Víkurfréttir - 01.09.1988, Side 17
wmmu*\
Grindvíkingar
þjálfaralausir
Babb kom í bátinn hjá
Grindvíkingum, þegar ný-
ráðinn þjálfari úrvalsdeild-
arliðs þeirra í körfuknatt-
leik, Arthur Babcock, mætti
ekki á tilskyldum tíma. Þeg-
ar forráðamenn UMFG
höfðu samband við kappann
sagðist hann ekki koma ti!
ísl^nds, því eiginkonan hót-
aði honum skilnaði ef hann
færi. Grindvíkingar höfðu
samband við fyrrum þjálfara
sinn, Mark Holmes, þegar í
stað og eru Hkur á því að
hann komi til íslands og taki
við þjálfun UMFG, en þau
mál áttu að skýrast í gær-
kveldi.
Körfuknattleiksnám-
skeiö í Grindavík
Körfuknattleiksdeild
UMFG stendur fyrir körfu-
knattleiksnámskeiði í íþrótt-
ahúsinu í Grindavík dagana
2.-7. september. Námskeið
þessi eru ætluð drengjum og
stúlkum á öllum aldri.
Fyrra námskeiðið byrjar
2. september kl. 13:00 og þá
mæta krakkar 12 ára og
yngri. Kl. 15:30 taka krakk-
ar 13 ára og eldri við og verða
að til kl. 18. Leiðbeinendur
eru engir aðrir en þeir Dick
Ross, fyrrum þjálfari
UMFG, og Jim Dooley, sem
þjálfað hefur bæði ÍR og
landsliðið með góðum
árangri. Skráning í nám-
skeiðin fer fram í íþróttahús-
inu í Grindavík kl. 15-18 í
dag, 1. september. Einnig er
tekið við þátttökutilkynn-
ingum í síma 68249.
Geir með heimsmet
Geir Sverrisson, fatlað-
ur sundmaður úr Keflavík,
setti heimsmet í 200 metra
bringusundi fatlaðra á
Opna hollenska meistara-
mótinu í sundi fyrir fatl-
aða, sem fram fór í Arn-
heim í Hollandi um helg-
ina. Á mótinu voru sett
tvö heimsmet af íslending-
um og 23 Islandsmet.
Geir synti 200 metra
bringusund á 3:03,55 mín-
útum.
Jafnt hjá UMFN
og Reyni
Njarðvíkingar gerðu
jafntefli við Aftureldingu
frá Mosfellsbæ um helgina
í leik liðanna, sem fram fór
í Mosfellsbæ. Leikurinn
var jafn framan af og Þór
Guðbjartsson var fyrri til
að skora fyrir Njarðvík-
inga í byrjun leiksins en
Aftureldingu tókst að jafna
áður en leiktíminn var úti.
Reynismenn gerðu jafn-
tefli gegn Leikni um helg-
ina en leikur liðanna fór
fram í Breiðholti í Reykja-
vík.
Leiknir var fyrri til að
skora í leiknum en Reynis-
menn jöfnuðu úr víta-
spyrnu, sem Sigurjón
Sveinsson nýtti af öryggi.
Knattspyrna:
Old boys leika á Sand-
gerðisvelji á sunnudaginn
kl. 14. - Úrslit: ÍBK-Þróttur.
1. september 1988 17
Fyrirtækjamót
hjá UMFN
Knattspyrnudeild UMFN
heldur sína árlegu fyrirtækja-
keppni í utanhússknattspyrnu
laugardaginn 10. og sunnu-
daginn 11. september n.k. á
grasvellinum í Njarðvík.
Keppt verður þvert á venju-
legan knattspyrnuvöll og fara
tveir leikir fram í einu. í hverju
liði eru sjö leikmenn inná, þ.e.
sex útileikmenn og einn mark-
vörður.
Fyrirtækjamót UMFN hefur
verið haldið í sex ár við miklar
vinsældir. Þátttöku þarf að til-
kynna til Oddgeirs í síma
16200/13690, Þórðar í síma
13266 eða Gunnars í síma
13462 fyrir þriðjudaginn 6.
september n.k. Þátttökugjald
verður kr. 800 á lið. í boði eru
veglegir verðlaunagripir.
Karen góð
Karen Sævarsdóttir,
landsliðsmaður í golfi, stóð
sig vel á alþjóðlegu golfmóti í
Belgíu í síðustu viku. Hún
lék þar ásamt 3 öðrum kylf-
ingum frá íslandi. Karen lék
36 holurnar á 164 höggum
og lenti í 19. sæti í höggleikn-
um af 50 þátttakendum.
Hún komst í 32 manna úr-
slit, þar sem leikin var holu-
keppni en tapaði í fyrstu um-
ferð. Karen hefur verið valin,
ásamt þeim Sigurði Sigurðs-
syni og Hilmari Björgvins-
syni, til að keppa fyrir ís-
lands hönd á Eisenhower-
golfmótinu í Svíþjóð nú í
haust. Það er óopinbert
heimsmeistaramót áhuga-
manna í golfi. Karlasveitin
er skipuð 4 kylfingum en
kvennasveitin þremur.
Sveitir Golfklúbbs Suður-
nesja keppa um næstu helgi í
sveitakeppni golfsambands-
ins í Vestmannaeyjum og á
Húsavík. Karlarnir leika í
Eyjum og eru bæði A- og B-
sveit GS í 1. deild. Konurnar
leika í 2. deild.
Konurnar góð-
ar í Tré-X golfi
Síðasta stigamót sumars-
ins, TRÉ-X mótið, var hald-
ið í Leirunni á þriðjudag í sl.
viku. Tveir af fremstu kven-
kylfingum klúbbsins, þær
Sigurbjörg Gunnarsdóttir
og Gerða Halldórsdóttir,
komu á óvart og skutu karl-
peningnum ref fyrir rass og
voru í tveimur efstu sætun-
um með forgjöf. Sigurbjörg
lék sitt besta golf frá upphafi
og kom inn á 89 höggum eða
64 höggum nettó og sigraði
með forgjöf. Gerða varð
önnur á 67 höggum og í 3ja
sæti kom Friðjón Þorleifs-
son á 68 höggum.
Björn Víkingur Skúlason
lék best án forgjafar, kom
inn á 78 höggum, höggi
betur en landsliðseinvaldur-
inn, Jóhann Benediktsson,
sem varð annar á 79. Islands-
meistarinn varð í 3.-4. sæti
ásamt Val Ketilssyni á 80
höggum. Valur hlaut einnig
aukaverðlaun fyrir að vera
næstur holu á 3. flöt, 3,41 m
frá stöng. Jóhann Benedikts-
son var næstur holu á 16.
flöt, 1,10 m frá. Trésmiðja
Þorvaldar Olafssonar gaf
vegleg verðlaun í mótið.
3ja silfrið á 6 árum
Ekki tókst Keflvíkingum
hið ótrúlega, að sigra í Mjólk-
urbikarkeppninni í knatt-
spyrnu, þrátt fyrir góðan vilja.
Þeir töpuðu fyrir Valsmönn-
um í lélegum leik á Laugar-
dalsvelli á lugardaginn með
engu marki gegn einu.
Vendipunkturinn í leiknum
varð í lok fyrri hálfleiks, þegar
Ragnar Margeirsson meiddist
og varð að fara af leikvelli.
Hann hafði verið besti maður
IBK og skapað usla í vörn
Vals með hraða sínum og ógn-
un. Þessi meiðsli Ragnars urðu
m.a. til þess að hann missti af
landsleik við Rússa í gær. En
hvað um það, nú þurfa Kefl-
víkingar að einbeita sér að því
að halda 1. deildarsæti sínu og
vonandi verður Ragnar með í
lokaslagnum.
Meðfylgjandi svipmyndir úr
bikarleiknum tók Hilmar B.
Bárðarson, ljósmyndari Vík-
urfrétta.
Gísli Heiðars varði víti gegn UBK
Víðismenn sitja sem fastast í
3ja sæti annarar deildar eftir
að hafa sigrað Blikana úr
Kópavogi 2:0 í leik liðanna,
sem fram fór sl. föstudags-
kvöld. Möguleikar Víðis-
manna á að endurheimta sæti
sitt í 1. deild eru nánast úr
sögunni, en þetta kemur allt
saman næst.
Gott jafnvægi var á milli lið-
anna í fyrri hálfleik en Blik-
arnir áttu hættulegt skot að
marki Víðismanna strax á
þriðju mínútu leiksins sem
Gísli Heiðarsson náði að
skutla sér fyrir.
Fyrra mark Víðismanna
gerði Heimir Karlsson eftir
góða fyrirgjöf frá Vilberg Þor-
valdssyni. Annað mark Víðis-
manna gerði Vilberg Þorvalds-
son, eftir að hafa skokkað með
boltann inn fyrir vörn Blika og
vippað boltanum í netið.
Víðismenn komust vel frá
leiknum og miðað við þann
leik sem þeir léku ættu þeir
frekar að vera í toppbarátt-
unni heldur en að verma 3.
sætið og komast ekkert ofar.
Gísli Heiðarsson átti góðan
leik í markinu og varði m.a.
vítaspyrnu, sem Hlynur Jó-
hannsson var valdur að, á
glæsilegan hátt.
Verðlaunahafar í Tré-X golfmótinu, ásamt Þorvaldi Ólafssyni og Sigríði Kjartansdóttur.