Morgunblaðið - 03.11.2015, Side 21
MINNINGAR 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. NÓVEMBER 2015
✝ Einar GunnarSigurðsson
fæddist í Selja-
tungu 16. júlí 1924.
Hann lést á hjúkr-
unarheimilinu
Skógarbæ 22. októ-
ber 2015.
Hann var sonur
hjónanna Sigurðar
Einarssonar bónda
í Seljatungu og Sig-
ríðar Jónsdóttur
ljósmóður. Systkini Gunnars
eru: Sigríður, Þorsteinn, Sess-
elja Sumarrós, Jón, Laufey,
Magnea Kristín og Guðjón
Helgi. Kristín er ein eftirlifandi.
Eiginkona Gunnars var Vil-
helmína Guðrún Valdimars-
dóttir frá Stokkseyri, fædd 30.
júlí 1927. Vilhelmína lést árið
2013.
Þau eignuðust fjórar dætur:
1) Guðný Vilborg Gunn-
arsdóttir, giftist Steini Her-
manni Sigurðssyni sem er lát-
inn. Sonur Guðnýjar er Einar
Gunnar Sigurðsson. Börn Steins
eru þau Sigurður Einar, Þráinn
og Hanna. 2) Sigrún Sesselja
Gunnar ólst upp í foreldra-
húsum og tók snemma þátt í
störfum ungmennafélagshreyf-
ingarinnar. Hann ritaði 40 ára
starfssögu Ungmennafélagsins
Samhygðar. Hann var virkur í
stjórnmálastarfi frá unga aldri
og stóð m.a. að stofnun Félags
ungra sjálfstæðismanna á Suð-
urlandi og sjálfstæðisfélagsins
Trausta í Flóa og var fréttarit-
ari Morgunblaðsins um árabil.
Gunnar var lengi fulltrúi hrepps
síns í sýslunefnd Árnessýslu, í
stjórn Sjúkrahúss Suðurlands
og í stjórn Áburðarverksmiðju
ríkisins. Hann var lengi formað-
ur sóknarnefndar Gaulverjabæj-
arsóknar.
Gunnar bjó í Seljatungu frá
1945-1949 í félagi við Guðjón
bróður sinn og til 1972 bjuggu
þau Vilhelmína í félagsbúi með
Sesselju systur Gunnars og
manni hennar Vigfúsi Einars-
syni. Gunnar hætti búskap í
Seljatungu árið 1984 og vann
eftir það hjá sýslumanninum á
Selfossi við umboð Trygginga-
stofnunar ríkisins.
Gunnar og Vilhelmína fluttu í
Kópavog árið 2001. Gunnar lést
á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ
þar sem hann hafði dvalið síð-
ustu mánuðina.
Útför Gunnars verður gerð
frá Gaulverjabæjarkirkju í dag,
3. nóvember 2015, kl. 11.
Gunnarsdóttir, í
sambúð með Jóni
Ásmundssyni. Jón á
þrjú börn, Auði,
Guðrúnu og Sverri.
3) Margrét Kristín
Gunnarsdóttir, í
sambúð með Gunn-
ari Þ. Andersen.
Þau eiga saman
Richard Vilhelm
Andersen. Börn
Gunnars af fyrra
sambandi eru: Victoria, Tiffany
og Eric Andersen. 4) Laufey
Sigríður Gunnarsdóttir, áður í
sambúð með Dariusz Bosak.
Uppeldissonur Vilhelmínu og
Gunnars er Einar Gunnar Sig-
urðsson, sonur Guðnýjar. Hann
er giftur Ingunni Svölu Leifs-
dóttur og eiga þau synina Ísak
Loga og Dag Orra. Áður eign-
aðist Einar Gunnar soninn
Andra með þáverandi sambýlis-
konu sinni, Ingu Fríðu Tryggva-
dóttur. Andri er í sambúð með
Rannveigu Eriksen og saman
eiga þau tvíburadæturnar
Lovísu Eriksen og Magneu Er-
iksen.
„Öllu er afmörkuð stund og
sérhver hlutur undir himninum
hefir sinn tíma, að fæðast hefir
sinn tíma og að deyja hefir sinn
tíma.“
Þessi speki Prédikarans er
flestum kunn, samt erum við
aldrei viðbúin því að kveðja
kæra vini í hinsta sinn. Nú, að
loknum lífsdegi Gunnars
frænda míns, er svo margs að
minnast, ekki síst frá bernsku-
tímum þegar Gunnar var annar
húsbænda í Seljatungu. Þar
bjuggu foreldrar mínir og
Gunnar og Villa kona hans fé-
lagsbúi. Sú sambúð stóð yfir í
rúm 20 ár og þar var gott að
eiga heima í samhentum og
kærleiksríkum hópi.
Mér þykir í svip lífið fátæk-
legra að þessum góða frænda
mínum gengnum. Gunnar var
einstaklega hjartahlýr og glað-
vær, hann leysti flest mál með
brosi og af sinni einstöku glað-
værð. Maður áttaði sig fljótt á
því að það var ekki mikil alvara
á bak við „kirkjusvipinn“ sem
hann sendi manni stundum ef
maður var með einhvern kjafta-
gang þegar átti að hafa hljótt.
Gunnar var félagsvera af lífi og
sál.
Aldrei fór á milli mála að eitt
af mestu hugðarefnum hans var
stuðningur við Sjálfstæðis-
flokkinn.
Við vorum ekki há í loftinu,
krakkarnir, þegar við vissum
alveg hvern væri óhætt að
treysta á í pólitíkinni. Sannfær-
ingin entist okkur sumum nú
reyndar misvel þegar út í lífið
kom og Gunnar tók því með
jafnaðargeði, sem öðru. Hann
reyndi ekki mikið að tala um
fyrir manni, hann bar virðingu
fyrir skoðunum annarra. En ég
held að ekki hafi hvarflað að
honum annað en að við mund-
um sjá að okkur síðar.
Gunnar frændi minn mun
líklega ekki teljast víðförull
maður, hann fór ekki oft í
ferðalög og aldrei til útlanda
alla sína löngu ævi. Sú stað-
reynd breytti engu um víðsýni
hans og visku.
Hann fylgdist alla tíð afskap-
lega vel með öllu í kringum sig,
lét sig virkilega varða allt sem
til framfara mátti teljast, ekki
síst í sveitinni sinni. Og túnin í
Seljatungu fengu gjarnan nöfn
eftir þeim stöðum í veröldinni
sem hæst bar í fréttum, þar var
rakað saman bæði í Kongó og
Laos.
Gunnari var það lagið að
hrósa okkur krökkunum og
þakka það sem honum þótti vel
gert, það var ekki mikið tíðkuð
uppeldisaðferð á sjöunda ára-
tugnum. Ég minnist kvöld-
stunda á fjósstéttinni þegar við
Magga vorum að kenna honum
og pabba að dansa jenka, það
var nú ekki lítið skemmtilegt.
Gunnar kunni svo vel list grín-
arans, hann var aldrei hræddur
við að segja af sjálfum sér kát-
legar sögur.
Á heimili Gunnars og Villu
var gestkvæmt, þau voru vin-
mörg og gestrisin. Dætur
þeirra nutu ástríkis og um-
hyggju sem þær hafa launað
foreldrum sínum með einstakri
ræktarsemi.
Nú að leiðarlokum vil ég
senda þeim og öllum afkom-
endum þeirra innilegar samúð-
arkveðjur. Fyrir rúmum 40 ár-
um sendi faðir minn sínu gamla
sambýlisfólki kveðju í tilefni af-
mælis Gunnars – inntak þeirra
segir allt sem mér nú liggur á
hjarta:
Hugurinn er heima um þessar
mundir
er hálfrar aldar skeiðið kveður sviðið
og þó nú taki að fækka okkar fundir
skal fagna því sem er í farsæld liðið.
Með innilegri þökk og virð-
ingu,
fyrir hönd systkinanna
„vestrí“,
Ingibjörg Vigfúsdóttir.
Gunnar föðurbróðir frá
Seljatungu var mikill uppá-
halds frændi. Það tengdist án
efa ljúfri æsku þar sem vin-
skapur og samheldni bræðr-
anna Guðjóns og Gunnars var
fölskvalaus og sú vinátta teygði
sig síðan til allra afkomenda á
einstakan hátt er fjölskyldur
stækkuðu í Seljatungu og Gaul-
verjabæ um og uppúr miðri síð-
ustu öld.
Samgangur var mikill og
bæði var farið oft í heimsóknir
og hjálpast að við verk og
framkvæmdir þegar þurfti.
Ekki var langt í ástina og
stórglæsileg heimasæta í Rúts-
staðahverfinu, hún Vilhelmína,
varð lífsförunautur.
Gunnar var einstakur húm-
oristi og léttleiki fylgdi honum.
Hans kímni og einstaki smit-
andi hlátur kom öllum í gott
skap.
Mér er minnisstætt er góð
nágrannakona hér í Bæjar-
hverfinu fór eitt sinn með okk-
ur í kvöldheimsókn að Selja-
tungu.
Hún grét nánast af hlátri all-
an tímann enda var Gunnar í
essinu sínu. Sagði skemmtileg-
ar sögur af fólki og málefnum.
Þessi hlið kom þessari ágætu
konu nokkuð á óvart því út ávið
hafði frændi ábyrga hlið og
festu í gjörðum sínum. Var svo
í því mæli að sveitungar sýndu
honum traust og ábyrgð. Það
gerði einnig Sjálfstæðisflokkur-
inn til ýmissa verka og ábyrgð-
arstarfa í nefndum og fleiru.
Hann var mikill sjálfstæðis-
maður alla tíð gegnum þykkt
og þunnt. Fylgdi nafna sínum
Gunnari Thoroddsen að málum
alla tíð og naut kunningsskapar
hans.
Aldrei flæktist þó flokkspóli-
tík fyrir í störfum hans hér í
sveit og áralöng seta Gunnars
og kjör í sýslunefnd fyrir Gaul-
verjabæjarhrepp bar því vitni.
Búskapur var ágætur í Selja-
tungu en Gunnar var ekki fyrir
að taka miklar fjárhagslegar
áhættur í framkvæmdum og
fjárfestingum. Búið stækkaði í
gegnum árin. Framan af var
tvíbýli með Sesselju og Vigfúsi
manni hennar í einstöku sam-
starfi.
Einnig vann Einar Páll Vig-
fússon við búskapinn. Taldist
snyrtilegt bú í ríflegri meðal-
stærð fyrri tíma. Túnrækt var
stóraukin í hans tíð enda skil-
yrðin góð. Gunnar unni mjög
sinni gömlu sóknarkirkju í
Gaulverjabæ og var um árabil
formaður sóknarnefndar.
Manngæska og almennileg-
heit Gunnars og Villu var ein-
stök og að því búa dæturnar og
afkomendur sem öll bera for-
föður og formóður sinni gott
vitni. Því kynntumst við vel hér
þegar sorg og missir kvaddi
dyra.
Þeir náðu háum aldri bræð-
urnir Guðjón og Gunnar.
Kvöddu síðan jarðvist með
rúmlega árs millibili. Fram að
því töluðust þeir við flesta daga
í síma. Minningagrein Gunnars
um föður minn bar vott um hve
vel hann hélt sinni andlegu
heilsu og færni.
Við Stína heimsóttum
Gunnsa fyrir nokkrum dögum.
Það er orðin dýrmæt minning.
Hann var klæddur og á fótum,
þokkalega hress og sagðist hafa
farið um Flóann í sumar. Sjálf-
ur sagði hann okkur hafa „setið
fyrir svörum“ og hann sjálfur
rakið bæjarleiðir (boðleiðir) um
sveitina sem hann unni og
spurt frétta. Í alla staði var
gott að finna hvar hugur hans
var að stórum hluta til hinsta
dags.
Elsku systur, frænkur okkar,
Einar Gunnar og fjölskyldur.
Samúðarkveðjur til allra.
Valdimar Guðjónsson.
Einar Gunnar
Sigurðsson
✝ AðalheiðurBóasdóttir,
alltaf kölluð Allý,
fæddist á Borg
Njarðvík, Borg-
arfirði eystri, 19.
október 1933. Hún
lést á Droplaug-
arstöðum 27. októ-
ber 2015.
Foreldrar henn-
ar voru Bóas Ey-
dal Sigurðsson,
bóndi í Njarðvík f. á Eyvind-
ará í Eiðahreppi í S-Múl. 1.
júní 1891, d. 20. maí 1968, og
Anna Jakobína Ármannsdóttir,
f. í Snotrunesi í Borgarfirði
eystri 26. febrúar 1892, d. 16.
janúar 1989. Systkini Að-
alheiðar eru Karl, f. 9. júlí
1925, d. 25. júlí 2009, Gunnar
Sigurgeir, f. 10. júní 1927, d.
10. október 2004, Sigurður, f.
ardóttur. Hjörleifur Heimir, á
hann synina Diðrik Hilmar, f.
1994, og Trygve Heimi, f. 12.
febrúar 1998.
Allý kom til Reykjavíkur á
17. ári til að hjálpa til á heim-
ili Bjargar Sigurðardóttur,
frænku sinnar í Hafnarfirði.
Síðan lá leiðin í Húsmæðra-
skólann að Laugarvatni. Eftir
skólann starfaði hún m.a. hjá
Bergljótu Ólafsdóttur og í
Belgjagerðinni. Lengst af
starfaði Allý með Sigurjóni
Gunnarssyni matreiðslumanni,
fyrst í Landsbankanum Lauga-
vegi 77 og síðar í Byggða-
stofnun við Rauðarárstíg. Með
dagvinnunni starfaði hún allt-
af í þjónustustörfum, t.d. í
Súlnasalnum yfir 20 ár, Snor-
rabæ og Frímúrarahúsinu auk
þess sem hún tók að sér að sjá
um veislur í heimahúsum. Í
fleiri ár tók Allý að sér lag-
færingar og saum heima.
Hún var virk í Kvenfélaginu
Hringnum frá árinu 1990.
Útför Aðalheiðar verður
gerð frá Hallgrímskirkju í
dag, 3. nóvember 2015, kl. 13.
13. febrúar 1929,
d. 11. júní 2008,
Elín Guðný, f. 31.
ágúst 1931, Árni
Ármann, f. 17.
september 1936,
og hálfbróðir Að-
alheiðar, sam-
feðra, Ragnar, f.
18. maí 1918, d. 2.
ágúst 1993.
Allý giftist
Hilmari Sigurði
Ásgeirssyni frá Kálfholti Ása-
hreppi Rangárvallasýslu, f. 13.
júní 1931, d. 19. september
2001. Þau skildu. Börn þeirra
eru: Anna Jakobína, f. 1955,
gift Guðjóni Þór Guðjónssyni,
fóstursonur Önnu er Davíð
Örn Guðjónsson, giftur Marija
Guðjónsson.
Ásdís Hrönn, f. 27. mars
1963, gift Gunnfríði Ingimund-
Mamma var glæsileg borgar-
dama sem alltaf var vel til höfð
og glæsilega klædd. Saumaði
glæsilegar flíkur bæði á sjálfa
sig og aðra. Við systkinin vorum
í heimasaumuðum fötum sem
okkur fannst kannski ekkert
flott á unglingsárunum en áttum
eftir að biðja um síðar. Hún gat
saumað hvað sem var. Mér er
minnisstætt þegar hún saumaði
leðurbuxur eftir Levı́s gallabux-
nasniði á Hjörleif. Það átti eng-
inn þannig. Við sýndum henni
kannski í blaði hvað okkur lang-
aði í og hún töfraði það fram í
saumavélinni. Það eru ófáir sem
hafa notið þessara hæfileika
hennar. Árið 1990 hóf hún að
starfa með Kvenfélaginu
Hringnum og hefur verið viðloð-
andi jólabasarinn hjá þeim síð-
an. Vaktirnar á Barnaspítalan-
um voru henni mikils virði og
gefandi eftir að hún komst á eft-
irlaun.
Mamma var forkur, var í ára-
tugi í sinni dagvinnu og vann
sem þjónn á kvöldin og um helg-
ar. Það eru ófáar veislurnar sem
hún hefur séð um fyrir fólk við
misjafnar aðstæður en allt
skyldi vera fágað og fínt. Ég var
oft að vinna með henni í slíkum
veislum, hún gerði þá kröfu að
kvenþjónar væru í pilsi og lét ég
mig hafa það stundum, þeir sem
þekkja mig vita að ég er ekki
mikið fyrir þannig fatnað. En
svona skyldi það vera. Þess
vegna kaus ég frekar uppvaskið.
Hún var ekki að hækka rómin
við okkur þegar við vorum óþæg
eða gerðum eitthvað af okkur,
heldur sagði hún í mesta lagi
„finnst þér þetta passa?“ Þá
vissum við að við höfðum heldur
betur farið yfir strikið. Við segj-
um þetta stundum hvert við
annað þegar við erum ekki sam-
mála, systkinin.
Við höfum ferðast saman
bæði hér heima og erlendis
marg oft, þægilegri ferðafélaga
er ekki hægt að óska sér. Við
fórum austur á Borgarfjörð
eystri og dvöldum í Njarðvík
þar sem hún var fædd. Þá feng-
um við að heyra sögur um stelp-
una sem var send frá Njarðvík
yfir á Bakkagerði á hesti og
þurfti að fara fyrir Njarðvík-
urskriður, skíthrædd við Nadda.
Sífellt að líta um öxl.
Við fórum til Spánar þegar
hún var sjötug og til Orlando
þegar Anna systir var fimmtug.
Í dag eigum við þessar minn-
ingar.
Eftir að ég flutti austur hefur
hún komið til okkar og haft
gaman af að fylgjast með folöld-
unum á vorin og allir hundarnir
legið hjá henni í makindum. Það
var stutt í sveitastelpuna þegar
hún var komin í sveitina.
Síðustu vikur hafa verið
tregablandnar en við erum
þakklát fyrir að þetta tók ekki
lengri tíma.
Okkur langar að þakka Jónu
Björk, Jóhönnu Björgu, Katrínu
Þórunni og Kristínu Jóhönnu
fyrir alla hjálpina og þá um-
hyggju sem þær sýndu mömmu
í veikindum hennar.
Ég kveð mömmu með trega
og sorg en fyrst og fremst þakk-
læti fyrir allt sem hún hefur
kennt mér.
Elsku mamma, hvíl í friði.
Ásdís Hrönn Hilmarsdóttir.
Öll fæðumst við með feigðaról
um hálsinn. Aðalheiður Bóas-
dóttir lést á sama mánaðardegi
og sálmaskáldið séra Hallgrímur
Pétursson. Allý fæddist á Borg-
arfirði eystri. Það var gaman að
heyra hana segja frá lífinu í
sveitinni hennar og nánast er
það ljóslifandi í hugskoti mínu
þegar hún sagði frá ferðum í
kaupfélagið. Oft lá mikið á og þá
var sagt „og flýttu þér nú
stelpa“. Henni var ungi búðar-
maðurinn minnisstæður, Árni
Tryggvason leikari, sem alltaf
var reiðubúinn að hjálpa heima-
sætunni ungu að lesta hestinn.
Þessa vinarþels og hjálpar
minntist hún með hlýju, því
þyngdin var oft mikil. Hús-
mæðraskólinn á Laugarvatni
var góður staður að læra til hús-
móður og útskrifaðist hún á
fæðingardegi Önnu Siggu bróð-
urdóttur sinnar. Því var á ári
hverju minnst útskriftarinnar
með gleði. Hilmar Ásgeirsson,
ungur Rangæingur, hitti á óska-
stundina og fór heim með sæt-
ustu stelpuna af ballinu. Þau
eignuðust börn og buru. Fyrst
gleðigjafann Önnu Jakobínu og
lífið brosti við þeim er Ásdís leit
dagsins ljós. Síðastur var prins-
inn Hjörleifur, en þá tók litla
systir til óspilltra málanna og af
festu og ákveðni lagði hún góð
ráð til handa móður sinni við
uppeldi stráks. Þá má líka nefna
Diðrik Hilmar og Trygve, son-
arsynina sem voru gullmolar
ömmu sinnar. Fjölskyldan var
og er samheldin og þrátt fyrir
að leiðir þeirra Allýjar og Hilm-
ars skildi hélt hún þó þeim
óbreytanlega sið að stytta og
þrengja buxnaskálmarnar hans
nákvæmlega í 18 cm. Allý var
hög í höndum og listakona þeg-
ar kom að saumaskap og hand-
verki, hönnun og tíska var henn-
ar yndi. Hún saumaði mikið á
t.d fegurðardrottningar sem
þátt tóku í samkeppnum. Einn
var sá kjóll sem saumaður var á
Önnu Jakobínu, silfursleginn ga-
lakjóll, og þegar á hann var
minnst var eins og Allý væri
enn með flíkina í höndunum.
Hún mundi hvern yfirdekkta
hnapp, hvert spor, prinsessan
hennar var flottasta stelpan á
árshátíðinni. Aðalheiður starfaði
við þjónustu á Hótel Sögu og
víðar, þjónaði oft í kónga-
veislum. Eitt hlutverkið var að
vera vindlingadama hennar há-
tignar, Margrétar Þórhildar
Danadrottningar, þegar hún
bauð löndum sínum til móttöku í
sali Fímúrarareglunnar. Þar
stóð Aðalheiður þétt upp við
drottningu og tendraði hverja
rettuna af annarri. Þarna voru
tvær sómakonur við hlið hvor
annarrar. Aðalheiði féll aldrei
verk úr hendi. Oft sat ég í sóf-
anum og horfði á sjónvarp með
henni en hún horfði með hnakk-
anum. Notalegt var suðið í
saumavélinni og hver flíkin eftir
aðra fór um hennar lipru hend-
ur. Þá verður líka að minnast á
öll stykkin sem gengið var frá
fyrir jólabasar Hringsins og fal-
legu munina sem hún gerði fyrir
félagið sitt.
Að leiðarlokum, þegar við
drúpum höfði þakklát fyrir vin-
áttu Allýjar, veit ég að vel hefur
verið tekið á móti henni í hand-
anheimi almættisins af þeim
sem á undan eru gengnir, á
þeim stað sem oft hefur verið
nefndur Sumarlandið.
Þú ert ljósið og líkin sem gefur
og lyktar og brosir sem rós
í þér er heimur sem ann og hefur
hurð himna í hendi og ljós.
(Jóna Rúna Kvaran)
Blessuð sé minning Aðalheið-
ar Bóasdóttur.
Jóhanna B. Magnúsdóttir.
Aðalheiður
Bóasdóttir
Virðing,
reynsla
& þjónusta
Allan
sólarhringinn
571 8222
Svafar:
82o 3939
Hermann:
82o 3938
Ingibjörg:
82o 3937
www.kvedja.is
svafar & hermann