Víkurfréttir - 01.09.1988, Blaðsíða 19
Sláttutíð stendur enn
Menn eru að slá tún fram í ágústlok, í fyrsta skipti, ef marka má þessa mynd sem ljósmyndari blaðsins,
Hilmar Bragi Bárðarson, tók á Garðskaga um síðustu helgi. Hvort heyið verðurnýtt handa hrossum
vitum við ekki en annað vitum við, að túnið sem slegið var er sparkvöllur til æfinga hjá knattspyrnufél-
aginu þarna suður í Garði.
•»
Grasi gróin hraðbrautin
Fegrunarframkvæmdir i Keflavík, Njarðvík og nú síðast í Grindavík hafa verið all nokrar, öllum þess-
um bæjarfélögum til sóma. M.a. hefur svæði það, sem hraðbraut átti áður að liggja um, ofan Heiðar-
byggðar í Keflavík, verið ræktað upp og þar er nú komið hið fegursta svæði. Sést þetta best á meðfyIgj-
andi mynd. Ljósm.: epj.
Fimmtudagur 1. september 1988 19
Diann Babacci var að sjálfsögðu í íslenska þjóðbúningnum á hátíðinni.
Rjómaterta og pönnukökur á
sumarhátíð í tóbaksbænum
Rjómaterta og pönnukökur
með rjóma að alíslenskum sið
þóttu ljúffengar á sumarhátíð
sem haldin var í tóbaksbænum
Winston Salem í Norður-
Karólínu í Bandaríkjunum. Is-
lensk stúlka, Diann Babacci,
fædd og uppalin í Njarðvíkum,
var þá fulltrúi fyrir ísland, þar
sem kynntur var matur
margra þjóðarbrota og landa.
Mátti velja á milli að koma
með einn rétt eða „með kaff-
inu“ og það ákvað Diann að
gera. Hún útbjó rjómatertu og
pönnukökur með sultu og
rjóma og bauð gestunum á há-
tíðinni við mikla hrifningu.
Diann er dóttir Öldu Kristj-
ánsdóttur frá Sólbakka í
Njarðvík, sem flutti til Banda-
ríkjanna fyrir um 20 árum síð-
an. Þess má til gamans geta að
á heimilum þeirra mæðga er ís-
lenskan tungumál númer eitt,
þrátt fyrir að það séu 20 ár síð-
an þær fluttu frá íslandi.
Meðfylgjandi myndir voru
teknar af Diann og íslensku
þjóðarréttunum í „Kringlu"
bæjarins, þar sem sumarhátíð-
in var haldin.
Hér má sjá íslcnsku þjóðarrcttina tilbúna á borði fyrir bandariska hátíðar-
gesti; rjómatcrtu mcð íslcnskum fánum og pönnukökur ntcð öllu tilheyr-
andi. Islcnsku fánarnir prýða borðið.
Smáauglýsingar
Félagsmálastofnun - íbúð
Félagsmálastofnun Kefla-
víkur óskar eftir íbúð á leigu
fyrir einstæða, reglusama
móður með eitt barn. Upp-
lýsingar á Félagsmálastofn-
un í síma 11555.
Til sölu
Ritvél, hnakkurogbeysli. A
sama stað óskast ísskápur.
Uppl. í síma 14851.
Opið hús
Bahá’iar í Keflavík og
Njarðvík verða reglulega
með opið hús á mánudags-
kvöldum kl. 20:30 að Tún-
götu 11 í Keflavík. Þar sem
sjónarmið Bahá’i trúarinnar
til ýmissa málefna verður
kynnt. Andlegt svæðisráð
Bahá’ia.
Til sölu
ftskabúr, 4501, ca. 25.000,
bambussóft á 4.500, bamb-
usstóll á 2.500, barnabað-
borðá 1.500ogburðarrúm á
3.000. Uppl. í síma 13751.
Fermingarafmæli
Argangur ’69 í Njarðvík
heldur upp á 5 ára ferming-
arafmæli föstudaginn 2.
september kl. 19.00 á Glóð-
inni. Allir að mæta.
Til sölu
Pioneer magnari, 24 banda
equalizer og Akai segulband
og Bjarttone 12 strengja gít-
ar. Selst ódýrt. Uppl. ísíma
12297 (Jonni) eftir kl, 21.00.
Ibúð til leigu
Nýleg 3ja herb. íbúð til leigu
í Keflavík. Laus strax. Uppl.
í síma á vinnatíma 12445 og
eftir kl. 20.00 91-621448.
Herbergi til leigu
Til leigu er herb. með hrein-
lætisaðstöðu og sér inn-
gangi. Uppl. í síma 14472.
Til leigu
60 m2 húsnæði í Grindavík,
sem má notast undir
geymslu eða hesthús. Uppl. í
síma 68241 á kvöldin.
Leikgrind óskast
Oska eftir að kaupa vel með
farna ameríska leikgrind. Á
sama stað er til sölu KPS
eldavél, gul, tveggja ofna, og
Sinclair ZX spectrum plus
tölva. Upplýsingar í síma
13728.
Oska eftir íbúð
2ja, 3ja herb. íbúð óskast til
leigu í Keflavík eða Njarð-
vík. Uppl. ísíma 12227 milli
9.00 og 18.00 og 91-83495
eftir kl. 19.00.
Tilboðs- og
umsóknareyðublöð
Þeim, sem svara auglýsing-
um er birtast í Víkurfréttum,
er bent á að á afgreiðslu
blaðsins liggja frammi eyðu-
blöð, bæði fyrir atvinnuum-
sóknir og til tilboðsgerðar.
Eyðublöð þessi eru ókeypis
fyrir þá sem eru að svara
auglýsingum er birst hafa í
blaðinu.
Ömmur takið eftir
2 drengir, 5 og 1 árs, óska
eftir konu sem vill koma
heim og passa sig 2-3 daga í
viku. Uppl. í síma 11079.
Dagmamma
Tekaðmérbörn ípössun. Er
með leyfi. Er í Ytri-Njarðvík.
Uppl. ísíma 13986 - Snædís.
Bílskúr til sölu
með rafmagni og hita.
Nánari uppl. í síma 12319.
Atvinna óskast
Ungur fjölskyldumaðurósk-
ar eftir atvinnu oghúsnæði,
hefur meirapróf. Uppl. í
síma 95-1780eftir kl. 19.00á
kvöldin.
Isskápur
Til sölu ísskápur m/ frysti-
hólfí, 6 mánaða. Uppl. í síma
13998. I sama númeri hvítur
brúðarkjóll m/ slöri nr. 11-
12.
Börnin og við
Áhugafélagið minnir á hinn
mánaðarlega rabbfund í
anddyri heilsugæslustöðvar-
innar í Keflavík kl. 9.00
mánudaginn 5. september.
Allir velkomnir.
OPIÐ
10-22
alla daga
vikunnar
BLOM OG
GJAFAVÖRUR
VIÐ ÖLL TÆKIFÆRI
HAUST-
LAUKARNIR
KOMA VM HELGINA
Fitjum - Njarðvík
Sími 16188