Víkurfréttir


Víkurfréttir - 01.09.1988, Side 9

Víkurfréttir - 01.09.1988, Side 9
ViKurt jtítiU Fimmtudagur 1. september 1988 Sæbjörg aðstoðar Ernu Maríu við að leggja að bryggju í Sandgerði á fimmtudagskvöld.Ljósm.: hbb Sæbjörg sötti vélarvana bát Sæbjörg, björgunarbátur slysavarnasvcitanna í Garði og Sandgerði, var kölluð út á ni- unda tímanum á fimmtudags- kvöld í síðustu viku til þess að sækja lítinn, vélarvana bát, sem var að koma frá Riti á Snæfells- nesi á leið til Keflavíkur. Smábáturinn Erna María RE 166 var staddur 2,5 sjómíl- ur norður af Garðskaga þegar gír fór og báturinn varð vélar- vana. Send var út hjálpar- beiðni kl. 20:15 og var Sæ- björgin komin upp að Ernu um kl. 20:30 og tók hana í tog. Var komið til Sandgerðis kl. 21:45. Einn maður var um borð í Ernu Maríu RE og hafði hann ekkert samband haft við til- kynningarskylduna frá þvi hann lagði af stað frá Rifi á Snæfellsnesi og þar til hann var staddur utan við Garð- skaga, þegar gírinn bilaði. Njarðvík: Tónlistarskólinn í Keflavík INNRITUN Að gefnu tilefni skal tekið fram: 1. Þeir nemendur, sem stunduðu nám í skólanum s.l. vetur og sóttu um skólavist í vor, þurfa að staðfesta umsóknir sínar með greiðslu skóla- gjalda mánudaginn 12. sept. frá kl. 10:00 til 19:00 á skrifstofu skólans. 2. Nýir nemendur verða innritaðir þriðjudaginn 13. og miðvikudaginn 14. sept. frá kl. 10:00 til 19:00 á skrif- stofu skólans. Ath. Innritun getur ekki farið fram í síma, þar sem ganga þarf frá skólagjöldum við innritun. 3. Forskólanemendur á aldrinum 6-8 ára verða innritaðir 13. og 14. sept. 4. Nýjar kennslugreinar: Saxafónn, franskt horn og fleiri blásturshljóð- færi. 5. Nemendur úr framhaldsskólum mæti með afrit af stundaskrá. 6. Skólasetning verður í skólanum fimmtudaginn 15. sept. kl. 17:00 og kennsla hefst samkvæmt stunda- skrá föstudaginn 16. sept. 9 Skemmtilegt uppátæki Skólastjóri Um síðustu helgi var yfir- maður fegrunarframkvæmda í Njarðvík, Jón B. Olsen, boð- aður í hús eitt í bæjarfélaginu og afhent skjal það sem sést á meðfylgjandi mynd. A skjali þessu er birt úrklippa úr Orð- vari Víkurfrétta og eftirfar- andi texti skrautritaður: ,,Starfsmenn Ahaldahúss Njarðvíkur og annað fegrunar- átaksfólk. - Mjór er mikils vís- ir. - Til hamingju og hafið þökk fyrir. ,, Gróður"-sæll og stoltur Njarðvíkingur. “ Þetta uppátæki Njarðvík- ingsins mun örugglega hafa haft tilætlaðan árangur, enda eiga þeir sem unnið hafa í sum- ar að fegrun bæjarins það skil- ið að fá þakkir fyrir. Fimmtudagur 28 juli 1 orðvar Njarðvík breyttist úr ljótum andarunga í fallegan svan „llragð er að þá barnið I finnur", tcgircinhterssiaðiar. I Siðustu helgur hefur brugðið I s»o sið, þegar Qölskyldan fer i hina hcfðbundnu sunnudagt- ökuferð um nágrennið. að I bömin hafa sagt cinum rómi: I „Við tkulum fara inn i Njarð- I vlk o£ sjá hvað hefur brrvtt i I vikunni". W ýmislest »é enn I ófert i fegrunarmilum Njarð- 1 vikinga. þá hefur lurrinn þeirra bresvt úr Ijóta andar- unganum i svan á nokkrum vikum. Þar eru greimlcguslu merkin um hvað hcgl er að i E«ra. ef hugur fylgir máli. ■v aumri ftyrwMátáífólí. ~ IKjor cx rmláU vífíx. ^ 3aX (jammgju og fyafið jjðJtkjyrix: „(pvófav~s<xCÍ ofl Mwr fijoxövúíimr. —HAGKAUP- Óskum að ráða starfs- fólk á kassa. Upplýsingar gefa deild- arstjóri eða verslunar- stjóri á opnunartíma. HAGKAUP FITJUM NJARÐVÍK Skjalið, sem Jóni B. Olsen var afhent.

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.