Morgunblaðið - 03.11.2015, Qupperneq 31
MENNING 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. NÓVEMBER 2015
Billy Elliot (Stóra sviðið)
Fös 6/11 kl. 19:00 Lau 21/11 kl. 19:00 Fim 3/12 kl. 19:00
Fim 12/11 kl. 19:00 Sun 22/11 kl. 19:00 Fös 4/12 kl. 19:00
Fös 13/11 kl. 19:00 Fös 27/11 kl. 19:00 Fös 11/12 kl. 19:00
Fös 20/11 kl. 19:00 Lau 28/11 kl. 19:00 Lau 12/12 kl. 19:00
Fjölskyldusýning í hæsta gæðaflokki - ósóttar pantanir seldar daglega
Dúkkuheimili (Stóra sviðið)
Sun 8/11 kl. 20:30
Allra síðustu sýningar!
Kenneth Máni (Litla sviðið)
Fös 6/11 kl. 20:00 8.k. Fös 20/11 kl. 20:00 10.k Fös 18/12 kl. 20:00
Fim 12/11 kl. 20:00 aukas. Lau 5/12 kl. 20:00
Fös 13/11 kl. 20:00 9.k Fös 11/12 kl. 20:00
Kenneth Máni stelur senunni
Lína langsokkur (Stóra sviðið)
Sun 8/11 kl. 13:00 9.k Sun 22/11 kl. 13:00 Sun 6/12 kl. 13:00
Sun 15/11 kl. 13:00 Sun 29/11 kl. 13:00
Sterkasta stelpa í heimi kemur aftur
Öldin okkar (Nýja sviðið)
Fim 5/11 kl. 20:00 4.k. Lau 7/11 kl. 20:00 6.k. Fim 12/11 kl. 20:00 8.k.
Fös 6/11 kl. 20:00 5.k. Sun 8/11 kl. 20:00 7.k. Fös 13/11 kl. 20:00 9.k
Hundur í óskilum snúa aftur
Sókrates (Litla sviðið)
Þri 3/11 kl. 20:00 11.k Sun 22/11 kl. 20:00 15.k Lau 12/12 kl. 20:00
Fim 5/11 kl. 20:00 12.k Mið 25/11 kl. 20:00 Sun 13/12 kl. 20:00
Lau 14/11 kl. 20:00 13.k Lau 28/11 kl. 20:00 Lau 19/12 kl. 20:00
Lau 21/11 kl. 20:00 14.k Fös 4/12 kl. 20:00
Trúðarnir hafa tekið yfir dauðadeildina
Vegbúar (Litla sviðið)
Mið 4/11 kl. 20:00 10.k Sun 15/11 kl. 20:00 13.k Fim 26/11 kl. 20:00
Lau 7/11 kl. 20:00 11.k Mið 18/11 kl. 20:00 Fös 27/11 kl. 20:00
Sun 8/11 kl. 20:00 12.k Fim 19/11 kl. 20:00
Nýtt verk þar sem KK sýnir á sér óvænta hlið
Mávurinn (Stóra sviðið)
Mið 4/11 kl. 20:00 7.k. Lau 14/11 kl. 20:00 9.k Fim 26/11 kl. 20:00
Lau 7/11 kl. 20:00 8.k. Fim 19/11 kl. 20:00 Sun 29/11 kl. 20:00
Krassandi uppfærsla á kraftmiklu meistaraverki
Hystory (Litla sviðið)
Mið 11/11 kl. 20:00 aukas. Þri 24/11 kl. 20:00 allra
síðasta sýn.
Allra síðusta sýning!
Og himinninn kristallast (Stóra sviðið)
Fim 5/11 kl. 20:00 Mið 2/12 kl. 20:00
Sun 15/11 kl. 20:00 Lau 5/12 kl. 20:00
Inniflugeldasýning frá Dansflokknum
Dúkkuheimili, allra síðasta sýning!
65 20151950
5511200 | Hverfisgata 19 | leikhusid.is | midasala@leikhusid.is
Í hjarta Hróa hattar (Stóra sviðið)
Fim 5/11 kl. 19:30 20.sýn Lau 21/11 kl. 19:30 27.sýn Lau 12/12 kl. 19:30 36.sýn
Fös 6/11 kl. 19:30 Aukas. Sun 22/11 kl. 19:30 28.sýn Mið 30/12 kl. 15:00 37.sýn
Sun 8/11 kl. 19:30 22.sýn Fim 26/11 kl. 19:30 Aukas. Mið 30/12 kl. 19:30 38.sýn
Mið 11/11 kl. 19:30 Aukas. Lau 28/11 kl. 19:30 29.sýn Lau 2/1 kl. 15:00 39.sýn
Fim 12/11 kl. 19:30 23.sýn Sun 29/11 kl. 19:30 30.sýn Lau 2/1 kl. 19:30 40.sýn
Fös 13/11 kl. 19:30 24.sýn Lau 5/12 kl. 19:30 31.sýn Sun 10/1 kl. 19:30
Lau 14/11 kl. 15:00 Aukas. Sun 6/12 kl. 19:30 32.sýn
Lau 14/11 kl. 19:30 26.sýn Fös 11/12 kl. 19:30 35.sýn
Eldfjörug fjölskyldusýning, uppfull af leikhústöfrum í anda Vesturports!
Móðurharðindin (Kassinn)
Fim 5/11 kl. 19:30 24.sýn Mið 11/11 kl. 19:30 18.sýn Sun 15/11 kl. 19:30 27.sýn
Sun 8/11 kl. 19:30 25.sýn Lau 14/11 kl. 19:30 26.sýn Fös 20/11 kl. 19:30 30.sýn
Gamanleikur um samskipti móður og barna og harkaleg átök kynslóðanna.
Yfir til þín - Spaugstofan 2015 (Stóra sviðið)
Lau 7/11 kl. 22:30 5.sýn Lau 21/11 kl. 22:30 7.sýn Mið 2/12 kl. 19:30 9.sýn
Fim 19/11 kl. 19:30 6.sýn Mið 25/11 kl. 19:30 8.sýn
Sprellfjörug gleðisýning fyrir alla fjölskylduna!
Heimkoman (Stóra sviðið)
Mið 4/11 kl. 19:30 3.sýn Sun 15/11 kl. 19:30 9.sýn Fös 27/11 kl. 19:30 11.sýn
Lau 7/11 kl. 19:30 8.sýn Fös 20/11 kl. 19:30 10.sýn Fös 4/12 kl. 19:30 12.sýn
Meistaraverk Nóbelsskáldsins Pinters.
Kuggur og leikhúsvélin (Kúlan)
Lau 7/11 kl. 13:30 Lau 7/11 kl. 15:00
Síðustu sýningar.
(90)210 Garðabær (Kassinn)
Fös 6/11 kl. 19:30 3.sýn Fim 12/11 kl. 19:30 5.sýn Sun 22/11 kl. 19:30 7.sýn
Lau 7/11 kl. 19:30 4.sýn Fös 13/11 kl. 19:30 6.sýn
Klókur ertu, Einar Áskell (Brúðuloftið)
Sun 8/11 kl. 14:00 Sun 15/11 kl. 14:00
Sun 8/11 kl. 16:00 Sun 15/11 kl. 16:00
Hinn uppátækjasami Einar Áskell í fallegri og skemmtilegri brúðusýningu
4:48 PSYCHOSIS (Kúlan)
Lau 28/11 kl. 17:00 Sun 29/11 kl. 17:00
DAVID FARR
HARÐINDIN
Kammertóngrein kamm-ertóngreina, strengja-kvartettinn, var í for-grunni á fjölsóttum
tónleikum Kammermúsíkklúbbsins
á sunnudag. Vakti ekki sízt forvitni
fyrsta framkoma Coull kvartettsins
á Íslandi er frumflutti hér nýja end-
urskoðun Hafliða Hallgrímssonar á
1. og 2. kvartetti hans, enda kvað
fereykið löngu hokið af reynslu eftir
41 árs starfsferil og virt að sama
skapi með yfir 30 geisladiska á sinni
könnu.
„Hokið“ ber að vísu að taka jafnt
með salti og gæsalöppum, því þótt
engin unglömb væru lengur að sjá
(tveir meðlimir voru meðal stofn-
enda hópsins) þá varð hvergi vart
við aldurssligaðan flutning. Túlk-
unin var þvert á móti gegnsýrð
æskuþrótti af því tagi sem bezt fer
flutningi vandaðrar tónlistar, nefni-
lega tempraðri yfirvegun og djúp-
um skilningi á inntaki viðfangsefna.
Hér fór s.s. „hið bezta allra heima“
eins og Birtingur Voltaires skildi
bjartsýna tesu Leibniz – og sem
sjóaðir kammerkerar kjósa helzt að
heyra.
Æ má deila um hæfilega lengd
tónleikaskráa. KMK-gerðin hefur
jafnan takmarkazt við tveggja síðna
einblöðung og oftast dugað hag-
vönum hlustendum. Hinu ber þó
ekki að neita að iðulega hefur mað-
ur saknað gagnlegra fróðleikskorna
SÍ um „Tónlistina á Íslandi“ sem
greina frá fyrri flutningum viðkom-
andi verks og höfundar.
Það átti t.a.m. við um Strengja-
kvartetta Hafliða. Því jafnvel þótt
kæmi fram á vef klúbbsins (undir
Sagnfræði) að „Fjórir þættir fyrir
strengjakvartett (In memoriam
Bryn Turley)“ – s.s. Kvartett hans
nr. 2 – hefði verið fluttur á vegum
KMK í nóv. 1972, þá fannst ekkert
um nr. 1, er gæti því sem bezt hafa
verið frumfluttur hérlendis þetta
kvöld – þ.e. eftir upphafsfrumflutn-
ing verksins á Fjóni 1989.
Hvað sem því líður þá var veruleg
upplifun að fjölskrúðugum kvart-
ettum Hafliða. Mætti jafnvel kenna
hljómaútfærsluna við litaorgíu, þó
oftast væru tjábrigðin á lág-
stemmdum draumnótum kukls og
dulúðar með stöku hrynþrungnu
andstæðuofforsi. Nr. 1 [35’] virtist
að vísu stundum fara fullmikið úr
einu í annað á kostnað heildar-
samhengis og varð ívið langdreginn
undir lokin.
Seinna verkið [27’] kom aftur á
móti oft fyrir sem hugfangandi dá-
leiðsla, í fullkomnu trássi við af-
strökt tjábrigði handan við hefð-
bundið lagferli – að vísu með
tilskildum fyrirvara um innleiðslu
fyrra verksins í sérleitan hljóma-
heim höfundar. Meðal eft-
irminnilegustu þátta úr Nr. 1 voru
hið hindurvitnalegt flaututónaða
Largo (II) og nærri geðfatlaða And-
ante ostinato (III; einkaauðkennt
„Þorpsfíflið“), en í Nr. 2 hið and-
stæðuríka Moderato (III) og Largo-
fínallinn er hófst á tærveiku skáld-
gyðjuhvísli annars og betri heims.
Módernískt brautryðjandaverk
Claudes Debussys frá 1893, m.a.
undir áhrifum frá indónesískri ga-
melan-tónlist, var síðast flutt á veg-
um KMK 2012, og þar áður 2000
skv. fyrrtöldum vefi er tekur ekki
fram með hverjum. En ef að líkum
lætur hefur varla áður heyrzt hér
jafnsannfærandi túlkun af hljóm-
leikapalli og sú er tónleikagestir
fengu að njóta s.l. sunnudagskvöld.
Ekki aðeins örðulaus að heita má,
heldur einnig af þeirri einstæðu
sort sem teymir hlustandannn aftur
á stað og stund þegar Vesturlönd
vöknuðu til vitundar um menningu
fjarlægra heimshorna og nýttu sér
síðan í ferska nýsköpun.
Frábær spilamennska vægast
sagt – og hefði sannarlega verð-
skuldað fagnað á fæti.
Frábærir „Frábær spilamennska vægast sagt – og hefði sannarlega verðskuldað fagnað á fæti,“ segir m.a. í
gagnrýni um tónleika Coull kvartettsins sem fram fóru í Norðurljósasal Hörpu í fyrradag.
Bezt allra heima
Norðurljósum í Hörpu
Kammertónleikarbbbbb
Hafliði Hallgrímsson: Strengjakvartett-
ar nr. 1 (1989) og 2 (1990-91). Debussy:
Strengjakvartett í g Op. 10. Coull Quar-
tet (Roger Coull & Philip Gallaway fiðla,
Jonathan Barritt víóla og Nicholas Ro-
berts selló).
Sunnudaginn 1. nóvember kl. 19:30.
RÍKARÐUR Ö.
PÁLSSON
TÓNLIST
Oddur Arnþór
Jónsson, barí-
tónsöngvari,
kemur ásamt
Antóníu Hevesi
píanóleikara
fram á hádegis-
tónleikum í
Hafnarborg í
dag kl. 12. Yfir-
skrift tónleik-
anna er Illmenni
og fórnarlömb, en á efnisskránni
eru aríur eftir G. Donizetti og
Mozart.
Listrænn stjórnandi hádegistón-
leikanna í Hafnarborg er Antonía
Hevesi. Næstu tónleikar verða
þriðjudaginn 1. desember og þá
mun jólaandinn svífa yfir vötnum.
Illmenni og fórnar-
lömb í hádeginu
Oddur Arnþór
Jónsson
Myndlistarkonan Harpa Árnadóttir
tekur þátt í samsýningu sem nefnist
Den monokroma symfonin í Artipe-
lag í Stokkhólmi, en sýningin stend-
ur til 28. mars nk. Á sýningunni eru
m.a. verk eftir Yves Klein, Donald
Judd, Arnulf Rainer og Anders
Knutsson.
Joanna Persman, gagnrýnandi
sænska dagblaðsins Svenska
dagbladet rýnir í sýninguna og fer
fögrum orðum um það sem fyrir
augu ber en gagnrýnir þó útfærslu
tónlistar á sýningunni sem henni
finnst ekki nógu vel heppnuð. Þar
kemur fram að sýningarýmin hafi
verið máluð í kröftugum litum og
að styrkur sýningarinnar felist í því
að draga fram einfaldleikann.
Harpa sýnir í hvíta rýminu og skrif-
ar Persman að þar geti áhorfendur
sokkið inn í hugleiðsluástand.
„Stórir strigarnir eru þaktir litum
og lími. Yfirborðið storknar og
liturinn brotnar upp. Einstakt
mynstur verður til sem ekki er í
valdi listamannsins. Þannig lifir
málverkið sjálfstæðu lífi!“ skrifar
Persman.
Tekur þátt í samsýningu í Stokkhólmi
Morgunblaðið/Einar Falur
Hugleiðsluástand Harpa Árnadóttir.