Víkurfréttir - 18.10.1990, Qupperneq 1
STÆRSTA FRETTA - OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ A SUÐURNESJUM
Fimmtudagur 18. október 1990
41. tölublað 11. árgangur
Sandgerði
með
bæjarréttindi
í byrjun
desember
Hreppsnefnd Miðneshrepps samþykkti samhljóða á
hreppsnefndarfundi sínum að óska eftir samþ.vkki fé-
lagsmálaráðuneytisins á reglugerðum fyrir kaupstaðar-
réttindum fyrir Sandgerði. Var þetta seinni umræða um
málið og er stefnt að því að Sandgerði verði kaupstaður 3.
desember n.k.
Nefnd þriggja manna hefur unnið að undirbúningi
þessa máls af hálfu hreppsnefndar og sitja í henni Reynir
Sveinsson, Pétur Brynjarsson og Stefán Jón Bjarnason
sveitarstjóri.
Hreppsfélög, sem ná rúmlega 1000 íbúm og hafa haft þá
íbúatölu um nokkurt skeið, geta sótt um að fá réttindi sem
bær eða kaupstaður. íbúar Miðneshrepps hafa verið um
1100 og því var talið rétt að breyta hreppnum í bæ. Tvær
umræður þarf að hafa um málið í hreppsnefndinni áður en
málið er sent félagsmálsráðuneytinu til staðfestingar.
Seinni umræðunni í hreppsnefnd Miðneshrepps lauk á
þriðjudagskvöldið og var hreppsnefnd sammála um málið.
Það hefur því verið sent félagsmálaráðuneytinu og er nú
beðið staðfestingar þess á málinu. Því ætti Sandgerði að
verða bær 3. desember.
Ekki orðið var við
þrýsting frá atvinnulífinu
„Það hefur ekki verið skoðuð sérstaklega á hvern hátt sknlinn
geti tekið þátt í málum varðandi nýtt álver", sagði Hjálmar
Arnasun, skólameistari Fjölbrautaskóla Suðurnesja, í samtali við
blaðamann Víkurfrétta.
Að sögn Hjálmars er menntun einn af þeim möguleikum sem
skoðaðir eru þar sem nýtt álver er reist. Kröfur um menntun
starfsmanna aukast og ef fagmennska sé ekki þá missi menn af
lestinni. „Við verðum að gera okkur Ijóst að málmiðnaður í
Hafnarfirði hefur forskot á okkur“, sagði Hjálmar.
Taldi Hjálmar að menntunarmálin verði að skoða og séu
starfsmenn FS farnir að kanna möguleika Fjölbrautaskólans í
þeim málum. „En við höfum ekki orðið varir við neinn þrýsting
frá atvinnulífinu". Benti skólameistari á að ef ekki verði farið að
kanna þessi mál og fulltrúar atvinnulífsins geri kröfur um aukna
menntun starfsmanna, þá verði Suðurnes á eftir Hafnarfirði í
keppninni um fagfólk.
Ók á mann og stakk af
Ekið var á gangandi vegfaranda á leið yfir gangbraut á Hafn-
argötu á laugardagskvöldið.
Það var kl. 23.40 sem lögreglunni barst tilkynning um at-
burðinn. Bifreið hafði stoppað fyrir hinum gangandi vegfaranda
til að hleypa honum yfir gangbraut. Annar bíll kom á eftir þeim
er stoppaði og tók framúr með þeim afleiðingum að hann ók á
manninn sem gekk yfir gangbrautina.
Hinn gangandi kastaðist með bílnum, sem yfirgaf slysstað án
þess að gæta að meiðslum þess sem fyrir bílnum varð.
Sá sem varð fyrir bílnum kvartaði undan meiðslum í hné og
fæti og var fiuttur undir læknishendur til skoðunar. Enn hefur
ekki verið haft upp á þeim er ók á manninn.
Fagranes logaði glatt við brimvarnargarðinn í Sandgerði.
Ljósm.: hbb.
Fagranesiö varð eldi
að bráð
Fagranes GK-171 varð eldi
að bráð að morgni sl.
fimmtudags. Skemmdist
báturinn mikið og ljóst að hann
fer ekki fleiri sjóferðir á næstu
vikum og mánuðum. Það er
heldur ekki ætlunin, þar sem
eldurinn var viljandi kveiktur í
bátnum.
Fagranes GK var kvótalaus,
en síðasti eigandi bátsins er
Landsbanki Islands. Fagranesið
þurfti að úrelda þegar Sand-
gerðingur GK-280 var keyptur
til Sandgerðis, í stað Sand-
gerðings sem fyrir var, en hann
var minni en núverandi nafni
hans, sem reyndar er á leið
norður í land í skiptum fyrir
annað og minna skip.
Vilja einstefnu
„niður“ Hafnargötu
Tæplega þrjátíu eigendur
og forráðamenn verslana
og þjónustufyrirtækja í
Keflavík efndu til fundar í húsi
Verslunarmannafélagsins á
miðvikudag í síðustu viku.
Mörg mál er varða verslun
og þjónustu voru rædd á fund-
inum, m.a. umferðarmál í mið-
bænum og um Hafnargötu. Var
samþykkt ályktun á fundinum
þar sem fram kemur að reynsla
við einstefnu eftir Hafnargötu
frá norðri til suðurs sl. 2 ár hafi
ekki reynst vel, og lagt til að
einstefna í desember verði
„niður“ Hafnargötu, þ.e. frá
suðri til norðurs. Skreytingamál
um jól voru rædd og ákveðið að
reyna að gera átak í þeim
málum í samvinnu við bæj-
aryfirvöld. Þá var samþykkt að
fylgja opnunartíma verslana á
höfuðborgarsvæðinu í desemb-
er.
Ýmis fleiri mál voru rædd
m.a. auglýsingar, „verslum
heima“ og sameiginleg verk-
efni.
Verslunareigendur samþykktu að leggja til við yfirvöld að hafa
einstefnu niður Hafnargötu í desember. Ljósm.: pket.