Víkurfréttir - 28.01.1988, Page 16
mun
16 Fimmtudagur 28. janúar 1988
„Hingað og ekki lengra, Hreinn minn“, gæti Teitur Örlygsson Njarðvíkingur verið að segja við Hrein
Þorkelsson, sem þarna reynir körfuskot. Ljósm,: mad.
„Bikarinn á heima hér, bikarinn á heima hér“, sungu áhangendur
íslands- og bikarmeistara Njarðvíkur á lokamínútum leiks UMFN og
IBK i 16 liða úrslitum bikarkeppni KKÍ í Njarðvík á föstudagskvöld-
ið. Njarðvíkingar sigruðu í frábærum leik tveggja bestu liða íslands,
þrátt fyrir að geta ekki skartað helstu stjörnum sínum. En þeirsýndu
það í þessum leik að þaðerengin tilviljun að UMFN hefurverið efst á
stalli íslensks körfubolta í áratug. Mcnn komu í manna stað og þrátt
fyrir að hafa verið undir megin hluta leiksins unnu Njarðvíkingar
sanngjarnan sigur á nágrönnum sínum úr Keflavík, 78:71. í leikhléi
hafði ÍBK 4 stiga forystu, 41:37.
Frábær vörn UMFN
„Við lékuin frábæra svæðis-
vörn, seni við æfðum sérstak-
lega fyrir þennan leik. Strákarn-
ir börðust frá fyrstu mínútu til
hinnar síðustu og stóðu sig allir
frábærlega. Við erum ákveðnir
að endurtaka leikinn frá því í
fyrra; að sigra í öllum þeim mót-
um sem við tökum þátt í“, sagði
Valur Ingimundarson, þjálfari
UMFN, sem var á bekknum í
þessum leik, - og tók út leikbann
sem og Sturla Orlygsson.
„Við gál'um eftir í vörninni og
klikkuðum illa í sókninni í
seinni hálfleik. Slíkt gengurein-
faldlega ekki gegn liði eins og
UMFN“, sagði Gunnar Þor-
varðarson, þjálfari ÍBK.
UMFN fékk andlegan
stuðning
Menn ráku upp stór augu
þegar liðin hituðu upp fyrir leik-
inn og sáu „garnla" brýnið Jón-
as Jóhannesson í Njarðvíkur-
búningnum, en hann hefurekki
leikið með liðinu sl. 2 ár. Jónas
mætti á æfingu hjá Njarðvík
kvöldið fyrir leik. „Það var eins
og menn lyftust upp um helming
við að sjá Jónas, því hljóðið var
ekki gott og menn svartsýnir
eftir þennan leikmannamissi
fyrir leikinn“, sagði Hilmar Haf-
steinsson, form. körfuknatt-
leiksdeildar UMFN. Það
kom á daginn að Jónas var
betri en enginn. Hann kom
inn á í fyrri hálfleik, hvíldi
Helga Rafns og stóð sig vel
og eins á lokamínútum leiks-
ins. Nokkrir Njarðvíkingar
sögðu eftir leikinn að þessi
,,andlegi“ stuðningur Jónas-
ar hafði haft mikið að segja.
„Það er gott að vita af svona
manni á bekknum1,, sagði
einn þeirra.
Óli Gott, góður
Leikurinn var spennandi og
skemmtilegur og mjög fjörugur.
ÍBK hafði forystu, mest 8 stig,
32:24, en tókst ekki að auka
muninn fyrir leikhlé, þrátt fyrir
að UMFN setti 3 varamenn inn
á í lokin, þá Friðrik, Ellert og
Jónas. Góð frammistaða Olafs
Gottskálkssonar, Keflvíkings,
vakti ntikla athygli í fyrri liálf-
leik. Hann var alls staðar, skor-
aði í sókn og tók fráköst í vörn.
Oft mátti sjá hann flatan í loft-
inu og tilþrifin voru mikil oft á
tíðum.
Þáttur Teits
Þáttur Teits Örlygssonar í
seinni hálfleik skóp sigur Njarð-
víkinga. Hann skoraði 21 stigaf
25 stigum UMFN þegar Njarð-
víkingar náðu 9 stiga forystu,
71:62, þegar aðeins um 2 mín.
voru til leiksloka. A meðan gekk
ekkert upp hjá Keflvíkingum
þrátt fyrir mörg tækifæri. Eins
misstu þeir tökin á vörninni.
Endirinn gat því ekki orðið
nema á einn veg og fjórði sigur
Njarðvíkinga á IBK íveturvarð
staðreynd. Fögnuður heima-
manna á áhangenda þeirra varð
mikill. Bikarinn, sem virtist
horfinn úr augsýn, er nú aðeins í
seilingarfjarlægð að flestra mati.
Byrjunarliðsmenn UMFN
áttu allir stórleik, þó hlutur
Teits hafi verið stærstur. Vara-
mennirnir sem komu inn á þegar
mikið reið á, stóðu sig einnig vel.
Keflvíkingar geta nagað sig í
handarbökin. Þeir áttu sigurinn
vísan en héldu ekki haus. Það
var eins og þeir hefðu ekki trúað
því að þeir gætu sigrað Njarðvík-
inga, menn urðu ragir í góðum
tækifærum og ekkert gekk upp
þegar mest reið á.
Bestu menn IBK voru Ólafur
Gottskálksson, Guðjón Skúla-
son og Magnús Guðfinnsson.
Stig ÍBK:"
Stig UMFN: Teitur 30, ísak 16,
Helgi 14, Hreiðar 12, Árni 2, Ellert 2
og Friðrik 2.
Stig ÍBK: Guðjón 26, Sigurður 19,
Hreinn 12, Jón Kr. 6, Ólafur 2,
Magnús 2, Falur 2 og Axel 1.
| júttu
ÍBK og UMFN unnu sig upp
úr 2. deild og upp í þá fyrstu á
íslandsmótinu í innanhúss-
knattspyrnu í Laugardalshöll.
Víðir hélt sæti sínu í 1. deild en
töpuðu engu að síður tveimur af
þremur leikjum sínum. UMFN
og Rcynir féllu úr 2. deild niður í
þá þriðju en Hafnir unnu sig upp
í 3. deild. Kvennalið ÍBK leikur í
1. deild og vann tvo leiki en tap-
aði einum.
Fyrsta flokkamótið í snóker á
þessu ári verður haldið á Knatt-
borðsstofu Suðurnesja laugar-
daginn 6. febrúar og er fyrir 3.
flokk. Skráningu í mótið lýkur
n.k. miðvikudag, 3. febr.
Sandgerðingar hafa tapað sex
leikjum af sjö í 1. deildarkeppn-
inni í körfuknattleik. Þeir léku
síðast við IS fyrir skömmu og
töpuðu 60:71.
Rafn Hafnfjörð verður gestur
kvöldsins á „Opnu húsi“ hjá
Siangveiðifélagi Keflavíkur ann-
að kvöld, föstudag, í Iðnsveina-
félagshúsinu. Rafn mun sýna
myndir af efra svæðinu í Laxá í
Aðaldal. Auk þess verður kynn-
ing á vetrardagskrá á veiðisvæð-
um.
Dregið hefur verið um töflu-
röð í íslandsmótinu í knatt-
spyrnu í 1. og 2. deild. ÍBK leik-
ur sinn fyrsta heimaleik gegn
Völsungum 15. maí og fá KR
viku síðar í heimsókn. Víðis-
menn, sem leika í 2. deild, fá
Fylki í 1. umferð í Garðinum en
leika næsta leik úti gegn Tinda-
stóli.
Júdómenn í UMFK og
UMFG stóðu sig vel á afmælis-
móti Júdósambands Islands
sem fram fór í íþróttahúsi
Kennaraháskóla íslands sl.
laugardag. Suðurnesjamenn
sigruðu í fjórum flokkum. Gylfi
Örn Gylfason UMFK í -35 kg.
flokki, Róbert H. Georgsson
UMFK í -40 kg. flokki, Stefán
Jónsson UMFG í -45 kg. flokki,
Hilmar Kjartansson UMFG í -60
kg. flokki og Ómar Sigurðsson
UMFK sigraði í -78 kg. flokki.
Júdómenn héðan röðuðu sér
einnig í næstu sæti í mörgum
flokkum.
Grindvíkingar unnu yfirburð-
arsigur á Skallagrími í seinni leik
liðanna í bikarkeppni KKI,
104:66, í Borgarnesi á sunnu-
dag. Fyrri leikinn vann UMFG
139:83 og er komið í 8 liða úrslit.
B-lið UMFN er einnig komið í
8 liða úrslit ásamt auðvitað bik-
armeisturunum sjálfum, stóra
UMFN liðinu. B-liðið vann
Stúdenta í báðum leikjunum,
samtals með 13 stigum. Nú er
bara spurning hvort Jónas Jó-
hannesson, sem leikið hefur með
1. flokki, fái að leika með liðinu
eftir að hafa leikið með meist-
araflokksliðinu gegn ÍBK sl.
föstudag.
ÍBK er í 2. sæti í 1. deild
kvenna í körfuboltanum eftir
sigurá UMFG í Grindavík66:38.
UMFN tapaði heima fyrir IS
31:46 og er í 3ja neðsta sæti.
UMFG er næst neðst en Islands-
meistarar KR verma botnsætið.
2. deildar lið UMFN í hand-
bolta leikur útileik gegn Gróttu
n.k. föstudag. Sigri UMFN á lið-
ið möguleika á að komast í 2.
sæti í deildinni. Stuðningsmenn
Njarðvíkinga hafa ákveðið að
fjölmenna inneftir og verða
sætaferðir frá Hótel Kristína kl.
20.
ttll Suðurnesjaliðin unnu
Öll Suðurnesjaliðin sigruðu í
viðurcignum sínum í 2. og 3.
deild handboltans á miðvikudag
í sl. viku. Standa þau öll vel að
vígi, ÍBK hefur svo að segja
tryggt sér sæti í 2. deild að ári
og bæði UMFN og Reynir eru í
góðum sætum í 2. deild.
Titringur á lokamínútum
Það urðu fjörugar lokamín-
útur í leik Reynis og HK, sem
háður var í Sandgerði. Eftir að
heimamenn höfðu haft örugga
forystu mest allan leikinn, sem
fór upp í 6 mörk, þjörmuðu
gestirnir að þeim á lokamínút-
unum og voru nálægt því að
jafna. Það tókst þó ekki og
Reynismenn sigruðu 31-29,
eftir að hafa leitt í leikhléi 16-
12.
Mörk Reynis: Páll Björnsson 8,
Willum Þór og Sigurður Óli 7
hvor, Stefán A. 4, Viðar H. 3 og
Hólmþór 2.
Naumt í Njarðvík
Lokamínúturnar urðu æsi-
spennandi í Njarðvík, þar sem
heimamenn tóku á móti Aft-
ureldingu. UMFN hafði 2-3
mörk yfir mest allan tímann en
þegar örfáar mínútur voru til
leiksloka voru tveir Njarðvík-
ingar reknir út af og annar til
þegar hálf mínúta var eftir.
Afturelding minnkaði muninn
óðfluga og voru sex á móti
þremur síðustu 30 sekúndurn-
ar en skutu framhjá á lokasek-
úndunum. UMFN slapp með
skrekkinn og vann 24-23. í
leikhléi var UMFN yfir 13-11.
Heimir Karlsson var bestur í
liði UMFN, lék vel og skoraði
6 mörk. Guðjón Hilmarsson
og Snorri Jóh. og Pétur Ingi
skoruðu 4 mörk, Arinbjörn 3
og þeir Valtýr og Pétur Á. og
Ólafur Thord. 1 hver.
Yfirburðir ÍBK
í toppslagnum
IBK vann ótrúlega léttan
sigur á ÍH í íþróttahúsi Kefla-
víkur, 30-12, 1 viðureign efstu
liðanna I 3. deild. í hálfleik var
ÍBK 7 mörkum yfir, 13-6. Eins
og tölurnar gefa til kynna voru
yfirburðir Keflvíkinga miklir.
Mótstaða Hafnfirðinga var
lítil sem engin. Lið ÍBK var
jafnt, allir léku vel og Pétur
Magg í markinu traustur bak-
hjarl fyrir vörnina.
Mörk ÍBK: Hafsteinn 12 (10),
Jóhann Júl. 4, Gísli Jóh.4, Sig. Bj.
4, Ellert 3, Einvarður 2 og Her-
mann 1 mark.
Gísli Jóhannsson ÍBK reynirskot í leiknum við ÍH.
Ljósm.iómj.