Morgunblaðið - 03.11.2015, Síða 20
20 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. NÓVEMBER 2015
Í Kastljósþætti sjón-
varpsins hinn 22. októ-
ber 2015 var til umræðu
slysið er mb. Æsa ÍS
sökk í Arnarfirði og
tveir menn létust.
Í þessu viðtali komu
furðulegar upplýsingar
frá viðmælenda frétta-
mannsins sem eru
ósannar ef ekki meira
má segja. Veittist frúin
að Rannsóknarnefnd
sjóslysa og fleirum í
sínum ummælum.
Það er alltaf sárt að
missa sína nánustu en
sannleikurinn er betri
en ósannindi.
Varðandi mál þetta
þá var strax eftir slysið leitað eftir fjár-
veitingu til að ná skipinu upp til rann-
sóknar. Strax á fyrstu dögum rann-
sóknar fékk nefndin tilboð í að lyfta
skipinu af hafsbotni og færa það til
Bíldudals. Tilboðið hljóðaði upp á
18.000.000 krónur. Ekki fékkst fjár-
veiting til verksins. Er hér með vísað í
skýrslu undirritaðs, að ósk formanns
nefndarinnar, sem afhent var sam-
gönguráðuneytinu í sambandi við
rannsókn málsins.
Ítarleg rannsókn fór fram á því sem
fyrir lá og þar með var plógur skipsins
rannsakaður mjög ítarlega. Var plógur
skipsins mjög þungur
með hliðsjón af stöð-
ugleika skipsins og enn
meiri hætta stafaði af
plógnum þegar hann var
fullur af skel eins og stað-
an var þegar skipinu
hvolfdi vegna skorts á
stöðugleika. Var sá þátt-
ur talinn ein af orsökum
slyssins sem heimfæra
má undir vanþekkingu á
stöðugleika og stjórnun
skips.
Þess ber að geta að
þetta var ekki fyrsta slys-
ið sem varð og leitað var
eftir fjárheimild af hálfu
nefndarinnar til að lyfta
flaki (sokkið skip er kall-
að flak) af hafsbotni til
rannsóknar. Ástæða þess
að farið var fram á ít-
arlegri rannsókn á þessum skipum er
sukku var vitneskja um skort á stöð-
ugleika fjölda íslenskra fiskiskipa og
vísast þar til skýrslna nefndarinnar frá
1986 til 1999.
Ef viðvaranir er komu frá nefndinni
hefðu verið teknar alvarlega hefði ver-
ið hægt að minnka líkur á manntjóni í
mörgum tilvikum sem fjallað er um í
skýrslum nefndarinnar.
Því eru ummæli frúarinnar ósann-
indi varðandi störf nefndarinnar og
vísast þar einnig til blaðaskrifa og um-
mæla frúarinnar í fjölmiðlum á meðan
á rannsókn stóð og eftir það. Frúin
hafði símasamband við undirritaðan og
vildi stjórna rannsókninni. Voru
skammir frúarinnar í símanum mjög
ókurteislegar svo ekki sé meira sagt.
Var henni bent á að hafa samband við
formann nefndarinnar sem hefði yf-
irstjórn á því sem gera ætti varðandi
rannsóknina.
Þar sem hluti af ummælum frúar-
innar snerist um bótakröfur hennar
eftir slysið þá gleymdi hún að geta þess
að samkvæmt niðurstöðum dómsins þá
byggði dómari í úrskurði sínum á þeim
upplýsingum sem fram komu í skýrslu
nefndarinnar vegna umrædds slyss.
Voru þar tíundaðar taldar líkur á or-
sökum slyssins samkvæmt fyrirliggj-
andi upplýsingum er voru fyrir hendi.
Því miður voru fleiri þættir varðandi
þetta mál sem ekki voru í lagi. Má þar
geta þess að sá er skráður var skip-
stjóri skipsins (samkvæmt lögum eru
skipverjar skráðir undir tiltekinn skip-
stjóra sem er um borð og stjórnar skip-
inu) var ekki um borð heldur annar
maður og því vafasamt hvort skráning
skipverjanna hafi verið lögleg.
Það hefur aldrei verið fögnuður á
heimilum þar sem ástvinir gista hina
votu gröf. Eru slík tilvik allt of mörg í
sögu Íslands. Því ber að gera allt til að
hindra að slíkt gerist í framtíðinni ef
hægt er að koma í veg fyrir það.
Varðandi orsök þessa slyss verða
sambærileg slys ekki umflúin nema
stöðugleiki skipa sé tryggður (nægj-
anlegur) og stjórnendur skipanna hafi
næga þekkingu á þætti stöðugleikans í
sjóhæfni skipsins.
Æsa ÍS
Eftir Kristján
Guðmundsson
Kristján
Guðmundsson
»Rannsókn á
slysi er mb.
ÆSA-IS sökk í
Arnarfirði.
Höfundur er fv. framkvædastjóri
Rannsóknarnefndar sjóslysa.
Ráðstjórn Evrópu-
sambandsins var af-
neitað og fékkst út á
það góð kosning og
rauða sængin breidd-
ist út undir ráðstjórn
og snepillinn með að-
ildarumsókn að Sovét-
Evrópu flaug með
sendiboðanum sem
svo sveittist við að
semja frá okkur lífs-
björgina á ráðherra-
launum í fjögur ár en mislukkaðist.
Ráðstjórninni tókst þó að hamla
samstöðu og tefja uppbyggingu.
Bretar og Hollendingar eru ljós-
lega búnir að jafna sig eftir Búa-
stríðið og tóku sig saman um að
þjarma að okkur með röngum sök-
um, hafandi rustann Brown og
snatann hans Darling sem for-
ustusauði og vert er að halda því
til haga í annálum, sem og að
muna að Evrópuþjóðir, allar nema
Pólverjar og Færeyingar, gáfu frat
í okkur, til mikillar hamingju fyrir
okkar löglega kjörnu klofin-
tungu-ráðstjórn. Hörmulegt var þó
að hún fékk ekki að borga Icesave
og tókst ekki að koma stjórnarskrá
okkar fyrir kattarnef. En í þessi
höfuðverkefni ráðstjórnar hinnar
klofnu tungu fór mikið og dýrt
púður.
Við búum við ráðstjórn og erum
að þroskast í að búa við ráðstjórn
og segjum þar með ekki neitt, enda
ekki þjóð sem mark er á takandi,
bara þögla fólkið sem kaus og bíð-
ur uppgefið á öllu lýðræðishjalinu
sem færir því svo margt sem það
bað ekki um og vantar ekki. Við
búum við brjóstgóða ráðherra og
þingmenn sem geisla af hamingju
þegar hægt er að draga dul á ráð-
leysi við skylduverk og fólki, sem
aldrei hefur neitt lagt til mála, er
tekið fagnandi svo ekki þurfi leng-
ur að fjasa um hús-
næðisskort heldur
settur þrýstingur á
leigumarkaðinn því til
handa og ráðstjórnin
borgar.
Af ráðstjórn verri
tók við ráðstjórn hin
skárri og hamast hún
nú við að finna handa
okkur ómaga á kostn-
að sjúkra, fatlaðra og
aldraðra, sem geta
ekki varið sig með
verkfalli. Ráðstjórn
sendi landamæri okkar langt í
burtu að boði Sovét-Evrópu, þang-
að sem enginn gætir þeirra og
hurðir eru allar brotnar en vega-
bréf, peningar og matur á borðinu
og sófi til að hvílast á í húsinu sem
kostar ekki neitt fyrir ólandann, en
allt fyrir landann.
Hávær lúður ráðstjórnarinnar
við Efstaleiti er samhljóma hinum
menntuðu álitsgjöfum æðstaskól-
ans og verðugasti verðlaunagripur
allra ráðstjórna á kostnað allra til
að gæta samræmis svo að ráð-
stjórn Reykjavíkur fái drifið stór-
valtarann yfir vilja landans sem á
Reykjavík. En ráðstjórn roluskap-
arins gónir bara og þegir á meðan
valtari dagsins malar undir sig nú-
tímasamgöngukerfi svo væntanlega
kemur Gunnar póstur aftur með
taglhnýtalestina sína og lúðurinn
góða.
Ráðstjórn + þöggun
= stjórnleysi?
Eftir Hrólf
Hraundal
» Af ráðstjórn verri
tók við ráðstjórn hin
skárri og hamast hún nú
við að finna handa okk-
ur ómaga á kostnað
sjúkra, fatlaðra og aldr-
aðra...
Hrólfur
Hraundal
Höfundur er vélvirki.
Þegar áfengisfram-
leiðsla og sala var
bönnuð í USA frá 1919
til 1933, þá gerðu
menn það sem þeim
var eðlilegt. Þeir fóru
að brugga sitt eigið
áfengi og einnig til að
selja öðrum. Þar með
urðu skipulögð glæpa-
samtök til. Og enn eru
menn að berjast við
þessi samtök út um allan heim.
Eftir að áfengisbannið var afnum-
ið 1933, þá var farið út í að framleiða
og selja eiturlyf. Og glæpirnir sem
fylgja þessu hafa aukist gríðarlega.
Eiturlyfjaneytendur gera allt sem
þeir geta til að fjármagna þessa þörf
á að nálgast eiturlyf. Og að sögn þá
þarf ekki mikla efnafræðiþekkingu
til að búa til eiturlyf.
Flest þeirra lyfja sem eiturlyfja-
neytendur nota eru notuð innan heil-
brigðiskerfisins. Og út um allt land
eru heilbrigðisstöðvar og/eða spít-
alar. Hægt væri að hafa sérherbergi
með þjónustu fyrir eiturlyfjaneyt-
endur þar sem þeir gætu komið og
fengið sinn skammt þar ókeypis eða
mjög ódýrt. Og um leið væri hægt að
bjóða viðkomandi að fara í meðferð.
Ef hann ekki þiggur meðferð, þá er
bara að skoða hann, skrá og veita
honum sinn skammt. Það eina sem
hann mætti ekki gera er að fara út
með skammtinn, hann yrði að nota
hann á staðnum. Svo gæti hann farið
sína leið. Um leið og þetta gerist þá
er viðkomandi kominn á
skrá, fær hreinar nálar,
smokka og allt sem
tengist svona lífi. Þetta
myndi gera það að
verkum að glæpir
myndu minnka veru-
lega og fáir nýir neyt-
endur yrðu til.
Lítill hagnaður er í
að gefa fólki eiturlyf og
gera það háð eitur-
lyfjum ef það svo gæti
fengið lyfin ókeypis
annars staðar.
Gallinn við þetta er að fólk mun
enn neyta eiturlyfja. En kostirnir
eru að glæpir myndu minnka gríðar-
lega. Færri myndu byrja að neyta
eiturlyfja þar sem það yrði enginn
hagnaður fyrir sölumenn að gefa eit-
urlyf þar sem neytendur gætu feng-
ið þau ókeypis eða ódýrt hjá hinu op-
inbera. Og neytendur, sem færu á
heilbrigðisstöðvar til að fá sinn
skammt, fengju þar ráðgjöf, hreinar
nálar og félagslega aðstoð.
Eiturlyfja-vanda-
mál á Íslandi
Eftir Halldór
Sigurðsson
Halldór Sigurðsson
» Flest þeirra lyfja
sem eiturlyfjaneyt-
endur nota eru notuð
innan heilbrigðiskerfis-
ins. Og út um allt land
eru heilbrigðisstöðvar
og/eða spítalar.
Höfundur er bílstjóri.
Heimilinu barst bréf frá
Reykjavíkurborg um breyt-
ingar á sorphirðu og var um
leið – að við höldum – brýn-
ing um að flokka heimilis-
sorpið betur en hingað til.
Hér eru glefsur úr bréf-
inu: „Fram að þessu hafa grænar
tunnur verið svokallaðar „spar-
tunnur“ fyrir blandaðan úrgang og
losaðar á 20 daga fresti. […] Jafn-
framt er kynnt til sögunnar ný grá
spartunna sem er mjórri en sú
hefðbundna […] Spartunnan er los-
uð jafn oft eða á 10 daga fresti. […]
frá og með áramótum verða gráu
tunnurnar, þær hefðbundnu og
nýju spartunnurnar, los-
aðar á 14 daga fresti […]
Þeir íbúar sem hafa nú
þegar græna tunnu […] og
vilja byrja að nýta hana
undir endurvinnanlegt
plast og fá gráa 120 l
spartunnu undir blandaðan úrgang
geta pantað slíka þjónustu fyrir 28.
október. Eftir það verða grænu
tunnurnar sóttar hjá íbúum sem
ekki hafa haft samband og grá
spartunna sett í staðinn. […] munu
þeir sem þegar hafa græna tunnu
og vilja byrja að nota hana undir
plast njóta forgangs.“
Bréfið er afar ruglingslegt á köfl-
um. Við hnutum t.d. um orðalagið
að „njóta forgangs“. Í hverju er
forgangurinn fólginn? Í bréfinu
kemur fram að greiða þurfi sérstök
sorphirðugjöld fyrir hverja tunnu.
Er forgangurinn þá að maður fær
að borga strax? Hvað með „um-
hverfissóðana“ sem vilja ekki
flokka? Þurfa þeir ekki að borga
neitt? Í augum leikmanns lítur
þetta a.m.k. þannig út að forgangur
þeirra, sem vilja minnka „umhverf-
isskref“ sitt með flokkun heimilis-
sorps, sé sá að fá að borga fyrir það
sem fyrst.
Eina leiðin til að fá botn í þetta
var að setja þetta upp í excel og
skoða „losunartíðni“ hverrar tunnu
og verð. Niðurstaðan er auðvitað sú
að það er fokdýrt að flokka rusl
henda og ruslið er hirt sjaldnar en
áður.
Reykvíkingur.
Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is
Dýrt að flokka sorp?
• Fullkomin forgreiningarstöð. Forgreining segir okkur flest
allt um ástand bílsins og gæði.
• Sérhæft og vottað þjónustuverkstæði sem uppfyllir
allar ströngustu kröfur VW og Skoda.
• Hefur gæðavottun Bílgreinasambandsins
með gæðaúttekt frá BSI á Íslandi.
• Starfsleyfi til endurskoðunar frá Samgöngustofu.
Við leitumst við að vera samstíga því besta í Evrópu.
Komið, sjáið og sannfærist.
REGLULEGT VIÐHALD
HÆKKAR ENDURSÖLUVERÐ
forðastu verðrýrnun bílsins og pantaðu tíma í forgreiningu
Kletthálsi 9 • 110 Reykjavík • Sími 568 1090 • bilson@bilson.is • bilson.is
Kletthálsi 9 • Sími 568 1090
- V E R K S T Æ Ð I Ð -