Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.11.2015, Blaðsíða 2
Í fókus
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22.11. 2015
Ég fer út að borða í hádeginu og fæ mér góða
súpu og hitti fólk. Svo á ég góðan lampa,
svona þunglyndislampa sem hjálpar mér í
skammdeginu. Hann bjargar lífi mínu!
Guðný S. Guðlaugsdóttir
Ég er mikið í leiklist og sæki í það, bæði í leik-
hús og á námskeið.
Andri Freyr Sigurpálsson.
Brosi bara og hef gaman af þessu.
Hallur Árnason
Ég fer í ræktina og hitti góða vini og fjöl-
skyldu. Ég er í vaktavinnu og skammdegið
hefur ekki mikil áhrif á mig.
Soffía Arna Ómarsdóttir
Ritstjóri Davíð Oddsson
Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal
Umsjón
Eyrún Magnúsdóttir,
eyrun@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
SPURNING VIKUNNAR HVAÐ GERIR ÞÚ TIL AÐ LÍFGA UPP Á SKAMMDEGIÐ?
Geirmundar saga heljar-
skinns birtist okkur sem
áður óþekkt fornrit. Við
nánari skoðun kemur í ljós
að bókin er nútímaskáld-
saga eftir Bergsvein
Birgisson, sem segist
hafa valið form sem gefur
færi á sjálfsögu, skemmtun
og leik en mikilli alvöru
undir niðri. Bækur 53
Í BLAÐINU
Konur syngja verk um og eftir konur. Tengjast
tónleikarnir 100 ára kosningaafmæli íslenskra
kvenna í ár?
Bæði og. Lögin eru meira og minna um og eftir konur en
við flytjum líka uppáhaldslögin mín og ég lauma inn einum
og einum karli. Ég er t.d. með texta eftir Davíð Stef-
ánsson og svo syng ég Næturljóð úr fjörðum eftir Böðvar
Guðmundsson.
Það er svolítið þitt lag, ekki satt?
Það má kannski segja það, þó að ég eigi ekkert í því. Ég rændi
því frá manninum mínum, Kristjáni. Hann er trúbador, söng lagið
í öllum partíum og var alltaf beðinn um að syngja það aftur og aft-
ur. Svo fór ég að prófa það og við sungum það alltaf í röddum
heima. Ég söng það svo inn á plötuna mína, Í húminu.
Er það gamall draumur að syngja með Sinfó?
Ég hafði rætt við Sinfóníuhljómsveit Norðurlands um samstarf
því mig langaði að flytja lög sem ég hef sungið í gegnum tíðina
en ætlaði reyndar ekki að halda þessa tónleika fyrr en á næsta
ári, þegar ég verð 55 ára. En ég geri bara eitthvað annað
skemmtilegt þá! Það var gaman að fá hringingu frá Þorvaldi
Bjarna [tónlistarstjóra Menningarfélags Akureyrar] en
kom reyndar svolítið flatt upp á mig núna. Ég sá ekki fyrir
mér að ég hefði tíma til þess en vildi samt ekki missa af
því og sagði þess vegna já og dreif í því að fá son minn,
Örn Eldjárn, til að útsetja lögin mín fyrir kammersveit.
Þetta verða notalegir tónleikar á ljúfum nótum í
skammdeginu. Engin læti. Ég syng jafnvel eitt jólalag
sem ég samdi fyrir jólaplötuna sem ég gaf út í fyrra.
Frumflyturðu jafnvel einhver eigin lög?
Ég er með nokkur glæný lög eftir mig og þetta verður frum-
flutningur í þessu formi. Ég er með tónleika á Rósenberg í
Reykjavík á haustin og söng þessi lög þar um daginn; fóðra
áheyrendur á þeim áður en ég geri plötu. Þau runnu ljúflega ofan
í fólk, ég verð að spýta í lófana eftir jólin og taka hana upp. Platan á
að koma út á vordögum.
Ertu svo ekki með jólatónleika í Reykjavík í desember?
Jú; tónleikana á Rósenberg hef ég kallað Gestaboð Kristjönu en Jólaboð
Kristjönu verður stærra í sniðum og haldið í Gamla bíói 13. desember.
Þar verða Valdimar og Sigríður Thorlacius gestir mínir, Ösp Eldjárn
dóttir mín syngur með mér og Örn sonur minn er tónlistarstjóri.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
KRISTJANA
ARNGRÍMSDÓTTIR
SITUR FYRIR SVÖRUM
Konur um
konur
Forsíðumyndina
gerði Sigurbjörg
Arnardóttir.
Útvíðar gallabuxur eru
komnar aftur en það getur
verið snúið að finna út
hvað passar við slíkar bux-
ur. Í blaðinu eru sett upp
þrjú dress þar sem út-
víðar gallabuxur eru
notaðar sem grunnflík, ým-
ist með fínni eða afslapp-
aðri fötum og fylgi-
hlutum. Tíska 34
Vinir úr Mótettukór Hallgrímskirkju gerðu sér
glaðan dag og elduðu þakkargjörðarmáltíð. Borðið
svignaði undan kræsingum sem lesendur geta nú eld-
að að bandarískum sið, en þakkargjörðarhátíðin er á
fimmtudag. Matur 26
Åsne Seierstad fékk
bréf frá Anders Breivik
inn um lúguna sama
dag og hryðjuverkin
voru framin í París.
Hún segir í grein í
blaðinu að menn eins
og Breivik og liðsmenn
Ríkis íslams beri sama
hatrið í brjósti. 14
Söngkonan Kristjana Arngrímsdóttir og kvenarmur Sinfóníuhljóm-
sveitar Norðurlands halda tónleika í menningarhúsinu Hofi á Akureyri
í kvöld, sunnudagskvöld kl. 20, ásamt stúlknakórnum Ísold. Þar verða
aðallega flutt verk um og eftir konur, bæði íslenskar og erlendar.