Morgunblaðið - 03.11.2015, Page 36
ÞRIÐJUDAGUR 3. NÓVEMBER 307. DAGUR ÁRSINS 2015
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 488 ÁSKRIFT 5295 HELGARÁSKRIFT 3307 PDF Á MBL.IS 4696 I-PAD ÁSKRIFT 4696
1. Skip sökk í Reykjavíkurhöfn
2. Heyr himnasmiður slær í gegn
3. Ungi Frakkinn varð líklega úti
4. Alvarlegt bílslys á Eskifirði
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Kvikmynd leikstjórans Gríms Há-
konarsonar, Hrútar, hlaut þrenn verð-
laun á Spáni um helgina á alþjóðlegu
kvikmyndahátíðinni í Valladolid,
Semana. Myndin hlaut verðlaun sem
besta mynd hátíðarinnar, áhorfenda-
verðlaun æskunnar og fyrir besta
nýja leikstjórann en þeim verðlaun-
um deildi Grímur með tyrkneska leik-
stjóranum Deniz Gamze Ergüven.
Grímar Jónsson, framleiðandi mynd-
arinnar, tók við verðlaununum og
flutti þakkarræðu á spænsku þrátt
fyrir að kunna lítið sem ekkert í
tungumálinu. Hrútar hafa nú hlotið
ellefu erlend verðlaun á kvikmynda-
hátíðum. Gunnar Jónsson hlaut einn-
ig verðlaun á hátíðinni, sem besti
leikari í aðalhlutverki fyrir leik sinn í
kvikmyndinni Fúsi.
Hrútar hlutu þrenn
verðlaun á Spáni
Duo Ultima leik-
ur í Tónbergi, sal
Tónlistarskóla
Akraness, í kvöld
kl. 20. Dúettinn
skipa Guido
Bäumer á saxófón
og Aladár Rácz á
píanó. Flytja þeir
evrópska tónlist
frá miðri síðustu öld á tónleikunum.
Dúett í Tónbergi
Kvartett píanóleikarans Sunnu
Gunnlaugsdóttur leikur á Kex hosteli
í kvöld kl. 20.30. Auk Sunnu skipa
kvartettinn Ásgeir J. Ás-
geirsson sem leikur á
gítar, Þorgrímur
Jónsson á kontra-
bassa og Scott
McLemore á
trommur og munu
þau flytja valda
djassstandarda.
Kvartett Sunnu á Kex
Á miðvikudag Suðlæg átt 3-8 m/s og dálitlar skúrir eða él, en
þurrt og bjart norðaustan- og austanlands.
Á fimmtudag Austan og suðaustan 8-15 m/s. Talsverð rigning
sunnan- og vestanlands, en úrkomulítið norðaustantil. Hlýnar.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðvestan 5-10 og skúrir eða él, en áfram
þurrt norðaustantil. Hiti 0 til 5 stig.
VEÐUR
„Þórir er ekki bara efnilegur
eða góður heldur er hann líka
mjög ákveðinn og áræðinn.
Hann þorir að taka af skarið og
hikar ekkert við hlutina þegar
hann kemur inn á völlinn. Það
er mikilvægur kostur fyrir ung-
an leikmann sem er að koma
upp í meistaraflokkinn að hafa
kjark og þor,“ segir leikmaður
KR um Þóri G. Þorbjarnarson,
17 ára gamlan leikmann um-
ferðarinnar í Dominos-deild
karla í körfubolta. »4
Hann þorir að taka
af skarið
„Kristín fer alltaf inn á leikvöllinn
með það markmið að vinna. Þetta
hugarfar hennar smitast auðveldlega
út til samherja, ekki síst þeirra sem
hafa minni reynslu.
Það skiptir miklu
máli að hafa að
minnsta kosti einn
svona leikmann í
hverju liði,“ segir
leikmaður
kvennaliðs
Vals í hand-
knattleik
um Kristínu
Guðmunds-
dóttur sem
er leik-
maður
Morgun-
blaðsins í 9.
umferð Olís-
deildar kvenna.
»3
Minnst einn svona leik-
mann í hverju liði
„Það eru allir í skýjunum með hana.
Hún er kátur og ljúfur einstaklingur
sem hefur gaman af að lifa lífinu.
Hún er kurteis og vel gefin stelpa og
það hjálpar henni mikið við að kom-
ast inn í samfélagið,“ segir þjálfari
körfuboltaliðs Snæfells um Haiden
Denise Palmer sem er leikmaður 5.
umferðar Dominos-deildar kvenna
hjá Morgunblaðinu. »4
Allir í skýjunum með
hana í Hólminum
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Þegar Steinar Magnússon, skip-
stjóri á Herjólfi, gekk frá borði í
Þorlákshöfn skömmu fyrir hádegi í
gær, lauk fimmtíu og tveggja og
hálfs árs starfi hans sem sjómaður á
skipum Eimskipafélags Íslands.
„Þetta eru blendnar tilfinningar,“
sagði hann við Morgunblaðið á tíma-
mótunum.
Steinar tók við skipstjórn Herjólfs
í ársbyrjun 2007 og hefur síðan siglt
3.207 ferðir fram og til baka milli
lands og Eyja, um 250.000 km. Ferð-
in í gær var númer 3.208. „Þetta var
bara stubbur og ég tel hann ekki
með,“ sagði hann um lokahnykkinn
og horfði til himins. „Síðasti vetur
var mjög erfiður og mér líður ekki
illa að losna við annan eins.“
Garðar nauðsynlegir
Þó að margt megi segja um Land-
eyjahöfn segir Steinar að það hafi
verið merkileg stund að sigla þangað
í fyrsta sinn 2010. „Það var mikill
dagur en ég hef líka upplifað margt
á langri starfsævi,“ segir hann.
Nefnir í því sambandi siglingar inn-
an um ísjaka við Grænland, 25 gráða
frost norður við Múrmansk, að jafn-
aði 38 gráða hita suður í Nígeríu.
„Sjómennskan er ekkert grín og til
dæmis er erfitt að sigla til Ameríku
á veturna,“ segir hann. „Ég hef einu
sinni séð 15 til 20 metra háa risaöldu
norðaustur af Nýfundnalandi, en
annars sloppið við öll stór áföll.“
Hann bætir við að hver höfn sé mjög
sérstök og skipin séu mismunandi
góð. „Herjólfur er mjög gott skip og
öflugt. Áður fyrr voru skip með litlar
vélar og þá var
stundum farið ró-
lega yfir en nú
eru skipin miklu
kraftmeiri.“
Hann áréttar
að öll skip sem
hann hafi unn-
ið á hafi verið góð sem og líðanin um
borð í Herjólfi. „Það hefur verið lif-
andi og fjölbreytt starf að vera
hérna.“
Þó að Landeyjahöfn hafi breytt
miklu hafa margar ferðir þangað
fallið niður vegna veðurs og sand-
burðar í höfninni og meðal annars
var ekki siglt þangað í rúma fimm
mánuði á liðnum vetri. „Landeyja-
höfn er bara hálfbyggð, það þarf að
verja innsiglinguna betur,“ segir
maðurinn sem þekkir hana best
allra. Hann segir nauðsynlegt að
hlífa henni með görðum út á sand-
rifin fyrir utan. „Ný ferja getur gert
eitthvað pínulítið meira en það getur
verið erfiðara fyrir það skip en Herj-
ólf að sigla í Þorlákshöfn vegna
minni djúpristu.“
Í land eftir nær 53 ár á sjó
Hefur siglt
Herjólfi um
150.000 km
Ljósmynd/Gunnlaugur Grettisson
Þakkir Starfsfólk Herjólfs kvaddi hjónin Margréti Aðalsteinsdóttur og Steinar Magnússon með veislu og gjöfum.
„Nú byrja ég á því að gera ekki neitt,“ segir Steinar Magnússon. Boð hafi
borist um að stjórna hvalaskoðunarskipi næsta sumar, en nægur tími sé
til að hugsa um það.
Steinar byrjaði að vinna hjá Eimskipafélagi Íslands 19. maí 1963. „Þeg-
ar ég kláraði gagnfræðaskólann vissi ég ekkert hvað ég ætti að fara í.
Pabbi þekkti skipstjóra, ég bað hann að tala við hann og mér
bauðst messastarf til að byrja með. Þegar ég ætlaði að
fara að hætta var ég gerður að háseta, mér var ýtt í Stýri-
mannaskólann og eitt leiddi af öðru.“ Steinar var alltaf á
Fossunum, síðast á Brúarfossi, þar til hann tók við Herj-
ólfi. Hann byrjaði að leysa af sem skipstjóri 1976 og var
kvaddur með virktum í Vestmannaeyjum í fyrradag.
Byrjaði sem messagutti
ALLA STARFSÆVINA HJÁ EIMSKIPAFÉLAGI ÍSLANDS