gífurlegrar aukningar á
netverslun Íslendinga
•Útgáfa frímerkja og áskriftir
erlendra safnara
Á dagskrá
Hringbrautar
í kvöld kl. 21.00
Yfir 218 þúsund flótta- og farandmenn fóru yfir Mið-
jarðarhafið til Evrópu í október, fleiri en allt síðasta ár,
samkvæmt upplýsingum frá Flóttamannastofnun Sam-
einuðu þjóðanna, UNCHR. Adrian Edwards, talsmaður
stofnunarinnar, segir að aldrei áður hafi jafnmargir
flóttamenn farið yfir hafið til Evrópu á einum mánuði.
Alls fóru 218.394 farandmenn yfir hafið til Evrópu í
október, þar af komu allir nema um átta þúsund að
landi í Grikklandi. Allt síðasta ár fóru 216.054 manns
yfir Miðjarðarhafið til Evrópu, margir þeirra á flótta
undan stríði, kúgun og fátækt.
Alls hafa 744 þúsund flótta- og farandmenn farið yfir
hafið til Evrópu það sem af er árinu. Ekkert lát virðist
vera á flóttamannastraumnum þrátt fyrir versnandi
aðstæður á hafi nú þegar vetur gengur í garð. Yfir
3.440 manns hafa drukknað eða horfið á flóttanum yfir
Miðjarðarhafið í ár, samkvæmt upplýsingum frá flótta-
mannastofnuninni í vikunni sem leið. Að sögn frétta-
veitunnar AFP hafa meira en 80 manns drukknað í
Eyjahafi á einum mánuði, þeirra á meðal mörg börn.
Myndin var tekin á strönd grísku eyjunnar Lesbos í
gær þegar bátur kom að landi með farandmenn.
AFP
218.000 fóru yfir hafið í október
Rússneska farþegaþotan sem fórst
á Sínaí-skaga í Egyptalandi á laug-
ardag virðist ekki hafa orðið fyrir
flugskeyti og sendi ekki frá sér
neyðarkall áður en hún hvarf af
ratsjá, að því er fréttaveitan Reu-
ters hafði í gær eftir heimildar-
manni í nefnd sem rannsakar flug-
rita vélarinnar. Heimildarmaðurinn
vildi ekki veita frekari upplýsingar
en sagði staðhæfingu sína byggjast
á fyrstu athugunum á flugritunum.
Þotan var af gerðinni Airbus 321-
200 og var á leiðinni frá ferða-
mannabænum Sharm el-Sheikh við
Rauðahaf til Pétursborgar. Í vélinni
voru 217 farþegar, þar af 25 börn,
auk sjö manna áhafnar, og enginn
komst lífs af. Flestir þeirra voru
Rússar.
Útiloka enga möguleika
Þotan var í eigu rússneska flug-
félagsins Kogalymavia og einn yf-
irmanna þess, Alexander Smirnov,
sagði í gærmorgun að rekja mætti
hrap þotunnar til „einhvers konar
utanaðkomandi þáttar“. Hann full-
yrti einnig að þotan hefði ekki farist
vegna bilunar eða mistaka flug-
manna. Flugfélagið segir að flug-
mennirnir hafi misst stjórn á þot-
unni sem hafi hægt hratt á sér
skömmu áður en hún hafi sundrast
og hrapað til jarðar. Flugmennirnir
hafi ekki haft samband við flugum-
ferðarstjórn til að tilkynna að
vandamál hefði komið upp í vélinni.
Yfirmaður Flugmálastofnunar
Rússlands sagði að of snemmt væri
að fullyrða nokkuð um ástæður þess
að þotan hrapaði og sagði að fullyrð-
ing flugfélagsins um að „utanað-
komandi þættir“ hefðu valdið því
væri ágiskun sem byggðist „ekki á
raunverulegum staðreyndum“.
Talsmaður Vladímírs Pútíns, for-
seta Rússlands, sagði að ekki væri
hægt að útiloka þann möguleika að
hryðjuverkasamtök bæru ábyrgð á
því að þotan hrapaði en ekki væri
hægt að fullyrða nokkuð um það að
svo stöddu.
Fréttaveitan AFP hafði eftir
James Clapper, yfirmanni leyni-
þjónustumála í Bandaríkjunum, að
ekki hefðu komið fram neinar vís-
bendingar um að hryðjuverkamenn
hefðu grandað þotunni. Hann sagði
það „ólíklegt“ að liðsmenn Ríkis ísl-
ams gætu gert flugskeytaárás á far-
þegaþotur yfir Sínaí-skaga en ekki
væri hægt að útiloka það.
bogi@mbl.is
Sendi ekki frá
sér neyðarkall
Flugritar þotunnar rannsakaðir
AFP
Sorg Frá minningarathöfn í Péturs-
borg í Rússlandi um þá sem fórust.