Víkurfréttir - 28.01.1988, Page 20
mun
4Utth
Fimmtudagur 28. janúar 1988
AFGREIÐSLA BLAÐSINS
er að Vallargötu 15. - Símar 14717, 15717.
TÉKKAREIKNINGUR
SPURÐU SPARISJÓÐINN
Fógetamálið féll í
Hæstarétti
Drífa
átelur
skipu-
lagsnefnd
Hæstiréttur hefur kveðið
upp dóm í svonefndu fógeta-
máli Landeigendafélagsins
gegn Aðalstöðinni. Snýst mál
þetta um það erfulltrúi bæjar-
fógetans í Keflavík hafnaði
beiðni sóknaraðila um að
matsmenn fengju að koma
fyrir dóm og staðfesta mat
sitt, er fyrir dómi var krafa
um fjárnám á hendur Aðal-
stöðinni vegna lóðagjaldanna.
Skutu landeigendur mál-
inu til hæstaréttar, þar sem
þeir kröfðust þess að mats-
mönnum yrði leyft að koma
fyrir fógetadóminn. Þegar
mál fara þessa leið, þ.e. í
fógetadóm, er um fljótvirka
aðferð að ræða og því var úr-
skurður frá 3. desember í
fógetadómi Keflavíkur tek-
inn fyrir strax eftir áramót í
Hæstarétti og var dómur
kveðinn upp 14. janúar s.l.
í dómsorðum Hæstaréttar
kemur fram að fógetadómi
sé að jafnaði ekki ætlað að
taka afstöðu til ágreinings-
efna, sem gefa tilefni til að
dómsskýrslur séu teknar af
matsmönnum. Efniságrein-
ingur aðila þessa máls er
verulegur og óvíst hve víð-
tæka málsmeðferð þarf, svo
að hann verði til lykta leidd-
ur. Mátti fógeti því hafna
beiðni sóknaraðila um að í
fógetarétti færi fram sú
skýrslutaka, sem óskað var
eftir af þeirra hálfu. Ber því
að staðfesta úrskurð fógeta-
réttar.
Þar sem fógetamálið er þar
með fallið, varð að taka mál-
ið upp á ný og nú verður að
fara hina venjulegu leið.
Hófst málið því á ný og nú
fyrir bæjarþingi Keflavíkur, í
gær.
VÍKUR-FRÉTTIR
flytja um helgina
Þessa dagana eru Víkur-
fréttir að flytja starfsemi
sína frá Vallargötu 14 og
yfir götuna í eigið húsnæði
nr. 15. Um leið og við flvtj-
um fjölgum við símanúmer-
unum og tökum í notkun
númerið 15717 og að sjálf-
sögðu notum við áfram
símanúmerið 14717.
Þrátt fyrir að við séum að
flytja er margt enn ógert á
nýja staðnum og þá sér-
staklega varðandi ytra útlit
og þ.á.m. gerð bílastæða.
En meðan snjór var yfir
öllu og frost urðu þessir lið-
ir að bíða.
Bendum viðskiptavinum
þvt á að nota til bráða-
birgða bílastæði prent-
smiðjunnar Grágásar, en
uni leið og meira þiðnar
verða útbúin stór og góð
bílastæði við Vallargötuna
gegnt Grágásarhúsinu.
Vonandi verður þess ekki
langt að bíða svo laga megi
alla aðkomu að húsinu og
ytra útlit þess.
Yfirborganir og
dulbúnar
greiðslur hverfa
Nokkur órói er meðal
starfsfólks Njarðvíkurbæjar
vegna þess að verið er að
skera á fasta yfirvinnu og
gera ýmsar kerfisbreytingar
hjá starfsfólkinu. Að sögn
Odds Einarssonar bæjar-
stjóra gætir nokkurs mis-
skilnings meðal starfsfólks-
ins um þetta.
Sagði hann að þegar starfs-
matið var gert, hefði það
tekið fyrir öll störfin og því
væri sjálfgefið að allar yfir-
borganir og hvers kyns dul-
búnar greiðslur sem virkað
hefðu sem kauphækkun í
gegnum árin hyrfu, þar sem
þær ættu ekki við eftir að
starfsmat hefði verið gert.
Auk þessa er nú verið að
endurskipuleggja stjórn-
sýsluþáttinn og verða þau
mál skýrð nánar síðar.
Á fundi í bæjarstjórn
Keflavíkur á þriðjudag lagði
Drífa Sigfúsdóttir fram eftir-
farandi bókun:
„Þann 1. september 1987
var samþ. eftirfarandi tillaga
í Bæjarstjórn:
,,Bœjarstjórn Keflavíkur
samþykkir að óska eftir við
skipulagsnefnd að hún leggi
fram tillögur um útivistar-
svœði fyrir bœjarbúa fyrir af-
greiðslu nœstu fjárhagsáœtl-
unar.
Drífa Sigfúsdóttir,
Þorsteinn Árnason."
Tillögunni fylgdi greinargerð.
Engar tillögur varðandi
þetta mál bárust bæjarstjórn
og þegar mér fannst biðin
verða orðin löng þá óskaði ég
eftir því við bæjarstjóra (á
bæjarstjórafundi) að hann
reyndi að hraða afgreiðslu
málsins.
Síðar á fundi bæjarráðs
minnti ég form. skipulags-
nefndar á þetta erindi og
óskaði eftir afgreiðslu á því
sem fyrst.
Nú eru liðnir rúmlega 410
mánuður frá samþ. tillög-
unnar og ennþá hefur bæjar-
stjórn ekki borist vitneskja
um að áðurnefnd tillaga hafi
fengið svo mikið sem um-
fjöllun hvað þá afgreiðslu.
Með þessum vinnubrögðum
er komið í veg fyrir að bæjar-
stjórn fái umbeðnar upplýs-
ingar fyrir afgreiðslu fjár-
hagsáætlunar ársins 1988.
Eg tel þetta óviðunandi
seinagang og átel skipulags-
nefnd fyrir slakleg vinnu-
brögð í þessu máli.“
Setur Drífa nýtt bókanamet
í ár . . . ?