Morgunblaðið - 03.11.2015, Blaðsíða 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. NÓVEMBER 2015
Þegar blaðamaður náði tali af Sigfúsi Inga Sigfússyni var hannstaddur við vígsluathöfn endurbóta á Safnahúsi Skagfirðinga.Hann er verkefnastjóri atvinnu-, menningar- og kynningar-
mála hjá Sveitarfélaginu Skagafirði. „Þetta er fjölbreytt starf og
margir skemmtilegir málaflokkar undir.“
Sigfús flutti aftur norður árið 2010 og tók þá við þessari stöðu en
hann er uppalinn á bænum Stóru-Gröf syðri á Langholti í Skagafirði.
Hann býr þar núna ásamt konu og börnum en þau keyptu jörðina um
síðustu áramót. „Við erum með í kringum 120 rollur, um 20 hross,
nokkra kálfa, hænur og hund.“ Konan hans, Laufey Leifsdóttir, er rit-
stjóri hjá Forlaginu og sinnir vinnunni að norðan.
En náið þið að sinna búskapnum? „Þetta rúllar þokkalega hjá okk-
ur. Það er alltaf nóg að gera en við höfum mjög gaman af þessu. Ég
hef reynt að stilla félagsstörfum í hóf en sit þó m.a. í stjórn Sögufélags
Skagafirðinga. Það er mjög virkt og var fyrir skemmstu að gefa út
æviminningar Sölva Sveinssonar, rithöfundar og fv. skólastjóra og
skólameistara, Dagar handan við dægrin. Svo er að koma út Skagfirð-
ingabók sem er sagnfræðilegt héraðsrit Skagfirðinga en stærsta
verkið sem Sögufélagið gefur út þessi árin er Byggðasaga Skaga-
fjarðar.“
Börn Sigfúsar og Laufeyjar eru Leifur Benedikt, Steinar Óli og Sig-
urbjörg Inga. „Það er ekkert planað á afmælisdaginn, ég mæti í vinn-
una og reyni að gera eitthvað gáfulegt og gef svo skepnunum þegar
ég kem heim.“
Feðgarnir Staddir á toppi Mælisfellshnjúks árið 2012.
Er tekinn við búinu
Sigfús Ingi Sigfússon er fertugur í dag
J
óhanna fæddist á Fæðing-
arheimilinu við Eiríksgötu
en átti heima í Álfheimum
8 þar til hún flutti að heim-
an. Fjölskyldurnar sem
byggðu raðhúsin efst í Álfheimunum
tengdust vináttu- og tryggðabönd-
um: „Ég ólst upp í faðmi stórfjöl-
skyldunnar þar sem Elín móður-
amma mín, og nafna hennar, frænka
mín, fluttu með foreldrum mínum og
bræðrum inn í húsið, nýbyggt. Þar
var gestkvæmt, alltaf tilbúnið pönnu-
kökudeig og mikið spjallað – m.a. um
pólitík.“
„Í minningunni snerist heimurinn
um Laugardalinn. Hann var víðátta
til endamarka alheimsins – sundlaug-
anna – í norðurenda dalsins. Þarna
voru enn lögbýli með græn tún, og
kýr á beit, skrúðgarð og skólagarða.
En þar var einnig órækt með skurð-
um, njólareykingum og óþrjótandi
möguleikum í leikjum.
Á áttunda áratugnum reis TBR
húsið neðst við götuna. Á bygging-
artímanum lékum við okkur þar og
var það tilefni til ýmissa uppátækja,
en síðar fóru margir þessara krakka
að æfar þar badminton síðar meir.“
Jóhanna gekk í Langholtsskóla og
lauk stúdentsprófi frá MS 1985: „Í
útskriftarbekknum í MS vorum við
tíu stelpur, þar af fimm sem höfðum
fylgst að frá upphafi skólagöngu og
þrjár frá leikskólaárum á Holtaborg.
Ég gróðursetti tré í unglingavinn-
unni á sumrin, með Þórdísi, vinkonu
minni, en fór að því loknu norður í
Eyjafjörð í sveit að Höskuldsstöðum,
á fjölmennt og sannkallað stórbýli
þar sem mikið var um að vera.“
Jóhanna lauk MSc-prófi í rekstrar-
Jóhanna Harpa Árnadóttir verkfræðingur – 50 ára
Silfurbrúðkaup Jóhanna Harpa og Þorsteinn Páll með dætrunum á leið út að borða í tilefni brúðkaupsafmælisins.
Fyrsti kvenformaður VFÍ
Flottir verkfræðingar Halla Norland, afmælisbarnið, Guðlaug Sigurð-
ardóttir og Þórunn Pálsdóttir á leiðinni á árshátíð VFÍ í febrúar árið 2014.
Reykjavík
Magnús Orri
Axelsson fæddist
2. október 2014
kl. 10.16. Hann vó
16 merkur og var
51,5 cm langur.
Foreldrar hans eru
Sunna Rós
Svansdóttir og
Axel Helgason.
Nýr borgari
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af
brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar
eða á islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón
Á opnunni „Íslendingar“ í
Morgunblaðinu er sagt frá
merkum viðburðum í lífi
fólks, svo sem stórafmælum,
hjónavígslum, barnsfæðingum
og öðrum tímamótum.
SMÁRALIND • 2 HÆÐ
SÍMI 571 3210
fyrir alla
Verð 6.995
Rennilás á hlið
Stærðir 28-35
7.995
Stærðir 42-46
7.995
Tilboðsverð
4.796
Verð áður 5.995
Rennilás á hlið
Stærðir 28-35
Verð
Loðfóður
Verð
Stærðir 36-41