Morgunblaðið - 03.11.2015, Qupperneq 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. NÓVEMBER 2015
VIÐTAL
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Tónlistarhátíðin Iceland Airwaves
hefst í Reykjavík á morgun og að
þessu sinni koma fram á henni 240
tónlistarmenn og hljómsveitir á 293
tónleikum, að sögn Gríms Atlason-
ar, framkvæmdastjóra hátíðarinnar.
Tónleikastaðir eru 13, þ.á.m. Eld-
borg í Hörpu og Vodafonehöllin og
gestir verða 9000 talsins og þá að
meðtöldu fólki úr
tónlistargeir-
anum og fjöl-
miðlamönnum.
Hefur gestum
fjölgað um 3000
frá árinu 2010
sem skýrist af
því að Harpa var
ekki meðal tón-
leikastaða, hún
var vígð ári síðar.
„Við þurfum alltaf að hugsa þetta
þannig að allir þessir gestir þurfa
að geta komið sér inn á einhvern
stað á þessum tíma,“ segir Grímur.
– Í fyrra var „off venue“ dag-
skráin stærri en nokkru sinni áður,
þ.e. þeir tónleikar sem haldnir eru
utan dagskrár og aðgangur er
ókeypis að …
„Já, við slógum aðeins niður þar,
erum í 600 tónleikum núna,“ segir
Grímur. Það séu engu að síður afar
margir tónleikar og haldnir á 43
stöðum.
Nonference í Gamla bíói
– Einhverjar nýjungar eru á dag-
skrá hátíðarinnar í ár, m.a. tónlist-
arráðstefnan Nonference í Peder-
sen-svítunni í Gamla bíói.
„Já, við erum með mjög flotta,
litla og hnitmiðaða dagskrá þar fyr-
ir íslenska bransann, tengjum sam-
an íslenska og erlenda bransann og
ÚTÓN (Útflutningsmiðstöð ís-
lenskrar tónlistar) heldur utan um
hana. Við höfum ákveðið að vera
með svona „artista delegate ind-
ustry“ punkt þar sem þeir sem eru
með slík armbönd geta hist yfir há-
tíðina. Þar höldum við opnunarp-
artíið okkar, móttökur og þar verð-
um við með þessa dagskrá yfir
hátíðina,“ segir Grímur. Fyrir-
lestrar og umræður verði þar m.a.
og segir Grímur að með þessu sé
verið að auka áherslu á tónlistar-
bransann enda sé Airwaves líka við-
skiptaráðstefna. „Það eiga mikil við-
skipti sér stað á Airwaves,“ bendir
hann á. Þennan hluta dagskrár-
innar geti listamenn og aðrir úr
tónlistarbransanum nýtt sér en ekki
almennir gestir.
Margt nýtt og ferskt
– Það er alltaf erfitt að velja úr
þessum mikla fjölda tónlistarmanna
sem spila á hátíðinni en ég verð
samt að spyrja þig hverju megi alls
ekki missa af.
„Þeir sem hafa gaman af tónlist
eiga annað hvort að sökkva sér ofan
í dagskrána eða fara á tilviljana-
kennt fyllirí,“ segir Grímur kíminn.
„Við teljum hvert og eitt atriði vera
eitthvað sem fólk ætti að sjá en
auðvitað reynum við að raða þeim
þannig að eitt henti vel á 200 manna
stað en annað á 3000 manna stað.
Ég valdi fimm erlend í viðtali á Rás
2 og ég get valið fimm önnur núna
eða tíu. Það er svo margt gott og
skemmtilegt, margt nýtt og ferskt.
Hipphopp-senan í Listasafni
Reykjavíkur á föstudaginn verður
brjálæðislega skemmtileg og það
verður gaman að sjá Bubba og
Dimmu, Operators og HAM. Fyrir
Íslendinga er það kannski einhver
klisja en það er gaman fyrir okkur
að sýna það á Airwaves. Svo eru
það Fríkirkju-giggin: Mirel Wagn-
er, Flo Morrissey, Holly Macve og
Agent Fresco „unplugged“ og það
er hægt að fara og sjá hvað Lára
Rúnars er að gera, fara í Kaldalón
og sjá Pálma Gunnarsson og Tusk í
brjáluðum blúsbræðingi og spuna,“
segir Grímur. Þá sé einnig hægt að
fara á Airwords, hlusta á skáld lesa
og tónlistarmenn spila. „Úlfur Úlfur
mun koma þar fram í aðeins öðru-
vísi útgáfu,“ segir Grímur.
Allir fá borgað
– Ég hef heyrt af ósáttum tónlist-
armönnum sem segja launin fyrir
að spila á hátíðinni afar lág og mjög
lágar upphæðir hafa verið nefndar í
því sambandi. Hvað eruð þið að
borga tónlistarmönnum fyrir að
spila á hátíðinni?
„Allir fá borgað, allir íslenskir
tónlistarmenn og vissulega má
segja að það sé mjög lítið. Ef þú ert
að koma fram einn færðu að lág-
marki 25.000 krónur en hljómsveit
fær að lágmarki 50.000 krónur. Svo
eru náttúrlega hljómsveitir sem fá
meira eftir markaðsvirði en að
sama skapi eru þetta 168 hljóm-
sveitir eða atriði sem fá greitt fyrir
hverja framkomu. Ef þær koma
fram tvisvar fá þær tvisvar sinnum
þessa upphæð og svo fá þær mat og
annað.
Iceland Airwaves er auðvitað há-
tíð sem þú þarft ekki að spila á ef
þú vilt það ekki, hún er ekki hugsuð
sem gróðalind eða tekjuöflun fyrir
neinn í sjálfu sér. Ef það er gróði
eða einhver hagnaður af henni þá er
hann ekki að fara í eitthvað annað,
hann er bara í hátíðinni. Markmið
okkar sem stöndum að hátíðinni er
að koma þér til útlanda, að það
komi menn og konur úr bransanum
og horfi á þig hér. Við erum „show-
case“ hátíð og aðrar sambærilegar
hátiðir komast ekki með tærnar þar
sem við erum með hælana í því að
greiða „backline“, mat, drykki,
greiða peninga fyrir ferðir, hótel og
þá bæði fyrir íslenskar og erlendar
hljómsveitir. Það er engin hátíð sem
gerir eins og við og ég held að
margir gleymi þessu og haldi að við
séum hátíð af því tagi sem gengur
út á að ná í peninga. Það er bara
ákveðinn bissness og við erum
öðruvísi bissness, okkar helsta
markmið er að koma íslenskri tón-
list á framfæri erlendis,“ segir
Grímur.
Allt hefur stækkað
– Hátíðin hefur vaxið að umfangi
og tekjur af henni aukist með aukn-
um fjölda gesta. Hefur hlutur lista-
manna ekkert stækkað í takt við
það?
„Jú, hann hefur náttúrlega
stækkað því það var greitt sama
sem ekkert,“ segir Grímur. „Hann
er því aldeilis búinn að stækka og
allt hefur stækkað. Við getum bara
sýnt einhverjar tölur, þúsundfaldar
greiðslur til listamanna, ef þú ferð
úr eiginlega engu í á annan tug
milljóna. Hátíðin borgar allt sem
hún er með og það er enginn af-
gangur af henni. Þetta er það sem
við bjóðum upp á og getum boðið
upp á,“ segir Grímur. Hann hafi
sjálfur verið í hljómsveit í nokkur
ár frá árinu 1988 og þá hafi brans-
inn verið allt annar. Þeir sem voru í
hljómsveitum þá geti verið afbrýði-
samir út í hljómsveitir í dag. Mögu-
leikarnir séu svo miklu meiri nú en
áður og hljómsveitir hafi það marg-
falt betra í dag en þær sem voru
starfandi fyrir 20 eða 30 árum.
Grímur segir engan spila til-
neyddan á Airwaves og tónlistar-
menn viti að hverju þeir gangi.
„Mjög margar íslenskar hljóm-
sveitir hafa verið að sækjast eftir
því að komast á SXSW í Texas,
CMJ í New York eða TGE í Brigh-
ton. Á öllum þessum stöðum eru
þær að borga mörg hundruð þús-
und með sér og jafnvel milljónir.
Við erum að bjóða upp á mörgum
sinnum betri sýningarglugga en t.d.
SXSW getur boðið upp á. Það er
svo erfitt að ná í gegn þar, þú ert
kannski að spila á pizzustað og allur
bransinn er á fylliríi úti í bæ og það
eru einhverjar háskólakrakkar að
detta inn og er alveg sama hvað er í
gangi,“ segir Grímur. Iceland
Airwaves sé mikið tækifæri fyrir ís-
lenska tónlistarmenn til að koma
sér á framfæri og mikinn fjölda tón-
leika þeirra erlendis megi að hluta
þakka hátíðinni og starfi ÚTÓN.
Dagskrá og upplýsingar um tón-
listarmenn hátíðarinnar má finna á
vef hennar:
icelandairwaves.is.
Helsta markmiðið að koma ísl-
enskri tónlist á framfæri erlendis
240 tónlistarmenn og hljómsveitir koma fram á Iceland Airwaves sem hefst á morgun
Einstök Dj flugvél og geimskip kemur fram á átta tónleikum á Airwaves.
Grímur Atlason
Hot Chip Iceland Airwaves lýkur með tónleikum í Vodafonehöllinni á sunnudaginn og er enska hljómsveitin Hot Chip sú þekktasta sem þar kemur fram.
Morgunblaðið/Eggert
JEM AND THE HOLOGRAMS 5:30
SCOUTSGUIDE,ZOMBIE APOCALYPSE 8,10
HÓTEL TRANSYLV. 2D ÍSL 6
CRIMSON PEAK 10:30
EVEREST 3D 5;30,8
SICARIO 8,10:30
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
Miðasala og nánari upplýsingar
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ